Dagblaðið - 05.10.1978, Síða 23
23
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1978.
9
Utvarp
Sjónvarp
i
Útvarp íkvöld kl. 20,50:
KÆRILYGARI
— leikrit eftir Jerome Kilty
I kvöld kl. 20.50 verður fluttur i út-
varpinu gamanleikur í tveimur þáttum,
sem Jerome Kilty hefur gert úr bréfa-
skiptum Bernards Shaws og frú Patricks
Campbells. Nefnist leikurinn Kæri lyg-
ari. Þýðinguna gerði Bjarni Benedikts-
son frá Hofteigi en með hlutverkin fara
Sigríður Þorvaldsdóttir og Þorsteinn
Gunnarsson. Leikstjóri er Sveinn
Einarsson. Flutningur leiksins tekur
röskar 100 mínútur.
Frú Patrick Campbell, sem réttu
nafni hét Beatrice Stella Tanner, var ein
dáðasta leikkona sinnar samtíðar. Hún
fæddist i London árið 1865 og fór að
leika á unga aldri. Mesta frægð hlaut
hún fyrir hlutverk Elizu Doolittle j
„Pygmalion” eftir Shaw sem frumsýnt
var 1914. Henni er lýst svo að hún hafi
verið fögur og andrik kona, með djúpa
og heillandi rödd og stór tindrandi augu.
Háðfuglinn og jurtaætan Bernard Shaw
komst i kynni við hana um aldamótin,
og þau skrifuðust síðan á í um það bil 40
ár.
Litlu munaði að bréfin frá Shaw glöt-
uðust. Frú Campbeli andaðist í Suður-
Frakklandi árið 1940, rétt fyrir innrás
Þjóðverja. Bréfin voru geymd í hatta-
öskju í íbúð leikkonunnar i París og
minnstu munaði að Þjóðverjar næðu
þeim. Það er enskri konu, Agnesi
Claudius, að þakka að þau eru enn til.
Bandariski leikarinn og rithöfundur-
inn Jerome Kilty (f. 1922) færði bréfin í
leikritsbúning og var verkiö frumflutt af
höfundinum og konu hans árið 1956.
Þjóðleikhúsið sýndi Kæra lygara leik-
árið 1966—67.
Irski rithöfundurinn Bemard Shaw
var einn svipmesti og fjölhæfasti per-
sónuleiki bókmenntasögunnar á þessari
öld. Leikrit hans skipta tugum og spmu-
leiðis má setja saman marga doðranta úr
ritgerðum hans, leikhús- og bókmennta-
gagnrýni svo og einkabréfum. Shaw var
óþreytandi bréfritari og lét sig ekki
muna um að skrifa tug bréfa fyrir
morgunverð á hverjum morgni. Shaw
var alla tið mikið í mun að mennta og
kenna með leikritum sínum og þar sem
Bernard Shaw.
Útvarpsleikritið 1 kvöld er unnið upp úr
bréfaskiptum hans og frú Patricks
Campbells.
áhugamál hans voru allmörg, allt frá
þjóðfélagslegu réttlæti til jurtaátu,
spanna léikritin mjög vítt svið og þykja
snnidagáhugaverð.
- GAJ/-AI
Útvarp í f yrramálið kl. 10,25: Það er svo margt:
Þeir sem koma fram
eru allir f rændur
Sérhæfum okkur í
Seljum í dag:
Auto Bianchi
árg. 77, ekinn 34 þús. km, verö 1700 þús.
Saab 95
árg.72,ekinn 120þús. km, verð 1400þús.
Saab 96
árg. 72, ekinn 88 þús. km, verð 1250 þús.
Saab 96
árg. 72, ekinn 81 þús. km, verð 1100 þús.
Saab 96
árg. 73, ekinn 74 þús. km, verð 1500 þús.
Saab 99
árg. 72, ekinn 100 þús. km, verð 1800 þús.
Saab 99
árg. 74, ekinn 85 þús. km, verð 2300 þús.
Saab99
4 dyra árg. 74, ekinn 64 þús., km, verð 2500 þús.
Saab 99 EMS
árg. 75, ekinn 47 þús. km, verð 3500 þús.
’ B3ÖRNSSON Aco
BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI 81530 REYKJAViK
Styrkir
til íslenskra vísindamanna til námsdvalar
og rannsóknastarfa í Sambandslýðveld-
inu Þýskalandi.
Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tjáð íslenskum stjórnvöldum að
boðnir séu fram nokkrir styrkir handa íslenskum vísindamönnum til
námsdvalar og rannsóknastarfa í Sambandslýðveldinu Þýskalandi um
allt að fjögurra mánaða skeið á árinu 1979. Styrkirnir nema 1200
þýskum mörkum á mánuði hið lægsta, auk þess sem til greina kemur
að greiddur verði ferðakostnaður að nokkru.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamálaráðuneytisins,
Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir 1. nóvember nk. — Sérstök um-
sóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
3. október 1978.
„Þátturinn byrjar á því að leikin er
fantasía improntu opus 66 í fís-moll,”
sagði Einar Sturluson, umsjónarmaður
þáttarins Það er svo margt, sem verður á
dagskrá Útvarpsins í fyrramálið kl.
10.25. „Síðan les Þorsteinn Eiríksson
yfirkennari Signýjarhárið úr Kvöld-
ræðum sr. Magnúsar Helgasonar frá
Birtingaholti. en hann var fyrsti skóla-
stjóri Kennaraskólans. Þorsteinn Eiríks-
son las þetta inn á band á þriðjudaginn í
síðustu viku en lézt aðfaranótt laugar-
dagsins. Svo þetta er hans svanasöngur.
Þá verða leikin nokkur íslenzk lög. M.a.
leikur Gísli Magnússon Vikivaka í út-
setningu Sveinbjörns Sveinbjörnssonar.
Það sem er skemmtilegt við þennan þátt
er kannski fyrst og fremst það að allir
þeir sem koma fram í honum eru
frændur. Sr. Magnús Helgason skóla-
stjóri sem semur „Kvöldræður” er afa-
bróðir Þorsteins Eiríkssonar sem les.
Sigurður Ágústson sem semur lagið Þú
Árnesþing sem flutt verður í þættinum
er bróðursonur sr. Magnúsar Helga-
sonar. Eiríkur Einarsson sem semur
textann við Þú Árnesþing, er einnig
frændi þeirra Sigurðar og sr. Magnúsar
ELÍZUBÚÐIN
Skiphotó 5,
sími26250.
MAPARTASALAN
Höfum úrval notadra varahluta íýmsar
tegundir bifreida, til dæmis:
Rat 128 árg. 1972 Cortina árg. 1968
Volvo Amazon árg. 1964 Escort árg. 1968
Taunus 17M árg. 1967 Willys V-8
VW 1300 árg. 1971 Land Rover
Einnig höfum vió urval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleda.
Sendum um allt land.
BÍLAPARTASALAN
Höföatúni 10 — Sími 11397
og Eiríkur er móðurbróðir minn,” sagði
Einar Sturluson.
Þá syngur Liljukórinn Allt fram
streymir endalaust, eftir Kristján fjalla-
skáld og söngkonan Leontine Prise
syngur Ave Maria eftir Schubert. GAJ.
Nýkomid!
Tœkifœris-
fatnaður
memi lcndn
-Dóali
í kvöld
Einar Sturluson, umsjúnarmaður
þáttarins Það er svo margt.