Dagblaðið - 07.11.1978, Side 12

Dagblaðið - 07.11.1978, Side 12
ÆVINTÝRIÐ UM MORGAN KANE Morgiin Kane bækurnar koma út í milljónum eintaka, í Evrópu og Bandaríkjunum Bókaflokkurinn er á góðri leið með að verða eitt vinsælasta lestrarefnið um Ameríska vestrið sem út hefur komið til þessa. Á íslensku hófst útgáfa bókanna 1976 og fást þær alsstaðar þar sem bækur og blöð seljast. PRENTHUSIÐ SF. Barónsstíg 11 b Sími: 26380 Fram fær 100 þús. á viku í 11. leikviku Getrauna komu fram 4 seðlar með 11 réttum og var vimiingur á hvern kr. 294.500.- Einn þessara seðla var frá Akure.vri en hinir frá Reykjavík. Með 10 rétta voru 43 raðir og vinningur á hverri röð kr. 11.700.- Vinningsröðin var þó með þeim óvenjulega hætti, að af 12 leikjum lyktaði 8 með jafntefli. Þátttaka í getraunum hefur vaxið jafnt og þétt undanfarið, og á laugardag seldust fleiri raðir en nokkru sinni fyrr. Hingað til hefur KR verið söluhæsta félagið, en nú hefur Knattspyrnufélagið Fram skotið KR-ingum aftur fyrir sig. Munar þar mest um sölu knattspyrnu- deildar Fram, sem eftir nokkurra ára hlé tók upp skipulega sölu getraunaseðla í upphafi tímabilsins ihaust og hefur nú um 100 þús. kr. í sölulaun á viku. Seðillinn á laugardag lítur þannig út: Birmingham— Manch. Utd. Bristol City — Bolton Coventry — Middlesbro Everton — Chelsea Ipswich — W.B.A. Leeds — Arsenal Manch. City — Derby Q.P.R. — Liverpool Southampton — Norwich Tottenham — Notth. For. Wolves — Aston Villa Brighton — Wrexham En nú er MacDougall kominn aftur til Bournemouth. Hann lék í upphafi fer- ils síns með Liverpool, komst aldrei í aðalliðið og leið hans lá til York. Þar lék hann 84 leiki, skoraði 34 mörk — mörk hafa ávallt fylgt MacDougall. Cardiff City, frá Wales, er nú í þriðja neðsta sæti 2. deildar. 1 gær rak C'ardiff framkvæmdastjóra sinn, Jimmy And- ,rews. Hann hefur verið hjá félaginu síðan 1974 en Cardiff hefur ekki átt mik- illi velgengni að fagna. Andrews var 8. framkvæmdastjóri Cardiff frá stríðslok um. Þá var Eric Gates, Ipswich í fréttun- um á Englandi í gærkvöld. Hann gekk út á Ipswich, óánægður vegna þess, að honum hefur ekki tekizt að vinna sér fast sæti í liði lpswich, þrátt fyrir góða leiki. Hann hafði þó nýlega skrifað undir 4 ára samning hjá félaginu. John Hudson skorar gegn Val um helgina. Hann er einn Bandarikjamannanna er lent hefur I útistöðum við dómara. KKI hefur samþykkt, að ef erlendir leikmenn sýni af sér áframhaldandi slæma framkomu verði þeir sendir heim. Annar Banda- rikjamaður i sviðsljósinu, Robert Starr. Hann sést að baki Hudson — situr á bekknum með hatt. DB-mynd Bjarnleifur. Bournemouth keypti i gær Ted Mac Dougall frá Southampton. Þessi sala vakti mikla athygli i Englandi, þvi meé | þvi að fara til Bournemouth heldur Mac- Dougall „heim”. Honum vegnaði mjög vel með Bournemouth á sinum tima, og er hann lék með liðinu ásamt Phil Boyer, sem nú leikur með Southampton þá var mikill uppgangur i Bournemouth og liðið á þröskuldi sætis i 2. deild. Ted Mac- Dougall skoraði 103 mörk fyrir Bourne- mouthi 146leikjum. En mörg stórlið á Englandi voru á höttunum eftir MacDougall þá og Man- chester United keypti hann fyrir 250 l þúsund pund. Það var fyrir fjórum ! árum. En mörkin hjá MacDougall bein- — bandarískur umboðsmaður telur hann hafa farið um sig niðrandi orðum Úrslit I 1. deild i Póllandi i gær urðu þessi: