Dagblaðið - 25.09.1978, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 197*.
10
ttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Enn eykst
forusta
ðster
— Vann enn sigur í gær
— nú í Landskrona
Öster vann þýðingarmikinn sigur i
AUsvenskan i gær á útivelli. Vann Lands-
krona 2—0 og jók forustu sina i sjð stig.
Fimm umferðir eru eftir og þarf Öster
aðeins þrjú stig úr þeim til að tryggja sér
sænska meistaratitilinn f knattspyrn-
unni.
Að sögn Teits Þórðarsonar i morgun
var leikur Öster i gær heldur slakur.
Vörn og markvörður áttu mjög sterkan
leik og Landskrona tókst ekki að skora
þrátt fyrir betrí tækifærí. Ekkert mark
var skoraö i f.h. en i þeim siðari skoruðu
Peter Nilsson og Per Olaf Bild fyrir Öst-
er. Liðið hefur nú 34 stig. Malmö FF er i
öðru sæti með 27 stig og siðan kemur
Gautaborg með 26 stig. í 2. deild tapaði
Jönköping á heimavelli 1—2 fyrír Hack-
en og verður þar um miðja deild.
Clrslit i Allsvenskan í gæn
í harðri baráttu undir körfunni, Jón Héðinsson, ÍS, og Paul Stewart, ÍR. Þeir Steinn Sveinsson og Dirk Dunbar eru við öUu
búnir. DB-mynd Hörður.
Bandaríkjamenn í aðal-
hlutverkum í Hagaskóla
—f Reykjavíkurmótinu í körf uknattleik—ðll
Reykjavíkurf élögin með Kana, utan Valur—en Rick
Hockenos hvarf af landi án þess að kveðja kóng eða prest
Bandarikjamenn leika nú með öllum
Reykjavlkurfélögunum nema Val — en
Rock Hockenos, Val, hvarf skyndilega
af landi brott án þess að kveðja kóng
eða prest. Bandaríkjamennirnir settu
mjög mark sitt á leiki helgarinnar i
körfunni en Reykjavíkurmótið hófst á
laugardag. Þeir voru ávallt stigahæstir
með féiögum sínum — spil snerist að
verulegu leyti um Bandaríkjamennina og
greinilegt að körfuknattleikurinn verður
góður i vetur, hart barizt og raunar
ómögulegt að spá um úrslit i íslands-
Lið úr 2. deild
sló Bayern út
Bayern Múnchen var mjög óvænt
slegið út I vestur-þýzku bikarkeppninni á
iaugardag. Tapaði á útivelli fyrir Vfl
Osnabrúck, 5—4, liði úr 2. deild. Þetta
var í 2. umferð bikarkeppninnar.
Gerd Múller skoraði þrívegis fyrir
Bayern í leiknum, tvívegis úr vita-
spyrnum, en varnarleikur Bayern var
slakur i leiknum. Lokamínútur leiksins
reyndu leikmenn Bayern að jafna á ör-
væntingarfullan hátt en tókst ekki.
Meira að segja Sepp Maier, mark-
vörður, hljóp úr marki Bayern til að taka
þátt I sókn liðsins. Bayern er i 2. sæti i 1.
deild.
mótinu.
Islandsmeistarar KR fóru vel af staö
— sigruðu i báðum leikjum sínum. Á
laugardag mættu KR-ingar erkifjendum
sinum í gegnum árin, lR — fjölmargir
áhorfendur i Hagaskóla. KR-ingar
sigruðu 71—65. John Hudson skoraði
mest fyrir KR-inga, 27 en fyrir ÍR
skoraði Bandarikjamaðurinn Paul Stew-
art, 24 stig.
