Dagblaðið - 30.10.1978, Side 23
23
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1978
Það er yfirleitt hin mesta raun að
lesa yfir dægurlagatexta þá sem
samdir eru hér á landi og eiginlega
ekki leggjandi á neinn nema gallharða
masochista. Hjálpast þar venjulega
allt að, baslið við að rima, heimóttar-
leg hugsun og orðskripin og er
furðulegt að sumar ágætar raddir skuli
taka að sér að kyrja þetta yfir lands-
byggðina. Þó eru á þessu heiðarlegar
undantekningar — textar Megasar,
Spilverksins, Þursanna og eflaust fleiri
manna. Það var því með nokkrum
hjartslætti að ég opnaði sinnepsgult
hefti, hamrað utan, eftir Jónas Friðrik
Guðnason sem dægurlagasérfræð-
ingar blaðsins tjá mér að hafi skrifað
mikið fyrir Rió-tríóið meðan það var
og hét.
Skondnar
skoðanir
Sjálfur man ég ekki til þess að hafa
heyrt eða lesið hugarsmíðar hans fyrr
— nema þá óvart. En viti menn — það
kemur í ljós að höfundur er bráðfynd-
inn, laginn smiður á hendingar, rím,
stuðla o.s.frv. og tekst bærilega að
koma orðum yfir skoðanir sínar, bæði
skondnar og háalvarlegar. Reyndar er
eins og höfundi láti betur að vera
kerskinn en syrgja fornar ástir, æsku
og horfna tíð eins og allir hinir Ijóða-
smiðirnir. Um þjóðhetjuna segir Jónas
Friðrik: „Því álpast hann alsæll, en
blindur,/ í ástarfaðm verndara sinna”
— taki það til sín sem eiga. Sveitalífs-
rómanar og höfundar þeirra fá einnig
skeyti: „í þaulausnum hlandforum
horfinna sveitalífsdrauma / hangir á
fótunum lendarý, uppþornuð kelling /
og er að prjóna sér eldhúsreyfara
gildan, / um ástir í dalnum, hrærir
kynlegan velling / flatbrjósta orða, fær
þeim vanaðan stelling.”
Jónas Friðrik
Fyndnin
uppgötvuð
Orðljótur
hagyrðingur
Og útkoman verður sú, samkvæmt
J. Friðrik: „Og bókin kemur og selst
að sjálfsögðu helling, / og svo verður
kellingin nóbelsskáíd eins og hjnir”.
Skáldið virðist sem sagt eiga meira
sameiginlegt með orðljótum
hagyrðingum fyrri tima en pempium
nútíma ljóðagerðar. Jónas F. er á móti
ansi mörgu i Ijóðum sínum: kjafta-
kerlingum, köttum, rauðsokkum,
afætum, jafnvel trimmi: „Línurnar
eru óðum að skýrast / og árangur
næsta lokkandi;/ Þeir, sem voru feitir í
fyrra, / eru farnir til himna, —
skokkandi.”
En J.F. er lagið að vinna úr
forsendum sínum frá upphafi til enda,
jafnvel í lengri Ijóðum. Gott dæmi um
þetta er „Myndlist” sem leitt er til
lykta alveg „konsekvent” og eitthvað
V ■ —
er sagt, og heynst þrátt fyrir glamrið í
sumum ljóðlínunum.
Lipur að
gera gagn
Á þessu stigi málsins mundi einhver
saka höfund um kaldhæðni og mann-
hatur en alvörugefnari kveðskapur
skáldsins hlýtur að breyta þeirri
skoðun. J.F. Guðnason er ekki bara
„spéfugl, en lipur að gera gagn"
(„Strákurinn Jón”) heldur talsvert
glúrinn þegar kemur að hjartans
málum. Ljóð eins og Við (bls. 57) og
Álfkonan (bls. 58) mundu sóma sér vel
I hvaða Ijóðabók ungs manns í dag
sem er. En óneitanlega er gáskinn
skemmtilegri aflestrar. Kannski ung
skáld á Íslandi séu að uppgötva kímni-
gáfunafyriralvöru.
SÆTAÁKLÆÐI
Efni: flauel, perlon,
velúr, pluss, ullog
loðið poly-acryl.
Valshamar,
Lœkjargötu 20, Hafnarfirði.
Sfmi 51511.
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar, er verða til
sýnis þriðjudaginn 31. okt. 1978, kl. 13—16, í
porti bak við skrifstofu vora að Borgartúni 7:
Mercury Comet fólksbifreiö árg. 1975
V olvo 142 fólksbifreið árg. 1973
Ford Cortína fólksbifreið árg. 1975
Ford Bronco árg. 1975
Ford Bronco árg. 1973
Land Rover bensín, lengri gerð árg. 1972
Land Rover bensín árg. 1972
Land Rover dísil árg. 1970
Gaz 69 torfærubifreið árg. 1972
Gaz 69 torfærubifreið árg. 1956
Volkswagen 1200 fólksbifreið árg. 1974
Volkswagen 1200 fólksbifreið árg. 1973
Volkswagen 1200 fólksbifreið árg. 1973
V olkswagen 1300 fólksbifreið árg. 1973
Volkswagen 1300 fólksbifreið árg. 1972
Volkswagen 1200 fólksbifreið árg. 1972
Volvo Duett station árg. 1964
F ord Escort sendiferðabifreið árg. 1972
Ford Escort sendiferðabifreið árg. 1972
Ford Econoline sendiferðabifreið árg. 1974
Chevy Van sendiferðabifreið árg. 1973
Chevy V an sendiferðabifreið árg. 1973
Chevrolet Suburban 4x4 árg. 1971
F ord Transit sendiferðabifreið árg. 1973
Ford Transit pallbifreið árg. 1971
Dodge Power Wagon árg. 1968
Volvo vöru/fólksflutningabifreið árg. 1960
Snow Trac vélsleði árg. 1972
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að
viðstöddum bjóðendum. Réttur áskilinn að
hafna tilboðum sem ekki teljast viðunandi
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Eftirt'alin eyðublöð bjóðast nú auglýsendum ókeypis hjá smáauglýsingaþjónustu Dagblaðsins:
1. Vegna bifreiðaviðskipta: 2. Vegna lausafjárkai*"Q-
Sölutilkynningar, tryggingarbréf og víxileyðublöð auk
afsalseyðublaða og fjölritaðra leiðbeininga um frágang
bifreiðaviðskipta, sem við höfum lengi boðið.
Kaupsamningar og víxiieyouoioo
3. Vegna leigu íbúðarhúsnæðis:
Húsaleigusamningar.
iBlAÐIÐ
Dagblaðið er smáauglýsingablaðið Afgreiðsla Þverholti 11, sími 27022