Dagblaðið - 05.10.1978, Side 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978.
1
Brauðgerðarmenn kanna orkukostnaðinn:
O/ia væri mun ódýrari en rafmagnið
1 nýju fréttabréfi Landssambands
iðnaðarmanna er gerð athugun á
kostnaði við að reka 80kw ofn miðað
við 7,700 kw stundir á mánuði, eftir
því hvar á landinu er. Jafnframt er
borinn saman kostnaður við að reka
slíkan ofn fyrir oliu og rafmagni.
Við þann samanburð kemur í ljós
að víðast hvar á landinu væri mun
ódýrara að kynda ofninn með inn-
fluttri oliu en innlendu rafmagni.
Tölurnar í fréttabréfinu eru síðan
fyrir síðustu olíuhækkanir og var
rekstrarkostnaðurinn með olíu þá
43,240 krónur. En þann 15. ágúst
hækkaði rafmagnið líka um 20 prósent
að meðaltali svo samanburðurinn er
raunhæfur.
Minnsti kostnaður við að kynda
áðumefndan ofn reyndist á Siglufirði,
40,810 kr. en mestur i Hafnarfirði,
114,807 kr. í Reykjavik var
kostnaðurinn 58,212, sem lætur nærri
að vera í meðallagi miðað við landið
allt. G.S.
LITIÐ
SAFN
VIÐ GJÁNA
Eins og mörgum mun eflaust í fersku
minni gáfu erfingjar Gerðar heitinnar
Helgadóttur Kópavogsbæ öil listaverk
eftir hana i þeirra eigu, með því skilyrði
að byggt yrði sérstakt safn með nafni
hennar yfir verkin. Þar sem ekkert hefur
heyrzt um þessi mál um langt skeið,
hafði DB samband við bæjarritara
Kópavogs, Jó'n Guðlaug Magnússon, en
hann er formaður byggingarnefndar
safnsins tilvonandi. Sagði hann að störf
nefndarinnar hefðu að mestu legið niðri
yfir sumarið en áður hefði hún komið
saman í nokkur skipti. Sagði hann að í
þessari nefnd væru fjórir fulltrúar sem
Lista- og Menningarsjóður Kópavogs
tilnefndi og einn fulltrúi sem erfingjar
Gerðar tilnefndu. Við síðustu kosningar
urðu breytingar á nefndinni og stæði nú
til að kjósa í hana nýja fulltrúa eins fljótt
og auðið yrði.
Tilbúið 1983
Sagði Jón Guðlaugur ennfremur að i
samningum Kópavogsbæjar og erfingja
stæði að safnið skuli vera tilbúið árið
1983 og hefði 3 milljónum króna verið
veitt til undirbúnings á þessu ári og
sömuleiðis hefði verið ákveðið að finna
safninu stað öðru hvoru megin við gjána
,í miðjum bænum. Ekki kvað Jón
Guðlaugur menn hafa komizt að niður-
stöðu um það hvort ráða ætti arkitekt til
starfsins eða bjóða verkið út. Aðspurður
um þann orðróm að einhverjir nefndar-
manna hafi haft áhuga á að bjóða verkið
út bæði hér og á Norðurlöndum sagði
Jón Guðlaugur allt óráðið um það, en
sjálfur teldi hann ólíklegt að sú leið yrði
farin vegna þess mikla kostnaðar sem
það hefði í för með sér og einnig væri
lítill tími til stefnu. Er hann var spurður
að því hvort ekki væri líklegra að arki-
tektar á hinum Norðurlöndunum hefðu
meiri reynslu en íslenzkir starfsbræður
þeirra í byggingu safna vildi Jón
Guðlaugur ekki aftaka það, en taldi að
íslenzkir arkitektar gætu eflaust byggt
gott safn ef þeir fengju góða menn til að
leiðbeina sér.
Lifandi
menningarmiðstöð
Sagði hann að Kópavogsbær hefði
fengið Frank Ponzi listfræðing til að
taka að sér ráðgjöf við bygginguna. Ekki
sagði Jón Guðlaugur að menn væru
komnir niður á nákvæmar hugmyndir
um skipulag og tilgang þessa safns, en þó
gat hann þess að helzt væri rætt um litið
hús á 2—3 hæðum þar sem höfuð-
áherzlan væri lögð á verk Gerðar heit-
innar, en þó yrði þar aðstaða til geymslu
og sýninga á málverkasafni bæjarins
sem nú er mikið að vöxtum og svo
annarra sýninga — auk kaffiaðstöðu,
aðstöðu til tónleikahalds og fræðslu o.fl.
„Við viljum fyrir alla lifandi muni
menningarmiðstöð,” sagði Jón
Guðlaugur að lokum,” og forðast þau
mistök sem gerð hafa verið í skipu-
lagningu annarra menningarstofnana
hér í grenndinni.”
A.I.
ANNA MOFFO TILISLANDS
— heldur tvenna tónleika hér
Anna Moffó, sópransöngkona, er ekki ofmælt að
væntanleg til Islands innan skamms einhver albezta
og mun hún halda tvenna tónleika í veraldar um þess;
Háskólabiói. Anna er itölsk og mun hún hingað á
stofnunarinnar i tilefni 20 ára afmælis
stofnunarinnar.
G.S.
Nýkomið!
Ecco Tramps, „Sporty ” og
með hlýju fóðri, sérstaklega
mjúkt leður og mjög sterkir
sólar.
Allir eiga þeir að vinna
góðverk á minnisdaginn
Litur: Natur leður
leður.
Stœrðirnr. 36—40.
Verð kr. 14.635.
eða brúnt
Á minnisdegi Lionshreyfingarinnar á
sunnudaginn er ætlazt til að allir félagar
hreyfmgarinnar láti gott af sér leiða.
„Þetta er dagur einstaklinganna, eins og
það hefur verið skilgreint, og þá eiga
allir að vinna góðverk,” segir i fréttatil-
kynningu frá Lions.
Þennan dag munu félagamir
heimsækja sjúka og einstæða, eða gera
annað hliðstætt, og er vænzt mikillar
þátttöku á minnisdeginum.
Á Vestfjörðum munu Lionsklúbb-
,amir glima við sérstakt verkefni þennan
dag, safna fé fyrir Styrktarfélag vangef-
inna á Vestfjörðum. Þroskaheft stúlka
hefur gert sérstaka mynd sem prentuð
hefur verið og verður seld til ágóða fyrir
málstaðinn.
Fjölumdæmisstjóri Lionshreyfingar-
innar er Jón Gunnar Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri á Flateyri. Umdæmis-
stjórar eru Ólafur Þorsteinsson, Reykja-
vík, og Sigurður Ringsted, Akureyri.
Barnastœrðir nr.
brúnu leðri.
Verðkr. 12.795.
Jón Gunnar Stefánsson, fjölumdæmis-
stjóri, frá Flateyri.
POS TSENDUM
I
Kirkjustræti8 v/Austurvöll.
Sími 14181.
Skóverzlun
Þórðar Péturssonar