Fyrsti leikur Reykjavíkurmótsins var
viðureign Ármanns og Fram — bæði í 1.
deild en öll önnur liö Reykjavíkur, ÍS,
ÍR og KR leika i nýstofnaðri úrvals-
deild. Fram sigraði 91—83 og þar var
bakvörðurinn þeirra — Bandaríkja-
maður að sjálfsögðu — John Johnson
skoraði 55 stig. Stewart Johnson,
Ármanni, skoraði 38 stig. Síðasti
leikurinn á iaugardag var viðureign Vals
og ÍS. Valsmenn urðu i siðustu viku
fyrir miklu áfalli, þegar Rick Hockenos
hvarf af landi brott. En Valsmenn gerðu
sér engu að síður Iítið fyrir og sigruðu
Stúdenta 59—57. Kristján Ágústsson
skoraði mest fyrir Val, 21 stig, en hjá ÍS
skoraði Dirk Dunbar 25 stig.
í gær lék KR við Ármann. KR i úr-
valsdeildinni, Ármann i I. deild — KR
sigraði 90—82. John Hudson, skoraði
30 stig fyrir KR, Stewart Johnson 23
fyrir Ármann. Stúdentar sigruðu ÍR
100—88. Dirk Dunbar skoraði 37 stig
fyrir ÍS, Paul Stewart 46 fyrir ÍR. Loks
áttust við Fram og Valur. 1. deildarlið
Fram sigraði 81—71. Stewart Johnson
skoraði 37 stig fyrir Fram — 92 stig í
tveimur fyrstu leikjum sinum með Fram
en fyrir Val var Torfi Magnússon stiga-
hæsturmeð25stig.
Næstu leikir verða á laugardag, siðan
sunnudag og verður leikin tvöföld
umferð.
Real Madrid
vann
Barcelona
Útslit I 4. umferð I 1.
spönsku f gær urðu þessi:
Espanol-Hercules
Zaragoza-AtL Madríd
Sociadad-Sporting
Vallecano-Celta
Sevilla-Recreativo
Racing-Burgos
Valencia-Bilbao
Salamanca-Las Palmas
Real Madríd-Barcelona
Staða efstu liða er nú þannig:
Real Madríd 4 3 1
Bilbao 4 2 2
LasPalmas 4 3 0
Espanol 4 3 0
deildinni
2-1
4-3
2—0
2—0
6-1
2—2
0—0
1—0
3-1
Landskrona—Öster 0—2
Kalmar—Vesterás 0—1
Elfsborg-Hammarby 2-3
AIK—Norrköping 2—1
Halmstad—Djurgaarden 2—2
Örebro—Gautaborg 1—1
Atvidaberg—Malmö FF 0-3
Enn hefur ekkert verið rætt við Teit
Þórðarson um að hann leiki EM-leikinn
við Austur-Þjóðverja í Halle 4. október
nk. Öster leikur ekki þann dag svo þar
er ekkert til fyrírstöðu en hins vegar
þyrfti Teitur að fá frí i skóla þeim, sem
hann stundar nám I.
Jafntefli
Standard
Anderiecht heldur sinu stríki i 1. deild-
inni I Belgiu. Vann Lierse örugglega i
gær i Brússel 3—0. Standard Liege náði
jafntefli á útivelli og er i miðjum hóp. Úr-
slitin urðu þessi:
Antwerpen-Berchem 0-0
FC Liege-Courtrai 2-0
Lokeren-Charleroi 1-0
aregem-Standard 2-2
Anderlecht-Lierse 3-0
Beerschot-Winterslag 3-0
Waterschei-Beveren 1-0
La Louviere-Molenbeek 4-1
Beríngen-FC Brugge 1-1
Staða efstu liða er nú þannig:
Anderlecht 5 4 0 1 15-6 8
Antwerpen 4 3 11 7-2 7
Waterschei 5 2 3 0 4-1 7
Beerschot 5 3 11 9-2 7
Lierse 5 3 0 2 8-6 6
Beveren 5 2 2 1 10-4 6
Naumur
sigur ítala
á Tyrkjum
italia átti i erfiðleikum með Tyrkland í
vináttu landsleik í knattspyrnu i Feneyj-
um í gær. Sigraði þó 1—0 í slökum leik.
