Dagblaðið - 31.10.1978, Síða 23

Dagblaðið - 31.10.1978, Síða 23
23 Guðrún Guðlaugsdóttir ætlar að lesa færeyskar þjóðsögur og ævintýri í þætti sinum i dag. SENDIBÍLAR tiUeiguán ökumanns Verð pr. 24 k/st kr. 4900.00 og pr. cr VEGALEIÐIR jSigrúni 1 — Símar 14444 og 25555. TÓNLISTARTÍMIBARNANNA - útvarp kl. 17.20: Tónlist spiluð af bömum og fyrir böm ipk. Á þessari mynd sjáum við Egil Friðleifsson ásamt nemendum sinum i tónmennt Egill Friðleifsson tónmenntakennari hefur um nokkurra ára skeið verið með þátt í útvarpinu sem nefnist Tónlistar- tími barnanna. Þáttur þessi hefur þó verið I fríi undanfarið en hefst nú af fullum krafti aftur í dag kl. 17.20. „Ég hef nú ýmislegt efni sem ég hef hugsað mér að hafa í þættinum,” sagði Egill, er DB spurðist fyrir um þáttinn. „Ég safnaði að mér heilmiklu efni er- lendis i sumar þegar ég fór i söngferðalag til Kanada ásamt stórum hópi. Þar hitti ég bæði tónlistarnema og kennara frá ólíkum þjóðum. Ég kom með heilmikið af plötum og gögnum úr ferðalaginu, sem ég mun reyna að nota. Ég ætla að spila plötu í þættinum í dag með kanadískum barnakór og enn- fremur spila ég lög með finnskri strengjasveit frá Helsinki. Þetta er tón- list sungin og leikin af börnum og fyrir börn. Ég mun einnig segja fréttir af tón- listarlifinu hér heima og hvað verður um að vera í vetur. Ég mun segja frá landsmóti íslenzkra barnakóra sem haldið verður á Akureyri I vetur. Það var haldið i fyrsta sinn árið 1977 og er þetta því annað mótið,” sagði Egill. Tónlistartimi bamanna stendur í stundarfjórðung. - ELA _______________________________________/ ÞJÓÐSÖGUR FRÁ ÝMSUM LÖNDUM - útvarp kl. 17.35: Færeysk ævintýri um tröll og svani t dag kl. 17,35 er þáttur í útvarpinu sem nefnist Þjóðsögur frá ýmsum löndum. Það er Guðrún Guðlaugsdóttir sem tekur saman þáttinn. í dag ætlar Guðrún að lesa þjóðsögur frá Færeyjum. Hún mun m.a. lesa mjög frægt ævintýri sem nefnist Svanirnir sjö. Það fjallar um mann einn sem á átta börn, sjö syni og eina dóttur. Maðurinn giftir sig aftur og eins og gengur í ævintýrum þá er stjúpan ekkert hrifjnn af börnum manns síns. Hún breytir sonunum sjö í svani, en dóttirin kemst undan. Til að bjarga bræðrum sínum saumar hún sjö skyrtur úr kóngulóavef og tekur eitt ár að sauma hverja. Guðrún ætlar einnig að lesa ævintýrið um tröllin á Skálavöllum. Þá verða færeyskir dansar leiknir í þættinum. Guðrún mun hafa formála á undan og segja litillega frá þjóðsögunum. Þættir þessir verða fram að áramótum á þriðjudögum og er hver þáttur stundarfjórðungs langur. •ELA. Stórglæsilegur bíll meö öllum nýtízku þægindum, ekinn 8.800 km, til sölu hjá BIFREIÐASÖLU EGILS Laugavegi 118. — Sími 15700. BILAPARTASALAN Höfum úrval notaðra varahluta íýmsar tegundir bifreiöa, tildæmis: Rambler American '67, Saab '67, Fiat 128 árg. '72, Taunus 17 M '67, Volvo Amazon '65, Chevrolet Bel Air '65, Willys '47. Einnighöfum við úrval af kerruefni, til dæmis undir vélsleða. Sendum um allt land. BÍLAPARTASALAN Höföatimi 10- Simi 11397 SANDGERÐI Blaðburðarbörn óskast strax. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 7662. 'n iBlAÐIÐ Bí/amá/un Tek að mér bíla í alsprautun, lágt verð. SIGURGEIR SVERRISSON BLÖIMDUÓSI - SÍMI95-4259. GEYMIÐ AUGLÝSIIMGUNA DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 3I.OKTÓBER 1978. Lancer Celecte GSR2000 78 ELÍN ALBERTS DÓTTIR HREvnu. Sfmi s 55 22

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.