Dagblaðið - 16.11.1978, Side 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1978.
/ln" 111
II
Kjallarinn
Lengi hefur þaö veriö svo, að
Færeyingar eru eina þjóðin, sem
einstaka grobbnir íslendingar hafa
stært sig gagnvart. Höfðatalan er ekki
okkar sterka hlið. Svo er enn síður um
Færeyinga, og sanna þeir þó
umheiminum, að þjóð getur verið til
og átt myndarlegt samfélag og sterka
menningu, þótt hún sé tölulega meira
en fjórum sinnum minni en íslend-
ingar.
Nú er svo komið, að virðing íslend-
inga fyrir Færeyingum fer sívaxandi,
ekki einasta af því að þeir eiga sinn
William Heinesen, sem skrifar
skrambi góðar bækur, heldur einnig af
þvi að Færeyingar hafa skipulega og
skynsamlega steypt atvinnuháttum
sínum i nýtízkulegt og háþróað horf.
Nú um nokkur ár hafa þeir verið á
öldutoppi hagsveiflunnar og hafa
þegar að sögn skákað Islendingum í
lífskjörum.
Samanburður
Frækileg frammistaða Færeyinga er
eins og reykur i augum sumra íslend-
inga. Og á síðustu misserum heyrast
áfellisdómar um, að óstjórn hér á landi
valdi niðurlægingu okkar gagnvart
Færeyingum.
Vissulega eru Færeyingar alls góðs
lofs maklegir. En samanburður á
íslenzkum lífskjörum og færeyskum er
aftur á móti hæpinn. Eins og málin
standa, er fátt um hliðstæður í efna-
hagslífi þessara tveggja þjóða annað
en það, sem að vísu er stórt, að báðar
þjóðir draga fisk úr sjó og vinna að
meira eða minna leyti i landi. Sjávar-
afli og vinnsla er drjúgur hluti I
þjóðarframleiðslu beggja, en þó verður
efnahagslíf á lslandi og í Færeyjum
ekki mælt sama mælikvarða til ábend-
ingar um góða eða vonda efnahags-
stjórn annarrar þjóðarinnar.
Ódýr lausn
Færeyinga
Færeyingar eru enn í nánum efna-
hagslegum og menningarlegum
tengslum við Dani. Það sparar þeim
gifurlega fjármuni. Þeir njóta margvis-
legra danskra styrkja. Einmitt um
tengslin við Dani var kosið nú i
Færeyjum fyrir nokkrum dögum.
Ef á hinn bóginn er litið á fjárlög
íslenzka ríkisins, blasa þar við allt að
því stjarnfræðilegar tölur um kostnað
af ýmsum málaflokkum, sem
Færeyingar sleppa þægilega frá. Eru
þar skólamál og heilbrigðismál efst á
blaði. Alla sérhæfða skólagöngu og
háskólanám sækja Færeyingar til
Danmerkur. Sama máli gegnir um
flóknari lækningar og sjúkrahúsvist.
Og áfram má telja, svo sem utanrikis-
þjónustu, seðlabanka, sinfóníuhljóm-
sveit, ráðuneyti ýmiss konar, þjóðleik-
húso.fl. o.fl.
Færeyingar hafa aldrei verið mikil
landbúnaðarþjóð og þvi eiga þeir ekki
við að stríða niðurgreiðslur á land-
búnaðarvörum eða útflutningsupp-
bætur á þær. Færeyjar eru aðeins
1399 ferkílómetrar en Ísland er
100.000 ferkílómetrar. Vegur sá
stærðarmunur meira en Htið, þegar hér
á landi er framfylgt þeirri stefnu að
halda öllu landinu i byggð með vega-
kerfi, hafnargerð, skólakerfi, læknis-
þjónustu o.s.frv. Á sínum landþröngu
eyjum hnappast saman innan við
50.000 Færeyingar. Útgjöld til vega-
gerðar munu þó á siðustu árum hafa
verið stærsti útgjaldaliður fjárlaga
þeirra. Fjöllóttar eyjarnar gera vega-
gerð rándýra með jarðgangagerð og
brúargerð. Á tveimur árum frá 1972
SigurðurGizurarson
til 1974 fjölgaði bifreiðum þar I eyjum
um 70%. í okkar stóra landi nemur
vegaféð þó ekki nema 6—7% af
islenzku fjárlögunum. Á fjárlögum
okkar ganga ennfremur yfir 25% til
tryggingamála, um 14—15% til
fræðslumála og um 7—8% til heil-
brigðismála.
Fasttenging
f æreysku krón-
unnar við gengi
Lærdómsríkt er að bera saman efna-
hagslegt stjórnarfar á íslandi og í
Færeyjum.
Færeyingar eiga sína eigin krónu,
en hún er fasttengd gengi dönsku
krónunnar. Báðir gjaldmiðlar eru
notaðir í Færeyjum. Færeyingar geta
því ekki gert gengislækkanir upp á
eigin spýtur. Ef danska krónan
stendur sig vel sem traustur gjaldmið-
■11, gerir færeyska krónan það einnig,
hvað sem annars kann að bjáta á í
efnahagsmálum þeirra. Ef öll frystihús
væru t.d. að fara á hausinn vegna
óhóflegra launahækkana í kjara-
samningum, mundu frystihúsin þar I
eyjum stöðvast og ganga yrði aftur til
samningsborðs til að semja um
eitthvað, sem vit værii.
Ef íslendingar hefðu t.d. búið við
slika gengisfestingu, þá hefðu þeir ekki
getað gert gengislækkun i sumar —
eða í öll hin skiptin, sem gengið hefur
verið fellt í reynd — og þá hefðu frysti-
húsin ekki komizt i gang aftur eftir
uppsagnirnar án rikisstyrkja eða nýrra
kjarasamninga með lægri launum.
