Dagblaðið - 05.10.1978, Page 12

Dagblaðið - 05.10.1978, Page 12
12 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978. Sigrum Þjóð- verja í Reykjavík — sagði Ellert Schram eftir leikinn Frá Magnúsi Gislasyni i Halle: Ellert B. Schram, sem borið hefur hita og þunga af þeim erfiðleikum sem mætt hafa landsliðinu hér i Halle, sagðist vera ánægður með frammistöðu islenzka liðsins. Liðið væri mjög ungt, hefði sýnt marga göða hluti og ætti örugglega eftir að bæta sig i næstu ieikjum. „Við getum, ef allir leggjast á eitt, unnið Þjóðverja í Laugardal,” sagði Ellert ennfremur. Frá Magnúsi Gislasyni i Halle: Ellert B. Schram, formaður KSt, þakkaði landsliðsmönnum fyrir ágætan leik i Halle en hann var ekki ánægður með undirbúninginn eins og málin þró- uðust. Sagðist ekki muna eftir að farar- stjóri þyrfti að draga fram skóna, eins og útlit hefði verið fyrir um tíma í A-Þýzka- landi. Hann tilkynnti að á næsta ári yrðu margir landsleikir — 10, og í lokin yrði farið til Bandaríkjanna og Bermúda, það yrði umbun landsliðsmanna, 25 manna hóps, fyrir fórnfýsi þeirra með ís- lenzka landsliðinu. Reynolds dómari frá Wales sagði þcnnan lcik ekki erfiðan aö dæma. „Brotin voru hrein og það hjálpaði mér að ég þckki islenzka liðið frá því að ég hafði dæmt leik liðsins áður. Þeir koma prúðmannlega fram, en fyrir leikmenn var þetta erfitt á blautum og þungum vellinum. Eigi að siður var leikurinn mjög góður á köflum. íslenzka liðið skorti sterka leikmenn gegn A-Þjóðverj- um en engu aö síður var liðið sterkt og er í framför.” Gott vega- nesti íleik- inn íReyjavík — sagði George Buschner, þjálfari þýzka liðsins Manfred túlkur og knattspyrnuáhuga- maður: „Nú ættum við að vera lausir við íslenzka komplexinn. Úrslitin voru sann- gjörn, leikurinn skemmtilegur en allt of mörg færi fóru forgörðum.” Magnús Gíslason i Halle: Youri Ilitschev, þjálfari islcnzka liðsins var ánægður með leikinn að sumu leyti. Kvað ekki hægt að ætlast til mikils af liðinu þegar ekki væri hægt að ná þvi öllu saman fyrr fyrir leik til að æfa og leggja leikaðferðir fyrir. Aðspurður um hollenzka liðið af þýzkum fréttamönnum og Buscher þjálfara sagði Youri, að Hol- lendingar væru mun öflugri en Þjóðverj- arnir. Pétur Pétursson skoraði sitt fyrsta landsliðsmark i Hallc — og jafnframt eina mark islenzka landsliðsins i ár. Þýzkur sigur í I — 3-1 og Þjóðverjar náðu að hefna ófara f síðustu Evrópul — Pétur Pétursson jaf naði úr víti, 1-1—fyrsta landslið< Frá Magnúsi Gíslasyni, blaðamanni DB i Halle: Um 12 þúsund manns horfðu á leik íslands og A-Þýzkalands á Kurt- Wabben leikvanginum hér i Halle i gær- kvöld. Blæjalogn, en völlurinn var mjög blautur og erfiður eftir rigningar undan- farið og voru þær aðstæður heimaliðinu mjög í hag. Andrúmslóftið á áhorfenda- pöllunum var þrungið spennu, — jafn- teflið ’74 og tapið í Reykjavík árið eftir, var A-Þjóðverjum enn í fersku minni. Áhorfendur hvöttu heimamenn óspart með hrópum og hrossabrestum. Þjóð- verjar gátu státað af sigri gegn íslandi nú, sigurinn var Þjóðverja, 3-1. En þrátt fyrir tap geta lslendingar vel við unað, miðað við undirbúninginn