Dagblaðið - 26.09.1978, Side 6

Dagblaðið - 26.09.1978, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978. 28311 28311 Eignavör, fasteignasala Hverfisgötu 16A. Til sölu: 5 herb. fokheld íbúð í Garðabæ. 5 herb. íbúð við Leifsgötu. 3ja herb. íbúð við Skaftahlíð. 3ja herb. íbúð við Kópavogsbraut. 3ja herb. ris við Kópavogsbraut. Ennfremur einbýlishús og íbúðir á Selfossi, Eyrarbakka, Stokkseyri, Grindavík, Keflavík, Hveragerði og Þorlákshöfn. Kvöldsímar 41736 og 74035. Akranes Blaöberar óskast víðs vegar um bœinn, strax. Upplýsingar / síma2251. HMEBIAÐIB Einkafkigmannsnámskeið hefst fimmtudaginn 28. september kl. 20.00 í Víghóla- skóla I Kópavogi. Nánari upplýsingar í síma 28122. uainla flugturninum Rcykjavikurflugvelli. Sínii 28122. Atvinna Stórt verzlunarfyrirtæki óskar eftir að ráða í eftirtalin störf: Afgreiösla í sérverzlun: Duglegan mann og stúlku til afgreiðslustarfa í sérverzl- un með sjónvarpstæki og fleira. Lagerstörf: Stúlku til afgreiðslu á vörum af lager og vélritun á sölu- nótum. Einkarrtara: Ritara framkvæmdastjóra. Starfið felur í sér m.a. bréfa- skriftir, telex, tollskýrslugerð og launaútreikninga. Fjármáiastjóra: Viðskiptafræðing eða mann með staðgóða reynslu í rekstri fyrirtækja. Starfið felur í sér umsjón fjármála, undirbúning undir skýrsluvélavinnslu og daglegan rekstur fyrirtækisins. Vinsamlegast hafið samband við auglýsinga- þjónustu Dagblaðsins í síma 27022 eða sendið þangað tilboð merkt „Atvinna 1250”. Kalifomía: Mesta flugsfys i Bandaríkjunum — í það minnsta 144 fórust og engin skýring á hvers vegna tvær f lugvélar rákust á í góðu skyggni Mjög litlu munaði Boeing 727 þotan bandaríska hrapaði á tvo skóla í San Diego i Kaliforníu i gærkvöldi. Hrapaði hún til jarðar eftir að hafa rekizt á Cessna 150 einkaflugvél. Tíu hús gjöreyðilögðust þegar brak úr þotunni skall þar niður. 1 morgun var vitað um að minnsta kosti 144, sem látið höfðu lífið. Hefur flugslys í Bandaríkjunum aldrei orðið svo mörgum að fjörtjóni áður. Eitt hundrað tuttugu og níu farþeg- ar voru í þotunni auk sjö manna áhafnar. 1 Cessna vélinni voru tveir. Fórust allir og auk þess var vitað um sex sem fórust á jörðu niðri. Vitað er að margir særðust er brak úr þotunni skall til jarðar en yfirvöld segja að enginn vegur sé til að gera sér greiri'fyrir hve margir, því þeir hafi verið fluttir á mörg sjúkrahús og til einkalækna. Björgunarlið leitaði líka í rústum húsa og fundust þau út um allt ýmist í heilu lagi eða þá einstakir líkamshlut- ar. Sjónarvottar sögðu frá að þeir hefðu séð likama koma fljúgandi beint inn um framrúðu í bifreið sem þar átti leið um. Lézt konan sem ók og barn hennareinnig. Leitarmenn notuðu hvítar veifur til að merkja við þar sem þeir fundu lik eða likamsleifar og fljótlega voru húsa- rústirnar þaktar veifum. Skóli í ná- grenninu var gerður að sjúkraskýli til bráðabirgða. Árekstur flugvélanna varð í þrjú þúsund feta hæö þegar þotan var að búa sig til lendingar á Lindbergh flug- vellinum við San Diego. í morgun var enn verið að leita að svarta kassanum með segulbandsupptöku af samtali flugmannanna við flugumferðarstjór- ana í flugturni flugvallarins. Haft hefur verið eftir opinberum aðila að sú spuming leiti eðlilega fyrst á fólk, hvemig tvær flugvélar geti rekizt á rétt við flugvöllinn, þegar skyggni sé auk þess með ágætum. Vegna minnkandi baráttuþreks hvitra fbúa Ródesiu reynir her landsins að tilkynna um sigra sina innan við landamæri Zambiu og Mósambik. Ródesía: Höfum fellt mörg hundruð skæruliða —á síðustu vikum segja talsmenn Ródesíuhers Her Ródesía hefur fellt hundruð svertingja í skyndiárásum sínum inn í nágrannaríkin Mósambik og Zambíu samkvæmt tilkynningu her- stjórnarinnar í Salisbury í gær. Á fundi með fréttamönnum, sem greinilega var haldinn til að auka baráttuþrek hvítra íbúa landsins var tilkynnt að herlið væri stöðugt á ferð innan landamæra þessara ríkja. Sýnd var kvikmynd þar sem sýnt var að mikið magn vopna, skotfæra, matvæla og fatnaðar hefði verið gert upptækt. Auk þess að tengsl hefðu verið rofin á milli hópa og skæruliða og fyrirhugað- ar árásir inn í Ródesiu þannig drepnar ífæðingunni. , Svartir skæruliðar eru ekki að sigra í þessari styrjöld, sagði talsmaður Ródesiuhers. Ef allir íbúar landsins bæði svartir og hvitir standa að baki okkur og bera traust til öryggissveita okkar og styðja þær eftir megni, er enginn vafi á að hernum mun takast að ráöa við skæruliðana og einnig halda þeim yfirburðum og frumkvæði sem hingað til hefur verið. Margir hvítir íbúar Ródesiu fylltust örvæntingu þegar Viscount skrúfuþotan með um fjörutíu innanborðs var skotin niður og síðan voru tíu þeirra sem eftir lifðu drepnir af skæruliðum á jörðu niðri. Gerðist þetta 3. þessa mánaðar. Hefur stjórnin i Ródesíu, tilkynnt að hún muni í framtiðinni ekki hika við að ráðast inn í nágrannaríkin til að ráða þar niðurlögum skæruliða.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.