Dagblaðið - 16.11.1978, Side 2
' ■......
Alþýðuleikhúsið:
Hlýtur að raka
samanfé
Faðir i Köpavogi hringdi:
Alþýðuleikhúsið var með sýningu í
sjónvarpinu nýlega og þar var galvösk
kerling sem kjaftaði mikið og sagði
m.a. eitthvað á þá leið að búið væri að
útvikka starfsemina en að sjálfsögðu
mundu þau ekki lifa það ef ekki kæmu
til styrkir frá því opinbera.
Þetta kom mér ákaflega spánskt
fyrir sjónir þvi skömmu áður hafði
þessi sami flokkur verið með einhvern
fiflaleik fyrir börn i Digranesskóla.
Þangað voru börnin bókstaflega
neydd til að fara og sagt að koma með
500 kr. að heiman. Það væri ekki ama-
legt fyrir kvikmyndahúsin að geta
rekið svona „bissness”.
Ég tók eftir því, þegar þessi hópur
sýndi i sjónvarpinu, að þar var
nákvæmlega engin sviðsmynd og þvi
enginn tilkostnaður. Þau hljóta að
raka saman fé.
Hér er ekki verið að keppa á
frjálsum markaði heldur er sýnt á
skólatima og engin húsaleiga greidd.
Krakkarnir eru beinlínis þvingaðir til
að sækja þetta því að við vitum að sá
sem ekki fær að fara er strax gerður
afbrigðilegur í skólanum.
Þess vegna skil ég ekki hvernig
svona fyrirtæki geta komið fram fyrir
alþjóð, barmað sér og farið fram á
opinbera styrki.
«
»
Tveir af leikurunum í Alþýðuleikhús-
inu. „Faðir i Kópavogi” telur það
undarlegt að leikhúsið þurfi á opinber-
um styrkjum að halda.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1978. •
Sektið foreldra
barna sem hanga
af tan f bflum
Kona í Kópavogi hringdi:
Núna þegar snjórinn er svona mikill
og hálka á götum borgarinnar, og ekki
sizt i Kópavogi, eru börnin alltaf að
hanga aftan í bilum eða „teika" eins
og þau kalla það. Það virðist algjörlega
H
Hér er leikinn hættulegur leikur, að
hanga aftan i bfl. „Kona i Kópavogi”
telur sig nú hafa fundið upp óbrigðult
meðal við þessari iðju barna og ungl-
inga.
vonlaust að fá þau til að hætta þessum
hættulega leik sem hefur verið
stundaður hér líklega frá þvi að bilar
komu til sögunnar. Nú hefur mér
dottið i hug snjallræði sem ég held að
gæti orðið til að draga úr þessu. Væri
ekki snjallt að sekta foreldra þeirra
barna semstaðineru að verki við þessa
iðju? Þegar foreldramir eru sektaðir
fyrir þetta þá brýna jieir fremur fyrir
börnunum hætturnar í sambandi við
þetta. Það er Ijóst að það 'taka aldrei
öll börn þátt i þessum leik og þar spilar
uppeldið inn i.
Tweed 78
EAWDURINN
pwgp
A-ÐALSTRffiTl S
REYMAVÍK-
SÍMI12834
Raddir
lesenda
v
KNATT-
SPYRNU-
UNNENDUR
Nú er upplagt tækifœri
til að sjá það bezta í
enskri knattspyrnu.
LUNDÚNAFERÐIR
27. NÓVEMBER
0G 3. DESEMBER.
Fyrri ferð: Leikir 29. nóv.: Eng-
iand — Tékkóslóvakía á Wemb-
ley. 2. des.: Arsenal — Liverpool,
Chelsea — Bristol City.
Seinni ferð: Leikir Chelsea —
Aston Villa, Tottenham — Ips-
wich.
Fréttamenn I humátt á eftir Lúðvik Jósepssyni I sumar er útlit var fyrír að hann
yrði forsætisráðherra tslands. Nú segir Benedikt Gröndal að sú ákvörðun
Alþýðuflokksins að hafna Lúðvik sem forsætisráðherra hafi verið þjóðinni fyrir
beztu.
DB-mynd Ari
Mikilhæfasti stjórn-
málamaður íslendinga
0454—0523 hringdi:
Ég varað lesa í Mogganum umrnæli
Benedikts Gröndal „að sú ákvörðun
hafi verið þjóðinni fyrir beztu,” þ.e. að
hafna Lúðvik Jósepssyni sem forsætis-
ráðherra.
Það væri æskilegt að utanríkisráð-
herra fyndi þessum orðum sinum stað.
Ég tel Lúðvik Jósepsson mikilhæfasta
stjórnmálamann íslendinga fyrr og
siðar. Sem gamall sjómaður tel ég að
atvirinuleg uppbygging hafi hvergi
verið meiri en á Neskaupstað og að
Lúðvík hafi ekki átt minnstan þátt i
því.
i Mér finnst þetta í grófara lagi þegar
verið er að kasta svona órökstuddum
V
dylgjum í fólk. Það kemur hvergi fram
hvaða ástæður liggja til þessara
ummæla formanns Alþýðuflokksins.
Lúðvik ber höfuð og herðar yfir alla
ráðherrana. Og mér finnst sem margir
hinna ungu þingmanna Alþýðuflokks-
ins sýni Alþingi mikla óvirðingu með
klæðnaði sinum. Þetta er nú einu sinni
Alþingi okkar íslendinga. og mér
finnst sjálfsagt að þeir sem þar sitja
séu sómasamlega klæddir. Nei. Ég átti
ekki von á að kratamir höguðu sér
alveg eins og fifl loksins þegar þeir fá
eitthvert fylgi.
Nær væri þeim að taka nú til
hendinni og vinna eins og íslendingum
sæmir.