Ruch-Stal Mielec 1—1 Legia-Lodz 2—0 Arka-Odra 0—1 Pogon-Szombierki 1—4 Lech-Slask 1—0 Zaglebie-Wisla 1—0 Lodz-Katowice 0—1 Polonia-Gwardia 1—1 DinamoTiblisi sovézkur meistari Var risastökk Bob Hnis þornuðu upp hjá United, sem seldi hann til West Ham. MacDougall lék aðeins 18 leiki með Uniied, skoraði 5 mörk. Dvölin hjá West Ham var litlu lengri, þar lék hann aðeins 24 leiki, skoraði 5 mörk. Leið hans lá til Nor- wich, og John Bond, fyrrum fram- kvæmdastjóra Bournemouth, nú stjóra Norwich. John Bond keypti einnig Phil Boyer, og mörkin létu ekki á sér standa hjá MacDougall, 51 mark í 112 leikjum, | tæplega 1 mark í hverjum 2 leikjum, það þykir gott á Englandi. Leiö þeirra Mac- Dougall, í 76 leikjum skoraði hann 37 mörk. Þeir félagar ásamt Alan Ball þóttu mennirnir á bak við velgengni Southampton síðasta tímabil er liðið Undanfarnar vikur hefur bandariskur umboðsmaður, Robert Starr að nafni, dvalizt hér á landi. Hann hefur haft milli- göngu um komu nokkurra erlendra leik- manna hingað. Þó ýmsir forsvarsmenn félaga og aðrir sem vinna að málefnum körfuknattleiks afi haft samband við stjórnarmenn sam- bandsins og talið „sölustarfsemi” hans óheppilega hefur stjórnin látið hana óátalda. Nú hafa hins vegar gerzt þeir atburðir að stjórn KKÍ telur rétt að vekja opin- berlega athygli á atferli þessa manns. Um miðja viku 21.—28. október sl. komst varaformaður sambandsins, Páll Júlíusson, að þvi að samningar stóðu milli Starr og UMF Skallagrims um ráðningu bandarísks þjálfara og leik- manns. Þar sem ákvæði í reglugerð um körfuknattleiksmót segja að veita skuli erlendum leikmanni keppnisleyfi ef til- kynning hafi borizt fyrir 15. október sá Páll ástæðu til að hringja til forsvars- manna UMFS og vekja athygli þeirra á þessu ákvæði. M.a. vegna afskipta Páls af þessu máli hefur Starr leitað til lögmanns og fengið hann til að hóta Páli málsókn svo sem fram kemur í meðfylgjandi ljósriti af bréfi lögmannsins. Stjórn KKÍ lítur svo á að með áður- nefndri hótun sé Robert Starr í raun að veitast að forystu sambandsins. Á fundi 1. nóvember sl. samþykkti stjórnin að KKl taki fulla ábyrgð á gerðum varaformanns í nefndu máli. Ennfremur hefur stjórnin ákveðið að gangast fyrir að settar verði ákveðnar | reglur um starfsemi umboðsmanna hér- lendis. Biðjizt afsökunar eða mætið fyrir dómstólunum. Hr. Páll JúUusson, varaformaöur KKÍ. Til min hefur leitað Robert Starr umboðsmaður frá Houston i Bandaríkj- unum vegna vandamála, sem upp hafa komið i samskiptum hans við menn i íþróttahreyfingunni hér. Þannig er mál með vexti að Robert Starr hefur verið milligöngumaður að komu bandarískra körfuknattleiks- manna hingað til lands síðustu ár og jafnframt hefur hann reynt að stuðla að þvi að íslenzkur körfuknattleikur nyti góðs af nýjungum frá Bandaríkjunum. Veit hann ekki betur en að öll samskipti við íslendinga hafi gengið snurðulaust og ekkert klöguefni komið upp. Nú bregður hins vegar svo við 1 heimsókn Roberts Starr sem hófst í byrjun september að hann verður var við nokkra andúð eða fáleika i sinn garð hjá hinum ýmsu körfuknattleiksfélögum þannig að Robert taldi augljóst að þeim hafi verið gefnar mjög neikvæðar upplýsingar um hann, frá einhverjum áhrifamanni 1 körfuknattleikshreyfing- unni. Sá grunur fékkst staðfestur fyrir nokkru þegar Robert fékk fregnir af því að í tveimur tilvikum höfðuð