Dagblaðið - 31.10.1978, Side 8

Dagblaðið - 31.10.1978, Side 8
8 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1978. Á myndinni sést hluti af húsnæði Inn- flutningsdeildar SÍS. Varla Uður sá dagur að nær allir íslendingar sjái ekki einhvern hluta af Sambandi islenzkra samvinnufélaga, hvort heldur menn eru til sjávar eða sveita. I.jösm. Bjarnleifur. rannsakað Albert Guðmundsson lagði fram á Alþingi i gær tillögu til þingsályktunar um rannsóknarnefnd þingmanna til að kanna rekstur, erlend umsvif, fjár- festingar og stjórnmálaleg tengsl Sambands islenzkra samvinnufélaga og tengdra fyrirtækja. Könnun þessi skal gerð með sérstöku tilliti til einokunar- aðstöðu og markaðsdrottnunar þessara fyrirtækja. Tillagan er borin fram í sameinuðu Alþingi og sem fyrr segir, flutt af Albert Guðmundssyni einum. 1 greinargerð rneð tillögu sinni bendir flutningsmaður, Albert Guðmundsson, á það að rannsóknir, eins og sú sem beiðzt er, hafi ekki tiðkazt hérlendis. Þó hafi þaö nýlega gerzt að ungur þing- maður, Ólafur Ragnar Grimsson, hafi með tillögu sinni um rannsókn á Flugleiðum hf. og Eimskipafélagi íslands hf. innleitt þennan þátt í sali Alþingis. Vikur Albert að þeirri breytingu sem varð á þingliði og skipan þingmanna i flokka eftir síðustu kosningar. Ekki sé alveg Ijóst hvort afstaða þingmanna til rannsókna á borð við þær, sem nefndar Sérhæfum okkur í Seljum í dag: Saab99 GL árg. 77. 2 dyra, beinskiptur. ekinn 25 þús. km. Verð 4300 þúsund. Saab 99 árg. 76, ekinn 23 þúsund km. Verð 3700 þús. Saab 99 GL árg. 78. ekinn 20 þús. km. 4 dyra, beinskiptur. Verð 5000 þús. Autobianchi árg. 77, ekinn 34 þús. km. Verð 1700 þús. Saab 99 EMS árg. 75, ekinn 47 þús. km. Verð 3500 þús. Látið skrá btia, höfum kaupendur að ýmsum árgerðum. BDÖRNSSON A£o BlLDSHÖFÐA 16 SÍMI 81530 REYKJAVÍK voru, sé jákvæð. Ef menn hafi „skemmtan af slikum rannsóknum” virðist sjálfsagt að láta þær ná til þess fyrirtækis sem sjálft eða í gegnum tengd fyrirtæki, starfi á nær öllum sviðum íslenzks þjóðlifs, þ.e. SÍS. Albert rekur þessu næst öll kaupfélög á Íslandi, sem aðild eiga að SÍS og siðan deildaskiptingu innan Sambandsins. Þá eru talin upp fyrirtæki sem beint eða óbeint tengist SÍS vegna sameignar: Samvinnubankinn, Samvinnutrygging- ar, Osta- og smjörsalan, Samvinnuferðir, Olíufélagið, Kirkjusandur, Reginn, Dráttarvélar, Meitilinn Þorlákshöfn, Jötunn, islenzkur markaður, Flugleiðir hf. og ýmis fleiri. Flutningsmaður segir framangreindar upplýsingar ekki neina nýlundu. Þeirra geti allir aflað. Telur hann einungis að hann telji að þessi fyrirtæki verði ekki út undan ef Alþingi telur á annað borð æskilegt að rannsaka starfsemi stærstu fyrirtækja landsins. Enda séu spurning- arnar, sem að framan greinir, samdar mjög I anda þeirrar tillögu sem flutt hafi verið um rannsókn á rekstri Flugleiða hf. og Eimskipafélags íslands hf. BS. Spurningar Alberts um SÍS: Alþingi ályktar að kjósa rannsóknarnefnd skipaða sjö þing- mönnum til að gera athugun á rekstri, fjárfestingum, erlendum umsvifum og stjórnmálalegum tengslum Sambands isl. samvinnufélaga og tengdra fyrir- tækja með sérstöku tilliti til einokunaraöstöðu og markaðs- drottnunar þessara fyrirtækja. Störf nefndarinnar skulu einkum miðast við að leita svara við eftirtöldum spurningum: 1. Hver eru tengsl SÍS og tengdra fyrirtækja við Framsóknar- flokkinn og hver hefur verið hagur beggja af þessum tengslum? 