Dagblaðið - 05.10.1978, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 05.10.1978, Blaðsíða 24
fískverö hækkar um 5% Fimm prósent meðaltalshækkun á fiskverði var ákveðin af fulltrúum| kaupenda og oddamanni i yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins. Gildir hækkunin frá 1. október til 31. desem-! ber næstkomandi. Enda þótt verðhækkunin hafi ekki verið ákveðin fyrr en i gær, þ.e. 4., október, gildir hún sem almennt lág- marksverð frá og með 1. september sl. Fulltrúar kaupenda eru þeir Eyjólfur Isfeld og Árni Benediktsson. Oddamaður og formaður yfirnefndar er Jón Sigurðsson, forstjóri Þjóðhags- stofnunar. Fulltrúar seljenda, þ.e. sjómanna og útgerðarinnar, eru þeir Ingólfur Ing- ólfsson og Ágúst Einarsson. Greiddu þeir atkvæði á móti svo lítilli verð- hækkun. Létu þeir bóka m.a., að á síðastliðnum 12 mánuðum hafi fisk- verð hækkað um 35—36%. Á sama tima hefði almennt kaupgjald í land- inu hækkað um 50—70%. Það væri því ljóst, að kjör sjómanna hafi því versnað verulega á siðastliðnu ári, sé miðað við aðrar stéttir. Töldu þeir 5% hækkunina talsvert of litla. Fulltrúar kaupenda létu hins vegar bóka að þeir greiði atkvæði með 5% hækkuninni í trausti þess, að ríkis- stjómin standi við það fyrirheit, sem hún gaf í samstarfsyfirlýsingunni, þ.e. að hún beiti sér fyrir lækkun fram- leiðslukostnaðar útflutningsatvinnu- veganna, sem svari 2—3% af heildar- tekjum, meðal annars með lækkun vaxta af rekstrar- og afurðalánum. Telja þeir þó, að þrátt fyrir þessi kostn- aðarlækkun komi á móti fiskverðs- hækkuninni, telji þeir rekstrarstöðu fiskvinnslunnar engan veginn full- nægjandi. - BS FARA SJOMENNIVERKFALL? — telja sig ekki lengur bundna af hvatningu ASÍ um að falla frá samningsuppsögnum „Ég tel þessa verðlagningu með þeim hætti og það bera árás á sjó- mannastéttina að við hljótum að athuga okkar gang og teljum okkur nú ekki lengur bundna þeirri hvatningu ASÍ aö falla frá samningsuppsögn- um,” sagði Öskar Vigfússon, formaður Sjómannasambandsins, í viðtali við DB í morgun vegna hins nýja fisk- verðs. Sjómenn eru nú með uppsagða samninga og gætu farið í verkfall með viku fyrirvara. Ekki hafa undirtektir við slíkar aðgerðir verið ræddar enn í aðildarfélögunum, „en það er nauð- synlegt að halda því opnu,” sagði Óskar. Óskar sagði aö lokum: „Þeir menn sem fara með þessi verðlagsmál hafa þegar pissað í skóna nú og ég ætla að þeim verði erfiðara að gera okkur það vel um áramótin að við getum vel við unað, þar sem þá verður verulegt stökk óumflýjanlegt.” - G.S. færaleikarar, sem eru 1 för með þeim. Höfðu áhorfendur ósvikið gaman af framferði þeirra. í kvöld verður sýning í Iðnó og á laugardag heldur Miehe fyrirlestur f Norræna húsinu. — DB-mynd Hörður Trúðar, þessir alvöru, eru ekki algengir á landi hér. Einn slikur er nú f heimsókn hér. Hann heitir Armand Miehe og kemur frá Sviþjóð. Miehe er af kunnri fjöUeika- hússætt sem á uppruna sinn i Mið- og Suður-Evrópu, en sjálfur hefur hann búið i Danmörku og Sviþjóð og komið þar fram i fjöUeikahúsum. t gærkvöldi voru þau að leika sér i Iðnó, Miehe, kona hans, leikari og tveir hljóð- Brennivínið virðist einfaldlega of dýrt: r------------------- í kjölf ar kjöt lækkunar: \ frfálst, óháð dagblað FIMMTUDAGUR 5. OKT. 1978. Eldur undir gólfií strætisvagni Árrisulir Kópavogsbúar urðu fyrir nokkrum ferðatöfum í morgun er eldur kom upp í strætisvagni þeirra. Kviknaði hann út frá ofhitun i sjálfskiptingu bils- ins og logaði glatt undir gólfi. Slökkvi- liðsmenn voru fljótir að slökkva, en sem fyrr sagði urðu ýmsir fyrir töfum vegna þessa óhapps. - ASt. bramlað hjá