Dagblaðið - 30.12.1978, Síða 5
Meistaramót Sovétríkjanna í skák:
TALENNí
EFSTA SÆTI
Eftir ellcfu umferðir af sautján á Romanisjin og Svensjnikov með sex
sovézka meistaramótinu í Tiblisi var vinninga. Geogradse 5,5 v. og biðskák
Mikhael Tal, fyrrum heimsmeistari, og Geller 5,5 vinninga. Kasparov var
enn í efsta sætinu. Hafði hlotið 6,5 með 4,5 vinninga og tvær biðskákir —
vinninga og átti að auki biðskák. Dorfman, Kusmin og Makarytsev
Staðan var nokkuö óljós á mótinu fjóra vinninga og eina biðskák hver.
vegna fjölda biðskáka — en greinilegt Timosjenko, Mikhaltsisjin og
að margir hafa enn möguleika á Tukamakov 4,5 vinninga, Gulko og
meistaratitlinum. Rasuvajev 4 vinninga og tvær bið-
skákir hvor og Bagirov 3,5 vinninga og
1 öðru sæti var Tsjekowski með 6.5 tvær biðskákir. Litlar líkur, á því að
vinninga. Beljavski hafði sex vinninga meisturunum frá siðasta móti, Dorf-
og átti tvær biðskákir. Polugajevski man og Gulko, takist að verja titla
sex vinninga og eina biðskák. Þá komu sína.
Jól h já f ramliðnum
Jólaljós loguðu í kirkjugarðinum í
Fossvopgi yfir hátiðarnar. Þótt ekki sé
lengur hægt að fá kveikt þar rafmagns-
ljós þá láta aðstandendur hinna látnu
það ekki slá sig út af laginu og kveikja á
ýmiss konar luktum við leiðin þess i
stað. Á aðfangadag varð um tima um-
ferðaröngþveiti við kirkjugarðinn — svo
margir komu þar til að huga að leiðum
látinna ástvina. Búast má við að ýmis
ljós logi í garðinum um áramótin.
-DB-mynd Sv. Þorm.
Á NÆSTU GRÖSUM
ER FÆÐIÐ HOLLT
OG ANDRÚMSLOFTIÐ GOTT
Næst þegar þú átt leið um Laugaveginn
ættir þú að líta við hjá okkur ,,Á næstu
grösum."
Við erum að Laugavegi 42, 3. hæð.
Við þjónum þér til borðs og bjóðum
upp á Ijúffengt og fjölbreytt jurtafæði.
Stundum er líka fiskur.
Líttu við á matmálstímum (11 - 2 og
6-10), þáfærð þú heitan, hollan mat, eða
þá um miðjan daginn, þá bjóðum við upp
á sterkt og gott kaffi, jurtate, ávaxtasafa,
smurt brauð og kökur.
Allt okkar brauð og kökur er bakað á
staðnum af Pat nokkurri frá New York,
og er hún einstök í bakaralistinni.
Myndlistin! - Hún fær pláss á veggjum
matstofunnar. Við ætlum að sýna verk
,,ungu mannanna.11
Þessa dagana, fram til áramóta, sýnir
Guðbergur Auðunsson nýjustu verk sín.
„ ... þaö er bæði hollt og notalegt að sitja
þarna uppi, horfa yfir strætiö og flóann
og svo á listaverk afýmsu tagi.“
(Aðalsteinn Ingólfsson, Dagblaðið).
MATSTOFAN
„ÁNÆSTUGRÖSIM” j
Laugavegi 42,3.hæó
' DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30.'DESEM6ÉR 1978.
Loftskeytastöðin á ísafirði: jr
„EF RAFMAGNID FER ÞA
ER STÖÐIN ÓSTARFHÆF’
— Póstur og sfmi svifaseinn með úrbætur
Isafjörður og
Hornafjörður á
sömu tíðni
„Jú. Það er rétt að ástandið er alls
ekki nógu gott i þessum efnum. Við
höfum aðeins einn sendi og ef hann
bilar þá erum við bjargarlausir,” sagði
Sigvaldi Jónsson, loftskeytamaður á
ísafirði, en DB hafði fregnað að á-
standið væri ekki nógu gott á loft-
skeytastöðinni á ísafirði og þyrftu bát-
ar sem staddir væru út af Vestfjörðum
oft að leita til stöðvarinnar á Siglufirði
vegna þess hversu sambandið væri
slæmt við Isafjarðarstöðina.