Rikisstjórnin hefði getað reynt
niðurgreiðslur til að hafa áhrif á yísi-
tölu og þar með laun, en niður-
greiðslukerfi hafa hvarvetna reynzt lé-
legust allra hagkerfa, þegar til lengri
tíma er litið. Og endalaust er ekki unnt
að finna nýja skattþegna til að seilast í
vasa hjá til að greiða öðrum. Viðsemj-
endur á vinnumarkaði hefðu m.ö.o.
ekki getað eftir á hrópað á hjálp ríkis-
stjórnar og fengið hana í mynd gengis-
lækkunar, þ.e. hærri krónutölu fyrir
afurðir sínar. Sú aðferð hefur þó tiðk-
azt hér á landi eftir svo marga kjara-
samninga.
Fasttenging færeysku krónunnar
við þá dönsku jafngildir því járnlög-
máli i efnahagslífi þeirra. Þeim er einn
kostur að leysa vandræði sín eftir
ákveðnu einstigi. Islendingar hafa hins
vegar aðgang að meðalaskáp, þótt það
hafi í reynd leitt til hóflausrar lyfja-
notkunar: Hringekju launahækkana
og gengislækkana: Óðaverðbólgu.
Efnahagsmálin hafa löngum — eins
og verðbólgan sýnir — verið Islend-
ingum óvigt bjarg, þar sem kokviðar
og klógráar veiðibjöllur svifa yfir fjör-
eggjum.
Á meðan Færeyingar feta einstigi
til bættra lifskjara á hægt sígandi
gengi danskrar krónu, virðist annað-
hvort vaður íslendinga hafa slitnað
eða þeir í vimu hafa rambað fram af
bjargbrúninni. Hvínandi gengishrap
'gjaldmiðilsins veitir enga fótfestu, en
langt niðri hringsnýst fyrir augum
með miklu soghljóði hyldýpi erlendra
skulda og ósjálfstæðis.
Færeyingar létu nú um daginn i ljós
í lögþingskosningum vilja sinn til að
feta áfram einstigið, þ.e. þeir vilja ekki
slita sambandinu við Dani. Hér úti á
lslandi hlýtur á hinn bóginn höfuð-
verkefni stjórnenda að vera að finna
þá syllu eða nibbu, sem stöðva megi
sig á og finna gjaldmiðlinum festingu.
Sigurður Gizurarson
sýslumaður.
Eiga íslendingar að
taka upp þýzka
markið?
Drýldnir dómar um, að við eigum
'ekki að þurfa að vera eftirbátar Fær-
eyinga í lífskjörum styðjast ekki við
líka og sambærilega þjóðfélagsgerð.
. Færeyska dæmið vekur þó allt að einu
til umhugsunar um, hvort við ættum
t.d. að fasttengja íslenzku krónuna er-
lendum gjaldmiðli, t.d. þýzka mark-
inu. Við fengjum þá langþráðan sterk-
an gjaldmiðil, sem islenzkur seðla-
banki gæti ekki þynnt út með stanz-
lausri prentun peningaseðla. En því
fylgdi um leið þýzkur agi I efnahags-
málum. Tvíbjörn mundi þá ekki hagg-
ast þegar Einbjörn togaði í hann og
þvi siður Þríbjörn. Engar launahækk-
anir yrðu sýndarlaunahækkanir, eins
og nú er, og færi t.d. kostnaður frysti-
húsa upp fyrir tekjur þeirra, gætu þau
ekki kallað á ömmu sína — rikisstjórn-
ina — um uppáskrift með nýrri gengis
lækkun.
Verkefni við-
námsstjórnar
Yfirlýst markmið nýju vinstri
stjórnarinnar er, að hún skuli öðru
fremur vera viðnámsstjórn gegn verð-
bólgu. Hún skal starfa í nánu sam-
starfi við verkalýðshreyfinguna og
með og fyrir fólkið.
Samráð og samvinna við verkalýðs-
hreyfinguna um að vinna bug á verð-
bólgunni hlýtur að jafngilda því, að
verkalýðshreyfingin taki þátt I að
bremsa verðbólgu-hringekjuna.
Ef verkalýðshreyfingin bregzt
þessu samráði og þessari samvinnu,
liggur beint við, að forsendur teljist
brostnar fyrir þvi, að rikisstjórnin láti
markmiðið: „full atvinna ávallt” sitja
I fyrirrúmi. Uppihald þessa markmiðs
gerir þjóðfélagið miklu viðkvæmara
fyrir verðbólguhvötum, þvi að meiri
spenna er á vinnumarkaði en ella. Ef
verkalýðshreyfingin lætur ekkert
koma á móti fyrir aðgæzlu þessa
markmiðs af hálfu landsstjórnarinnar,
er ekki að undra, að hún kippi að sér
hendinni. Æ sér gjöf til gjalda.
Ef verkalýðshreyfingin bregzt að
þessu leyti, yrðu það hvorki ósann-
gjörn né órökrétt viðbrögð af hálfu
rlkisstjórnarinnar, að hún lýsi yfir, að
viðsemjendur á vinnumarkaði þurfi
ekki að treysta á nýjar gengislækkanir
eða innspýtingar erlendra lána til að
leiðrétta slagsiðuna. Ríkisstjórnin
hlýtur eins og aðrir í þessu landi að
geta sett sín skilyrði.
Heiðnaberg
efnahags-
málanna
Erfltt er að finna þá syllu, sem stöðva má á, og finna gjaldmiðlinum festingu.
Er sjálfstjórn í peningamálum íslendingum ólán?
ÍSLAN ID - FÆREYJAR