gegnir það furðu hve landslið okkar veitti hinum þrautþjálfuðu köppum öfluga mót- spyrnu, allt frá fyrstu minútu til hinnar síðustu, með ódrepandi baráttuvilja. Sú spurning hlýtur þvi að vakna hvaða ár- angri væri hægt að ná ef okkar landslið fengi svipaðan undirbúning og þýzku mótherjarnir. Sigur Tékka í Stokkhólmi sigruðu Svía 3-1 í Evrópukeppni landsliða Magnús Gíslason I Halle: Karl Buscher, þjálfari þýzka liðsins: Hann var glaðlegri á svip nú en eftir fyrri tvo leiki Þjóðverja gegn lslandi.„Þýzka liöið lék vel á köflum, átti sigurinn skilið en sýndi þó ekki sínar beztu hliðar. Of mörg góð tækifæri fóru forgörðum, sem og hjá islenzka liðinu. En það finnst mér ekki eins sterkt og áður. Mér skilst lika og sýnist að þið hafið ekki getað teflt fram ykkar bezta liði. Tveggja marka munur er gott veganesti til Reykjavíkur að ári en við förum varlega i að spá, af gamalli reynslu.” Evrópumeistarar Tékka í knattspyrn- unni unnu góðan sigur á Svium i Stokk- hólmi 1 gærkvöld. 3-1 í riðli 5 — og þó skoruðu Svíar fyrsta mark leiksins. Það var á 16. min. þegar Hasse Borg skoraði úr vítaspyrnu. Frantisek Cojacek braut á Mats Nordgren i vitateignum. Tékkum tókst að jafna fyrir hálfleik. Marian Masny skoraði en rétt í lok hálf- leiksins munaði litlu, að Sviar næðu for- ustu á ný. Michalik, markvörður Tékka, varði snilldarlega frá Benny Wendt beint úraukaspyrnu. Á 48. mín. náðu Tékkar forustu. Masny skallaði knöttinn i mark eftir hornspyrnu. Ronnie Hellström stóð frosinn á marklínunni. Á 85. mín. gull- tryggði Zdanek Nohoda sigur Tékka. Sendi knöttinn í opið markið eftir að Hellström hafði misst knöttinn frá sér eftir spyrnu Gajdusek. Staðan í riðlinum: Tékkar 1 1 0 0 3-12 Frakkar 10 10 2—2 1 Svíar 2 0 11 3—5 1 Áhorfendur í Stokkhólmi voru aðeins 12000. Spánverjar sigruðu Júgóslava íZagreb — 2-1 þar sem Júgóslavar sóttu mjög Spánn sigraði Júgóslavíu I Zagreb I þriðja riðli Evrópukeppni landsliða I gærkvöld, 2-1. Júgóslavar sóttu nánast látlaust lengst af, Spánverjar vörðust vel, og skyndisóknir þeira voru hættulegar þar sem Juanito, útherji Spánverja, var ávallt hættulegur. Spánverjar náðu forustu á 20. I minútu. Villar átti fast skot að marki, j knötturinn fór i einn varnarmann Júgó- jslava og til Juanito, sem skoraði af Stein tók við skozka landsliðinu Jock Stein tók i gærkvöld við skozka landsliðinu i knattspyrnu. Hann tekur við af Ally McLeod, sem sagði af sér eftir ófarir undanfarínna mánuða. Jock Stein var lengi framkvæmdastjóri Celtic, þá var Celtic nánast ósigrandi i Skot- landi og undir hans stjórn varð Celtic fyrst liða á Bretlandseyjum til að sigra I Evrópukeppni meistaraUða. Fyrir sex vikum tók Jock Stein viö Leeds United en hefur nú yfirgefið EUand Road. Blackburn Rovers rak i gær fram- kvæmdastjóra sinn, Jim IUe en liðið er nú i alvarlegri fallhættu í 2. deild. Ilie tók við af Jim Smith. stuttu færi. Tólf minútum síðar skoruðu Spánverjar aftur. Santillana skallaði knöttinn í netið eftir aukaspyrnu Del Bosque. Juanito átti mjög snjallan leik fyrir Spánverja, og varnarmenn áttu mjög í vandræðum með að hemja hinn litla Spánverja. Á 