Dagblaðið - 26.09.1978, Page 24

Dagblaðið - 26.09.1978, Page 24
c Fasteignasali um ummæli viðskiptaráðherra: Löðurmannlegt að kenna okkur um hækkanir í stjómlausu efnahagskerfi „Þetta afhjúpar fyrst og fremst van- þekkingu eða bamaskap ráðherra okkar,” sagði Ragnar Tómasson fast- eignasali í viðtali við DB er ummæli viðskiptaráðherra í blaðinu í gær, þess efnis að stétt Ragnars væri vandamál hér þar sem hún sprengdi upp fast- eignaverðið, voru borin undir hann. „Það er bezt að Svavar Gestsson geri sjálfur lesendum grein fyrir hvað Þjóðviljinn hefur hækkað í verði frá 1966 i samanburði við fasteignir á þessu tímabili,” (Þjóðviljinn tuttugufaldazt en fasteignir um 16 faldazt). „Mér finnst löðurmannlegt að kenna fasteignasölum um. verðhækkanir 1 þessu stjórnlausa efna- hagskerfi okkar og Guð hjálpi okkur ef við eigum að hafa þessi gáfnaljós til að lýsa okkur leiðina út úr myrkri efnahagsvandans,” hélt Ragnar áfram. „Við fasteignasalar vitum hversu afdrifarikt hagsmunamál það er fyrir hinn almenna borgara að eignast þak yfir höfuðið, og víst skapar það okkur ánægju i starfi þegar okkur finnst sem vel hafi til tekizt að finna úrræði fyrir fólk þegar það stendur frammi fyrir þvi erfiða verkefni að eignast fyrstu ibúðina sína, en hefur ekki þekkingu á hvemig það er kleift. Og víst verðum 'við um leið hryggilega varir við hvað verðbólgan leikur grátt. eldra fólk, sem í grandaleysi leggur fyrir í banka til elliáranna, eins og það er nefnt.” Að lokum sagði Ragnar: „Lækkað ibúðaverð er alveg örugglega eitt af stórkostlegri hagsmunamálum allrar þjóðarinnar, en við lausn á því vanda- máli þarf haldbetri úrræði en unnt er að lesa úr viðtalinu við Svavar.” -G.S. HjóKaði inn undir vörubfls- pall Umferðarslys varð á Þingvalla- stræti á Akureyri í gærdag. Þar ók 15 ára piltur á léttu bifhjóli aftan á vörubifreið. Hafði vörubíllinn numið staðar við gangbraut og það sá pilturinn ekki fyrr en um sein- an. Pilturinn var fluttur í sjúkra- hús. Ekki var með vissu vitað um meiðsl hans í morgun, en þau voru þó ekki talin mjög alvarleg. —AST Stundakennarar boða verkfall: Lamast kennsla við Há- skólann? Á fundi sem haldinn var í Árna- garði, húsi heimspekideildar Há- skóla íslands i gærkvöldi sam- þykktu stundakennarar við H.l. að boða til vikulangs verkfalls í byrj- un nóvember yrði ekki gengið að þeim lágmarkskröfum, sem þeir hafa sett fram. Viðræður hafa staðið yfir und- anfarnar vikur milli stundakenn- ara og menntamála- og fjármála- ráðuneytis. Á fundinum i gær höfnuðu stundakennarar tilboði sem ráðuneytin hafa sett til lausn- ar deilunni. Er DB hafði samband við Ólaf Jónsson einn áf forsvarsmönnum stundakennara í morgun, sagði hann að fundurinn hafi verið fjöl- mennur og „samþykkt einum rómi” að hafna tilboði ráðuneyt- anna. Ólafur sagði, að erfitt væri að bera saman tilboð ráðuneyt- anna og lágmarkskröfur kennara en óhætt væri að segja það að deil- an snerist ekki fyrst og fremst um krónutölur. „Við teljum okkur hafa slegið mjög af kröfum okkar og að eftir standi aðeins ófrávikj- anleg lágmarkskrafa,” sagði Ólafur og bætti þvi við að með því að boða ekki til verkfallsins fyrr en í