Dagblaðið - 30.10.1978, Page 36
c
Nefnd í bankamálin í samræmi
við samstarfsyfirlýsinguna
óvíst um sameiningu bankanna
Fjögurra manna nefnd hefur nú
verið sett i að gera athugun á banka-
kerfinu, meðal annars með hliðsjón af.
því, hvort hagræði er að sameiningu
ríkisbankanna. Nefndina skipa Lúðvík
Jósepsson (Ab), Einar Ágústsson (F),
Guðmundur Karlsson (S) og Ágúst
Einarsson (A).
I samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar segir, að eitt stefnumála hennar
sé að taka bankakerfið til endurskoð-
unar og að fækka ríkisbonkunum úr
þrem í tvo. Þá verði einnig endurskoð-
uð lög um Seðlabanka Íslands og stöðu
hans í stjórnkerfmu.
Þessi stefnumörkun er undir yfir-
skriftinni „hagræðing”. Ætla verður
að ákvörðun um einhvers konar sam-
einingu eða fækkun ríkisbankanna
verði endanlega háð því hvort í slíkri
breytingu sé aukin hagræðing.
„Fækkun ríkisbanka er í sjálfu sér
ekkert takmark, ef það felur ekki í sér
verulega hagræðingu, sem unnt er að
gera án þess að tefla öðrum veigamikl-
um hagsmunum í tvísýnu eða voða,”
sagði einn stjórnarþingmanna í viðtali
við DB. Hann bætti við: „Það er ef-
laust svo um banka sem annan
rekstur, að ákveðin stærð er trúlega
hagkvæmasta rekstrareiningin. Ennþá
hefur þetta ekki verið skoðað, hvað þá
ákveðið.”
- BS
14 mönnum bj<
úr alelda loðn
1%^ jh Dagfari ÞH stórskemmdur eða
RfCI L ónýtur eftir bruna ígær
frjúlst, áháð dagbJað
MÁNUDAGUR 30. OKT. 1978.
Óvenjublaut umferðar-
helgi íReykjavík:
30 kenndir
undir stýri
Óvenjumikið virðist hafa verið urh
ölvunarakstur í Reykjavík um helgina
því frá því á föstudagskvöld og þar til i
gærkvöldi voru hvorki fleiri né færri en
30 ökumenn teknir fyrir meinta ölvun
undir stýri. Að sögn varðstjóra í morgun
er þetta með því mesta sem hann man og
bætti hann því við að ekki hafi venju
fremur verið lögð áherzla á að hafa upp
á slíkum mönnum. Hafi því ekki verið
um neina „rassíu” að ræða. Þá voru
fjórir ökumenn teknir í Kópavogi fyrir
það sama um helgina.
-G.S.
Flugleiðir fá
viðbótar-
hækkun
Flugleiðir fá að öllum líkindum leyfi
ríkisstjórnarinnar til hækkunar á innan-
landsfargjöldum um 5,8% í dag. Hefur
umsókn Flugleiða hf. verið til meðferðar
í verðlagsnefnd og ríkisstjórn samtímis
umsóknum um hækkun á smjörlíki og
gosdrykkjum.
Upphaflega sóttu Flugleiðir um 20%
hækkun á innanlandsfargjöldum i júlí sl.
Seint i ágúst samþykkti verðlagsnefnd
að mæla með 15% hækkun. Rikis-
stjórnin leyfði þá hækkun en ekki fyrr
en gengisfelling var orðin. Flugleiðir
notuðu heimildina.
„Vegna farþega og viðskiptavina
okkar treystum við okkur ekki til að
hætta flugi, enda þótt við hefðum þurft
meiri hækkun,” sagði Sveinn Sæmunds-
son blaðafulltrúi Flugleiða i viðtali við
DB.
Þegar gengisfellingin varð sóttu
Flugleiðir um 5% til viðbótar þeim 20%
sem upphaflega var sótt um. Nú er það
talið víst, samkvæmt heimildum sem DB
telur áreiðanlegar, að viðskiptaráð-
herra heimili í dag um 5,8% hækkun til
viðbótar hinni fyrri og að Flugleiðir fái
þannig heildarleyfi til hækkunar, sem
nemur um 21%, þegar miðað er við það
verð, sem gilti áður en sótt var um
hækkun í júlimánuði og áður en gengis-
breyting varð á krónunni.
-BS.
Eldvík
siglir áf ram
— ekki yf irvofandi
hætta af sjúkdómnum
í gærkvöldi tilkynnti landlæknir
lækr.unum á Höfn að í Ijós væri komið
að ekki væri yfirvofandi hætta af veik-
inni um borð í Eldvik, en blóðsýni verða
rannsökuð frekar svo og skipverjar er
þeir koma til Reykjavikur. Er skipverj-
um falið að hafa lágmarkssamband við
fólk í landi. Eldvík er nú á leið til Fá-
skrúðsfjarðar.
-GS
14 manna áhöfn loðnuskipsins Dag-
fara ÞH-70 slapp heil á húfi er bráða-
eldur breiddist á svipstundu um aftur-
hluta skipsins á rúmsjó í gærmorgun
25 milur frá Gelti og 19 mílur frá Kóp
i slæmu skyggni en þokkalegum sjó.
Skipyerjar sendu út neyðarskeyti
laust upp úr 9 í gærmorgun og kváðust
þurfa að yfirgefa skipið. Slysavarna-
félagið hafði upp á nálægum skipum
og gerði einnig ráðstafanir til að Land-
helgisgæzluflugvél flygi yfir staðinn ef
áhöfnin þyrfti að yfirgefa skipið áður
en skip kæmi til hjálpar.
