Dagblaðið - 31.10.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIDJUDAGUR 31. OKTÓBER 1978.
[ Óánægja á Hnífsdal:
Verksmiðja
reist í
íbúðahverfi
— íbúarnir óttast mengun
„Við erum mjög óánægðir með að
hér skuli eiga að reisa rækjuskelsverk-
smiðju inni í miðju ibúðahverfi eða
aðeins um 70 metra frá þéttum
íbúðakjarna,” sagði Hnífsdælingur
einn í samtali við DB í gær. „Þessi
fyrirætlun Rækjuverksmiðjunnar hf. í
Hnífsdal verður sennilega samþykkt í
bæjarstjórn nk. fimmtudag. Flestallir
Hnífsdælingar hafa skrifað undir
plagg þar sem því er mótmælt að
þarna rísi verksmiðja og við ætlum að
skrifa skipulagsstjóra og Heilbrigðis-
eftirlitinu og skýra okkar sjónarmið.
Ef reyk leggur frá þessari verksmiðju
mun hann detta beint niður i
ibúðahverfið. Okkur er sagt að þessi
starfsemi eigi ekki að vera nema í þrjá
'4
Ekið inn f Hnífsdal, friðsælan smábæ sem fbúarnir óttast að verði mengun að bráð.
mánuði en við erum vantrúaðir á að
lánastofnanir séu að lána stórfé í verk-
smiðju sem ekki eigi að starfa nema í
þrjá mánuði. Það má lika geta þess að
bærinn er að hefja framkvæmdir við
íbúðablokk þarna rétt hjá. Þetta er
alveg inni í ibúðahverfinu og það er
það sem við erum fyrst og fremst
óánægðir með,” sagði Hnifs-
dælingurinn að lokum.
Dagblaðinu tókst ekki að ná i
bæjarstjórann á tsafirði í gær. -GAJ-
Sunna býður upp á óvænta f erðanýjung:
SIGLT NÆSTA SUMAR MEÐ
FLA GGSKIPIPORTÚGALA
Hin frábæra söngkona
ANNIE BRIGHT
SKEMMTIR ÍKVÖLD
Matur framreiddur frá kl. 15.00.
Boröapantanir / síma23333
Stadur hinna vandiðtu
Annie Bright I Þórscafó f kvöld
Skemmtiferðaskipið Funchal er stolt
portúgalska skipastólsins. Nú hefur
íslendingum tekizt að fá skipið leigt til
einnar ferðar næsta sumar, enda þótt
það sé eftirsótt. Og ekki virðist útlit fyrir
annað en íslendingar kunni að meta
þetta nýstárlega ferðatilboð.
til að ferðast til og frá tslandi á sjó. Skrif-
stofan hefur náð samningum við eig-
endur flaggskips portúgalska flotans,
M.S. Funchal, en eigandi er portúgalska
ríkið. Skipið er 10 þúsund smálestir og
gengur 17 sjómílur, tekur 405 farþega
og áhöfnin er 150 manns.
Hingað kemur skipið í ágústmánuði
og siglir frá Reykjavík 12. ágúst til Þórs-
hafnar í Færeyjum, síðan til Bergen og
verður siglt innan skerjagarðsins um
norsku firðina til Oslóar. Þaðan er
haldið til Kaupmannahafnar, Amster-
dam, og því næst til Edinborgar og aftur
heim til Reykjavíkúr. Viðdvöl á
hverjum stað verður einn til tveir dagar.
Funchal er hið glæsilegasta skip, far-
þegaíbúðir með baði, síma og útvarpi,
matsalir glæsilegir, að ekki sé talað um
samkvæmissali og danssali með
vínstúkum, spilavítum og öðru. Um
borð er tollfrjáls verzlun. Skemmtanir
verða haldnar um borð á hverju kvöldi.
Enn hefur lítið verið auglýst eftir far-
þegum í þessa ferð en i gær sagði Guðni
Þórðarson, forstjóri Sunnu, að þegar
væri búið að bóka helming farþega-
rýmisins, svo greinilegt væri að uppselt
yrði snemma í þessa sérstöku ferð.
-JBP
Á sólþilförum Funchal er hægt að
bregða á ýmsa leiki eins og sést á
myndinni sem hér fylgir. Neðan þilja er
ekki síður margt til að stytta sér stundir
við, matsalir, danssalir, jafnvel spilavfti.
Þeir eru margir sem sakna gömlu,
góðu Gullfossdaganna. Með því er átt
við þau ár, þegar Eimskipafélag íslands
hugsaði einnig um farþegaflutninga
milli landa sjóleiðis.
Næsta sumar mun Ferðaskrifstofan
Sunna reyna að bæta úr löngun margra