Dagblaðið - 26.09.1978, Qupperneq 1
ÞETTA ERU.BREKHJ
m m *
BOKIN’
10-12 þúsund greiða
nýja hátekjuskattinn
„Breiðu bökin” fá brátt tilkynningar
um nýju skattana sína. DB hefur
fengið upplýsin^ar um, að 10—12 þús-
und manns munu greiða nýja 6% há-
tekjuskattinn. Þetta verða nokkru
faerri en greiða skyldusparnað i ár.
Skatturinn miðast við hjón, sem
hafa yfir 3,7 milljónir í tekjur eftir frá-
drátt, einstaklinga með yfir 2,8 millj-
ónir eftir frádrátt. Veittur er 220 þús-
und króna frádráttur fyrir hvert bam.
Hátekjuskatturinn á að gefa ríkinu
380 milljónir. Þar af er gert ráð fyrir,
að 170 milljónir innheimtist í ár.
Þá er 6% skattur á hagnað og af-
skriftir félaga. Hann á að gefa 1500
milljónir. Þar af er gert ráð fyrir, að
600 milljónir innheimtist í ár. Ekki er
enn séð, hve mörg félög lenda í skatt-
inum.
Eignarskattsaukinn á að gefa rikinu
1380 milljónir. Hann er 50% viðbót
við eignarskatt einstaklinga og 100%
viðbót við eignarskatt félaga. Gera má
ráð fyrir, að þennan skatt greiði allt að
15 þúsund einstaklingar og 3500 félög.
600 milljónir af eignarskattsaukanum
koma líklega inn í ár.
Um þessa skatta gildir, að þeir falla
niður, eigi þeir að verða undir 4000
krónum.
Gjaldagar eru 1. nóvember, 1.
desember, 1. janúar og 1. febrúar.
-HH
4. ÁRG. - ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978 - 212. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. — AÐALSÍMl 27022.
iriálst,
áháð
dagmað
BSRBímálvið
fjármálaráðuneytið:
Sumarfólk
hlunnfarið
BSRB undirbýr nú prófmál vegna
framkomu fjármálaráðuneytisins í garð
allnokkurra manna, sem ráðnir voru til
sumarstarfa hjá rikinu, en fengu svo
ekki greidd umsamin laun, sem skýrt
voru greind í undirrituðum ráðningar-
samningum.
Stjórn BSRB bendir á að þetta fólk
hafi verið ráðið á fölskum forsendum.
Það faer ekki að vita um hina ólögmætu
fyrirætlan vinnuveitanda síns fyrr en
komið er fram á mitt sumar og of seint
að fara i önnur störf.
Ráðuneytið viðurkennir ekki að
BSRB fari með samningsaðild fyrir sum-
arafleysingafólk.
Stjórn BSRB bendir hins vegar á að
verkalýðsfélög sinna málefnum sumar-
afleysingafólks og gæta hagsmuna þess.
-gjs.
* * |
m . -fn'f-l -■ > r ■ I™— „JJ** ' • 1' 1
iyZ , ''
| -'í Itl C \ 1 Pmí 1 \ \x A i> í c; c / \ \! i.- |
\L.vj L».h ji\ |P Hamniitan 4 & \ L f fi f®55* ÚilSt ‘ Mjjg
B| Mafrrjli f I., í i Í Ml
Missa Loftleiðir tökin
Konráð Axeisson við stæðuna af meistaraverkum Dalis 1 Faxaskála i morgun.
DB-mynd: R.TIi.
MEISTARINN
# Cargolux?
Hafa enn ekki staðið við sinn hlut
íhlutafjáraukningu ífélaginu
DALIGISTIR
Allt útlit er nú fyrir að eignarhluti
Loftleiða í Cargolux muni stórlega
minnka. Innan fyrirtækisins var fyrir
nokkru ákveðin mikil hlutafjáraukning
og áttu aðaleigendurnir þrir, Loftleiðir,
Luxair og sænska félagið Salena þess
kost að viðhalda fyrri eignarhlutum
sinum í félaginu með framlagningu auk-
ins hlutafjár i samræmi við eignarhluta
sinn. Loftleiðir hafa enn ekki lagt fram
sinn skerf til hlutafjáraukningarinnar og
svo mun nú horfa að eignarhluti Loft-
leiða í fyrirtækinu minnki úr rúmlega
30% í um það bil 15%.
Cargolux er og hefur verið eitt þeirra
fyrirtækja Loftleiða sem bezt hefur
blómstrað. Starfssvið og allt umfang
fyrirtækisins hefur aukizt ár frá ári. Fé-
lagið er nú í fremstu röð flutningafyrir-
tækja í heiminum.
Hjá Cargolux starfa tugir lslendinga
bæði flugliðar, flugvélavirkjar og fólk í
ýmsum öðrum störfum. Er íslendinga-
nýlendan i Luxemborg talin telja um
500 manns með öllu fjölskylduliði.
Ljóst er að þó starfshagur þessa fólks
sé ekki í neinni yfirvofandi hættu, muni
miklar breytingar geta fylgt því í fram-
tíðinni hversu margir íslendingar vinna
hjá Cargolux ef eignarhlutur Loftleiða í
félaginu minnkar svo mjög sem nú horf-
ir.
Alfreð Elíasson forstjóri Flugleiða
sagði að þetta mál væri enn til umræðu
hjá Flugleiðum. „Við munum reyna allt
sem mögulegt er til að halda í við hina
aðaleigendur Cargolux, en málið er enn
til umræðu hjá okkur.”
-AST.
FAXASKÁLA
— sölusýning á verkum hans í næsta mánuði
„Hann er frægastur allra
surrealista i fjóra áratugi,” ritaði
Aðalsteinn Ingólfsson, myndlistar-
gagnrýnandi DB eitt sinn í blaðið, er
hann fjallaði um Spánverjann Salva-
dor Dali, sem þekktari er undir nafninu
Dali. Þessa stundina gista 70 lista-
verka hans í kössum i Faxaskála og
bíða þess að komast á sýningu á Kjar-
valsstöðum, sem hefst 21. október.
Verður þetta þriðja grafíksýning á
vegum fyrirtækisins Myndkynningar,
sem er í eigu Konráðs Axelssonar.
Sýningin er kynningar- og
sölusýning grafiskra- og þurrnála-
mynda i takmörkuðu upplagi,
númeraðar og áritaðar af meist-
aranum.
Ekki verða neinar olíumyndir eftir
hann hér enda munu hinar eldri
olíumyndir hans seljst á allt ipp i 50
milljónir króna, eða fyrir álíka verð og
fjórar þriggja herbergja íbúðir hér.
Dali er fæddur 1904 og lærði fyrst í
Madrid. Síðan fór hann til Parísar og
kynntist m.a. Picasso. Þar varð hann
heimsfrægur. Um skeið dvaldi hann í
Bandaríkjunurrv
Á sölusýningunni á Kjarvalsstöðum
verður unnt að fá verk Salvador Dali á
bilinu frá innan við 100 þúsund og
upp undir hálfa milljón. -G.S.
Mötuneyti:
Máltíðin f rá 300 til 2000 kr.
— sjábls.4