43. mínútu missti hann af góðu færi eftir að hafa leikið laglega á varnarmenn, komst i gegn en markvörður Júgóslava varði. Aðeins mínútu siðar minnkuðu Júgóslavar muninn, Halilhodzic skallaði knöttinn í netið eftir sendingu Susic. í síðari hálf- leik sóttu J úgóslavar mjög — knötturinn nánast látlaust á vallarhelmingi Spán- verja en vörnin var sterk og Miguel Angel, markvörður Spánverja, varði iðulega af snilld. Spánverjar komust áfram í úrslit HM eftir að hafa slegið Júgóslava út i undan- keppni HM. Áhorfendur i Zagreb voru um 60 þúsund. Cosmos sigraði Giorgio Chinaglia skoraði þrennu fyrir New York Cosmos f Aþenu 1 gær, þegar Cosmos sigraði AEK 5—3 — mótherja Nottm. Forest í 2. umferö Evrópubikarsins. Mavros skoraði öll mörk AEK en Seninho og Dennis Tueart fyrir Cosmos. Þrátt fyrir margar breytingar frá leiknum við Holland og litla samæfirlgu liðsins, þar sem tveir nýliðar komu inn, öðluðust íslendingar fleiri tækifæri til að skora en áður í landsleikjum, jafnvel gegn mun veikari liðum en hinu þýzka — vissulega framför. Hinu er þó ekki að leyna að Þjóðverjarnir misnotuðu mörg góð færi og átti blautur völlurinn vafa- lítið sök á þvi. Nokkurs taugaóstyrks gætti hjá is- lenzka liðinu fyrstu minúturnar en Þjóð- verjarnir sóttu af mikilli ákefð, voru þó ekki eins sterkir á taugum og sýndist, þvi í fyrstu sóknarlotu íslendinga munaði minnstu að Dörner, miðvörður Þjóð- verja, skallaði í eigið mark, knötturinn fór rétt utan við marksúluna. Þjóðverjum var strax Ijóst, að íslenzki vamarmúrinn var erfiður viðfangs með Janus Guðlaugsson, sem átti frábæran leik, og Jón Pétursson, er aldrei brást á miðjunni, þvi létu Þjóðverjarnir sína fljótustu menn, Hoffmann og Peter, yfirleitt alveg spila út við hliðarlínurnar til að freista þess að draga vömina íslenzku í sundur og finna þannig glufur. Að visu tókst það á stundum, en Árni Sveinsson bakvörður hafði yfirleitt i fullu tré við hinn eldfljóta Peter og er þá mikið sagt. Sigurður Björgvinsson fann sig ekki alveg strax í bakvarðarstöðunni gegn Hoffmann, en náði góðu valdi yfir Magnús Gíslason, blaðamaður DB í Halle. langt var liðið á leikinn, fékk því lítið tækifæri til að spreyta sig. Hann kom inn á fyrir Árna Sveinsson, sem var ger- samlega útkeyrður í glímunni við lang- snjallasta Þjóðverjann — Peter. Svo vikið sé nánar að gangi leiksins þá tókst Þjóðverjum að skora snemma i fyrri hálfleik. Þar var að verki Riediger, sem fékk knöttinn nokkuð óvænt eftir þrjár eða fjórar tilraunir islenzku ísland skapaði sér góð tækifæri o| undir stjórn Youri llitschev, þá er íslands orðinn beittari en. henni í síðari hálfleik. Ekki má gleyma Þorsteini Bjarnasyni markverði sem átti stórleik — komst á bragðið með að verja fast skot af stuttu færi frá Hoffmann í byrjun. Þorsteinn meiddist síðar á öxl, þegar hann rakst á hvasst horn ferkant- aðrar marksúlu, slíkar marksúlur heyra fortíðinni til víðast. Tengiliðirnir fjórir, 4-4-2 leikaðferðin, var dagskipun Youri Ilitschev, náðu oft góðum tökum á miðj- unni, og er þeir fengu ráðrúm til að at- hafna sig var oft hætta á ferðum. Sér- staklega þegar Karl Þórðarson