Dagblaðið - 30.10.1978, Síða 21

Dagblaðið - 30.10.1978, Síða 21
21 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1978 Iþróttir Iþróttir I I Iþróttir íþróttir Enn tap Celtic — Liðið hefurekki unnið leikí mánuð og missti í fyrsta skipti forustunaá laugardag Celtic missti forustuna i úrvals- deildinni skozku á laugardag — forustu, sem liðið hafði haft frá byrjun keppnis- tímabilsins. Celtic tapaði þá 2—0 fyrir Hearts í Edinborg og hcfur aðeins fengið eitt stig í deildinni síðustu fjórar vikurnar. Drew Busby skoraði bæði mörk Hearts og ekki tókst Celtic að skora þó Hearts léki með 10 mönnum lokakafla leiksins. Útherjinn Malcolm Robertson var rekinn af velli. Bjarni Bessason, ÍR, setur hendurnar fyrir andlitið eftir að hafa misst knöttinn í opnu færi. DB-mynd Hörður. Sigurmark Fram skorað 5 sekúndum fyrir leikslok Sigurbergur Sigsteinsson tryggði Fram sigur gegn ÍR í 1. deildinni íhandknattleik Hinn margreyndi landsliðsmaður og þjálfari Fram, Sigurbergur Sigsteinsson, brauzt inn úr horninu þegar aðeins fimm sekúndur voru eftir af viðureign Fram og ÍR og skoraði sigurmark Fram, 18—17, eins og honum einum er lagið. Fram fór þvl með bæði stigin af hólmi, dýrmæt stig. Þegar sjö minútur voru til leiksloka hafði ÍR yfir 16—13. Á þessum minútum tókst Fram með baráttu og ákveðni að siga fram úr og vinna nokkuð óvæntan sigur. Já, óvæntan sigur vann Fram aö þvi leyti að í 53 mínútur var ÍR betra liðið á vellinum. Atli Hilmarsson skoraði fyrsta mark leiksins, kom Fram í 1—0. En með ómældri baráttu, sér í lagi í vörn, tókst IR að skora sex næstu mörk, komast i 6—1 og síðan 8—2. Vörn ÍR var mjög sterk, nánast veggur, sem leikmenn Fram réðu ekki við og að baki vörn ÍR var Jens Einarsson góður í markinu. Þegar 15 mínútur voru liðnar af leiknum hafði IR náð 6 marka forustu, 8—2. En þá var engu líkara en leikmenn ÍR linuðu tökin, sér í lagi í vörn og Fram tókst að minnka muninn í tvö mörk, 9— 7 og fimm mínútur til loka fyrri hálf- leiks. En ÍR-ingar náðu góðum enda- spretti og juku muninn aftur, höfðu náð fimm marka forustu í leikhléi, 12—7. Auðveldur sigur FH FH vann næsta auðveldan sigur á nýfiðum Fylkis í 1. deild íslandsmótsins á föstudagskvöldið, 22—17, eftir að hafa haft yfir i leikhléi, 14—7. Janus Guðlaugsson lék með FH að nýju — hann var liðinu mikill styrkur — og leikmenn Fylkis réðu ekki við hraða FH. FH hefur þvi hlotið fjögur stig úr tveimur fyrstu leikjum sínum, gegn Fylki og IR. Greinilegt er að liðið verður sterkt í vetur, með þá Janus og Geir og hraða sem aðalvopn, og siðar, er Viðar Símonarson kemur inn. Mörk FH gegn Fylki skoruðu: Janus Guðlaugsson og Geir Hallsteinsson 7 mörk hvor, Guðmundur Árni Stefáns- son 4, I víti, Sæmundur Stefánsson 3 og Theódór Sigurðsson 1 mark. Hjá Fylki skoraði Gunnar Baldvinsson, Einar Ágústsson og Halldór Sigurðsson 4 mörk hver. Óskar Ásgeirsson 2, Sigurður Símonarson, Stefán Hjálmsson og örn Hafsteinsson 1 mark. Það var gæðamunur á liðunum, hinir ungu leikmenn Fram komust sáralítið áleiðis gegn sterkri vörn ÍR, og i markinu stóð Jens Einarsson sig mjög vel. Það hvarflaði því vart annað að hinum fáu áhorfendum en að ÍR færi með sigur af hólmi. En leikmenn Fram neituðu að leggja árar í bát, og framan af síðari hálfleik, skildu mörk og upp í fimm, 12—8, 13—8, 13—9, 14—9, og á 12. mínútur 15—11. Þegar síðari hálf- leikur var hálfnaður skildu þrjú mörk, 15— 12. Varnarleikur í hávegum hafður hjá báðum liðum, sóknarleikurinn hins vegar ekki jafnbeittur. Á 10. minútna kafla skoruðu liðin aðeins eitt mark hvort, Fram minnkaði muninn í 15— 13, Gútaf Björnsson víti. Brynjólfur Markússon svaraði með góðu marki, 16— 13 og sjö mínútur eftir. En næstu þrjú mörk voru Fram, öll úr vítum — öll skoruð af Gústafi Björnssyni og staðan skyndilega jöfn, 16—16, og tvær mínútur eftir. ÍR-ingar með knöttinn en misstu hann, og Gústaf Björnsson brauzt