Dagblaðið - 14.12.1978, Síða 29
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1978.
45
Danir drrkka mcst Noröurlandabúa cnda fæst þar hærti bjór oj> brcnnivin í hvcrri
sjoppu. Danska „Samvinnan” (Samvirkc) fjnllaói í síðasta hefti um áfcnpisncyzlu
á Norðurlöndum og birti með öðru þcssa mvnd af lloskuiniðum. Hlutfallslcua
flcstir cru frá Íslandi, enda sjaldscðastir. Rcyndar hefur tlækzt þar mcð miði af
hinum holla og styrkjandi maltextraktdrykk og annar af pilsner.
(Mynd: Samvirkc)
.um. Hún er eins og fangi i gislingu því
hann veit að á hverju sem gengur þá
hleypur hún ekki frá þeim. Henni
finnst hann bregðast sér með því að
láta hana eina um það sem þau ætluðu
að hlúa að i sameiningu, sum sé heim-
ilið og börnin. Og beiskjan grefur um
sig.
Fyrirgefningin
Áfengið er honum sterkur leikur í
valdatafli, leikur sem heldur konunni
lamaðri af ótta.
„Mörgum sinnum hef ég beðið eftir
honum á kvöldin — skjálfandi milli
vonar og ótta — því það var ómögu-
legt fyrir mig að fá að vita hvenær
hann rnundi koma heim né í hvernig
ástandi, hvort hann yrði sæmilega ró-
legur ellegar umhverfður og snarvit-
laus. Mörgunt sinnum hef ég kviðið
fyrir að þurfa að hlusta á sömu ræð-
una, horfa á sörnu stælana, útrásina
sem hann yrði að fá áður en hann gæti
sofnað.
Hann reynir að breiða yfir minni-
máttarkenndina með grobbi. Rausar
um allar stúlkurnar sem glaðar hefðu
lagt lif sitt að fótum honum. Sú sem
hann valdi, er köld eins og ísjaki, segir
aldrei vingjarnlegt orð við hann. Þetta
eru þakkirnar fyrir að hann stritaði og
púlaði fyrir hana. Hún elskar hann
ekkert, býr bara með honum vegna
teknanna sem hann aflar.
Daginn eftir segir hann: „Fyrir-
gefðu. ég meinti þetta ekkert, ég var
bara fullur." En næst þegar hann dett-
ur í það þarf hún að hlusta á sömu for-
mælingarnar. sama rausið allt upp á
nýtt. Þvi drukkinn og ódrukkinn er
hann tveir gjörólikir menn. Öðru
hvoru flýr hann inn i veröld vinsins og
skilur mig eina eftir. stjarfa af skelf-
ingu.
Getur nokkur kona verið hvort
tveggja i einu — annars vegar móðir,
hins vegar ástkona og eiginkona? spyr
Ásta. 1 ógnum næturinnar verð ég að
hughreysta hann. daginn eftir á ég að
vera refsiengill. Aldrei nýtur hann
þess meira að fá fyrirgefningu en
þegar hann er illa timbraður — þá er
sú skuldin greidd. Bara að mér sé ekki
sama. Auðvitað er ekki gott að ég sé
reið. En hálfu verra er að ég sé áhuga-
laus — þá finnsl honum ég láti mig
engu varða vandræði hans.
Antabus
Hann vill ekki að ég verði of sjálf-
stæðsem kona. Hann notardrykkjuna
til að halda mér niðri, refsar mér með
henni vikum saman fyrir að sýna
ónóga umhyggju. Loks gefst ég upp.
Þá þarf ég aftur að fara að leika
mömmu fyrir hann. Hlúa að honum.
mata hann með antabus.
Hann hættir að drekka og allir
segja: „En hvað hann er góður við þig
þessa dagana." En hverju verði eru
þessi gæði keypt? Hann hefur neytt
mig til að taka þátt i valdastríði. Nú
vill hann vera kúgaður, að ég kúgi
hann þegar það er í rauninni ég sjálf
sem er kúguð. Það er enn eitt hlut
verkið sem ég á að leika.
Er drykkjan ekki bara merki um
djúpstæðari geðflækju, þörfina fyrir
að kúga? Maðurinn minn veit mæta
vel að ég get ekki yfirgefið hann þegar
hann hefur það skítt. Ég er ekki þann-
ig gerð. Mér fyndist hræðilegt að vera
skilin eftir ein þegar ég sjálf ætti bágt.
Þannig að þegar honum líður illa má
ég ekki bæta á það með þvi að kvelja
hann.
Og þegar hann kerrist yfir þungiynd-
ið og verður aftur glaður og hættir að
drekka, þá vill hann að við gleymum
öllu því ljóta og leiðinlega og sópum
ágreiningsefnunum undir gólfteppið.
Antabusinn felur bara vandann.
Djúpt i sál hans eru flækjur sem brjót-
ast fram þegar hann drekkur, og séu
þær of lengi bældar niður endar allt
með sprengingu.
Sektarkennd
Hann heldur dauðahaldi i sektar-
kenndina og vill hafa einhvern til að
skamma sig, segir Ásta.
Af hverju var hann ekki kyrr hjá
stúlkunni sem fyrirgaf honum allt? Af
því hann varð að hafa sina refsinorn.
Ég neita að ganga inn i þetta hlutverk,
Þegar við förum saman í boð er ég
hræðilega einmana, stif af ótta. Oft rif-
umst við marga klukkutima áður en
við fórum út saman. En ég fékk aldrei
að vera heima því engum mátti detta i
hug að hjónaband okkar væri í
minnstaólagi.
Það var ekki fyrr en ég varð ástfang
in af öðrum manni sem hann hætti að
drekka. Allt varð að fara í kaldakol
áður en hann rankaði við sér.
Var það þá í raun og veru það sem
hann þurfti, aðég hundsaði hann?
Hann sagði alltaf: Þú kæfir mig eins
og fiðursæng — en hvers vegna þurfti
hann þessa sæng?
Ég vil ekki bera þessa sekt lengur.
Ég er farin að skemmta mér þegar við
erum úti saman. En þá verður hann
hálfhræddur. Ég dansa við einhvern
og hann rekst á okkur eins og barn
sem finnst móðirin vera að svíkja sig.
Ég mun aldrei yfirgefa hann. En ég
vil ekki hengja mig á hann þvi við
erum ekki litlir krakkar lengur.
Það sem við þurfum er að geta
treyst hvort öðru, finna að við séum
vinir þegar við förum út saman. Ann
ars er hið kynferðislega stolt sært.
Maður var svo sem nógu góður heima,
að baki luktum dyrum. En í sam-
kvæmum var það til trafala að drasla
með sér harðlæstu fjölskylduforminu,
þvi formi sem var honum nauðsynlegt
til að geta haldið áfram að leika lítið
barn.
Þið karlmenn byrjið að drekka i
ykkur kjark strax sem unglingar, segir
hún að lokum. Þið viljið endalaust
halda áfram að fá að vera börn. Svo
komið þið slagandi heim og neyðið
okkur konurnar inn í móðurhlutverk
sem við getum ekki nýtt til neins.
DEMANTUR:
Demantur í skartgrip er draumur konunnar.
Úr og Skartgripir
; Jón og Óskar
Laugavegi 70, sími 24910.
Æfingagallar
Æfingaskór
Iþróttatöskur
Stórkostlegt úrval
Hentugar jólagjafir
Póstsendum
Dikorinn /f.
Sportvðaiverslun
Hafnarstræti 16 simi 24520
n nans.
Wir'vVcurr'