var á ferð með knöttinn, þvi bæði voru gegn- umbrot hans stórhættuleg svo og send- ingar hans, sér í lagi í byrjun síðari hálf- leiks. Miðherjunum tveimur tókst samt ekki að nýta færin, en þeir Teitur Þórðarson og Pétur Pétursson voru beittir á köflum allt að þvi fúlmannleg- um brögðum, sérstaklega Pétur. Atli Eð- valdsson og Guðmundur Þorbjömsson áttu oft góða spretti, svo og Stefán Öm Sigurðsson, nýliði — en mjög var eftir- tektarvert hvað hann féll vel inn í liðið. Ingi Björn Albertsson kom inn á þegar varnarinnar út úr vítateignum. Færið var opið og stutt. Þorsteinn Bjarnason átti ekki möguleika á að hindra för knattarins í netið. Áhorfendur stóðu upp í sætum sínum yfir sig hrifnir af fögnuði. En dýrðin stóð ekki lengi, eftir eina sóknarlotu Þjóðverja gómaði Þor- steinn Bjarnason, markvörður knöttinn, spyrnti langt fram á völlinn þar sem Atli ] Eðvaldsson „nikkaði” inn fyrir þýzkuj vörnina, rétt fram fyrir tærnar á Pétri, Péturssyni, sem þaut eins og kólfi væri: skotið í átt að marki Þjóðverja. Þegar Pétur var rétt kominn inn fyrir vítateig brá Hauser, varnarmaður Þjóðverja honum illilega. Reynolds, dómari frá Wales — örugglega bezti maður vallar- ins, var ekki í minnsta vafa um dóminn,; benti á vitapunktinn. Þá var fleirum' brugðið en Pétri, áhorfendum líka. Allt datt í dúnalogn á meðan Pétur stillti upp knettinum. Ætluðu Islendingar virkilega! enn að bregða fæti fyrir Alþýðulýð- veldið í knattspyrnyheiminum? „Ég fann ekki til minnsta kvíða,” sagði Pétur eftir leikinn. „Ég var staðráðinn í því að Watford sigraði Un'ited á Old Ti — 2-1 í deildarbikarnum og Bolton 1 Stjörnuhrap I deildabikarnum á Eng- landi heldur áfram. Tvö 1. deildarlið féllu út úr keppninni, sjálfir risar Manchester United féllu út á Old Trafford, töpuöu gegn liðinu hans Elton John, 2-1. Ná- grannar United, Bolton, biðu lægri hlut gegn öðru 3. deildarliði, Exeter, og City varð að gera sér að göðu jafntefii gegn enn einu 3. deildarliði, Blackpool. Sigur Watford í Manchester vakti gífurlega athygli á Bretlandseyjum í gærkvöld, sannarlega óvænt úrslit. Joe Jordan, skozki landsliðsmiðherjinn hjá United, náði forustu fyrir Manchester- liðið í fyrri hálfleik en leikmenn Watford létu ekki bugast. Luther Blissett þaggaði niður í áhangendum United með tveimur mörkum í síðari hálfleik og United náði ekki að jafna. Manchester United komst i mikla fallhættu i 2. um- ferð gegn Stockport úr 4. deild — sem hafði yfir 2-1 er aðeins tvær mínútur voru eftir en þær dugðu United þá, tvö mörk, þar af annað beinlínis gefið — víti — tryggðu United áframhald. En Wat- ford var of sterkt á Old Trafford í gær. Exeter City lagði 1. deildarlið Bolton 2-1 i Exeter. Neil Whatmore var rekinn af velli. Þeir Keith Bowker og Tony Kellow skoruðu mörk Exeter en Alan Gowling svaraði fyrir Bolton. Á Bloom- field Road i Blackpool mættust Black- pool og Manchester City. Mike Channon náði forustu fyrir City en n- irski landsliðsmaðurinn Derek Spence jafnaði fyrir Blackpool, jafntefli, 1-1. Annars urðu úrslit i deildabikamum I gærkvöld: Bn

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.