í gegn og skoraði 17—16, Fram yfir í fyrsta sinn siðan Atli skoraði fyrsta mark leiksins. Þegar 45 sekúndur voru til leiksloka jafnaði Bjarni Bessason, 17— 17, en Fram átti síðasta orðið þegar Sigurbergur Sigsteinsson brauzt i gegn, skoraði sigurmark Fram, 18—17. Dýrmæt stig til hins unga liðs Fram. Fram hefur á að skipa efnilegu, ungu- liði, sem enn skortir mjög reynslu. Þá er varnarleikur liðsins ekki nógu sterkur enn, og markvarzlan Veikur punktur. Þó Lítil breyting íV-Þýzkalandi Úrslit I 1. deild Vestur-Þýzkalands á laugardag urðu þessi. Schalke-Kaiserslautern 1—1 Duisburg-Nuremberg 1—0 Dortmund-Dússeldorf 3—0 Gladbach-Stuttgart 0—0 Bayern MUnchen-Hertha 1 — 1 Arminia-Köln 1—0 Frankfurt-Darmstadt 2—0 Braunschweig-Hamborg 1—0 Staða efstu liða er nú þannig: Kaisersl. 11 6 5 0 24-11 Frankfurt 11 7 1 3 20-15 Bayern 11 7 0 4 25-13 Hamborg 11 6 2 3 21-10 Stuttgart 11 6 2 3 20-15 Schalke 11 4 5 2 19—14 gaf Guðjón Erlendsson góð fyrirheit þar, varði á köflum vel í síðari hálfleik. ÍR-ingar misstu af stigum í orðsins fyilstu merkingu, mest vegna skorts á einbeitingu. iR-liðið er sterkt, en sóknar- leikur liðsins er ekki nógu beittur. Vörnin er aðall lR og markvarzlan góð. Þó það virðist öfugmæli, er það engu síður sannleikskorn, að erfitt verður að sigra ÍR í vetur, án þess þó að ÍR-liðið hljóti mörg stig. Mörk Fram skoruðu: Gústaf Björns- son 7, 6 víti. Atli Hilmarsson 3, 1 viti. Sigurbergur Sigsteinsson, Birgir Jóhannsson, og Erlendur Davíðsson skoruðu 2 mörk hver. Theódór Guðfinnsson og Kristján Unnarsson skoruðu 1 mark. Hjá ÍR var Brynjólfur Markússon markhæstur með 6 mörk, 1 víti. Guðjón Marteinsson 5, Bjarni Bessason og Ársæll Kristjánsson 2, Bjarni Hákonarson 1 — víti og Sigurður Gíslason 1 mark. Leikinn dæmdu þeir Björn Kristjáns son og Árni Tómasson. Þeir höfðu góð tök, en virtust fullörlátir á viti við Fram í lokin — 4 víti í röð. Fimm ÍR-ingar voru reknir af velli, 1 Framari. Fram fékk 8 viti, ÍR 3. -H. Halls. Dundee Utd. náði efsta sætinu á laug- ardag með sigri á Partick Thistle 2—0 í Dundee. David Dodds og David Narey skoruðu mörk Dundee United - skoruð í síðari hálfleik. - bæði Úrslit á laugardag urðu þessi: Dundee Utd.-Partick 2-0 Hearts-Celtic 2-0 Morton-Aberdeen 2—1 Motherwell-St. Mirren 1-2 Rangers-Hibernian 2-1 Rangers sigraði Hibernian, Edinborg, 2—1, og hefur nú ekki tapað í síðustu átta leikjunum. Alex Forsyth, víta- spyrna, og Gordon Smith skoruðu fyrir Rangers áður en Ally McLeod skoraði eina mark Hibernian. Jarvie náði forustu fyrir Aberdeen i Greenock á 18. min. en þeir Andy Ritchie og Russell tryggðu sigur heimaliðsins. Staðaner nú þannig: Dundee Utd. 11 5 5 1 15-8 15 Celtic 11 6 1 4 20-14 13 Hibernian 11 4 5 2 12-10 13 Rangers 11 3 6 2 12,-10 12 Aberdeen II 4 3 4 12—14 11 Paftick 11 4 3 4 12-12 11 St. Mirren 11 5 1 5 12-13 11 Morton 11 3 4 4 13—16 10 Hearts 11 3 4 4 12-18 10 Motherwelí 11 2 0 9 8-24 4 SKEMMDAR HLJÚM LÖTUR ? Það hefur lengi vatdiá mikgum hljómplötueigandanum heilabrotum hvers vegna nýjar hfómplötur missa fljótlega hljómgæóin. Ástæóurnar fyrir þvi geta verið nokkrar en sú sem vegur þyngst ó metunum er léleg hljóódós (pick- up) og sfitin nál Hljóódósin og nálin eru þe 'rr hhitir plötuspilarans sem ráda úrsBtum um hljómgæói og endingar- tíma hljómplötunnar. Efþú heldur aó plötuspilarínn þinn sé oróinn lélegur og það sé timabært að fá sér nýjan, veistu þá að ný hljóðdós getur gert hann sem nýjan? Annað mikilvægt atriði i meðferó á hljómplötum er hreinsun þeirra. Nauósyniegt er að rétt hreinsiefni séu notuó og rétt handbrögð viðhöfð. Hreinar plötur og góð hljómdós tryggja besta fáanlegan htjómburð. Komdu með p/ötu- spilarann til okkar og vió munum aóstoða þig við að vefa bestu hfómdósina fyrir plötuspi/arann þinn. Veitum allar tæknilegar uppfýsingar um hvers konar hfómtæki.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.