Dagblaðið - 25.09.1978, Side 14
14
DAGBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1978.
IsleofMan:
Þeir trúa meira á
ferðamenn en skatta
FEGURSTI GflRÐUR-
INN FANNST EKKI
ísfirðingar kusu engan garð fegurstan sætið. Var því ákveðið að velja nokkra
hjá sér að þessu sinni, nefnd á vegum garða sem við greina komu og fjórir
Garðyrkjufélags ísafjarðar lauk störfum garðar fengu síðan viðurkenningu.
án þess að geta bent á neinn garð í 1.
Fjölmennt og
góðmennt á
Hótel Húsavík
„Við trúum ekki á það fyrirbæri,
skattana,” sagði fulltrúi þeirra eyjabú-
anna á Isle og Man á dögunum, þegar
hann skrapp til íslands til að kynna
hérlendum ferðamöguleika til þessarar
eyjar, sem byggð er af fólki, sem margt
hvert virðist af sama bergi brotið og
við.
Og hver er svo þessi Man-eyja?
kunna menn að spyrja. Eflaust vita
flestir að hún er einhvers staðar innan
um brezku eyjarnar. Nánar til tekið er
hún milli trlands og Englands. Eyjan
hefur á góðri islénzku verið kölluð
Mön. Þar búa 50 þús. manns, en á
sumrin margfaldast ibúafjöldinn með
tilkomu ferðamannanna, sem flykkj-
ast þangað.
Á eynni eiga margir efnamenn frá
Evrópu og Ameríku lögheimili og
greiða skatta, sem er sniðug ráðstöfun
þar sem Manarbúar trúa ekki á mikla
skatta. Þeir setja hæstu mörk skatta
við 20% og eru að lækka þessa dagana
niðurí 19%!
Verðlag allt á Mön er mjög heilbrigt
fyrir ferðafólkið, hvort heldur eru'
hótel, veitingahús, bílaleigur eða ann -
að. Þar er margt að sjá, og þá trúlega
ekki síður fyrir tslendinga, því víking-
arnir komu iðulega við á Mön, og
sumir þeirra vildu ekki snúa til baka
frá slíkum sælureit, en ilentust þar.
Mörg nöfn minna mjög á Island,
hæsta fjallið heitir t.d. Snæfell, og
þinghald þeirra Manarbúa heitir Tyn-
wold, eða Þingvöllur. Á næsta sumri
verður þingið 1000 ára gamalt, og
verður þá mikið um dýrðir. Fulltrúar
eyjarskeggja komu hingað fyrir
nokkru og fengu ýmsar nytsamlegar
upplýsingar um hátíðahaldið á 1100
ára afmæli Alþingis.
Ferðaskrifstofumenn kynntu sér á
dögunum aðbúnað allan og verðlag á
Mön og ættu þvi að geta ráðlagt fólki,
ef það ætlar að hitta fyrir þessa
„frændur” vora á írlandshafi.
JBP
„Nýtingin á hótelinu hefur verið með
eindæmum jöfn og góð í sumar,” sagði
Einar Olgeirsson hótelstjóri, þegar Dag-
blaðið ræddi við hann. Einar kvað
marga góða hópa hafa gist hótelið í sum-
ar.
Þar væri m.a. að minnast hóps frá
BBC, sem kvikmyndaði Út í óvissuna,
eftir Desmond Bagley. Voru teknar inni-
myndir í Hótel Húsavík, en i myndinni
mun eitt atriði gerast á Hótel Varðborg
á Akureyri.
Norðurlandaráðstefnur hafa verið tíð-
ar, Seðlabankastjórar, ríkisskattstjórar,
öryggismálafræðingar, Bílgreinasam-
bandið og framleiðendur Sambands-
frystihúsanna, auk ritstjóra erlendis frá,
allir hafa þeir þingað á Húsavík.
Einar kvað hótelið nú gefa góðan af-
slátt og bæklingur með tilboðum um
ferðapakka til Húsavíkur væri kominn
út.
•JBP
Munaður,—eða hvað?
Það er margur lúxusinn, — reyndar
er það umdeilt hvað talizt getur til
munaðarvöru nú til dags. Flest vi[ðist
talið til brýnustu lifsnauðsynja.
Eitt af þvi sem flokkað var með
munaðinum á dögunum, þegar
vörugjald var hækkað á nokkrum
vörutegundum, voru ljósmyndafilmur
og annað slíkt, enda þótt mynda-
vélarnar sjálfar teldust ekki með i þvi
dæmi.
Filmuverð þótti dýrt hér á landi, en
nú keyrir um þverbak. Vonandi haldax
mennþó áfram aðljósmynda og i tilefni
af þvf minnum við á ljósmyndasam-
keppnina okkar, Sumarmynd DB ’78.
Siðustu forvöð til að skila myndum i
keppnina er i lok mánaðarins, þ.e. f
vikulokin.
Myndin sýnir unga konu virða fyrir
sér girnilegan búðarglugga með úrvaii
af Ijósmyndavörum.
CASIO - umboðið
Bankastræti 8 - Sími 27510