2. Að hve miklu leyti hafa sérstakar frádráttarheimildir samvinnufél- aga í lögum um tekju- og eigna- skatt skapað SÍS og kaupfélögun- um víðtæka einokunaaðstöðu? 3. I hve rikum mæli nýtur SlS og tengd fyrirtæki meiri og hag- kvæmari lánafyrirgreiðslu en annar atvinnurekstur? 4. Hver er hagur StS og kaupfélaganna af núverandi greiðslufyrirkomulagiafurðalána? 5. Hver er hagnaður SÍS og kaupfélaganna af búfjárslátrun og hvert rennur sá hagnaður? 6. Hafa StS og kaupfélögin nær einokun á dreifingu og vinnslu landbúnaðarafurða innanlands? 7. Hvernig er háttað sölu dilkakjöts til útlanda og söluþóknun vegna þeirrarsölu? 8. Hvernig er háttað rekstri og fjár- festingum SÍS og tengdra fyrir- tækja erlendis? 9. Hvernig er háttað samvinnu við erlend samvinnusambönd og hvert rennur hagnaðurinn af þeirri samvinnu? 10. Eru skattframtöl SlS og tengdra fyrirtækja endurskoðuð með sama hætti og gert er hjá öðrum at- vinnurekstri? 11. Voru einhver tengsl á milli innflutningsbanns á kexi og brauövörum og stofnunar kex- verksmiðju Sambandsins? 12. Hvers vegna hefur SlS leitast við að efla tengsl við fjölda annarra fyrirtækja á ólíkum rekstrarsvið- um og þannig skapað verulega hættu á víðtækari markaðsdrottn- un fyrirtækisins á nýjum sviðum líkt og gerst hefur i kexframleiðslu á siðustu missirum? 13. Að hve miklu leyti er markaðs- drottnun þessara fyrirtækja í gegn- um hátt vöruverð þáttur í þeirri dýrtíð sem á undanförnum árum hefur rýrt kjör almenns launafólks á íslandi? 14. Hvaða skýringar eru á því að gífurleg fjárfesting SÍS og kaup- félaganna í fasteignum hefur ekki leitt til hlutfallslegrar lækkunar vöruverðs? 15. Hvers vegna hefur SlS og kaupfélögin kosið að nota markaðsdrottnun sina frekar til eignamyndunar í stað þess að veita almenningi i landinu ódýrari þjónustu? Rannsóknarnefndin skal hafa rétt til að krefjast skýrslugerða og vitnis- burða, bæðr munnlega og bréflega, hjá hlutaðeigandi aðilum og öðrum fyrir- tækjum, embættismönnum og ein- staklingum. Nefndinni skal veitt fjár- magn til þess að tryggja sér sér- fræðilega aðstoð. Að loknum athugunum sínum skal rannsóknarnefndin gefa Alþingi skýrslu og láta i ljós mat á því hvort, og þá að hve miklu leyti, eignarform, rekstur og fjárfestingar Sambands ísl. samvinnufélaga og tengdra fyrirtækja, svo og sérstaða þeirra í löggjöf, opinberri fyrirgreiðslu og stjórnmála- legum tengslum sé i andstöðu við frjáls viðskipti og frjálsa samkeppni I þágu íslenzkra neytenda.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.