Dagblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 07.11.1978, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1978. Strætisvagnarnir: SLÆM FRAM- KOMA BARNA OG UNGLINGA Ósk Arnbjörnsdóttir hringdi: Mig langar til aö vekja athygli á framkomu barna og unglinga í strætis- vögnum. Mér finnst hún hafa farið mjög vernsnandi. Það þekkist ekki lengur að börn standi upp fyrir full- orðnum eða ófrískum konum. Hér áður fyrr voru spjöld í vögnunum þar sem börn voru hvött til að standa upp fyrir fullorðnum. Núna er ekkert gert í jressa átt og lætin og ókurteisin, ekki sízt í krökkum á fermingaraldri, er orðin slík að eitthvaö róttækt þarf að gera. Framkoma barna og ungiinga i strætisvögnum er ekki alltaf til fyrírmyndar. Sjónvarp: llla farið með pen- ingana E.F. hringdi: Við erum hér nokkrar stúlkur á vinnustað sem erum að velta fyrir okkur, hvort það sé ekki dýrt fyrir sjónvarpið að senda eftir söngkonu vestur um haf til að syngja tvö lög i sjónvarpsþætti. Hér á ég við þátt Bryndísar Schram á laugardags- kvöldum. 1 einum þættinum sagði hún að Linda Gísladóttir hefði komið gagngert frá New York til að syngja tvö lög I þessum þætti. Þetta þótti okkur furðulegt og hrein peningasóun. Sjónvarpsþættir Bryndisar Schram á laugardagskvöldum hafa vakið mikla athygli. M.a. þótti ýmsum furðuleg só staðhæfing hennar að Linda Gisla- dóttir hefði gagngert komið frá New York til að syngja 1 þættinum. Það er greinilegt að ekkert er til sparað. LYFTARADEKK, afgreidd samdægurs, allar stæröir. /1USTURBAKKI HF Skeífah 3A. Símár.38944-30107 ^OETJSTJLOF i Ly f tara' dekk Hringið í síma 27022 milli kl. 13 og 15 Leigumiðlanir: BÆDILEIGUSÖL- UM OG LEIGU- TÖKUM TIL GÓÐS Mér finnst ég ekki geta komizt hjá að svara Erlu Siguröardóttur, Safmýri 36, Rvík. Hún skrifar i DB 30/10 allgrófan áróður og varar fólk við að skipta við okkur á þeim forsendum að við reynum ekki að útvega fólki hús- næði heldur plokkum bara af þvi peninga. Þetta veit Erla að er lygi og aðeins skrifað í áróðursskyni. En hvaða nafn skyldi Erla gefa þeim sem reka Leigjendasamtökin. Mér er sagt, að fólk fái ekki inngöngu þar nema gegn 5000 kr. gjaldi. Er þetta ekki að plokka peninga samanborið viö Neytendasamtökin sem láta greiða 2000 kr. á ári. Auðvitað er það svo að við getum ekki hjálpað öllum sem til okkar leita og allra sízt á rúmum sólar- hring eins og Erla virðist halda en ég fullyrði að ég geri allt sem hægt er að gera til að útvega húsnæði. Erla veit kannski ekki, hvað kostar að auglýsa í blöðuunum, t.d. kostar i Mbl. sambærileg auglýsing og við erum með 11.500 krónur á dag. Erla skrifaði mér seinnipartinn 23/10 og sendi 10 þúsund krónur og bað mig um að hún yrði sett á skrá. Hún kvaðst vera mjög illa sett og lofaði ég að hafa hana ofarlega í huga. Það er einnig rétt að Erla hringdi til mín fyrir hádegi 25/10 og sagðist þá vera búin að fá húsnæði og ég mætti taka hana af skrá. Er hún bað mig um endur- greiðslu sagði ég henni að ég endur- greiddi ekki skráningargjald. Erla segist árangurslaust hafa auglýst i dag- blöðunum áður en hún setti sig á skrá hér. Skyldi hún vera búin að fá það endurgreitt? Ég er hræddur um ekki. Ég man ekki eftir neinni sérstakri orðarimmu okkar I milli. Ég ætla ekki að tjá mig um orðbragð Erlu hér. Það geta lesendur DB séð en eitt er vist að ég bauð Erlu hingað til að ræða við mig en hún kaus heldur að skrifa í DB. Erla segir i grein sinni að vel megi imynda sér umrætt fyrirtæki á eftirfarandi hátt. Miðlari tekur við 10 þúsund krónum frá fólki fyrir að skrá nafn þess niður. Síðan segir hún aö hann hafi enga ástæðu til að leita að húsnæði fyrir það. Og þá vitum við, hvernig leigumiölun Erlu yrði, ef hún setti hana upp. Erla hefur einnig áhyggjur af skattamálum okkur og líkir okkur við vændiskonur. Ég verð nú að viðurkenna að ég er ekki eins vel að mér I málefnum vændiskvenna og Erla. Hins vegar hef ég ekkert að fela fyrir skattinum. Þær tölur sem Erla talar um eru ekkert nálægt sannleikan- um enda búnar til í hennar öfundar- heimi. Nóg um þetta að sinni en af þvi að mér finnst þetta vera eitthvað líkt æsingaskrifum Leigjendasamtakanna þá vildi ég benda þeim á að varla er það vænlegt til árangurs að byrja sam- tökin með því að ráðast á þá sem þeir þurfa að hafa viðskipti við, og á ég þar við húseigendur og leigumiðlanir. Leigumiðlanir eru til stórhagræðis, bæði fyrir leigusala og leigutaka. Ég er líka viss um að ef Leigjendasamtökin hættu að láta sig dreyma um einokun á leigumiðlun og vilja samvinnu við alla aðila þá er mörgu hægt að breyta og öllum til góðs. Leiguþjónustan, Njálsgötu 86, Reykjavik. Bamatíminn og miðdegissagan: Aróður í útvarpinu? Sigrún Karlsdóttir hríngdi: áróðri sem þar fer fram, hvort sem það Það er orðið bagalegt að geta ekki nú er bamatíminn eða þessi opnað fyrirútvarp lengur fyrir tómum átakanlega miödegissaga. Ég vildi Sjónvarp: DAPURLEGT EFNI — hefur orsakað margt þunglyndis- kastið Jóna Vigfúsdóttir, Selfossi, hringdi: ekki annað í hug en að hann, ásamt Þá eru þeir byrjaðir að sýna Vestur- ýmsu öðru sjónvarpsefni, eigi sök á farana aftur. Þessi myndaþáttur er svo mörgu þunglyndiskastinu sem fólk fær dapurlegur á köflum að manni dettur nú. Ég get nefnt eitt atriði sem dæmi: Þegar drengurinn I Vesturförunum er neyddur til að kæfa köttinn sinn í fljótinu af þvi að ekki var hægt að gefa honum að éta. Atriði sem þetta er svo dapurlegt að það hefur mjög niður- drepandi áhrif á fólk. Ég álít að það sé allt of mikið af dapurlegu efni í sjónvarpinu. gjarnan koma þvi á framfæri við þessa ágætis konu sem verið hefur að lesa miðdegissöguna, að hún ætti að reyna að koma henni á framfæri I sovézka útvarpinu því að þar eigi hún heima en ekki hér og ég skal gjarnan borga undir hana farið aðra leiðina. Ég á örugglega fyrir því þótt ég sé húsmóðir og fyrrverandi verkakona. Heimilis- læknir svarar Raddir lesenda taka við skilaboðum til umsjónar- manns þáttarins „Heim- ilislœknir svarar" í síma 27022, ki. 13-15 alla virka daga. ;

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.