þér i viðtölum við talsmenn félaga utan Staða efstu liða 14 9 2 3 26—12 20 14 8 4 2 22-15 20 14 7 4 2 17-13 19 14 7 4 3 16-13 18 Gifurleg fagnaðarlæti gripu um sig í Tiblisi á sunnudag, þúsundir manna streymdu út á götur Tiblisi, höfuð- borgar Georgiu, yeifuðu fánum, þeyttu flautur sungu og dönsuðu. Lögreglan stóð hjá og fylgdist einungis með — en tilefni hátiðahaldanna var að Dynamo Tiblisi vann á sunnudag sovézka meistaratitilinn með þvi að gera jafntefli i Moskvu. Fólk fylgdist með leiknum í sjónvarpi . frá Moskvu gegn Dynamo Moskvu. Og Tiblisi náði jafntefli, 0—0 — það nægði til sigurs i sovézku deildinni og fagnaðarlæti brutust út, fólk þusti út á götur í gleði sinni. Dinamo Kiev er í öðru sæti, eftir að hafa sigrað Kairat Alma 3—0 í gærkvöld. Staða efstu liða í Sovétríkjunum er: DynamoTiblisi 29 17 7 5 43-22 41 Dinamo Kiev 29 15 8 6 41-19 38 Shaktyor Don. 29 16 5 8 41-29 37 Dinamo Moskvu 29 14 9 6 36-22 36 Spartak Moskvu 29 13 5 11 41-33 31 Ein umferð er eftir í sovézku deild- inni. Beamon ekki gilt? —tíu ár f rá því Bob Beamon stökk 8,90 í Mexíkó Hinn 18. október sl. voru nákvæmlega 10 ár frá því Bandaríkjamaðurinn Bob Beamon stökk inn í 21. öldina. Það var á ólympiuleikvanginum i Mexíkó-borg 1968, þegar hann sveif frá langstökks- plankanum og lenti 8.90 metra frá staðnum, sem hann hafði stokkið af. Það er það augnablik i íþróttasögunni sem meira hefur verið í sviðsljósinu en flest annað, 8.90 metrar í iangstökki var — og er — talsvert miklu lengra eirgerist í heimi heimsmetanna. Það hafa átt sér stað talsverðar sveiflur í ýmsum íþróttagreinum frá degi til dags en 8.90 metrar i langstökki er of ótrúlegur árangur að hann hafi getað náðst við löglegar aðstæður — og það þó Bob Beamon hafi verið sérlega tilþrifa- mikill íþróttamaður. En nálægt þessum árangri sínum .komst hann aldrei, hvorki fyrr né síðar. Árangurinn 8.90 metrar var þegar dreginn í efa af mörgum sérfræðingum á j sviði frjálsra íþrótta — og er enn þrátt fyrir að tíu ár eru frá því ólympíuleik- arnir voru háðir í Mexíkó. Það vaktif athygli i Mexikó, að hinn frábæri lang- stökkvari og fyrrum heimsmethafi Ralph Boston stökk innan við 8.50 metra i þunna loftinu i 2200 metra hæð | yfir sjávarmáli. Þýzkir sérfræðingar héldu því fram, að þeir, sem áttu aðl gæta vindmælisins, þegar Beamon stökk, hafi sofið á verðinum — gleymt sér í þeirri öldu hrifningar, sem átti sér stað, þegar Beamon lenti í langstökks- gryfjunni. Þeir sögðu að vindhraðinn hefði verið tveir sekúndumetrar, þegar Beamon stökk — hinn mesti leyfilegi vindstyrkur. Margir eru á þeirri skoðun, að vindhraðinn hafi verið helmingi meiri — jafnvel yfir fjórir sekúndumetrar. Þá er hægt í heppnuðu stökki — þar sem al|t smellur saman — að ná 8.90 metrum. Hinn kunni, svissneski blaðamaður Walter Luk, skrifaði nýlega grein í blaðið Sport í Zurich og meðal annars eftirfarandi um Beamon-stökkið. „Sem áhorfandi þann dag upplifði ég eitt hið allra mesta, sem ég hef orðið vitni að á iþróttaleikvangi. Ég er viss um að heimsmet Beamons verður ekki slegið á þessari öld — og ég minnist atviksins eins og það hefði gerzt 1 gær. Ég leit á fánastengurnar á leikvangin- um í Mexíkó — og það var mjög mikill vindur. Kannski gat vindurinn gefið hlaupurunum byr... en þá um leið stökk Beamon og stökk inn í 21. öldina. Hann hafði rásnúmer fjögur og þeir þrír, sem