nóvember-byrjun vildu kennarar vona að enn gæfist möguleiki á samkomulagi. Stundakennarar sjá um meira en helming allrar kennslu við há- skólann og einkum eru þeir fjöl- mennir í heimspekideild og verk- fræði- og raunvísindadeild. Það má þvi búast við þvi að kennsla lamist að verulegu leyti í H.t. ef til verkfallsins kemur. -GAJ- Fyrri sprengjan eyðilögð á Bláfjallasvæðinu 1 gær. DB-myndir Sveinn Þormóðsson Sprengjur frá í stríöinu fundust við Laugaveginn —var síðan eytt í gærdag á Bláfjallasvæðinu Tvær miklar sprengingar dundu við á Bláfjallasvæðinu 1 gærdag. Grjót og hraunmylsna þeyttist hátt i loft upp og var til að sjá eins og loftárás væri að byrja eða jarðhræringar að hefjast. Þarna var verið að eyða tveimur sprengjum sem fundust á sunnudaginn i húsagarði við Laugaveg 59. Voru það fjórir piltar sem tilkynntu um fundinn. Sprengjurnar lágu ofanjarðar og liggur enn engin skýring fyrir á veru þeirra í þessum húsagarði, þar sem ekki er sjáanlegt að neitt jarðrask hafi átt sér stað. Mál þetta er í rannsókn, en helzt er ætlað að sprengjurnar séu allt frá stríðs- árunum. Slíkar striðsmenjar geta verið mjög hættulegar, og voru þessar t.d.. virkar að einhverju leyti. Sprengiefni var notað til að eyðileggja þær og stjórnaði Rudolf Axelsson aðalvarðstjóri þvi verki. —AST. Rudolf varðstjóri með aðra sprengjuna, en þær voru báðar jafnstórar, 47 senti- metrar að lengd og þungar. frfálst, úháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPT. 1978. Stormur á loðnu- miðum Sáralítil loðnuveiði hefur verið undanfama daga og eru margir bátanna nú í landi þar sem storm- ur hefur verið á aðalmiðunum, á milli Grænlands og Jan Mayen, að sögn loðnunefndar í morgun. Hefur verið stormur þar á þriðja sólarhring. Nokkrir bátanna komu með slatta til lands þegar tók að blása, til að hráefnið skemmdist ekki um borð á meðan beðið væri veiðiveðurs. -G.S. Eftirlit með Ijós- kösturum íKópa- vogi Kópavogslögreglan var lengi kvölds í gær á þremur bílum beggja vegna við Kópavogslækinn og lýsti um svæðið með ljósköst- urum. Voru lögreglumenn hinir dularfyllstu er vegfarendur spurðu hverju þetta sætti. 1 morgun sagði Kópavogslög- reglan að ekkert sérstakt hefði verið þarna um að ræða, en hins vegar hefði Kópavogslögrcglan fengið nýja ljóskastara og nú yrði tekið upp aukið eftirlit í bænum að kvöld- og næturlagi með slíkum kösturum. Yrði farið um hverfin og athugað nákvæmar en áður allt umhverfið. —AST. Söngskólinn að kaupa Norska sendiráðið? Undanfarið hafa staðið yfir samningaviðræöur milli Söng- skólans og Norska sendiráðsins um að Söngskólinn festi kaup á húsakynnum sendiráðsins. DB hafði i morgun samband við Garðar Cortes skólastjóra Söng- skólans og spurði hann hvort samningar væru ekki að takast. Garðar sagði, að tilboðin hefðu gengið á milli að undanfömu og hefði hann jafnvel átt von á að samningar tækjust í dag. Að öðru leyti vildi Garðar ekki tjá sig um þessi mál fyrr en samningar hefðu tekizt og um kaupupphæðina vildi hann segja það eitt að hún „skipti tugum milljóna”. -GAJ- ^KaupioV ,5 TÖLVUR' ‘ I* OGJi BANKASTRÆTI8 £1*1121*2*

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.