Dagblaðið - 14.12.1978, Síða 28
TIMEX
HEIMSFRÆGU ÚRIN - 60 GERÐIR
1 ÁRS ÁBYRGÐ. PANTID í
SÍMA 50590 EÐA BRÉFLEGA
Kr. 10.900
503425
Kr. 11.380 Kr. 11.850
553215 526201*
Kr. 11.380
556122*
Kr. 12.750
573104*
!Kr. 15.500
279605
Kr. 11.485
>33712
PÓSTSENDUM
|D UAI MAGNÚSGUÐLAUGSSON
U11" V ML STRANDGÖTU 19 - HAFNARFIRÐI
að einbýlishúsi
til sölu — sérteiknaðar. Uppl.
hjá auglýsingaþjónustu Dag-
blaðsins, sími 27022.
r
siyrktarfélaga
a tH\
_____________________DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978. J
Eiginkona drykkjumanns: \
Ofdrykkja eiginmanns i
er hyldjúp hræðsla við |
að treysta maka sínum i
—áfengið er sterkur leikur í valdatafli
sem heldur konunni lamaðri af ótta
Eiginkona drykkjumanns er bjarg
arlausasta vera á jörðunni, segir
Marta Tikkanen, finnsk, sjálf gift
drykkjumanni sem hún elskar.
Hún sendi frá sér Ijóðabók i fyrra
sem ber heitið Ástarsaga aldarinnar og
vakti óhemju athygli. Þar lýsir hún þvi
meðal annars hvernig öll vopn snúast í
höndum slikrar konu þvi eiginmaður-
inn finnur alltaf einhver ráð til að
kenna einmitt henni um drykkjuskap
sinn. Það er sama hvernig hún bregzt
við.
Sé hún mild og umburðarlynd, segir
hann að hún sé skinhelgur hræsnari
og reyni að hefja sig upp yfir hann. En
bregðist hún við af hörku, helli vininu
i blómapottana eða vaskinn og neiti að
hlusta á það i hundrað og sautjánda
sinn. hvað hann hafi átt bágt sem
barn, þá er hún skilningslaus, harð-
brjósta norn.
Sumir karlmenn afsaka fylliri sitt
beinlinis með því að þeir séu giftir
drykkjumannskonu, eins og sérstök
tegund kvenna ýti mönnum út í
drykkju. En fleiri og fleiri eru að átta
sig á þvi að áfengisvandamál stafar af
djúpum geðflækjum sem viðkomandi
verður sjálfur að leysa i stað þess að
skella skuldinni á maka sinn.
Leikrit Jónasar Jónassonar, Gler-
húsið, sem nýlega var sýnt i Iðnó, var
ágætt innlegg í málið.
Og í desemberhefti dönsku Sam-
vinnunnar rákumst við á eftirfarandi
viðtal blaðamannsins Jens Branner við
drykkjumannseiginkonu. Sú heldur
því fram að maður hennar drekki til
að kúga hana til að hugsa ekki um
neitt nema hann, til að vera honum
eins undirgefin og móðir er ósjálf-
bjarga barni.
Ástin breytist
í beiskju
Þegar hann hringir heim vill hann
helzt hleypa henni upp. neyða hana til
að segja það sem hann helzt vill heyra:
„Vertu ekkert að koma heim, haltu
bara áfram að drekka.” Orðaskipti eru
næstum alltaf þau sömu og spegla ótt
ann, kviðann, sem aldrei yfirgefur
drykkjumannskonuna. En drykkju-
maðurinn er alveg jafnöryggislaus — i
mörgum hjónaböndum er drykkjan
tákn um hyldjúpa hræðslu við að
treysta á maka sinn — og sjálfan sig.
„Drykkjuskapur mannsins mins
kemur miklu harðar niður á mér en
honum, segir kona sem við getum kall-
að Ástu. Fyrstu hjónabandsárin lætur
maður það ekki fá svo mjög á sig.
Hjónin sættast með gráti og ástaratlot-
um.
En þegar fyrsta bamið okkar fædd-
ist fór að versna í því. Barnanna vegna
þori ég ekki að hafa hann drukkinn
hér heima. Ég segi honum þvi að
svalla áfram með kunningjum sínum
— og hef líka vonda samvizku út af
þvi.
Það er ekki sérlega gaman að vakna
við hliðina á honum morguninn eftir
að hann hefur drukkið og finna út úr
honum súra andremmuna. Þó skiptir
það mestu máli að það er hún sem
verður að bera alla ábyrgð á börnun
Að vcra drykkjumannseiginkona er að vera alltaf að biða — hefur hann dottið í
það og hvenær kemur hann og i hvcrnig ástandi?
(Tcikning: Hans l.ollesgaard fvrir Samvirkc)
Jó/agjöfín
hans er
gjafakassi frá
Heildverzlun
Suðurgata 14 Símar 2-10-20 og 2-51-01