Dagblaðið - 16.11.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1978.
7.
Erlendar
fréttir
London:
Prinsinnhélt
uppáþrítugs-
afmælið í
Buckingham
Karl prins hélt upp á þritugsafmæli
sitt í gærkvöldi ásamt þrjú hundruð og
fimmtiu vinum sínum, ættingjum og
öðrum gestum. Fór veizlan fram í Buck-
inghamhöll og samkvæmt fregnum
munu menn hafa skemmt sér hið bezta.
Frakkar og Kanada-
menn taka viö
2500 flóttamönnum
þeir sitja í flaki f lutningaskips sem strandað er við strönd Malasíu en þar
fá þeir ekki að fara í land
Franska rikisstjómin hefur boðizt
til að taka við tvö þúsund og fimm
hundruð Vietnömum en þeir eru um
borð í flutningaskipi sem strandað er
við Malasíu. Hefur ríkisstjórnin þar i
landi neitað þeim um að stíga á land
þar. Rikisstjórnin í Quebec i Kanada
hefur einnig boðizt til að taka við
nokkrum hluta hinna nauðstöddu
manna. Ekki er ljóst hvert ferð hinna
tvö þúsund og fimrn hundruð Viet-
nama hefur verið heitið en mjög hefur
verið algengt að erfitt væri fyrir flótta-
menn frá Vietnam að fá landvistar-'
leyfi í nágrannarikjunum. Var þetta
mjög áberandi fyrstu mánuðina eftir
fall Saigonstjórnarinnar. Urðu þá
sumir flóttamenn að hrekjast svo pólitiskum flóttamönnum.
vikum skipli á illa búnuni fleytum án
þess að nokkur fengist til að bjarga
þeini. af ótta við að sitja uppi með
ríkisfangslaus fólk. Bandarikin og
nokkur Vestur-Evrópuriki hafa veitt
nokkrum hópi sliks fólks hæli sem
lanSmith
leitar stuðn-
ings hjá
Suður-A fríku
Pieter Botha forsætisráðherra Suður-
Afriku og Pik Botha utanrikisráðherra í
stjórn hans ræddu við lan Smith for-
sætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar
i Ródesiu.Kom liinn siðastnefndi ásamt
hinurn þrent svörtu ráðherrum í stjórn
sinni til Pretoríu i gær. Ekkert hafði
verið sagt frá þessum fundi fyrirfram. í
opinberri tilkynningu um fundinn var
sagt að ekkert yrði látið uppskátt um
efni viðræðnanna.
Afstaða Suður-Afríkustjórnar til
hinnar nýju bráðabirgðastjórnar í
Ródesiu er ekki fullljós og ekki er vitað
hvort þeir treysta sér til að styðja við
bakið á lan Smith eftir að hann hefur
tekið svarta leiðtoga inn í stjórn sína.
Ljóst er að Suður-Afrikustjórn telur sig
hafa nóg með að verjast árásum sem
hún verður fyrir vegna stefnu sinnar í
Namibiumálinu. En þar hefur hún þver-
skallazt við að fara eftir samþykktum
Sameinuðu þjóðanna um að veita
þessari gömlu þýzku nýlendu frelsi.
Suður-Afrika hefur haft yfirumsjón óg í
raun algjör yfirráð yfir þessu landsvæði
síðan árið 1918. Hefur stjórnin verið
mjög treg til að láta þau af hendi, þrátt
fyrir ítrekaðar samþykktir Sameinuðu
þjóðanna.
Moskva:
Washington jók kuld-
ann segir Moskva
Háttsettur sovézkur embættismaður Ponomaryov, sem er félagi i fram-
ásakaði ráðamenn í Bandaríkjunum urn kvæmdaráði sovézka kommúnista
að liafa vitandi vits aukið kuldann i sam- flokksins varaði tólf bandaríska öldunga-
skiptunt ríkjanna fyrr á þessu ári. Sagði deildarþingmenn við að fresta nokkuð
hinn sovézki að Bandaríkin hefðu að hefja á ný viðræður um takmörkun
óeðlilegan áhuga á að auka hernaðar- kjarnorkuvígbúnaðar.
yfirburði sina yfir Sovétrikin. Boris
Hassan styður
Sadaten
skilur aðra
arabaleiðtoga
Hassan konungur Marokko varði
framferði Anwars Sadats forseta
Egyptalands i friðarviðleitni hans
gagnvart Israelsríki opinberlega í gær.
Kvað' hann ásakanir annarra leiðtoga
araba um að hann hefði svikið málstað
araba ekki réttmætan.
Hassan konungur sagðist aftur á móti
skilja afstöðu annarra arabaleiðtoga,
sem sumir hverjir litu á tilraunir Sadats,
sem viðleitni til að koma á allsherjar
friði á milli Israels og arabaríkjanna en
aðrir litu hins vegar á málið, sem
milliríkjamálefni milli Ísraels og
Egyptalands einvörðungu.
HOLASPORT — L0UH0LAR2-6 — SIMI75020
Ódýru skíðch og snjógallamir
komnir aftur
Frá 2 ára til 16 og 17 ára, verö
kr. 7.560,11.590,13.970 og
17.520.
Margir litir—mörg snið.
Antíglitefni.
Einnig skíðahúfur í úrvali,
austurrískarkr. 1.850-3.130
Moon-Boots kr. 5.750.
Snjóþotur, stórarkr. 5.900.
Skíðabindingar, gamalt verð.
Skautar, gamalt verð.
PÓSTSENDUM
H0LASP0RT - SIMI75020 - BREIÐHOLTI
Forsætisráðherra Spánar Aldolfo Suarez hefur reynzt traustari í sessi en margir bjuggust við, þcgar hann tðk við völdum.
Öfgasinnuðum Böskum hefur ckki tekizt að stvggia h-iðtoga hersins það mikið að þá hafi brostið þolinmæðina og tckið
völdin f landinu. A myndinni er Suargz að ávarpa spánska þingið, sem nvveirð hefur samþykkt nýja stjórnarskrá.