Dagblaðið - 16.11.1978, Page 24

Dagblaðið - 16.11.1978, Page 24
Fréttatilkynning Flugleiða hf. vegna f lugslyssins: FYRSTA FERÐIN í SEINNIHLUTA PÍLA- GRÍMAFLUGSINS Stjörn Flugleiöa hf. sendi í morgun frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu vegna flugslyssins á Ceylon: Skömmu eftir kl. 22.00 í gærkvöld barst aðalstöðvum Flugleiða i Reykja- vik sú harmafregn, að flugvél félagsins TF-FLA af gerðinni DC-8 hefði farizt fyrr um kvöldið í aðflugi að flugvellin- um í Colombo á Ceylon, þar sem vélin vari pílagrímaflugi. Með vélinni voru 246 farþegar og 8 manna áhöfn, en auk þess voru í auka- áhöfn 2 flugstjórar, 1 flugfreyja, for- stöðumaður flugdeildar Flugleiða og deildarstjóri i flugdeild Flugleiða, eða 13 íslendingar. Af þeim fórust 8. Þeir eru: Ásgeir Pétursson, yfirflugstjóri, 48 ára, kvæntur, til heimilis að Furulundi 9, Gb. Erna Haraldsdóttir, flugfreyja, 38 ára.gift, til heimilisaðTúngötu 7, R. Guðjón Rúnar Guðjónsson, flug- maður, 38 ára, kvæntur, til heimilis að Bergþórugötu 33, R. Haukur Hervinsson, flugstjóri. 42 ára, kvæntur, til heimilis að Urðar- stekk I, R. Ólafur Axelsson, deildarstjóri í flug- deild, 47 ára, kvæntur, til heimilis að Kóngsbakka 3, R. Ragnar Þorkelsson, flugvélstjóri, 55 ára, kvæntur, til heimilis að Hlíðar- vegi 18, Kóp. Sigurbjörg Sveinsdóttir, flugfreyja, 37 ára, gift, til heimilis að Hraunbrún 6, Hf. Þórarinn Jónsson, forstöðumaður flugdeildar, 52 ára, kvæntur, til heim- ilis að Skólagerði 36, Kóp. 5 íslendingar slösuðust og hafa verið færðir á sjúkrahús í Colombo. Þeir eru: Harald Snæhólm, flugstjóri Jónína Sigmarsdóttir, flugfreyja Kristín E. Kristleifsdóttir, flugfreyja Oddný Björgólfsdóttir, flugfreyja Þuríður Vilhjálmsdóttir, flugfreyja. Þeir munu ekki vera lífshættulega slasaðir. Talið er að um 50 farþegar hafi komizt lífs af. Samkvæmt skeytum frá Colombo var flugvélin i aðflugi og brotlenti kl. 18.00 í gærkvöldi að íslenzkum tíma, nokkrum mílum frá brautarenda við erfið veðurskilyrði. Að öðru leyti er ekki vitað um tildrög og orsakir slyss- ins. Flugvélin TF-FLA var af gerðinni DC-8-63. Hún hafði lengi verið í förum á vegum Loftleiða og keyptu Flugleiðir hana árið 1975. Var hún ein af þremur flugvélum af gerðinni DC-8, sem Flugleiðir áttu. Flugvélin flaug um kl. 14.00Í fyrradagfrá Luxemborg til Aþenu þar sem áhafnahvild var tekin. Síðan var flogið i gærmorgun frá Aþenu til Jeddah í Saudi-Arabíu og hélt vélin þaðan fullhlaðin pilagrímum kl. 12.00 samdægurs áleiðis til Sura- baya á Jövu með millilendingu í Col- omboá Ceylon. Aukaáhöfn og starfsmenn áttu að fara af i Colombo, en hluti áhafna hafði farið þangað áður með öðru flugfélagi. Þetta var fyrsta ferðin í siðari hluta pilagrímaflugs Flugleiða milli Sura- baya í Indónesiu og Jeddah í Saudi- Arabiu. Alls áttu 6 flugáhafnir að ann- ast þetta flug, þ.e. 48 flugliðar auk flugvirkja, afgreiðsluliðs og rekstrar- stjóra eða alls 62 starfsmenn. Flugleiðir, stjórn félagsins og starfs- fólk eru harmi slegin yftr þessu slysi og votta aðstandendum þeirra sem fórust dýpstu samúð. Tillögur á þingi um að kippa vísitölunni úr sambandi? „LAUNÞEGAR MUNDU GEFA EFTIR SEM ÞÁn í ÁÆTLUN UM HJÖDNUN VERÐBÓLGU” — segir framkvæmdastjóri Verkamannasambandsins í viðræðum stjórnarliða um vísitöl- una eru