Dagblaðið - 26.09.1978, Side 8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1978.
Langar þig til sólarlanda?:
Kanaríeyjaferð hækkar
um 50 til 80 þúsund krónur
— Eftir sem áður kostar þriggja vikna ferð upphæð sem nemur góðum mánaðarlaunum
„Ég tel ekki að hækkaður gjaldeyrir
muni að neinu verulegu leyti draga úr
þátttöku í ferðum til sólarlanda,” sagði
Guðni Þórðarson forstjóri Sunnu í
viðtali við DB. „Að vísu eru verðin
ekki komin og koma ekki fyrr en um
næstu helgi. Útlit er fyrir að hækkun á
þriggja vikna sólarlandaferð til
Kanaríeyja i vetur verði 27%. Við það
hækka ferðirnar um 50—80 þúsund
krónur miöað við verðið á liðnu sumri,
en allir sem vilja geta séð að eftir sem
áður eru þetta ekki há gjöld fyrir
þriggja vikna ferð.”
Guðni sagði að sólarlandaferð á
liðnu sumri hefði kostað frá 160—190
þúsund krónum og er þá miðað við
góða gististaði. Eftir 27% hækkun
sem verður við gengisfellingu og auka-
gjald á ferðamannagjaldeyri kosta
þessar ferðir vel yfir 200 þúsund
krónur.
Guðni benti á að þeir sem veita sér
sólarlandaferð árlega eða annað hvert
ár myndu eftir sem áður leita þangað.
Sólarlandaferð hefur að undanförnu
verið álíka dýr og nemur góðum mán-
aðarlaunum. Fyrir 15 árum þurfti
tvenn mánaðarlaun til að veita sér
sólarlandaferð.
„Sólarlandaferðir skipulagðar af
feröaskrifstofu eru langódýrustu
ferðir sem hægt er að fara i,” sagði
Guðni. „1 Danmörku kostar orðið allt
að 30 þúsund krónum á sólarhring að
liggja í tveggja manna herbergi.
Venjulegur flugfarseðill til Kanarieyja
keyptur af einstaklingi hjá flugfélagi
kostar 268 þúsund krónur. Þriggja
vikna ferð til Kanarí myndi á slíkan
hátt kosta um 600 þúsund krónur.
Miðað við þessi verð er þriggja vikna
dvöl á góðu hóteli á Kanaríeyjum ekki
dýr þó hún kosti vel yfir 200 þúsund
krónur,” sagði Guðni.
Guðni sagði að gjaldeyrisskammt-
urinn væri nú orðinn svo rúmur að
margir tækju hann ekki allan. Væri
það ánægjuleg breyting. Fólk þyrfti
hans heldur ekki með, ef það ætlaði
aðeins að njóta góðrar ferðar og gisti-
dvalar á vegum ferðaskrifstofu.
- ASt
Málmiðnaðarfyrirtæki í
þjónustugreinum og við-
gerðum eiga í alvarlegum
rekstrarörðugleikum
„Það er gersamlega vonlaust að reka
þjónustufyrirtæki á sviði málmiðnaðar-
ins,” sagði forstjóri sliks fyrirtækis í viö-
tali við DB. Hann bætti við: „Þar seni
verulegur hluti rekstursins er ekki ein-
hvers konar nýsmíði er ekki um neitt að
velja annað en loka og það sem fyrst,”
Bændur,
rjúpnaskyttur!
'' Verð
Hinar handhægu
tveggja rása tal-
stöðvar komnar
aftur.
BENCO
Bolhulti 4, Revkjavík.
Simi 91-21945.
sagði þessi forstjóri, sem að svo stöddu
vildi ekki láta nafns síns getið.
Ástæðan fyrir þessu alvarlega ástandi
er sögð vera verðlagsákvæði sem gild-
andi eru um útselda vinnu. „Þegar alls
konar launatengd gjöld eru upp talin, er
ekkert eftir til þess að borga kaupið með,
hvað þá meira,” sagði þessi forstjóri.
