Dagblaðið - 05.10.1978, Side 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978.
DB á neytendamarkaði
í gær var þvi lofað á Neytenda-
síðunni að athugað yrði í dag með
verð á frystum á markaðnum hér og
þá um leið gefnar nokkrar staðreyndir.
Þar sem tegundirnar á markaðnum
eru allt of margar til þess að hægt sé
að gera þeim öllum skil hér verða
aðeins tekin dæmi úr nokkrum
Frystiskápur frá Electrolux.
Skápurinn tekur 300 litra og kostar
320þúsund sé hann hvitur á litinn.
Electrolux-vörurnar eru seldar I
Vörumarkaönum I Ármúla. Skápurinn
sá arna er 155 sentimetrar á hæö, 60 á
breidd og 60 á dýpt. Hann vegur 65
kiló.
verzlunum hér í Reykjavík. Verðið er
þar alls staðar mjög svipað fyrir sömu
stærð, ódýrasta kistan sem við sáum
kostaði 175 þúsund og dýrasti
skápurinn 320 þúsund. Verð á milli
tvö og þrjú hundruð þúsund virðist
vera nokkuðgegnum gangandi.
Árs ábyrgð var á öllum kistum og
Gram frystikista frá Fönix. Kistan
tekur 345 litra og kostar 250 þúsund.
Hún er 90 sentimetrar á hæð, 100 á
breidd og 67.5 á dýpt. Frystigetan er
29.3 klló á sólarhring. Til er mjög
vinsæl sparnaðarútgáfa , af þessari
kistu. Hún kostar 210 þúsund og er 5
sentimetrum lægri en að ööru leyti
eins.
skápum sem við sáum og virðist það
nokkuð ríkjandi regla um rafmagns-
tæki á íslandi. í öllum búðum var
hægt að fá upplýsingabæklinga um
eitt og annað sem við kom frystunum
en oftast aðeins á erlendum tungum.
-DS.
Orka selur Vestfrost skápa og kistur.
Þessi kista tekur 200 litra og kostar
175 þúsund. Hún er 85 sm á hæð, 72 á
breidd og 65 á dýpt. Hún er 51 kiló.
Frystigeta er 16 kiló af frostlausum
mat á sölarhring. Hjá Orku er boðið
upp á alhliða viðgerðarþjónustu.
Frystirinn kostar þig á m\\[\
175 og 320 þús. kr.
Elstar frystikista frá SÍS. Kistan tekur 500 lltra og kostar 261 þúsund. Hún er 85 sentimetra há, 170 sm á breidd og 50
sm á dýpt. Hún vegur 87 kiló. Kistunni fylgir norskur leiðarvisir.
Litríkur f iskréttur
Í dag skulum við borða fiskrétt og
hafa hann svolítið litríkan til þess að
lífga upp á hryssingslega tilveru I
svona veðri. Uppskriftin er þannig:
500 gr fiskflök (ca 270 krónur)
3—4 msk. smjörlíki eða matarolia
1/2—1 tsk. karrý
1/2 tsk. paprika
2 msk. hveiti
1 tsk. salt
2 msk. vatn
1 egg (harðsoðið)
1—2 tómatar
steinselja
Hreinsið fiskinn og skerið í stykki.
Bræðið smjörlikið eða hitið mataroli-
una í djúpri pönnu eða potti, stráið
karrýi og papriku saman við og látið
krauma I 2—3 minútur. Blandið
saman hveiti og salti og veltið
fiskinum upp úr þvi og síðan upp úr
feitinni. Stráið því sem eftir var af
hveitinu yfir og bætið vatninu á. Setjið
þéttan hlemm á og sjóðið við vægan
hitaí 15—20mínútur.
Saxið eggið og skerið tómatana í
báta og leggið hvort tveggja yfir fisk-
inn og látið það hitna.
Berið réttinn fram með soðnum
kartöflum eða hrísgrjónum og jafnvel'
hráu salati.
Alls kostar þessi réttur um 320
krónur og erætlaður fyrir 2. Skammt-
urinn kostar þvi 160 krónur á mann.
- DS
Vestfrost frystiskápur á 303 þúsund. Skápurinn tekur 400 Utra og er 180 sm á
hæð, 59,5 á breidd og 65 á dýpt. Hann vegur 87 kiló. Eins og sjá má af myndinni
eru tvær hurðir á skápnum og fer þvi minni orka til spillis þegar skápurinn er
opnaður.
Bauknecht skápur frá Sambandinu.
Skápurinn tekur 290 Utra og kostar
261 þúsund. Hann er 151 sentimetri á
hæð, 60 á breidd og 60 á dýpt. Hann
vegur 60 kiló. Skápnum fylgir leiðar-
visir á islenzku.
270 þúsund kostar þessi 240 Utra
frystiskápur frá Gram. Skápurinn er
126.5 sm á hæð, 59.5 á breidd og 62.1
á dýpt.
Frystikista frá Electrolux. Hún tekur alls 510 Utra, er 85 sm á hæð, 160 á breidd
og 63 á dýpt. Kistan vegur 90 klló og kostar 307 þúsund. Henni fylgir erlendur
leiðarvisir. Hægt er læsa lokinu á kistunni með sérstökum iykli en annars er
auðvelt að opna hana innan frá. DB-myndir Bjarnleifur Bjarnleifsson.