kvenréttinda- konum Óboðinn gestur braut sér leið inn í skrifstofuhúsnæði Hallveigarstaða i nótt. Ekki var vitað í morgun um hvort honum tókst að hafa verðmæti upp úr krafsi sínu en skemmdum olli hann miklum á skrifstofum kvenfélaganna sem þarna hafa aðsetur. Innbrotið var tilkynnt klukkan stund- arfjórðung yfir eitt í nótt. Málið er enn í rannsókn, en svo virtist i morgun að skemmdarverkin, sem unnin voru væru stærsti þáttur málsins. -ASt. Aðalfundur SÁÁ: Bindindis- menná ennþá í hár saman Menn geta ekki einu sinni bundizt samtökum um að hætta að drekka brennivín, án þess að þeir fari jafnframt að berjast um, hver eigi að vera i stjórn og þó sérstaklega i formennsku. ÞRIÐJUNGS MINNKUN A SÖLU í SEPTEMBER „Það hefur orðið verulegur sam- dráttur í áfengissölunni eftir siðustu hækkun, 8. september. Það hafa verið óvenjumiklar hækkanir núna, tvær í röð. Júlíhækkunin virtist ekki hafa mikil áhrif. 1 september er salan hins vegar 35—40% minni en hún hefði átt að vera miðað við sama tíma í fyrra,” sagði Birgir Stefánsson verzl- unarstjóri í áfengisútsölunni á Snorra- braut er DB hafði samband við hann í morgun. „Nei. Það hefur ekki borið á því núna að salan aukist í léttari vín- unum á kostnað þeirra sterkari. Það er greinilegt að áhrifanna gætir ennþá og ég get sagt það að við höfum aldrei orðið varir við áður að salan minnkaði jafn mikið og nú og yrði jafn langvar- andi.” Erlingur Ólafsson i áfengisútsölunni á Lindargötu tók mjög i sama streng. Það hefði dregið meira úr sölunni nú en venjulegt væri eftir slíkar hækkan- ir. „Það er svo stutt á milli hækkan- anna nú og þess vegna verður aftur- kippurinn meiri og lengur að jafna sig,” sagði Erlingur. í áfengissölunni á Laugarásvegi fengust einnig þær upp- lýsingar að dregið hefði úr sölunni. Áfengið hækkaði um 20% 13. júlí sl. og aftur um 20% 8. sept. Á þessum tima hefur brennivinsflaskan hækkað úr 4200 kr.í 6200 kr. STEIKÁ VEITINGA- HÚSUNUMÁ NÚAÐ LÆKKA UM 4-6% „Það er dálítið erfitt að alhæfa um skrifstofu verðlagsstjóra vita um mörg þetta, en mér sýnist að almennt ætti fleiri, sem einnig hefu lækkað verðið. verð á veitingahúsamat að lækka um „Við sendum Sambandi veitinga- og 4—6%. Það er þó misjafnt vegna þess gistihúsaeigenda bréf um lækkunina, að efniskostnaður vegur misjafnlega og sambandið sendi siðan félögum mikið í verðinu, svo og húsnæðis- sínum dreifibréf með tilkynningu kostnaöur og fleira,” sagði Gisli ísleifs- okkar,” sagði Gísli í samtalinu við DB.' son á skrifstofu verðlagsstjóra í „Þá hafa margir haft samband við samtali við DB i morgun. okkur út af lækkuninni og ýmsir sent Með lækkun á kindakjöti og afnámi okkur nýju matseðlana og verðlistana. söluskatts á matvöru ætti útseldur Þessi lækkun ætti því að vera komin matur á veitingahúsum að lækka. til framkvæmda núna á flestum Aðeins eitt veitingahús, Hótel Loft- stöðum, en eins og ég sagði, þá getur leiðir, hefur auglýst lækkun á út- hún verið dálitið misjafnlega mikil.” seldum mat, en Gísli ísleifsson sagði -ÓV. Aðalfundur SÁÁ verður haldinn í kvöld. Þar verður að sjálfsögðu kosin stjórn auk annarra aðalfundarstarfa. Harður áróður er rekinn fyrir þvi að fella Hilmar Helgason frá formanns- starfi í samtökunum. Hins vegar virðast andstæðingar hans ekki alveg á einu máli um það, hver eigi að erfa stöðuna. Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem áhugamenn um bindindismál fara í hár saman út af meira og minna tilbúnum á- greiningi, engum til meira tjóns en góðum tilgangi samtakanna. - BS Kaupio ,3 TÖLVUR í I* OGTÖl BANKASTRÆTI8

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.