flestir sammála um að kaup- hækkuninni 1. desember verði haldið niðri. Talsverður ágreiningur er enn. Vilja sumir koma beinni kauphækkun niður í 2—3 prósent en aðrir standa á 7—8 prósentum. Samkvæmt samning- um ætti hækkunin að verða 14%. „Ef ég þættist hafa haldgóð rök fyrir því að rikisstjórnin gerði fram- tíðaráætlun um hjöðnun verðbólgu, sem ég treysti, held ég, að ekki mundi standa á launþegunum aö gefa eitt- hvað eftir af kauphækkuninni I. des- ember,” sagði Þórir Daníelsson, fram- kvæmdastjóri Verkamannasanibands- ins, í morgun. Hann sagði að þá yrði að vera tryggt að einhverjir aðilar i þjóðfélaginu slyppu ekki. Efnahagslífinu væri ekki hollt að fá þá „gusu", sem leiddi af 14% kaup- hækkun 1. des. Hann gæti tekið undir það að reynt yrði að leita leiða til að halda uppi kaupmætti með öðrum hætti en beinni kauphækkun. I visitölunefnd stefnir í að ekkert samkomulag verði. Nokkrir þingmenn munu nú íhuga að bera fram tillögur um að vísitölunni verði kippt algerlega úr sambandi, takist ekki að finna aðrar leiðir til að halda kauphækkuninni niðri. - HH frjálst, úháð dagblað FIMMTUDAGUR 16. NÓV. 1978. Flugslysið 74: 191 fórst með vél, sem Flug- leiðir höfðu nýlega selt Flugslysið á Sri Lanka í gærkvöld er annað meiri háttar flugslysið, þar sem hlut eiga að máli indónesískir pílagrím- ar. í desember 1974 fórs 191 maður þeg- ar leiguvél af gerðinni DC-8-55 hrapaði í fjöllum í miðju landinu. Þá vél höfðu Flugleiðir selt skömmu áður, en hún hafði fyrr verið notuð í Norðurlanda- flugi félagsins, skv. upplýsingum DB í morgun. Sú vél var nokkuð styttri en vélin sem fórst í gærkvöld, en það var DC-8-63. -JH/ÓV. r Islenzk hass- lögga upplýsir mál fyrir er- lenda f élaga Samstarf íslenzkra fíkniefnalöggæzlu- liða og erlendra samstarfsaðila tók nýja stefnu á dögunum er nokkur hópur manna var stöðvaður á Keflavíkurflug- velli, grunaður um svokallað hass- smygl. Við yfirheyrslur upplýstist um tæplega tveggja kílógramma ólöglegan innflutning á hassi hingað til lands. Auk þess kom i ljós við nánari yfir- heyrslur að sömu aðilar höfðu staðið fyrir sölu og flutningi á um það bil tuttugu og fimm kilógrömmum af hassi. sem selt var í Danmörku og Sviþjóð. Efnin munu hafa verið keypt i Hollandi. Að sögn kunnugra mun ekki áður hafa verið upplýst um svo stórt smyglmál af þessu tagi hér á landi, sem varðar sölu ólöglegra efna i öðrum löndum. Guðmundur Gigja deildarstjóri fíkniefnadeildar lögreglunnar vildi ekkert um málið segja í viðtali við DB í gær. Hann tók þó fram, að opinber yfir- völd mundu að likindum eitthvað láta eftir sér hafa um viðkomandi mál, eftir næstu helgi. -ÓG. Ekkert lát á árekstrum: 27 árekstrar Ekkert lát er á árekstrunum i Reykja- vik. í gær urðu þeir alls 27, sem er með almesta móti. Að sögn Guðmundar Her- mannssonar yfirlögregluþjóns í morgun var um eitt slysatilfelli að ræða. Var það árekstur í Norðurfelli á móts við hús nr. I um kl. 18. Voru ökumaður og farþegi annarrar bifreiðarinnar fluttir á slysa- deild. Þá lenti bíll á Ijósastaur á Miklubraut- inni i hádeginu í gær með þeim afleiðing- um að staurinn brotnaði og billinn lenti á hliðinni en ökumaður slapp ómeiddur. - GAJ KaupWn^ ,3 TÖLVUR I* QG TÖLVUUf BAINIKASTRÆTI8 275^

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.