Dagblaðið - 14.12.1978, Blaðsíða 10
10
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978.
r
Jólasveinninn á íslandi
fær engin bréf lengur
—og Ferðamálaráð þarf því engum að svara
Undanfarin ár hefur alltaf verið
töluvert um að hingað til lands hafi
borizt bréf stíluð á jólasveininn á
norðurpólnum.
DB hafði samband við Sigurð Inga-
son skrifstofustjóra hjá Pósti og síma
og spurði hann hvernig þessu væri
háttað nú. Hann sagði að oft hefði
veriö mikið um slik bréf, einkum frá
Bretlandi, og hefði Ferðaskrifstofa
rikisins yfirleitt svarað þeim. Einnig
hefði komið fyrir aö ákveðinn héraðs-
skóli hefði fengið hluta af þessum
bréfum og látið nemendur sína svara
þeim til þess að spreyta sig í enskunni.
1 ár hefði hins vegar nánast ekki neitt
borizt af þessum bréfum, hverju sem
það sætti.
Á skrifstofu Ferðamálaráðs fékk
DB þær upplýsingar að samþykkt
hefði verið að þessi bréf skyldu heyra
undir Ferðamálaráð þar sem hér væri
um landkynningarmál að ræða. Nú
brýgðihins vegar svo við að ekkert
kæmi af þessum bréfum en áður hefði
Ferðaskrifstofa rikisins yfirleitt
svarað þessum bréfum með kveðju frá
jólasveininum á íslandi.
-GAJ 1
Vi
Ævar skrifar um
Edgar Cayce
Jólasveinn
á rakara-
stofu
Þessi jólasveinn skemmti börnunum á
rakarastofunni hans Villa Þórs í Ármúla
á dögunum. Þá var þar „dagur
barnanna” og annar slikur er fyrir-
hugaður og er hægt að panta sér tima.
Karlinn var með rúllur I skegginu, svo
eitthvað ætlar hann að verða finn um
jólin.
Sex rithöf-
undar lesa
úr verkum
sínum
Bókmenntakynning á vegum Félags
islenzkra rithöfunda verður að Hótel
Esju i kvöld. Þá lesa sex rithöfundar úr
nýútkomnum bókum sínum. Eru það
þeir Ármann Kr. Einarsson, Anna
Brynjúlfsdóttir, Guðlaugur Guðmunds-
son, Hafliði Vilhelmsson, Magnea J.
Matthíasdóttir og Þórir Guðbergsson.
Allt bókmenntasinnað fólk er velkomið
á kynninguna sem hefst kl. 20.30.
Á kynningarkvöldum Félags ísl.
rithöfunda i fyrravetur og það sem af er
þessum hafa 27 rithöfundar kynnt verk
sin. -ASt.
Fjögur hús
féllu út af
„aftöku-
íistanum”
Þau mistök urðu í frétt blaðsins í
fyrradag er birtur var listi yfir þau
frystihús á Suðurnesjum, sem sérstök
nefnd leggur til við sjávarútvegs-
ráðherra að ekki fái sérstaka opinbera
fyrirgreiðslu, að fjögur frystihús féllu út
skv. fyrirsögn.
Þau eru: Baldur hf. í Keflavík, i
fullum rekstri, Arnarvík hf. í Grindavík,
ekki í rekstri sem stendur,
Hraðfrystihúsið í Höfnum, ekki í rekstri
og Hraðfrystistöð Eggerts Ólafssonar,
sem er i rekstri. -G.S.
Hesturdrapst
íárekstri
Tveir ungir menn frá Siglufirði lentu í
síöustu viku i harkalegum árekstri við
tveggja vetra hest neðan við bæinn Efri-
Lækjardal á Skagaströnd.
Hesturinn drapst þegar við á-'
reksturinn. Bíllinn fór út af veginum og
i skafl úti i skurði. ökumaðurinn meidd-
ist smávægilega, brákaðist á handlegg
og kinnbeini og fékk þungt höfuðhögg.
Hann var fluttur á sjúkrahús i Reykja-
vik samdægurs og er nú orðinn hress.
ÓV.