Dagblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 2

Dagblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 2
2 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978. Ævintýri Emils er önnur hljómplatan sem Steinar hf. gefur út i SMÁ-seríu sinni, hin fyrri var tónlistarævintýrið um Pétur og Úlfinn, þar sem Bessi Bjarnason fer með hlutverk sögumanns. Emil í Kattholti er óþarft að kynna, við þekkjum öll þennan litla prakkara, sem marg- oft hefur komið okkur í gott skap með uppá- tækjum sínum. Ævintýri Emils á þessari hljómplötu eru 4. Fyrst fylgjumst við með honum á uppboði, þar sem honum tekst þrátt fyrir lítil efni að eignast brauðspaða, sem hann gefur mön. n sinni, lappaask, sem hann gefur ídu, ásamt ú og haltri hænu svo hann geti gefið pabba sínum spenvolga mjólk og egg að kvöldi upp- boðsdagsins. Skömmu síðar rennur markaðsdagurinn upp. Þar sér Emil það sem hann hefur alltaf langað í, hestinn Lúkas. Ófyrirleitni hrossa- prangarinn festir kaup á þessum fallega hesti, en Emil tekst þó að eignast Lúkas vegna gæsku sinnar og lagni við að eiga við dýr. Emil: Ólafur Kjartan Sigurðsson ída: Margrét Örnólfsdóttir Anton: ÁrniTryggvason Alma: Þóra Friðriksdóttir Lína: Guðrún Alfreðsdóttir Alfreð: Arnar Jónsson Petrína: Anna Guðmundsdóttir Mæja: Kristbjörg Kjeld Uppboðshaldarinn: Sigurður Skúlason Hrossaprangarinn: Jón Júlíusson Seljandinn: Guðm. Magnússon Skeifnasmiðurinn: Evert Ingólfsson Barn: Anna Vigdís Gísladóttir Sögumaður: Helga E. Jónsdóttir Raddir: Jón Júlíusson, Guðm. Magnússon Evert Ingólfsson Leikstjórn: Helga E. Jónsdóttir Tónlistarstjórn: Sigurður Rúnar Jónsson Nú kemur frú Petrína í heimsókn og hún fær mömmu Emils til að brugga fyrir sig kirsu- berjavín. FT.ftir að vínið er fullgert er Emil sendur til að henda berjunum, sem notuð voru. Haninn, hænurnar, grísinn já og Emil uppgötva síðan að kirsuberin eru ekki sem verst á bragðið. Daginn eftir gengur Emil í stúku. Komið er að jólum, allir eru að vinna að jólaundirbúningnum, þá á sér stað óhapp. Alfreð sker sig í fingurinn og fær blóðeitrun. Mikið óveður geisar og enginn treystir sér milli bæja. En þá tekur Emil til sinna ráða. Hliðl: 1. Það er eitt (Emil) 2. Uppboðið í Bakkakoti 3. Vorsöngur (ída) 4. Haldið á markaðinn 5. Söngur Línu (Lína) 6. Á markaðinum 7. Rúmm-sika-búmm (Emil og ída) Hlið 2: 1. Það held ég ... (Ída) 2. Kirsuberjavínið 3. Grísavísa(Emil) 4. Blóðeitrunin §. Smiðjukofinn (Emil) Ævintýri Emils er óskaplata barna á öllum aldri Með lögum skal land byggja stainarhf Símar 28155 og 19490 Ævintýri Emils Kcflavíkurflugvöllur. í biðilsbuxum með beran rass Jóhann Gíslason, Nónvörðu 7, Kefla- vik, skrifar: Nú er svo komið fyrir aumum búskap okkar hér á skerinu að utan- ríkisráðherra verður að smokra sér í biðilsbuxurnar og bregða sér á fund ölmusuliðsins á heiðinni og biðla um áframhaldandi vinnu þar. Það er með eindæmum hvað hægt er að leggjast 'lágt í eigin vanmætti. Hvar er nú allur þjóðarrembingurinn um að vera öðrum óháðir og sjálfum sér nógir? Við höfum fram til þessa verið of stoltir til að fara fram á sjálfsagða hluti eins og að láta þetta ölmusulið greiða fyrir afnot af vellinum. Ekki hefur mátt láta það kaupa af okkur matvæli heldur hefur það alla tið flutt þau inn i landið tollfrjálst. Það ekur um vegi okkar á tollfrjálsum bilum á trollfrjálsu bensíni án þess að greiða vegaskatt. Og rökin sem færð eru fram fyrir alþjóð á því að við getunt ekki látið greyin borga fyrir afnot sín af landinu eru þau að við megum ekki eiga það á hættu að verða um of efnahagslega háðir þeim. En eru ekki bara ráðamenn þjóðar- innar með þessum fáránlega rök- stuðningi sínum að pissa í eigin skó? Hvernig ber annars að túlka þessa bónferð utanríkisráðherra um óskerta vinnu? Það er eins' gott að ekki verði nein alvarleg bilun á sjónvarpstækjum okkar svo við þyrftum nú ekki að biðja um afnot af þeirra stöð á ný. Ekki veit ég hvað ráðamenn ætla sér að halda þessum skripaleik, sem Itelgið er að út um allan heim áfram mikið lengur enn. Sé eitthvað til sem heitir öfugmæli þá er það þessi stefna eða öllu heldur stefnuleysi ráðamanna þessa lands, hverra sem er, gagnvart þessu ölmusuliði á heiðinni. Er ekki málaðlinni?. Nú er búið að hlæja að þessum brandara i þrjátíu ár. bæði utan lands og innan, og sumir farnir að fá hiksta. svo ekki sé meira sagt, og það allalvar- legan. Er ckki einmitt timabært nú að minna þá á að þeir eru hér á hóteli sem gestir og það þarf að borga fyrir þjónustu og aðstöðu þar. Nú þegar þeir eru farnir að breyta gildandi samningunt eftir eigin geðþótta, farnir að skera niður atvinnu og manna- ráðningar og jafnvel farnir að taka að sér verktakastörf. En er nú ekki þessi hasar út af fækkun á mönnum í starfi hjá dátunum og bónför utanrikisráðherra lil þeirra um áframhaldandi starf ein- mitt staðfesting og opinber viðurkenning á því hversu háðir við i raun og veru erum þeim? Nei, kæru þjáningabræður, ég held aðviðættumaðhætta aðpissa í eigin skó. hann heldur hvort sem er hvorki vatni né vindi. Reynum að hífa upp um okkur biðilsbuxurnar áður en við dettum i þeint því samkvæmt kenningunni eru það dátarnir á heiðinni sem eiga að biðla til okkar en ekki við til þeirra. Hættum að bregða fyrir okkur þeirri fáránlegu kenningu að þeir séu hérna að okkar eigin ósk, og að við þess vegna getum ekki sónta okkar vegna krafið þá um afnota- eða aðstöðugjald. Sú kenning stangast alltof herfilcga á við bónorðsferðina sem nú stendur yfir og er jú i sjálfu sér óþörf þar sem við erunt þegar löngu giftir þeim. Við ættum þvi fremur að fara frant á skilnað sem mundi ef til vill vekja þá til umhugsunar um hversu vel giftir þeir eru! Raddir lesenda JÓNAS HARALDSSON Heimilis- læknir riaddir lesenda taka viÓ skilaboðum til umsjónar- manns þáttarins „Heirn- ilislæknir svarar" í síma 27022, kl. 13-15 alla virkadaga.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.