Dagblaðið - 31.10.1978, Page 10

Dagblaðið - 31.10.1978, Page 10
10 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1978. 7 iBIAÐffl frjálst, áháð dagblað Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvesmdastjórí: Sveinn R. EyjóHsson. Ritstjórí: Jónas Kristjinsson. Fréttastjóri: Jón Birgir Pótursson. RitstjómarfuRtrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri rítstjómar Jó- hannes Reykdai. íþróttir: Hallur Simonarson. Aðstoðarfróttastjórar Adi Steinarsson og Ómar Valdk marsson. Menningarmól: Aðabteinn Ingótfsson. Hondrit Ásgrimur Póisson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefónsdóttir, ENn Alberts dótdr, Gissur Sigurðsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Hallur Halisson, Helgi Pótursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Geirsson, Ólafiír Jónsson. Hönnun: Guðjón H. Pólsson. Ljósmyndir: Ari Kristinsson, Ámi Póll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamlerfsson, Hörður Vilhjólmsson, Ragnar Th. Sigurðsson, Svoinn Þormóðsson. Skrifstofustjóri: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkeri: Þróinn Þorierfsson. Sökistjóri: Ingvar Sveinsson. Dreifing- arstjórí: Mór E.M. Haiidórsson. R'ttstjóm Siðumúla 12. Afgreiðsla, óskríftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverholti 11. Áðabimi blaðsins er 27022 (10 linur). Áskrift 2400 kr. ó mónuði inrpnlands. í lausasölu 120 kr. eintakið. Setning og umbrot Dagblaðið hf. Siðumúla 12. Mynda- og plötugerö: Hilmir hf. Siðumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skotfunni 10. Ævintýrí auðmagnsins Fyrir um það bil 200 árum uppgötvuðu Vesturlandabúar, hvernig þeir gátu orðið ríkir. Þeir gerðu iðnbyltingu og hófu markaðsbúskap. Með nýjum hugmyndum um félagslegt réttlæti lærðu þeir svo að dreifa auðnum sín á milli og gera alla ríka í meira eða minna mæli. Áður ríkti enn verra ástand í Vestur-Evrópu en nú ríkir í fátækustu löndum heims. Meðalaldur í Frakklandi árið 1788 var 30 ár, en er nú um 45 ár í þriðja heiminum og 70 ár í ríka heiminum. Á núverandi mælikvarða var nær ekkert til skiptanna allar aldir veraldarsögunnar fram undir nítjándu öld. Þeir, sem betur máttu sín, arðrændu hina eftir megni. Sama var uppi á teningnum í upphafi iðnbyltingarinn- ar, því að eigendur fjármagns tóku fyrr við sér en eig- endur vinnuafls. Þá ríkti ástandið, sem Karl Marx hefur lýst. En það arðrán er löngu úr sögunni. Að vísu er enn ákveðin spenna milli eigenda vinnuafls og stjórnenda fyrirtækja, en ekki vegna arðráns. Þessir aðilar semja með reglubundnu millibili um, hvernig skipta skuli þeim gróða, sem aukin vísindi, aukin tækni, aukin stjórnun og aukin sölumennska hafa fært þeim, síðan þeir sömdu síðast um kaup og kjör. Þeir eru í rauninni að skipta nýju herfangi. Milli slíkra aðila er alltaf einhver spenna, en hún kemur arðráni ekkert við. Þeir, sem selja vinnu sína, vinna alltaf skemur og skemur, en fá samt alltaf meiri og meiri tekjur. Auður nútímans á Vesturlöndum er nefnilega ekki frá neinum tekinn. Hann er einfaldlega búinn til með tækni- þekkingu og skipulagsþekkingu. Hann var ekki til áður. Sumir halda, að þessi auður sé tekinn frá þriðja heiminum, sem selji ríku þjóðunum mat og hráefni á of lágu verði. Þetta er rangt. Það eru einkum ríku þjóðirnar, sem framleiða og selja mat og hráefni. Ríku þjóðirnar framleiða hvorki meira né minna en 70% af mat og hráefnum heimsins og hafa því ekki hag af lágu verði á þessum vörum. Eina þjóðin, sem kann að hafa grætt á nýlendum sín- um, eru Bretar, og þeir eru ekki á sérlega góðum vegi staddir um þessar mundir í samanburði við aðrar ríkar þjóðir. Svíar og Svisslendingar eru ofsaríkir en áttu samt aldrei nýlendur. Þjóðverjar og Japanir urðu ekki ofsa- ríkir fyrr en þeir höfðu misst nýlendur sínar. Athyglisvert er, að margar fyrrverandi nýlendur hafa grætt á Vesturlöndum, svo sem Singapúr, Alsír og Brasilía, en sjálfstæð ríki þriðja heimsins, svo sem Thailand, Etíopía og Libería, lifa mörg í eymd, sem minnir á ástandið í heiminum fyrir iðnbyltinguna. Þriðji heimurinn hefur grætt á ríku þjóðunum en ekki öfugt. Ríku þjóðunum hefur ekki aðeins tekizt að dreifa auði sínum milli eigin íbúa. Þeim hefur líka tekizt að láta brot, að vísu of lítið brot, af honum renna til þriðja heimsins, einkum til fyrrverandi nýlendna sinna. Og enginn maður hefur verið arðrændur í þessu