Dagblaðið - 25.09.1978, Síða 25
DAGBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. SEPTEMBER 1978.
25
Þessi mynd er sögö einkennandi fyrir Snowdon, þar sem hann setur þau mæðgin i
fallega og rómantiska uppstillingu.
Anna prinsessa og sonurinn Peter á afmælisdegi prinsessunnar.
Anna prinsessa
og sonurinn
Tólf toppstjörnur svara
—Hvað finnst þér mest „sexý” við konur?
Tólf af stærstu stjörnum í Holly-
wood voru spurðar um það á dögun-
um hvað þeim fyndist mest aðlaðandi
og kynæsandi við konur. Eins og við
var að búast svöruðu stjörnurnar mis-
jafnlega en svör þeirra koma hér á
eftir. Táningastjarnan Shaun Cassidy,
sem er virt sjónvarpsstjarna i Banda-
rikjunum, segir eftirfarandi: Mér
finnst kvenmaður sem hefur að bera
náttúrulega fegurð og kemur fram eins
og hún er en ekki með glingur og drasl
utan á sér mest spennandi. Grinleikar-
inn Bob Hope sagði að hann liti aldrei
á neina sérstaka hluti á kvenmanni
heldur tæki hann eftir henni allri og
dæmdi eftir því. Meinar hann þá bæði
útlit og persónuleika. Robert Guill-
ame, sem leikur I amerískri sjón-
varpsseríu, segir að það eina sem hann
dæmi konu eftir sé hvernig mat hún
búi til því matur er það bezta sem
hann fær.
Leikarinn Ted Lange segir um
konur að hann meti þær eftir hegðun
þeirra og persónuleika og hvernig þær
beri klæðnað sinn. En föt finnst mér
ekki gera konu neitt „sexý” nema í
einstökum tilfellum og það er ef hún
hefur rétta framkomu í réttum fötum.
David Doyle, stjarnan úr myndinni
Carlie’s Angels, sem unnið hefur með
þrem af glæsilegustu stúlkum í heimi,
játar að kvenmenn séu duglegir að
taka hann á sálfræðinni. Likami konu
og ákveðin skoðun gerir hana „sexý”
fyrir mig. Söngstjarnan Engilbert
Humperdinck segir að margar konur
séu „sexý” i hans augum. Ég finn yfir
allt útgeislun þeirra og lokkandi fas.
Sumar konur hreyfa sig á ákveðinn
hátt sem gerir það að verkum að þær
verða meira aðlaðandi.
Richard Burton, sem nú skemmtir
sér í þriðja hjónabandinu, svarar:
Hver kona með andlegan mjúkleika og
skemmtilega framkomu, hvaðan sem
hún eraf jörðinni.
Robert Blake segir að hann sé alltaf
að læra eitthvað nýtt hjá konum í
hvert sinn sem hann fer með þeim út.
Mér líkar vel við konur en ég vildi ekki
vera kona sjálfur. Robert Hegyes segir
að augu kvenna og framkoma, bæði
andleg og likamleg, sé það sem geri
konur „sexý” í hans augum. Jimmy
Walker, sem leikur I sjónvarpsþáttum
I Ameríku sem nefnast Good Times,
segir að klæðnaður geti skipt kvenfólk
miklu máli. Mér líkar þegar kvenfólk
er vel klætt, með sítt hár og örlitla
málningu í andlitinu. Lawrence Piess-
mann segir að það sem geri konu
„sexý” sé það sem hún segir. Martin
Mull, frægur leikari í Bandarikjunum,
segir að mikið málað kvenfólk og það
sem borgar fyrir sig sjálft á veitinga-
húsum sé mest „sexý” fyrir hann.
Misjafn er smekkur manna, það sjáum
við á þessum svörum, og auðvitað er
það sem betur fer fyrir kvenþjóðina.
Nú vitum við sem sagt hvað þessir
herramenn hafa að segja um kvenfólk.
Reyndar getur eins verið að þeir hafi
allir verið að grínast og ekkert meint
með þessum svörum. En við skulum
vona samt sem áður að eitthvað sé til i
svörum þeirra því að öllu gamni fylgir
nokkur alvara.
Ted Lange
Martin Mull
Robert Blake
Jarlinn af Snowdon, Tony Arm-
strong Jones, er ekki lokaður úti frá
góðum félagsskap, þó svo að hann hafi
staðið í skilnaði við Margréti prins-
essu. Það sýna þessar myndir sem
Snowdon tók fyrir stuttu fyrir utan
heimili Önnu prinsessu og Mark
Philips. Snowdon hefur gert sér það til
gamans síðan hann skildi, að taka
myndir og þar á meðal af kóngafjöl-
skyldunni. Myndirnar af þeim önnu,
Mark Philips og syninum Peter, (en
hann hefur ekki neinn titil), voru
teknar á afmælisdegi prinsessunnar,
er hún varð 28 ára. Sonurinn Peter
Philips verður ársgamall þann 15.
nóvember. í staðinn fyrir titil þann,
sem Mark Phiíipsvillekki nota, munu
hann og sonur hans einungis nota
herra.
ENDURSKIIMS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEG
FYRIR ALLA
UMFERÐARRÁÐ
alS stij^a á rétUi hnappana
- enda aoSvelt meí olivelli m
skólaritvélinni.
Skrifstofutækni hf.
Tryggvagötu 121 Reykjavík Simi 28511