Dagblaðið - 31.10.1978, Qupperneq 24
Skolpið frá Rockwille stöð hersins leitt út á yf irborð Miðnesheiðar:
Vatnsból Sandgerðinga
í yfirvofandi hættu
—og þar með atvinnulíf staðarins, segir starfsmaður hreppsins
„Um leið og byggðin i Sandgerði
teygir sig upp hlíðina skv. skipulagi,
teygir skolpflákinn frá Rockwille stöð
hersins sig niður hlíðina og við það
bætist að fyrirhugaö er að bora eftir
auknu ferskvatni fyrir Sandgerði ofan
við bæinn, eða nær skolpinu en
bærinn nær nú,” sagði Sumarliði
Lárusson, verkstjóri hjá Sandgerðis-
hreppi í viðtali við DB i gær.
Óttaðist hann mjög að mengun
vatnsbóla Sandgerðina væri yfirvof-
andi vegna þessa sóðaskapar frá stöð-
inni, enda rennur skolpið óbyrgt eftir
yfirborðinu og dreifir sér um það.
Að sjálfsögðu sígur það í fyrstu
niður í jarðveginn á hverjum stað, en
smátt og smátt virðist hann mettast
og ekki hleypa í gegn um sig með þeim
afleiðingum að skolpið verður stöðugt
að fljóta lengra til að komast ofan i
jörðina.
Rockwille stöðin er á milli Garðs
og Sandgerðis i innan við 4 km
fjarlægð frá Sandgerði og er aflíðandi
hlíö þaðan niður til kauptúnsins.
Hefur herinn leitt skolpleiðslu svo sem
200 metra út fyrir girðinguna, líklega
til að forðast dauninnaf skolpinu. Þar
eru einhvers konar brunnar, en hvaða
tilgangi sem þeir hafa átt að þjóna, þá
vellur skolpið óhindrað upp úr þeim.
Feiknagrasspretta hefur tekið þarna
við sér og teygir á annað hundrað
metra langur iðjagrænn fláki sig niður
hliðina. Sums staðar er hann hátt í 100
metra breiður. í svörðinn seitlar svo
skolpiö áfram i átt að Sandgerði.
Flákinn segir þó ekki alla söguna
því víða utan hans, jafnvel í talsverðri
fjarlægð, má finna skolppytti i
lægðum. Hægt væri um vik að leiða
þennan óþverra til sjávar þar sem nær
jafn halli er alla leiöina, en ekki er hirt
um það. Að sögn Sumarliða er það
fyrst núna að Sandgerðingar eru farnir
að óttast vatnsmengun af þessum
völdum, en mikið og hreint vatn eru
, forsendur atvinnulífs í Sandgerði, sem
nær eingöngu byggist á fiskiðnaði.
-G.S.
Söngglaðir foreldrar — og
hún Anna Leo-
poldína Sólveig
Um þessar mundir eru óperusöngvar-
arnir Sigríður Ella Magnúsdóttir og
Simon Vaughan í stuttri heimsókn hér á
landi.
— Það stóð til að ég syngi i Þjóðleik-
hjúsinu í óperunni Orfeus og Euredice,
sagði Sigríður Ella, er Dagblaðið
grennslaðist fyrir um hvað væri á
döfinni hjá þeim hjónum. — En á
síðustu stundu fékkst ekki næg
fjárveiting fyrir henni, svo henni verður
frestað. Ég ætla þvi að nota tækifærið til
að staldra eitthvað við hérna ásamt
nýjasta fjölskyldumeðliminum. Simon
er aftur á móti á förum til að undirbúa
tónleika í London, en við erum búsett
þar. Ég er að undirbúa tónleika á
lrlandi, og svo var mér að berast boð um
að taka þátt í keppni i Rio de Janero i
júní, sem ég ætla mér að þiggja.
Ég hef líka i ýmsu að snúast hér. við
Simon vorum að kaupa hús í Reykjavík,
og í þessari viku er von á 2. upplagi af
plötu með jólalögum sem við sungum
inn á i fyrra, Með vísnasöng, en 1.
upplagið seldist alveg upp.
Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn er
hún Anna Leopoldina Sólveig, sem foreldrum sínum i góðri þjálfun í þessu
fæddist 1. júni i sumar, og eins og nýja hlutverki þeirra.
myndin sýnir sér hún um að halda -JÞ-DB-mynd Jim Smart
fijálst, áháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 30. OKT. 1978.
Bökurum hegntaf
verðlagsstjóra?
Synjað um
hækkun
ábrauði
„Til að hegna bökurum þá verður
þessari beiðni ekki sinnt.” Þannig segir í
bréfi til bakarameistara frá Gísla Ólafs-
syni á skrifstofu landssamtaka bakara.
Mun átt við að beiðni bakara til verð-
lagsstjóra um hækkun á brauði verði
ekki leyfð i hefndarskyni við að sumir
bakarar hafi þegar hækkað brauðið án
nokkurrar heimildar. Gísli Ólafsson
sagði í samtali við DB í gær, að bakarar
hefðu sótt um 20—25% hækkun á
brauði, m.a. vegna gengisfellingar og
hækkunar á hráefni, s.s. smjörliki. Gísli
sagði að þessa athugasemd í bréfi hans
bæri að skoða sem grín. En það væri rétt
að ýmsir bakarar hefðu hækkað vöruna
upp á eigin spýtur. Hann sagði að bakar-
ar hefðu alltaf átt góð samskipti við
verðlagsstjóra og þaö hefði alltaf endað
með þvi áð þeir hefðu náð fram umbeðn-
um hækkunum, og ætti hann von á því
að svo gæti einnig orðiö nú. Ekki væri
enn búið að afgreiða þetta mál.
GAJ
Vilmundur Gylfason:
rannsaka
verktakana
Tillaga um rannsókn á íslenzkum
aðalverktökum sf. verður lögð fram á
Alþingi i dag. Vilmundur Gylfason
leggur fram þingsályktunartillögu þess
efnis, að utanrikismálanefnd Alþingis
verði falið að rannsaka alla starfsemi
hins mikla verktakafyrirtækis.
Er í tillögunni gert ráð fyrir, að alveg
sérstaklega verði rannsökuð samskipti
íslenzkra aðalverktaka og vamarliðs
Bandaríkjahers vegna verktöku og fram-
kvæmda fyrir það. Má segja, að fyrir-
tækið sé stofnað og hafi verið rekið í
þeim tilgangi einum að taka að sér verk
og hafa þau með höndum fyrir varnar-
liðið á Keflavikurflugvelli. Raunar má
segja, að fyrirtækið hafi um langt árabil
setið eitt að öllum framkvæmdum fyrir
varnarliðið.
Þá verði Alþingi gerð grein fyrir
niðurstöðum rannsóknarinnar, þar á
meðal ágóða fyrirtækisins undanfarin
ár, hver hann er og hvernig honum
hefur verið varið.
Tilgangurinn með rannsókninni, sem
gert er ráð fyrir að gerð verði, er sá að
kanna hvort áðurgreindri sérstöðu
íslenzkra aðalverktaka sf, verði ekki
betur fyrir komið með öðrum hætti en
þeim, sem rikjandi hefur verið í smáum
og stórum verkum á vegum varnar-
liðsins hérlendis.
-BS.