reyndu á undan, honum, hlupu yfir plankann. Atrennan hafði ekki passað hjá þeim — vegna hins mikla vinds. Var röng hjá þeim öllum þremur. Allir glenntu upp augun eftir stökk Beamons. Eitthvað míkið lá í loftinu. Hafði hann ef til vill stokkið yfir 8.50 metra? Jafnvel um 8.60 metra? Dómararnir virkuðu mjög órólegir. Báðu um venjulegt málband. Þeir trúðu ekki hinni sjálfvirku mælingu. En skömmu slðar birtist árangurinn á Ijósa- töflunni------8.90 metrar!! í fyrstu sló þögn á alla viðstadda en síðan brutust út gífurleg fagnaðarlæti. Úrslitamennirnir i 400 metra hlaupinu urðu að bíða í fimm mínútur eftir að hlaup þeirra gæti hafizt. Ég hugsaði eins og margir aðrir hvort afrekið yrði gert ógilt vegna hins sterka vinds? Ég var alveg öruggur um, að stökkið var ekki gilt. En svo kom staðfesting frá stjórum vindmælisins. Tveir sekúndumetrar. . . gilt stökk. Var vindmælirinn réttur? Enginn veit það því ómögulegt var að ákveða vind- hraðann einmitt á þvi augnabliki, sem Beamon stökk. En ég er enn þeirrar' skoðunnar að heimsmet hans verður aldrei bætt,” segir Walter Luk að lokum. Það eru margir sammála Svisslend- ingum — margir, sem efast um réttmæti risastökksins. Vindmælarnir sýndu tvo sekúndumetra — en það átti líka að skrifa nýja heimssögu íþróttanna í Mexíkó. Sögu, sem átti að hylja neyð hins almenna borgara í landinu. vann sæti í 1. deild aftur undir stjórn Laurie McMenemy, framkvæmdastjóra Southampton. Nýogbetri jaröarbeijajógúrt! Mjólkursamsalan í Reykjavík Reykjavíkur farið ófögrum orðum um Robert og m.a. kallað hann „stórhættulegan”. Ekki veit ég hvort þér hafið einhverja ástæðu til þessara ummæla en eitt er vist að þau eru til þess eins fallin að sverta mannorð umbj. míns og eyðileggja viðskiptasambönd hans hér á landi. Er það mjög miður því hann telur sig hafa komið í hvívetna vel fram við islenzka körfuknattleiksmenn og komið á góðum samböndum, og ekki sízt hagkvæmum fyrir íslendinga. Fyrir hönd umbjóðanda míns fer ég þess á leit við yður að þér á óyggjandi hátt biðjizt afsökunar á framkomu yðar og ummælum í hans garð og látið stjórn KKÍ. vita af því. Ef svo verður mun umbj. minn væntanlega taka afsökunar- beiðni yðar gilda og aðhafast ekkert frekar. Verðið þér hins vegar ekki við áskorun þessari megið þér búast við þvi að umbjóðandi minn muni leita til dómstólanna og gera þar ýtrustu kröfur á hendur yður. Páll A. Pálsson Enn tapar Slask Iþróttir DAGBLADIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 7, NÓVL_____ Iþróttir Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Helgi vann — þrjár í bið —gegn Búlgaríu. Sovétmenn halda naumri forustusinni Aðeins einni skák lauk í gærkvöld i viðureign íslands og Búlgaríu, i 10. umferð ólympiuskákmötsins í Argentinu Það var á 2. borði þar sem Helgi Ólafsson lagði Ermenkov i 38 leikjum. Hinar skákirnar fóru í bið. Guðmundur Sigurjónsson á heldur betri biðstöðu gegn Radulov, Margeir Pétursson einnig gegn Tringov en Jón-L. Árnason á i vök að verjast gegn Padevky. Sovétmann halda naumri forustu sinni eftir viður- eign sina við ísrael. Þar er þremur skákum lokið og staðan 1,5—1,5. Oleg Romanishin á biðskák við Grunfeld, og er sennilega með unnið tafl. öðrum skákum í viðureign Sovétmanna og ísrael lyktaði svo að Petrosjan og Djindjichashvilli gerðu jafntefli, Polu- gajevsky vann Kagan, Gulko tapaði fyrir