Skuttogarinn Runólfur frá
Grundarfirði var staddur i aðeins 6
mílna fjarlægð og fór þegar á staðinn.
Var áhöfnin þá öll frammi á bakka og
var hún selflutt yfir í Runólf, sem tók
Dagfara í tog og dró hann til Patreks-
fjarðar í fylgd varðskips.
Þar var eldu&nn toka slökktur síð-
degis í gær, en skipið er stórsEémmt ef
ekki ónýtt. Nýlega var búið að lengja
og byggja yfir Dagfara og hefur
honum gengið í meðallagi vel á loðn-
unni að undanförnu. Eldsupptök eru
ókunn en eftir þvi sem blaðið kemst
næst, kviknaði eldurinn í vélarrúminu.
Skipstjóri er Gunnlaugur Jónsson.
Skipið var á siglingu frá Sandgerði út á
loðnumiðin, þegareldurinn kom upp.
- GS
Gæfu eða gjörvileika lokið:
LÍF ÞJÓDARINNAR
FÆRIST AFTUR í
EÐLILEGT HORF
í gærkvöldi lauk síðasta þættinum í
seinni lotu framhaldsþáttarins Gæfa
eða gjörvileiki sem sýndur hefur verið
undanfarna mánuði á sunnudags-
kvöldum við fádæma vinsældir. Eftir
því sem á þáttinn leið er haft fyrir satt
að götur höfuðborgarinnar hafi bein-
línis tæmzt á þeim tíma sem þátturinn
stóð yfir og sjálfsagt hefur því verið
alveg eins farið úti um landsbyggðina.
Hverl mannsbarn þekkir aðalpersónur
þáttanna, s.s. Rudy, Wes og fúl-
mennið Falconetti svo einhverjir séu
nefndir. og menn hafa borið ugg i
brjósti varðandi endalokin því kvisazt
hafði út að þau væru heldur sorgleg.
Því vildu menn þó helzt ekki trúa og
því hefur spennan haldizt allt til loka.
Dansstaðir borgarinnar hafa átt
mjög í vök að verjast þennan tíma og
dæmi eru þess að þar hafi verið komið
upp risastórum sjónvarpsskermum
þannig að fólki gæfist kostur á að
fylgjast með þættinum þar. Kvik-
myndahúsin hafa hins vegar ekki haft
nein slik tromp i bakhöndinni og hafa
mátt þola það að aðsóknin hefur dreg-
izt verulega saman á sunnudagskvöld-
um sem annars hafa verið beztu kvöld-
in hvaðaðsókn snerti.
Ein af vinsælli hljómsveitum lands-
ins hefur nefnt eitt laga sinna Gæfa eða
gjörvileiki og þannig mætti lengi telja.
Nú er þættinum hins vegar lokið og
má þvi búast við að líf þjóðarinnar
færist aftur í eðlilegt horf á sunnu-
dagskvöldum.
' - GAJ
Starfsfólk eins kvikmyndahúsa borgar-
innar fylgist með þættinum Gæfa eóa
gjörvileiki i gærkvöldi.
DB-mynd R.Th.Sig.
FIMM HVOLPAR GEFNIR
— á f jórða hundrað manns hringdu
Hvolparnir, sem auglýstir voru í
Dagblaðinu sl. laugardag hafa nú allir
fengið ný heimilisföng og nýja
„foreldra”. Talsvert á fjórða hundrað
manns hringdu og spurðust fyrir um
þessa 5 hvolpa, sent um var að ræða.
„Hvernig líður hvolpinum
minum?” spurði maður sem hringdi
frá Dalvík í gærkvöldi. Þessi maður
hafði fengið loforð fyrir að fá einn
hvolpinn þegar á laugardagsmorgun.
Hvolpinum hans líður vel og bíður
þess að hans verði vitjað innan tíðar.
Þrjár kynslóðir úr sömu fjölskyld-
unni komu á tveim bílum til þess að
skoða og sækja einn hvolpinn. Ekki
var að sjá neinn mun á gleði hinna
yngstu og hinna elztu, þegar lítil
stúlka hafði tekið við honum úr hendi
fyrri eiganda, fjögurra ára snáða.
Eftirsjáin var mikil en fólkið bauð af
sér góðan þokka. Enginn vafi lék á því,
að þarna voru dýravinir og gott fólk.
Það óhapp kom fyrir, að í frásögn
DB af því að hvolparnir leituðu eftir
nýjum foreldrum, að símanúmerið var
ekki rétt. Skakkaði þar einum staf.
Fullorðið sómafólk varð af þessu
fyrir óskaplegum óþægindum. Biður
blaðið auðmjúklega afsökunar, en
þakkar jafnframt þolinmæði og vin-
semd, þar sem þetta sómafólk gaf
jteim sem hringdu upplýsingar um
rétta símanúmerið.
„Ég hefði aldrei trúað því að
óreyndu, að svona margir hefðu
áhuga á þvi að eignast hund,” sagði
húsmóðirin, „mamma” hvolpanna
fimm í viðtali við DB. „Það gekk
meira að segja svo langt, að þrír menn
spurðu, hvort við vildum ekki láta
tíkina okkar,” sagði hún.
„Ég er ósköp ánægð að vita af
hvolpunum hennar Júllu i góðum
höndum. Ég hitti þetta fólk, þegar það
kom og sótti þá. Ég vildi sjá fólkið. Ég
vildi bara, að fleiri hefðu getað fengið
hvolp. Kannski verður það síðar,”
sagði „mamman”, sem í nánast tvo
sólarhringa hefur anzað síma á fjórða
hundrað-manns út af fimm hvolpum,
sem voru gefnir. -BS.