Dagblaðið - 30.10.1978, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1978
9
Þyrstur maður
hugsarekki
um mengun
„Þegar maður er þyrstur, þá hugsar
maður ekki um mengun,” sagði Bourj
Mammoud og fékk sér slurk úr götu-
ræsinu. Og ef dæma má eftir mynd-
inni eru fleiri sem taka mengunina
ekki með í dæmið. Myndin er tekin í
hinum kristna hluta Beirút. Þar flæddi
vatnið um göturnar eftir að vatns-
leiðslur voru eyðilagðar.
Loft hefur verið lævi blandið í
Beirút undanfarið. Átök hafa brotizt
út við og við, þó hefur vopnahlé
haldizt að mestu. Mestum deilum
hefur valdið yfirlýsing utanríkisráð-
herra Ftakka, en hann lýsti því yfir aö
kristnir hægrimenn hefðu átt upptökin
aðóeirðunum í Beirút.
Mörg blöð hafa krafizt þess að ráð-
herrann segi af sér vegna þessara
ummæla, en utanrikisráðherrann
hefur haldið því fram að ummælin
hafi verið rangtúlkuð í fjölmiðlum.
Spánn:
Greið/ð ekki atkvæði
segja foringjar Baska
Leiðtogar þjóðernissinnaðra Baska
á Spáni hafa hvatt Baska til þess að
taka ekki þátt í atkvæðagreiðslu um
nýja stjórnarskrá á Spáni, sem fram
fer snemma í desember nk. Hin nýja
stjórnarskrá á að taka við af stjórnar-
skrá þeirri er sett var í valdatið
Frankos, fyrrum einræðisherra á
Spáni. Baskar telja að hin nýja
stjórnarskrá taki ekki nægilegt tillit til
sögulegra réttinda Baska.
Ákvörðun leiðtoga Baska, Carlos
Garaicoechea, kemur illa við ríkis-
stjórn Adolfo Suarez, sem reynt hefur
að miðla málum í norðurríkjum
landsins, þar sem Baskar eru fjölmenn-
astir.
Þjóðernisflokkur Baska hefur kraf-
izt meira sjálfræðis Baska. Flokkurinn
hlaut flest atkvæði í norðurhéruðun-
um í síðustu kosningum, og var aðeins
sósíalistaflokkurinn sem komst til
jafns við hann.
Flokkurinn hefur nýlega tekið upp
harða stefnu gegn ofbeldisverkum
aðskilnaðarsinnaðra Baska, ETA, sem
staðið hafa fyrir mörgum hryðjuverk-
um að undanförnu.
Stjömustríðsmenn í raun
Kvikmyndin Star Wars hefur gert fádæma lukku eins og kunnugt er. Við tslendingar fáum nú að berja augum þessa mynd
sem sópaði að sér Óskarsverðlaunum nú í ár. t myndinni leika alls kyns figúrur en hér að ofan eru nokkrir leikaranna á bak
við figúrurnar. Frá vinstri talið má nefna Harrison Ford, sem lék Hans Solo, Antony Daniels sem lék vélmennið C3PO,
Carrie Fisher, sem lék prinsessuna og Peter Mayhew sem Chewbacca.
Spánn:
Fimmtán fiýðu
úr fangelsi
— í gegnum göng úr einum klefanna
Lögreglan i Murcia á suð-austur
Spáni leitar nú með aðstoð lögreglu-
hunda 12 fanga sem sluppu úr fangelsi
i Murcia á laugardagskvöld. Fang-
arnir sluppu eftir göngum úr fangels-
inu. I gær tókst lögreglunni að hafa
hendur i hári þriggja úr hópnum.
Einn mannanna, sem biður dóms
vegna morðs á leigubílstjóra, var
handtekinn 75 km frá flóttastaðnum
við vegatálmun í bænum Alicante.
Fangarnir 15 sluppu út er þeir ásamt
öðrum föngum horfðu á kvikmynd í
sjónvarpinu. Mennirnir hurfu einn og
einn úr salnum, þannig að verðir tóku
ekki eftir neinu óvenjulegu. Þeir
komust í gegnum göng, sem grafin
höfðu verið út frá einum fangaklefan-
um.
Þetta er í annað skipti á 3 mánuðum
sem fjöldi fanga sleppur úr fangelsi á
Spáni. I júni sluppu 45 fangar úr fang-
elsi i Barcelona, einnig í gegnum
göng. Hluti þeirra sem þá sluppu
náðist ekki fyrr en mánuði eftir flótt-
ann. Þá höfðu þeir rænt banka, skotið
ungan mann til bana og sært lögreglu-
mann og öryggisvörð banka alvarlega
i skotbardaga.
Filippseyjar:
Neyðarástand
vegna felli-
bylsins Ritu
A.m.k. eitt hundrað manns létu lifið
á Filippseyjum af völdum fellibylsins
Ritu sem fór yfir landið í siðustu viku.
Mörg smáþorp eru gjörsamlega í rúst-
um eftir óveðrið og tjónið er lauslega
metiðá 16—17 milljarða króna.
Þúsundir manna hafast enn við á
húsþökum vegna flóða er fylgdu í kjöl-
far fellibylsins. Neyðarástandi hefur
verið lýst yfir í Luzon, aðalhrísgrjóna-
ræktarlandi landsins, norður af höfuð-
borginni. Stjórnvöld á Filippseyjum
segja að 600 þúsund manns hafi orðiiT
fyrir tjóni af völdum fellibylsins.
Ferdinand Marcos forseti flaug í
gær yfir þau svæði sem verst urðu úti.
Hundruð húsa og skóla voru horfin á
þeim svæðum er verst urðu úti, t.d. i
Nueve Ecija, Tarlac, Pampanga og
Bulacan.
Bandariskar björgunarsveitir eru
komnar á vettvang til þess að aðstoða
innlenda björgunarmenn viðstörf sin.
NewYork:
FLUGSTANZ
HJA PANAM
—vegna óvænts verkfalls starf smanna
Farþegar bandaríska flugfélagsins um að koma aftur til vinnu, en þeir hafa
Pan Am sjá nú fram á langa bið á flug- ekki sinnt þeim kröfum. Þetta er þriðji
völum og frestun áætlunarferða. Starfs- dagurinn sem deilan stendur. öllum
menn krefjast launahækkana og til- flugferðum frá New York seinkaði í gær
kynna veikindi til þess að leggja aukna um margar klukkustundir vegna þessa
áherzlu á kröfur sínar. ólöglega verkfalls starfsmannanna.
Dómstóll hefur skipað starfsmönnun-