Bleiman. V-Þýzkaland-Ungverjaland 1,5—1,5. Hubner- Portisch jafntefli, Unzicker-Ribli jafntefli, Pfleger- Adorjan jafntefli, Heach-Csom i bið. USA-Kúba 2.5— 1.5 Kavalek vann Garcia, Browne-Hernandez jafntefli, Tarjan vann Rodrigues, Lombardy tapaði fyrir S. Garcia. Sovétmenn hafa nú hlotið 25,5 vinninga, V-Þýzka- land hefur 25. Bandaríkjamenn hafa 24,5 vinninga. Líklegt er að Sovétmenn auki muninn — allar eiga þjóðirnar eina biðskák en líklegt að Romanishin sigri í sinni skák. Ungverjar hafa nú 24,5 vinninga eins og USA. Heimsmeistarinn, Anatoly Karpov kom i gær á keppnisstað, en þeir virtu ekki hvor annan viðlits, hann og Kortsnoj. Önnur úrslit í gær. Svíþjóð-England 2—1. Andersson vann Miles, Kaiszauri tapaði fyrir Stean, Schussler-Hartston i bið, Wedberg vann Mestel. Ísland-Búlgaría 1—0,3 i bið. Júgóslavfa-Argentína A 1.5— 1.5. Ljubojevic vann Bronstein, Matanovic - Hase jafntefli, Velimirovic tapaði fyrir Szmetan, Parma-Grynbcrt í bið. Danmörk -Sviss 2—1. Hamman-Kortsnoj i bið, Kristiansen-Hug, jafntefli, Fedder vann Lombard, Hoi-Wirthensohn jafnt. Spánn-Austurriki 2,5—0,5 ein í bið. Argcntína- Rúmcnia 0,5—0,5,3 i bið. Pólland-Frakkland 1—1,2 í bið. Filippseyjar-Chile 2—1, 1 i bið. Finnland- Kólombía 1,5—0,5,2 í bið. Brasilia-Holland 0,5—0,5, 3 í bið. Perú-Kanada 1—1, 2 í bið. Noregur-Mexíkó 1.5— 0,5 2 í bið. Paraguay-Wales 2,5—1,5 5. Venezúela-Kína 1—0,3 i bið. Indónesia-Ekvador 2— 2. Nýja-Sjáland-Túnis 1,5—0,5 1 í bið. Skotland- Uruguay 2—0, 2 i bið. Ástralía-Sri Lanka 4—0. Puerto Rico-Færeyjar 2—1 1 i bið. Dóminikanska lýð- veldið-Trinidad 2—1,1 i bið. Bólivía-Hong Kong4— 0, Guatemala-Ginea 2—1, 1 i bið. Lúxemborg- Jórdania 2—0, 2 i bið. Sýrland-Marokkó 3—0, 1 i bið. Belgia-Malasia 1—0, 3 i bið. Japan-Lýbia 1,0— 0,5 2 i bið. Jamaica-Brezku jómfrúreyjar 3.5—0,5. Andorra-Zaire 3—0, 1 í bið. USA jómfrúreyjar- Bermúda 1,5—1,5, 1 i bið. Arabisku furstadæmin- Máritanía 2—1,1 i bið. ísland gerði jafntefli 2—2 við Kolombiu í níundu umferðinni á ólympiuskákmótinu í Buenos Aires. Skák þeirra Jóns L. Árnasonar og Zapata var tefld áfram i gær og lauk með jafntefli. Úrslit i skákunum við Kolombiu urðu þvi, að Guðmundur tapaði fyrir Guitierrez, Helgi Ólafsson vann Rodriguez og Ingvar gerði jafntefli við Agudelo. Úrslit í öðrum leikjum í 9. umferðinni, sem ekki höfðu fengizt úrslit í á laugardag og skýrt var frá í blaðinu i gær. Ísrael-Pólland 2,5 — 1,5. Liberzon tapaði fyrir Kuligowski, Kagan vann Adamski. Bireboim-Pytel jafntefli. Bandaríkin-Danmörk 2—1. Skák Lein og Kristian- sen fór aftur í bið. Kúba-Júgóslavia 2,5 — 1,5. Rodrigues vann Matanovic, Garcia-Gligoric, og Hernandes- Ljúbojevic jafntefli. England-Kanada 3—1. Keene-Day jafntefli. Filippseyjar-Argentína 1,5—1,5. Skák Rodrigues- Saidler fór aftur i bið. Svíþjóð-Kína, 3,5 — 0,5. Andersson vann Chi. Chile-Brasilia 2—1. Silva-Masculo jafntefli. Skák Scholz-Carvalho fór aftur i bið. Austurriki-Ástralia 4—0. Finnland-Nýja-Sjáland 3—1. Mexiy>-Dóminíkanska lýðveldið 2,5 — 1,5. Wales-Hong Kong 3—1. Equador-Skotland 2—1 og ein skák aftur í bið. Bolivia-Trinidad 2.5 — 1.5. Sri Lanka-Jamaíka 4—0. Gfana-Belgia 2,5 — 1,5. Japan- Zaire 4—0. Brczku jómfrúareyjar-Bandarísku jóm- frúreyjar 2—2. Varaformanni KKÍ hótað málsókn! MacDougall til Boumemouth —fráSouthamton

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.