Talsverð eftirspurn er nú eftir
iðnaðarmönnum í málmiðnaðargreinum
en nær eingöngu frá fyrirtækjum I ný-
Samningur sem undirritaður hefur
verið milli íslands og v-þýzka sam-
bandslýðveidisins gerir það erfiðara en
áður að komast hjá tollum og greiðslu
annarra gjalda i sambandi við inn- og út-
flutning. Ríkin tvö heita hvort öðru
gagnkvæmri aðstoð i þessum málum,
sem er tvenns konar:
Aðstoð við framkvæmd tollalaga al-
Eins og DB greindi frá í gær var æsi
legur eltingarleikur á Akureyri i fyrra
kvöld, þar sem heil lögregluvakt elti
ungan mann sem brauzt inn og stal riffli.
Ungi maðurinn náðist án þess að skaði
hlytist af aðgerðum hans, að frátöldu
innbrotinu.
Það vildi svo til að tíðindamaður Dag
blaðsins, Þráinn Þorleifsson gjaldkeri
blaðsins, var einmitt staddur nálægt
smiði. Ofangreindar fullyrðingar voru
yfirleitt staðfestar er DB leitaði upplýs-
inga hjá fleiri aðilum, þótt ekki væri svo
komið að leggja þyrfti niður fyrirtæki.
Þar sem saman fara nýsmiði og við-
gerðaþjónusta, eins og víða er, bar öllum
saman um að þjónustan væri baggi á
öðrum rekstri, aðeins misjafnlega
þungur.
mennt, þ.e. álagningu tolla og annarra
inn- og útflutningsgjalda svo og það að
haldnar séu reglur um inn- og útflutning
og hins vegar aðstoð til að koma i veg
fyrir, rannsaka og upplýsa brot á tolla-
löggjöfinni.
Samningurinn tekur gildi 11. október
nk. Er þetta fyrsti tvíhliða samningurinn
sem ísland gerir um tollamál.
vettvangi og að sið góðra fjölmiðla-
manna skundaði hann þegar á staðinn
og mundaði myndavélina.
Ungi maðurinn var að vísu á bak og
burt en lögreglan vaktaði innbrotsstað-
inn, sportvöruverzlun Brynjólfs Sveins-
sonar. Lögreglan fann manninn síðan i
felum undir vörubíl skammt frá höfn-
inni, en þangað hafði hann hlaupið.
• JH
Lögreglan vaktar Innbrotsstaðlnn I fyrrakvöld.
ísland- V-Þýzkaland:
GAGNKVÆM AÐSTOÐ
ÍT0LLAMÁLUM
Riffilstuldurínn á Akureyrí
Sigrún var að ferja bensintunnur I land á Ólafefirði I fyrri viku er Ámi Páll tök
þessa mynd af henni þar auk stýrimanns á Tý. Bensinið var handa þyrlunni sem
þar var i steypuflutningum fyrir heimamenn.
Fyrsti kvenhásetinn
í Landhelgisgæzlunni
„Hún heitir Sigrún Svavarsdóttir og
er náskyld Gunnari 'V. Gíslasyni frá
Papey, sem lengi var skipherra hjá
Landhelgisgæzlunni," sagði Þröstur
Sigtryggsson skipherra er DB spurði
hann hvort rétt væri að ung stúlka
værinúhásetiáTý.
Sigrún er að líkindum fyrsti kvenhá-
seti Gæzlunnar en áður hefur kona
unnið þar sem messi og síðan sem
smyrjari í vél. 1 vor lauk Sigrún fiski-
mannadeild Stýrimannaskólans eftir
tveggja vetra nám og skildist Þresti á
henni að hún hygðist fara i þriðja bekk
i vetur til að taka farmanninn, eins og
það er orðað.
Ekki bjóst Þröstur þó við að Sigrún
bætti fjórða bekknum við sig, eða
varðskipadeiluinni. „Mér finnst hún
fyrst og fremst vera fiskimaður,” sagði
Þröstur.
Fyrstu þrjár vikurnar í vor var
Sigrún í stjórnstöð Gæzlunnar, eða
unz hún hóf siglingar á Tý.
- G.S.
— DB-mynd Þráinn Þorleifsson