Dagblaðið - 23.09.1978, Side 15
Pétur og lí/fur-
inn komnir
út á ísienzkri
hljómplötu
Kynning
hjáPolla
Hljóðfæraverzlanir hér i borginni
hafa tekið upp þá nýbreytni aðefna til
hljóðfærakynninga og „jamsession" í
húsakynnum sínum og hafa slikar
samkomur verið fjölsóttar.
Um síðustu helgi efndi hljóðfæra-
verzlun Paul Bernburg, eða „Polli”
ÁSGEIR
! TÓMASSON
----------
eins og verzlunin heitir á venjulegu
máli hljómlistarmanna, til slikrar
kynningar. Verzlunin er nú flutt á
hornið á Rauðarárstignum af Vita-
stígnum þar sem hún hefur verið til
húsa i áraraðir. Kynnt var ný gerð or-
gela frá Yamaha, en verzlunin hefur á
undanförnum árum flutt inn mikið af
orgelum til „heimilisnota” og er starf-
ræktur skóli I tengslum við verzlunina.
Auk þess gripu menn i þau hljóðfæri
sem tiltæk voru. -ÁT-
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1978.
✓ " ........
Þursaflokkurinn á útihljómleikum í Reykjavfk. Hljómsveitin verdur upptekin við ýmiss konar verkefni allt fram til áramóta.
DB-mynd Ari
Þursaflokksplatan er
væntanleg á næstunni
Hljómplatan um Pétur og úlfinn er
komin út í íslenzkri útgáfu. Það er
Bessi Bjarnason leikari sem fer með
hlutverk sögumannsins-að þessu sinni.
en Philadelphia hljómsveitin sér um
tónana. Stjórnandi er Eugene
Ormandy.
Það er hljómplötuútgáfan Steinar
hf. sem gefur plötuna út. Með henni
hefst nýr útgáfuflokkur hjá fyrirtæk-
inu. sem ásamt því að leggja áherzlu á
að bjóða uppá vandaðar barnaplötur á
að vera á eins lágu verði og frekast er
mögulegt, að því er segir i fréttatil-
kynningu frá útgáfunni. Þegar er búið
að ákveða um útgáfu á annarri slíkri
barnaplötu á þessu ári — um grallar-
ann Emil í Kattholti.
Tónverkið Pétur og úlfurinn er eftir
sovézka tónskáldið Sergei Prokofieff.
Það hefur lengi notið mikilla vinsælda
um allan heim. Hér á landi hefur það
bæði verið flutt I útvarpi og á hljóm-
leikum. Erlenda upptakan. sem notazt
er við á nýju plötunni er keypt hjá
CBS fyrirtækinu. Bessi Bjarnason las
textann inn i Hljóðrita i Hafnarfirði
og sá Karl Sighvatsson um samskeyt-
inguna og fleira. Vandað umslag er
utan um plötuna og sá Pétur Halldórs-
son myndlistarmaður um útlitið.
-ÁT-
Lesandi Dagblaðsins spyr:
Guðmundur Haukur kynnti mönnum
nýja gerð orgela frá Yamaha.
DB-mynd RTHS
Hljómsveitin Move kemur
ekki saman ánýá næstunni
Þrálátum orðrómi um að gamla
hljómsveitin Move hygðist koma
saman á ný hefur nú verið vísað til
föðurhúsanna. Talið er að þúsund-
þjalasmiðurinn Roy Wood hygðist
smala hljómsveitinni saman. Helzta
skýringin á þessum misskilningi kann
að vera sú, að hann er þessa dagana að
vinna að LP plötu með gömlum
Movemanni, Carl Wayne.
Roy Wood, sem hér áður fyrr var
talinn ein helzta von rokktónlist-
arinnar, hefur lítt látið á sér bera á
undanförnum árum. Hann stofnaði
hljómsveitirnar Wizzard og Wizzo
Band, en hvorug náði teljandi frægð.
Því er um kennt að skuggi Electric
Light Orchestra, sem hann skapaði og
stofnaði, hafi hvílt helzt til þungt á
honum. Hann hefur þvi að mestu
haldið sig við hljómplötugerð og lauk
nýverið við tvær slíkar. önnur er
sólóplata vinkonu hans, Annie Haslam,
sem syngur með hljómsveitinni
Renaissance. Sú ber nafnið Annie in
Wonderland.
