Dagblaðið - 30.10.1978, Side 1

Dagblaðið - 30.10.1978, Side 1
A w V I r § I V t t t t t t t dagMað 4. ÁRG. - MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1978 — 241. TBL. R11S i lÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIDSLA ÞVF.RHOLTI 11, — AÐALSIMI 27022. SKIPVERJAR A ELDVIKI SÓTTKVÍ Á DJÚPAVOGI Flutningaskipið Eldvik liggur nú á Djúpavogi og er áhöfnin, 11 menn, og einn farþegi I sóttkví á meðan verið er að ganga úr skugga um hvers eðlis sá sjúkdómur er, sem herjað hefur á skipverja undanfarið. Skipið kom til Hafnar í Hornafirði aðfaranótt laugardagsins frá Port Harcourt i Nígeriu, með viðkomu á Kanaríeyjum á heimleiðinni. Á meðan skipið beið losunar í Nígeríu tók að verða vart sjúkdóms með óvenjulegum einkennum. Alls mun um hálf skipshöfnin hafa tekið veikina. Þegar skipið kom til Hafnar til- kynnti skipstjórinn læknum staðarins tafarlaust um veikina og að sögn Ólafs Jónssonar læknis, fór hann þegar um borð ásamt öðrum lækni til að rannsaka skipverja. Ekki tókst þeim að greina hvers kyns var og höfðu þá strax samband við landlækni, sem sendi í fyrradag flugvél austur eftir blóðsýnum úr þeim er höfðu tekið veikina. Síðla dags í gær lágu niður- stöður ekki enn fyrir. Að sögn Ólafs virðast hinir sýktu allir á batavegi og munu aldrei hafa orðið mjög þungt haldnir. Svo virðist sem um einhvern smitsjúkdóm sé að ræða, hugsanlega einhvern hitabeltis- sjúkdóm sem er óþekktur hér. Er ekki talið ólíklegt að sjúkdómurinn hafi borizt um borð með matvælum, vatni eða jafnvel með skordýrabiti. Þótt enn sé óljóst um hváða sjúkaóm er að ræða, taldi Ólafur ástæðulaust að óttast neitt um út- breiðslu hans né líðan skipverja úr þessu, þar sem t.d. sá sem fyrstur tók veikina er að verða fullfriskur aftur án læknishjálpar. Skipið fékk að fara til Djúpavogs þar sem engu skiptir hvort það liggur þar við bryggju eða á Höfn, enda er skipverjum bannað að fara í land. Guðni litli, 14 mánaða, smakkaði á gómsætum umbúðum kaffisins, þegar hann fór með móður sinni Sigriði Halldórsdóttur og systur, Sigrúnu 10 ára að verzla. Það eru DB og Vikan sem borga brúsann. Hvers vegna? Jú, Sigríður tö(§tótt i búreikningahaldinu og sendi inn upplýsingarseðil og nafnið hennar var dregið út. Hún fékk tæplega 100 þúsund kr. úttekt! Sjá nánar á bls. 4. Af hverju vísitalan hef ur brugðizt „Það er bezt að segja það hreinskilnislega, að ef 1. desember liður án þess að til komi verulegur uppskurður á vísitölukerfinu, þá hefur okkur jafnaðarmönnum mistekizt illa... ” — sjákjallaragrein Vilmundar á bls. 10 og 11 Hefur Sölumið- stöðin einkarétt á orðinu „lcelandic?” — sjá Ameríkubréf Þóris Gröndal ábls. lOogll Sædýrasaf nið fær 240 milljónir fyrir háhyrningana I ðl" — sjá bls. 7 „Rúmrusk” LR á vafalaust gott gengi framundan — Ólaf ur Jónsson skrifar um leiklistábls. 12 Aðalsteinn skrifar um tónleika Önnu Moffo — sjá bls. 5 *

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.