Dagblaðið - 26.09.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978.
Málum stöðumæla
ana appelsínugula
—og setjum andlit á þá
Stööumælavöröur skrifar:
Margir mætir menn hafa tekið eftir
því að Reykjavik er heldur dauf borg.
Það er lítið um að vera á götum borg-
arinnar og alvörusvipur yfir mönnum.
Framtaksamir menn hafa þó tekið upp
þá nýbreytni að koma á fót útimarkaði
og er það vel. Nokkuð afmörkuð verk-
efni hafa og komið vel út svo sem sól-
kveðjuhátíðin o.fl.
En betur má ef duga skai. Gera
verður eitthvað varanlegt til þess að
lífga upp borgina. Og mér hefur dottið
snjallræði í hug, en það tengist starfi
mínu. Öll þekkjum við gráa og Ijóta
stöðumælana. Það er langt í frá að
þeir séu upplífgandi. Þessi grái litur
hefur niðurdrepandi áhrif á okkur sem
vinnum við stöðumælagæzluna og
væntanlega einnig aðra borgarbúa.
Ég legg því til að stöðumælar verði
málaðir appelsínugulir og andlit á
stöðumælana. Það er ekki hægt að
lýsa því með orðum hve annað viðhorf
\
Ólikt yröi skemmtilegra að sji þennan tvfhöföa stööunueli appelsinugulan. Þi1
mætti vænta þess að stöðumælavörðum likaði Ufið betur.
okkar yrði til brosandi appelsínuguls Þessari hugmynd er hér með komið á
stöðumælis. Borgarbúar tækju gleði framfæri við hinn nýja borgarstjórnar-
sína á ný, borgarbragurinn yrði annar. meirihluta Reykjavíkur.
Það tekur yfirleitt sinn Uma að fi sima og það kostar Uka skildinginn.
Dýrt að flytja síma
Kolbrún Björgúlfsdóttir hringdi:
Mig langar að vekja athygli á því
hversu dýrt er að fá fluttan síma. Ég
hafði síma fyrir, þurfti aðeins að fá
hann fluttan milli húsa og það var inn-
tak á nýja staðnum. Það þurfti aðeins
að tengja hann, og fyrir það þarf mað-
ur að greiða 24.000 krónur. Ef eitt-
hvað er dýrt þá er það þetta.
Raddir
lesenda
Hringið
'■'í
í síma
27022
milli
jkl. 13 og 15
Essóbensm:
Góð þjónusta
við
Stóragerði —
slæmá
Ártúnshöfða
LeikfimiboJir
margargerðir
Verðfrá .
kr. 2203.- Æ
Bilstjóri hringdi:
Mér finnst ástæða til að vekja at-
hygli á þeim augljósa mun sem er á-
þjónustu afgreiðslumanna á tveimur
bensínstöðvum hér í bæ.
Þjónustan á bensínstöð Essó á Ár-
túnshöfða er slæm og afgreiðslumenn
þar seinir að koma sér áfram til starfa.
Á bensinstöðinni við Stóragerði,
sem Essó rekur líka, er þjónustan aftur
á móti góð. Þar þarf maður ekki að
bíða eftir afgreiðslumönnum. Þvert á
móti finnst manni alltaf eins og þeir
biði eftir manni þegar rennt er í hlað
og beðið um áfyllingu.
GOLA œfíngaskór
Verð frá kr. 4210.-
GOLA mfktgabúningar
Verðfrákr. 4.565.-
Leðffimifatnaður
í miklu úrvali
VELOUR
•ÍANIJHAU-
w vo,T
körfu- og
btakbokar
margar gerðir
Væri ekki ráð að starfsmenn Essó
á Ártúnshöfða bættu ráð sitt og tækju
félaga sína við Stóragerði sér til fyrir-
myndar?
«gyiciAvii
STIGA
borðtennis vörur
í úrvaii
'&mm
RUCANOR
nyktn skór
Stærðir 34—45
Hér sjáum við ekki betur en um sjálfs-
afgrelðslu sé að ræða.
Hafa auglýsingar
gegn reykingum
áhrif á þig?
Guðmunda Andrésdóttir húsmóðir: Eg
veit ekki hverju ég á að svara. Ég hef
aldrei reykt sjálf. Mér finnst að þær eigi
að hafa áhrif á fólk sem reykir.
Kristln Hjartardóttir húsmóðir: Eg hef
aldrei reykt. Já, þær eiga að hafa áhrif á
fólk. Ungt fólk hefur eytt miklum
peningum I sigarettur nú á dögum.
Hjördis Valgirðsdóttir húsmóðir: Eg
hef aldrei reykt. Auglýsingamar
hljóta að hafa áhrif á fólk. Sérstaklega
þessar sem eru i sjónvarpinu, þær eru
hryllilegar.
Knstjan ingóltsson prestun Já, það var
ekki fyrr en rétt áðan, þegar ég var að
lesa auglýsinguna á strætó. Ég reyki nú
sjálfur og hef ekkert hugsað út í þetta
fyrr. Mér finnst sjálfsagt að hafa slíka
herferð, en það má ekki vera of mikið af
henni i einu.
Sigurður H. Ólafsson vélasaU: Ja, það
get ég ekki sagt. Ég hef aldrei reykt
sjálfur. Ég var einu sinni i samtökum
gegn reykingum. Það var í félagi sem var
stofnað innan KFUM. Hróbjartur
Árnason stofnaði þessi samtök. Já, aug-
lýsingarnar hljóta að hafa áhrif á fólk.
En það er nú bara svo að þeir sem ættu
að hlusta og sjá þær eru bara lokaðar
fyrir þvi.
Magnús Einarsson: Min saga er nú
þannig. Ég reykti einu sinni og hef ég
ekki tekið við það aftur. Það hefur slæm
áhrif á heilsu manna að reykja. Ég hef
þá trú að reykingar minnki stórkostlega.
Mér finnst að fjölmiðlar ættu að gera
fólki grein fyrir þvi hve hættulegt er að
reykja.