Þá hefur Roy Wood nýverið lokið
við nýja plötu með hljómsveitinni
Wizzo Band enduruppstokkaðri. Lag
af þeirri plötu er væntanlegt í búðir á
lítiili plötu í október.
■ ÚR MELODY MAKER
Hún berað öllum líkindum nafniö
„Hinn íslenzki þursaflokkur"
HVARER
JAKOB?
Vinnslu á plötu Þursaflokksins er
lokið hér heima og er hún nú í pressun
i Bandarikjunum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá hljómplötudeild Fálkans,
sem gefur plötuna út, er hún væntan-
leg á markað í byrjun október. Tíundi
dagur þess mánaðar þykir líklegur út-
gáfudagur. Nafn Þursaflokksplötunn-
ar er ekki endanlega ákveðið, en Hinn
íslenzki þursaflokkur kemur sterklega
til greina.
Þursaflokkurinn er þessa dagana
staddur á Snæfellsnesi við æfingar.
Áformað er að flokkurinn fari í hring-
ferð um landið, er platan kemur út. og
fylgi útgáfunni eftir með hljómleika-
haldi.
Bessi Bjarnason er sögumaður I verkinu Pétur og úlfurinn. Teikningin er eftir
Pétur Halldórsson.
„Við höfum að undanförnu rætt við
skólastjóra víðs vegar um land um
möguleika á að efna til hljómleika i
húsakynnum þeirra,” sagði Björn
Valdimarsson hjá Fálkanum í samtali
við Dagblaðið. „Undirtektir hafa
hvarvetna verið góðar og skóla-
stjóramir sýnt mikinn áhuga á að fá
hljómsveitina I heimsókn. Enn hafa
engir staðir verið bókaðir. en búast má
við að nær verkefni verði fyurir flokk-
inn til áramóta. Þá eru reyndar með-
taldar ballettsýningar í Þjóðleikhús-
inu, sem Þursaflokkurinn tekur þátt
í,” sagði Björn
Á plötu Þursaflokksins verður a<
finna margvislega tónlist frá ýmsun
tímum, — bæði ævagömul þjóðlög oj
frumsamda tónlist. Hljómsveitin hefu
nú verið starfandi um nokkurra mán
aða skeið. Í fyrravetur hélt húr
nokkra hljómleika. eingöngu sunnan
lands. Nú fá aðrir landsmenn brátt at
sjá og heyra hvað Þursaflokkurinr
hefur upp á að bjóða. -ÁT
Poppsíðu Dagblaðsins hefur borizt
bréf frá K.T. á Akureyri með fyrir-
spurn um hvað Jakob Magnússon
píanóleikari sé að gera þessa dagana.
Bréfið hljóðar svo:
„Langt er nú liðið siðan nokkuð
hefur verið ritað um Jakob Magnús-
son hljómborðsleikara, einn efnileg-
asta tónlistarmann okkar íslendinga af
yngri kynslóðinni. Mér þætti ákaflega
vænt um, ef Dagblaðið gæti upplýst
mig um hvað hann er að fást við jressa
dagana og hvort hann fæst yfirleitt við
hljóðfæraleik ennþá."
SVAR:
Jakoþ Magnússson er og hefur
verið búsettur í Los Angeles í á annað
ár. Hann er aldeilis ekki hættur að fást
við hljóðfæraleik og I byrjun þessa
mánaðar greindi bandariska
músíktímaritið Billboard frá þvi að
hann hafi skrifað undir út-
gáfusamning hjá Warner Brothers.
Þar var Jakob reyndar sagður
hollenzkur en við vitum betur!
1 Billboardgreininni, þar sem
minnzt er á Jakob, er verið að skýra
frá velgengni nýstofnaðrar jazzdeildar
innan Warner Bros síðustu mánuði.
Tveir aðilar voru sérstaklega nefndir,
sem höfðu nýlega verið ráðnir til
fyrirtækisins. Jakob var annar þeirra.
-ÁT-