Dagblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 9
9 * DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978. Jólanna beðið með eftirvæntingu: Jólaskrautið búið til á meðan „Minn jólasveinn er rauöur i framan, það er svo kalt úti.” Þaö var glaumur og gleði í fyrradag er DB-menn litu inn á dagheimilið Múlaborg. Þar var verið að lita jólasveina og búa til ýmsa jólamuni aðra. Jólalögin glumdu af plötu á litlum grammófóni og börnin sungu með þasr vísur sem þau kunnu og sum dilluðu sér örlítið í mjöðmunum um leið. Biðin eftir jólunum var þegar orðin löng og greini- lega komnar fram hugmyndir um að jólasveinar væru farnir að koma til byggða. Skór sumra höfðu enda auðgazt að sælgæti um nóttina og i suma hafði komið dót. Enn verður þó litla fólkið að biða nokkuð, rétt eins og við hin, og á meðan er hægt að stytta sér stundir við að búa til jólagjafírnar handa pabba, mömmu ogöðrum vinum og ættingjum. DS „Má ég fá rauða tússpennann”? Akafinn var svo mikill að ekki var sett fyrir sig þó yfir stærðarinnar borð væri að fara til þess að ná 1 það sem þurfti. Tungan vill leita aðeins út I annað munnvikið þegar smáfólkið vandar sig. Eins hættir tússlitnum til þess að fara upp I munninn þegar verið er að hugsa um næsta listaverk. DB-myndir Ragnar. „Mmn jólasveinn er rauður i framan, það er svo kalt úti,” sagði litli snáðinn til vinstri á myndinni. Jólasveinn félaga hans var hins vegar náhvítur. r————————v Veðurblíðan: Vegavinnuhóparað störfum á Suðurlandi „Við erum að reyna að lengja vinnutimann með því að vinna að þessu á vetrum,” sagði Þórður Tyrf- ingsson umdæmistæknifræðingur Vegagerðarinnar á Selfossi í samtali við Dagblaðið, en það hefur vakið at- hygli ýmissa er átt hafa leið um Suöur- land að undanförnu að vegavinnuhóp- ar eru þar viða að störfum þótt komið sé fram í desember. „Við höfum verið að reyna að dreifa vinnunni jafnar yftr árið,” sagði Þórður. Taldi hann að það hefði mjög aukna hagræðingu t för með sér. Ekki þyrfti þá að ráða eins marga nýja menn á sumrin og eins hefðu fasta- mennirnir oft haft lítið fyrir stafni yfir vetrartímann. Þórður sagði að nú væri m.a. verið að undirbyggja kafla á Eyrarbakka- veginum en olíumöl var borin á hluta hans á sl. sumri. Hefur þegar verið borin oliumöl á 4,4 km af 9,6 km og verður því verki haldið áfram næsta sumar. Þá er einnig vegavinnuhópur á Skeiðum að endurbyggja gamla veg- inn þar og gera hann færan allt árið. Einnig er verið að vinna við Suður- landsveginn, að undirbyggja hann þar sem endað var að leggja olíumöl i fyrra. Þórður sagði að þetta væri ekki miklum vandkvæðum bundið enda tíðin verið sérstaklega góð að undan- förnu og yfirleitt væri ekki það mikill snjór að hann ætti að koma í veg fyrir slíkarframkvæmdir. —-jr^jSiwbrauðstofan BJORNINN Njálsgötu 49 - Sími 15105 :

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.