mikla ævintýri. Vestur-þýzka markið orðið 30ára —óslitin sigurganga þess gæti orðið mörgum lærdómsrík Vestur-þýzki gjaldmiðillinn er þrítugur. í dag er hann sú mynt heims- ins sem talin er einna öruggust og nýtur mikils trausts meðal efnahags- sérfræðinga og fjármálamanna um allan heim. Samt nær saga marksins — það er núgildandi vestur-þýzka marksins — ekki nema yfir þrjátíu ára tímabil. Fyrstu spor þess voru á miðju ári 1948. Þrem árum áður hafði Þriðja rikið þýzka tapað heimsstyrjöldinni síðari og Þýzkaland var i rústum. Hið nýja þýzka sambandslýðveldi Vestur- Þýzkaland sameinaði þegna sína til efnahagslegs átaks, sem síðar var nefnt þýzka efnahagsundrið. Þrátt fyrir verulega aðstoð Bandaríkjanna í byrjun verður því með engu móti mótmælt að meginástæða hinnar hröðu efnahagsþróunar í Vestur- Þýzkalandi frá árinu 1948 og fram undir 1960 var 1 meginatriðum Þjóðverjum sjálfum að þakka. Árið 1948, í byrjun þessarar sigur- göngu, hófst einnig saga hins nýja vestur-þýzka marks. Síðan hefur það stöðugt styrkzt að verðgildi í hlutfalli við gjaldmiðil annarra þjóða. Bezta viðmiðunin fæst með því að bera vestur-þýzka markið saman við banda- ríska dollarann. Árið 1948 og næstu ár þar á eftir var talið að 4,2 vestur-þýzk mörk væru í hverjum dollara. Nú er dollarinn kominn niður fyrir tvö mörk á alþjóðagjaldeyrismörkuðum. Vest- ur-þýzka markið hefur náð þeirri stöðu í alþjóðagjaldeyrisviðskiptum að vera talið jafngilda gulli eða banda- Risið níðhöggi Alþjóðlegur sósusmakkari Vikunn- ar, samvizka íslenzku þjóðarinnar og alvitur sæluríkisráðunautur hennar sjálfskipaður, Jónas Dagblaðsritstjóri Kristjánsson, geysist fram á ritstjórn- arvöll blaðs síns þriðjudaginn 24. þ.m., með eina allsherjar farsældarlausn á mismunun í margbroguðu trygginga- kerfi landsmanna. Og sjá: — setjum nú fyllibyttur okkar aftur í þann rennustein sem þeir hafa alltaf verið í og aldrei skyldi hafa verið hleypt upp- úr og við höfum ráð til jafnréttis al- vörusjúkum um alla framtíð — að ei- lífu amen. Læknum fatlaða með því að brjóta hækjur þeirra sem farnir eru aðstaulast. Eitt helzta einkenni virks alkóhólisma á hástigi er að finna aðalsökudólga eigin óhamingju 1 þeim sem vel gengur og vilja viðkomandi eingöngu hið bezta. Sú sýking hugans sem þar kemur fram er með óhuggulegri einkennum sjúkdómsins og er sjálfsagt, ásamt sjálfstortíming- artilhneigingunni, ein aðalorsök þess að honum hefir nær alfarið þar til á alseinustu árum verið skipað á bekk með alvarlegustu tegundum geðveiki. Sjálfum er mér i sáru minni þessi hneigð frá eigin göngu um myrkviði alkóhólismans. Verður mér því vart láð j)ó hnykki, er ég les „frelsara” íslenzkrar blaðamennsku bera fyrir alþjóð þann nátttröllshugsunarhátt, með miðaldaívafi, að sjúkt fólk af alkóhólisma, þar með talinn ég sjálfur, klifri í batavon vestur til Banda- hefur að minnsta kosti ^ drengnum- Þetta riki 1,1 afvötnunar í önnur lönd fyrírhálf^ mT 1 hrönnum En drengurinn nýtur ekki há'fa m,ilJón á mann. WrheíSÍa'vl'r(4<i""L“,inn a« borga fundið breiða bakið í þjSStínv "Ú loksin« drengurinn borgi langleZt 5 ’ / .Það ætIast að ^■■■^M^^^f^káverðíð1 afvötnunai'Ieiðangur ríkjanna á baki lítils heyrnarlauss drengs uppi i Árbæjarhverfi, sem ekki fái leiðréttingu sinna mála, kannske einmitt okkar vegna. Dæm þú nú les- andi góður um sjúkt hugarfar — og hver er tilgangurinn? Ekki mun það mannsbarn læst á bók hérlendis, sem ekki vill í sölurnar leggja til þess að Gunnar litli Þór fái leiöréttingu sinna mála, og reyndar hefir athyglivakning þessi opnað augu manna fyrir því fádæma tillits- leysi sem velferðarþjóðfélagið býr þeim þegnum sínum, er hjálpartækja þarfnast, til að lifa lifi sínu eitthvað til áttar við hina heilbrigðu. En við læknum ekki helti með því að brjóta hinn fótinn. „Brennivínsmenn” kallar Jónas okkur alkóhólistana í grein sinni og hyggst niörandi. Ég bætti nafngiftinni þegar í safn mitt yfir sæmdarheiti. Við erum nefnilega orðin nokkuð ánægð með sjálf okkur þessi sem tekið höfum þátt í ævintýrinu um alkóhólisma á íslandi undanfarin ár og sjáum enga á- stæðu til að leyna því. Stiginn sem við höfum notað hefur verið við sjálf og rílarnir bara nokkuð góðir. Sé hins vegar að því ýjað, að við höfum gerzt ölmusuþegaraf samtryggingarfé lands- manna, hljótum við að rísa til and- svara.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.