Dagblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 19

Dagblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978. 35 Lúdó unirhagsínum velíÞórscafé Bóndi að austan snilar á hassann Miklar breytingar hafa orðið á hljómsveitinni Lúdó síðan síðast var minnzt á hana hér á poppsíðunni. Sömuleiðis hefur hljómsveitin fært sig um set í höfuðborginni. Hún leikur nú ekki lengur í Atthagasal Hótel Sögu heldur I veitingahúsinu Þórscafé. „Við erum tveir eftir i hljómsveit- inni, sem lékum lengst af í Átthaga- salnum," sagði Elvar Berg píanóleik- ari, er Dagblaðið ræddi við hann um lifið og tilveruna hjá Lúdó þessa dagana, „það er að segja ég og Stefán Jónsson söngvari. Þorleifur Gislason — gamall Lúdóleikmaður — leikur nú á saxófón og Baldur Már Arngrímsson tók við af Berta Möller. Berti varð að hætta vegna anna hjá lögreglunni. Þá er gamall Lúdótrommari mættur til leiks aftur. Sá er Ólafur Benediktsson. Hann tók við af Hans Kragh fyrir nokkrum mánuðum. Og siðast en ekki sízt erum við komnir' með bassaleikara, sem við sóttum austur fyrir fjall. Hann heitir Ormar Þorgrímsson og er bóndi fyrir austan. Ormar spilaði með okkur á árunum 1962—67. Endurfundum okkar hagaði þannig til,” hélt Elvar Berg áfram, „að við vorum að spila i Aratungu einhvern tima í vor. Ormar mætti þá til að hlusta á okkur gömlu félagana og endaði með því að ganga i hljóm- sveitina. Hljómsveitin i dag er að mestu leyti eins skipuð og árið 1965, er hún lék einnig í Þórscafé. Eina breytingin mun vera sú, að ég var þá hættur." Að sögn Elvars kunna Lúdómenn vel við sig í margmenninu i Þórscafé. Hann var spurður um, hvort Lúdó hugsaði til frekari hljómplötugerðar. „Jú, slikt er á umræðustigi núna," svaraði Elvar. „Hins vegar er það svo skammt á veg komið að ekki er hægt að tjá sig um það i fjölmiðla.” Þá vitum við það. Aðdáendur Lúdó geta farið að búast við hljóm- plötu á næsta ári. Nú, ef ekki þá, þá á því þarnæsta. - ÁT LÚDÓ OG STEF- ÁN — Hljómsveit- in er likt skipuð og fyrir þrettán árum, er hún skemmti i Þórscafé. DB-mynd Hörður Brunaliðið á dansleikjamarkað Brunaliðið hyggst skemmta á nokkrum almennum dansleikjum og skólaböllum á næstunni. Fyrsti dansleikur liðsins verður haldinn á laugardaginn kemur i félagsheimil- inu Stapa í Njarðvík. Daginn eftir kemur Brunaliðið fram í hádeginu og kaffitímanum á Esjubergi. Það er nýjung, sem Hótel Esja býður gest- um sínum uppá. Sama kvöld leikur Brunaliðið síðan í Klúbbnum. „Brunaliðið fer út í dansleikja- spilamennskuna núna í og með til að fylgja eftir nýrri plötu, Með eld í hjarta. Nú, og svo verða menn að eiga fyrir jólasteikinni, þegar þar að kemur,” sagði Jón Ólafsson forstjóri Hljómplötuútgáfunnar hf., er rætt var við hann um starfsemi Bruna- liðsins. Hann bætti því við að hljóm- sveitin hefði leikið víða að undan- fömu, en einungis í góðgerðarskyni. Þar á meðal var hinn vel heppnaði Jólakonsert ’78 í Háskólabíói til styrktareinhverfum börnum. Dansleikjahaldið á næstunni hefur ekki verið skipulagt nema viku fram i tímann. Jón Ólafsson gat því ekki sagt frá áætlunum hljómsveitar- innarfram til jóla. Einn nýr maður hefur tekið til starfa í Brunaliðinu. Sá er Björgvin CLEO