Dagblaðið - 30.10.1978, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1978
TILRAUN
SEM VERT
ER AÐ GERA
Þverskurður af tillögu bréfritara
Malbikuð ræma sem hugsuð er til að
draga úr hraða ökutækja. Sjá má
afstöðu malbikuðu ræmanna við gang
brautina.
—til aðforðast hin
hryggilegu
gangbrautarslys
— upphækkuð
malbikuð ræma
fyrirframan
gangbraut
,j,.
Bréfritari telur þessar ræmur koma
veg fyrir slikan framúrakstur.
5077-2071 skrifar:
Á undanförnum árum hafa orðið
hörmuleg gangbrautarslys. Engu er
líkara en að það sé öruggara fyrir
gangandi vegfarendur að fara yfir
götu þar sem ekki er merkt gangbraut.
Þessa uggvænlegu þróun verðum
við ökumenn að athuga nánar. Okkur
ber að draga úr ferð áður en við
komum að gangbraut en það vill oft
gleymast.
í efra Breiðholti hafa verið gerðar
bungur á akbrautirnar og þær
mjókkaðar þannig að aðeins einn bíll
komist yfir í einu. Þetta hefur gefið
góða raun. En slíkt er ekki hægt að
gera á miklum umferðargötum.
Þar sem ljósaútbúnaður er mjög dýr
og langt i land með að koma honum
upp við þær gangbrautir þar sem mest
umferð er hefur mér komið ráð í hug.
Sett yrði ræma af malbiki, eins og ég
sýni á teikningu sem birtist með grein-
inni. Þessi ræraa yrði framan við gang-
brautina, hvor sínum megin, þannig
að hver bíll þyrfti aðeins að að fara
yfir eina ræmu. Ræmurnar yrðu alveg
við gangbrautina þannig að ekki yrði
hægt að leika þann leik sem sýndur er
á teikningu nr. 2.
Með þessu skapast ekki hætta þótt
ekið sé hratt yfir, en óþægindi verða er
bifreiðin fer ofan af bungunni, því
þeim megin er meiri bratti en þar sem
billinn kemur að. Það verður aflíðandi
halli.
Ekki þarf að myndast bílalest við
gangbrautirnar vegna þessa. Bifreiða-
stjórar þurfa að draga úr hraðanum
niður í 30 km hraða. Þar sem það
veldur þvi að bílstjórinn er kominn
með fótinp á bremsuna skapar það
öryggi. Ef stoppa þarf skyndilega
sparast sekúndubrot við það að fótur-
inn er þegar á bremsunni.
Ég vona að þetta verði tekið til
reynslu, því fátt er hryggilegra en ef
ekið er á gangandi vegfaranda.
Félagáhuga-
fólks um
umferðarmál
Sigurður Gíslason hringdi:
Hvers vegna eru varnir gegn
umferðarslysum ekki teknar fastari
tökum. Það er stórkostlegt hagsmuna-
mál að koma i veg fyrir umferðarslys.
Það má sýna fram á það með rökum
að þeir sem verst verða úti i umferðar-
slysum eru þeir sem minnst mega sín.
Það eru börn, gamalmenni og þeir
tekjulægstu, sem aka á ódýrustu og
veigaminnstu bílunum.
Þeir sem telja sig túlka sjónarmið
þessara hópa, t.d. foreldrar, ASÍ,
Slysavarnafélagið og fleiri, ættu að
hafa forgöngu um stofnun félags
áhugafólks um umferðarmál. Þetta
félag ætti að þrýsta á dómsmálaráð-
herra sem æðsta aðila umferðarmála
að skipuð yrði ópólitísk nefnd til að
gera allsherjarathugun á umferðar-
málunt hér á landi og benda á leiðir til
úrbóta.
Kanna ætti i þvi sambandi hvernig
þeim rnálunt er háttað i nágranna-
löndum okkar. í Svíþjóð er t.d. sér-
stakt rannsóknarráðá sviði umferðar-
mála. Þegar niðurstöður nefndarinnar
lægju fyrir ætti að fá fólk sem kann vel
til verka til að skipuleggja umferðar-
slysavarnir. Nefna má, t.d. verk-
fræðinga, tæknifræðinga, auglýsinga-
fólk og fl. Kostnaður yrði síðan greidd-
ur úr sameiginlegum sjóði.