Eina mark leiksins skoraði Graziani á
26. mín. eftir sendingu frá Pulici. í siðari
hálfleiknum voru sex breytingar gerðar á
italska liðinu. Varnarleikur italska liðs-
ins var að venju sterkur, en sóknin mátt-
laus og Uðið sýndi mun slakari leik en á
HMI Argentinu i sumar.
Magdeburg
tapaði
Magdeburg tapaði 3—1 í Leipzig i 1.
deildinni austur-þýzku i knattspyrnunni I
gær. Á miðvikudag leikur Valur við
Magdeburg i síðari leik Uðanna i
Evrópukeppni bikarhafa.
Staða efstu liða:
Dynamo Berlin
Erfurt
Dresden
C.Z.Jena
Magdeburg
sbáru
úngum
dknattleik, 19-17
narksmungegnVal
vetur framundan er ekki mikið, ef þá
nokkuð.
í gær áttust siðan við ÍR og Þróttur.
Og aftur varð 1. deildarlið lR að lúta
i lægra haldi, nú fyrir 2. deildarUði Þrótt-
ar 17—18 rétt eins og gegn Fylki.
Þróttur hafði ávaUt undirtökin, ef frá
eru taldar fyrstu mínútur ieiksins. Þrótt-
ur hafði yfir 9—8 í leikhléi, komst siðan
i 15—11, og 17—13 en lokatölur 18—
17, Þróttií vil.
Síðan áttust við i gær Islandsmeistar-
ar Vals og nýliðar Fylkis. Valur sigraði
22—21, eftir að Fylkir hafði byrjað vel,
komst i 5—2. Valsmenn hins vegar
skoruðu siðan grimmt, komst i 12—7 i
leikhléi. Leikmenn Fylkis neituðu að
láta orðstír Valsmanna vaxa sér i
augum. spiluðu af skynsemi, héldu
knettinum og minnkuðu muninn jafnt
og þétt. Þegar ein mínúta var eftir hafði
Fylkir minnkað forskotið i eitt mark,
2—20, en Gisli Blöndal fann leiðina i
markið með lágskoti, eftir að hafa áður
átt þrjú misheppnuð skot, 22—20,
siðasta orðið átti Einar Einarsson, 22—
21. Einar Einarsson, risinn i liði Fylkis
skoraði mest fyrir lið sitt, 6, Einar
Ágústsson 4 — Bjarni Guðmundsson
skoraði mest fyrir Val, 6 mörk.
Loks áttust við KR og Leiknir. Það
var ávallt gæðamunur á liðunum en
Hafliði Pétursson var snjall hjá Leikni,
KR-ingar réðu ekkert við hann. Hann
skoraði níu af tíu mörkum Leiknis í fyrri
hálfleik, þrátt fyrir að KR-ingar settu
mann til höfuðs honum, þegar á leið.
KR hafði yfir 11 —10 i leikhléi og sigraði
29—18 en maður leiksins var án
vafa Hafliði Pétursson, hann skoraði 10
mörk, Þeir Símon Unndórsson,
Jóhannes Stefánsson og Björn Pétursson
skoruðu hver 6 mörk fyrir KR.
Á þriðjudag fara fram þrír leikir.
Nýliðar 1. deildar, Fylkir mætir bikar-
meisturum Víkings, Valsmenn leika við
Þrótt og KR við Ármann. Það stefnir i
tvisýnt Reykjavikurmót og ljóst að 2.
deildarliðin þrjú, KR, Ármann og
Þróttur geta reynzt hinum skeinuhætt.
Tvö efstu liðin úr hvorum riðli
komast áfram i úrslitaleiki um Reykja-
víkurmeistaratign í ár. Saman eru í A-
riðli, Valur, Víkingur, Fylkir, ÍR og
Þróttur, fjögur 1. deildarlið ásamt
Þrótti. í B-riðli leika saman 1. deildarlið
Fram, ásamt Ármanni. KR og Leikni,
öllum úr2. deild.