LAIHEIHEIMS- METABÓKINA? Jazzsöngkonan góðkunna, Cleo Laine, hefur farið fram á að fá nafn sitt letrað í heimsmetabók Guinnes. Hún heldur því fram, að hún hafi sungið hæsta tón, sem komið hefur úr mannsbarka. Tónninn er B fyrir ofan háa Ctð. Honum náði söngkon- an í laginu Being Alive. Að sögn Johnny Dankworth eiginmanns Cleo Laine er tónninn sem söngkonan náði hálfnótu fyrir ofan mettóninn, sem franska söng- konan Madeleine Marie Robin náði ásinum tíma. Or INTERN ATIONAL HERALD TRIBUNE Gíslason gítarleikari. Hann leysir af hólmi Þórð Árnason, sem nú starfar með Þursaflokknum. Nýja Brunaliðsplatan, Með eld i hjarta, kom út fyrir nokkrum dög- um. Hún hefur mestmegnis að geyma jólalög, bæði innlend og er- lend. - ÁT Siifc,.,. BJÖRGVIN HALLDÓRSSON — Sennilega er sama hvaða tegund dægurtónlistar hann fæst við. Allt gerir hann jafn vel. Ljósm. Effeet. Björgvin Halldórsson—Ég syng fyrirþig Rómantískur Björgvin Björgvin Halldórsson — ÉG SYNG FYRIRÞIG (Jtgefandi: Hljómplötuútgáfan hf. (JUD- 018) Upptökustjórn: Björgvin Halldórsson, Geoff Calver, Magnús Kjartansson. Upptökumadun Geoff Calver. Kór útsetning: Magnús Ingimarsson. Strengjaútsetningar: Del Newman, Mike MacNaught. Hljóðritun: Hljóóriti, Red Bus Recording Studios. Vandvirkni og natni er ein- kennið á sólóplötu Björgvins Halldórssonar. Hvergi er slegið af. Alls staðar er leitazt við að gera allt sem fullkomnast. Fyrir bragðið hefur Björgvini og öllum þeim stóra hópi, sem tók þátt í gerð plötunnar með honum, tek- izt að skapa heilsteypt verk og tilkomumikið, jafnvel helzti tilkomumikið á köflum, er strengjaútsetningarnar skrúfast skýjum ofar. Dæmi um það eru lögin Elskaðu mig á morgun og Heyrðu. Innihald textanna á plötu Björgvins er mestmegnis ástin. Lögin eru því yfirleitt róleg, eins og lög um ástina eiga að vera. Poppstjarnan Björgvin er i frii að þessu sinni og gömlu góðu rokk- ararnir skildir eftir heima. Þess í stað stígur hann fram á sjónar- sviðið sem yfirvegaður söngvari og afslappaðri en oft áður. Á þessu sviði — rómantiska svið- inu — tekst Björgvini vel upp. Ég hygg að sama sé, hvað Björg- vin syngi — honum takist að gera öllum tegundum dægurtón- listar góð skil. Platan Ég syng fyrir þig er eigulegur gripur fyrir fólk á öll- um aldri. Eina skilyrðið fyrir þvi að láta sér lika hana vel er að kunna að meta rólega, róman tíska tónlist. -ÁT MAGNÚS KJARTANSSON Brunaliðsstjóri i gervi jólasveinsins Bjúgnasleikis. Brunaliðið skemmtir þrisvar á sunnudaginn, i hádeginu og kaffitímanum á Esjubcrgi og loks í Klúbbnum um kvöldið. Nýrmaður íNazareth Hljómsveitin Nazareth — sú hin sama og sótti ísland heim árið 1973 — hefur liaft hljótt um sig um langt skeið. Nú cr þó loksins eitthvað að gerast í herbúðum svcitarinnar. Nýr liðsmaður er mættur til leiks og ný breiðskífa er í bígerð. Nýi maðurinn er Zal Cleminson en hann lék fyrrum á gítar hjá hljómsveit Alex Harveys. Hann kemur fyrst fram opinberlega með hljómsveitinni á hljóntleikaferð, sem hefst þann 19. janúar. Um svipað leyti á að koma út ný plata, No Mean City. Þessa dagana er einmitt verið að ljúka hljóðritunum á henni i Montreux í Sviss. Úr MELODY MAKER

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.