Einnig ætti verulegur hluti
tryggingariðgjalda að renna til þessara
starfa. Pólitísk ráð og nefndir sem
starfa að þessum málum ættu að fá frí.
Umferðarslysavarnir eru hagsmuna-
mál almennings og blóðugt að horfa
upp á kák og dauðyflishátt i þessum
málum.
Draslið á Holtsgötunni sem Guðrún'talarum.
DB-mynd Ragnar Th.
Drasl á Holtsgötunni
Guðrún Guðmundsdóttir, Vesturgötu
35, hringdi:
Við Holtsgötu 35 er verið að
endurbæta hús, en óþarflega mikill
sóðaskapur virðist því samfara. Ég hef
gengið þarna um undanfarnar tvær
vikur og ekki séð að nein bót hafi verið
ráðin þar á þeim tíma.
Þarna eru stór ílát full af drasli og
drasl á gangstéttunum. Ef eitthvað
hvessir fýkur bréfadrasl út um allt frá
þessu. Þarna þyrfti að þrífa jafnóðum,
það drasl er til fellur vegna fram-
kvæmdanna.
Þríf ið eftir hundana
Hundaeigandi I Reykjavík hringdi:
„Aldrei er góð vísa of oft kveðin.
Kæru hundaeigendur. Mig langar til
að koma á framfæri smá athugasemd
um óþrifnað á almannafæri sem okkar
fjórfættu tryggu vinir eru svo oft
valdir að. Auðvitað þurfa þeir að gera
sínar þarfir eins og aðrir og þá
stundum hvar sem er og hvenær sem
er. Ekki þætti okkur geðslegt ef ein-
hver, sem óafvitandi hefði stigið ofan í
hundaskít, bæri þetta síðan um allt
okkar heimili. Það er nú einu sinni
þannig að ekki er lengur til siðs að fara
úr skóm þegar inn er komið. Takið þvi
alltaf með ykkur plastpoka þegar þið
farið út að ganga með hundinn. Það
fer ósköp lítið fyrir slíkum pokum i
vasa eða veski. Þrífið upp eftir ykkar
hund. Hver veit nema við fáum
nokkur atkvæði í staðinn og þó ekki
væri nema vegna tillitssemi við aðra.”
Vitni vantar að árekstri
Einar Arnarson hringdi:
„Mig vantar vitni að árekstri sem
varð á mótum Hofsvallagötu og
Hringbrautar 27. júní sl. Þarna lentu í
árekstri grá Toyota Mark II og grænn
Volkswagen. Árekstur þessi varð laust
eftir hádegi. Sá er kynni að hafa orðið
vitni að þessum árekstri er beðinn að
hafa samband
73378.”
við Einar i síma
RarJdir lesenda einnig á bls.
4
Nýja saumavélin, sem gerir alla saumavinnu auðveldari en áður:
NECCHI
SILTJIQ
fm
NECCHI SILTJIO saumavélar eru búnar öllum kostum eldri véla auk ýmissa nýjunga.
Með NECCHI SILOIO saumavél er unnt að sauma nánast hvaða efni sem er - allt frá þunnum
teygjuefnum til þykkra gallabuxnaefna.
NECCHI SILTJICJ saumavélar eru búnar mynsturveljara með liteinkenni. Þetta einfalda fyrir-
komulag gerir allar stillingar við val á saumgerð fljótlegri og öruggari en áður hefur tíðkast.
NECCHI SlLLflO saumavélar eru með sérstökum búnaði, þannig að nálin hreyfist með því sem
ncest fullum krafti á hvaða hraða sem er.Þannig er unnt að sauma jafnvel mjög þykk efni á
litlum hraða.
NECCHI SILTJIQ saumavél vegur aðeins um 12 kg með tösku og öllum fylgihlutum. Hún er því
sérlega létt í meðferð og flutningi.
Nákvcemt eftirlit við framleiðslu og sölu ásamt traustri þjónustu tryggja hámarksnotagildi
NECCHI saumavéla.
NECCHI S1L7JIQ saumavélum fylgir nákvamur leiðarvísir á íslensku um notkun og viðhald.
Útsölustaðir víða um land.
Einkaumboð á íslandi:
FALKIN N
Suðurlandsbraut 8 - sími 84670
/Pekking
'feynsla
Sendum
bæklinga,
ef óskað er