„Ástandið hefur lengi verið slæmt
hér,” sagði Sigvaldi. „Við vorum lengi
búnir að reyna að fá nýjan sendi án
þess að nokkuð gerðist. Við loftskeyta-
mennirnir hér á stöðinni tókum þá það
til bragðs að segja upp störfum okkar
hér frá og með 1. júní í mótmæla-
skyni. Það hafði þau áhrif að við feng-
um hingað nýjan sendi. Gallinn á
þeim sendi er bara sá að hann er
pantaður fyrir þá tíðni sem Patreks-
fjörður og Hornafjörður hafa. Þessir
staðir geta því ekki afgreitt samtöl í
einu. Togarar, sem eru ekki nema
40—50 mílur frá okkur, á svæði sem
ætti skilyrðislaust að vera okkar
svæði, kjósa frekar að hafa samband
við Siglufjörð.
Aðeins einn sendir
Þá er það ekki síður alvarlegt að við
höfum aðeins einn sendi. Skip og bátar
þurfa því stundum að kalla i okkur allt
upp i hálftima áður en þeir fá svar
vegna þess að við getum ekki afgreitt
nema eitt samtal í einu á millibylgju.
Okkur vantar fyrst og fremst annan
sendi og við þurfum viðgerð á þeim
sendi sem fyrir er. Það er þó ekki nema
stillingaratriði og myndi nægja að
hingað kæmi viðgerðarmaður frá
Pósti og síma part úr degi til að lag-
færa þetta. En þeir hjá Pósti og sima
eru alltaf að horfa í peningana en þeir
virðast ekki gera sér grein fyrir að þeir
missa mjög miklar tekjur vegna þess
hve ástandið er slæmt hér og skip sem
vilja eiga samtöl við okktir hætta
hreinlegaviðþað.
Eggert Stefánsson, sem einnig er
loftskeytamaður á ísafirði, tók mjög í
sama streng og Sigvaldi. Hann lagði
áherzlu á það öryggisleysi sem þarna
væri um að ræða. „Ef rafmagnið fer af
þá er stöðin alveg óstarfhæf,” sagði
hann. „Við getum þá ekki einu sinni
svarað í síma þvi fari rafmagnið, þá fer
spennan af borðinu hér. Okkur er sagt
að það atriði standi til bóta, að verið sé
að smíða straumbreyti. Við erum bara
orðnir langþreyttir á hvað allar slíkar
úrbætur taka langan tíma.”
„Dautt svæði"
DB hafði einnig samband við Sævar
Örn Sigurðsson loftskeytamann á tog-
aranum Harðbak frá Akureyri sem
hefur verið við veiðar út af Vest-
fjörðum. Hann tók mjög undir orð
þeirra félaganna á loftskeytastöðinni
á ísafirði. Hann sagði að vandinn væri
ekki sízt sá að ísafjörður væri með
sömu tíðni og Patreksfjörður og
Hornafjörður. „Á kvöldin þegar
skilyrði eru góð, þá vaða þeir hver yfir
annan og ómögulegt er að vita við
hvern maður er að tala. Við notum
Siglufjarðarradió á eiginlega öllu því
svæði sem við ættum að nota Ísafjarð-
arradió,” sagði Sævar Örn. Hann sagði
að eitt svæði, þ.e. Víkurállinn út af
Látrabjargi, væri eiginlega alveg
„dautt svæði”. Þaðan væri hvorki
hægt að ná i ísafjörð, Patreksfjörð eða
Reykjavík.
Þá nefndi hann i þessu sambandi
annað atriði, sem hann taldi mjög
alvarlegt, þ.e. að neyðartiðnin væri
mjög misnotuð. Á Patreksfjarðar-
radíói eru engir loftskeytamenn en
símastúlkurnar þar hlusta aðeins á
neyðartíðnina og bátar misnotuðu
hana þvi mjög. Sævar sagði að hér
væri verið að brjóta alþjóðalög og ef
menn væru staðnir að sliku erlendis þá
misstu þeir leyfið umsvifalaust. -GAJ-
Varað við hættum af sprengingum
Heyrnardeild Heilsuvemdarstöðvar
Reykjavíkur hefur beðið Dagblaðið að
vekja athygli fólks á að sérstök ástæða
er til að vara við afleiðingum
sprenginga í tilefni áramótanna.
Heyrnartap sem þær kunna að valda
er algerlega óbætanlegt, segir í við-
vörunarorðum stöðvarinnar. Auk þess
geta ýmiss konar önnur slys hlotizt af
sprengingum. 1 tilkynningunni segir
orðrétt:
„Foreldrar. Reynið að koma í veg
fyrir að börnin séu með kinverja eða
aðrar sprengjur og að þau forðist þá
sem hafa slíkt um hönd.
Athugið að flugeldar geta einnig
verið hættulegir. Þeir eiga það til að
springja með háum hvelli í stað þess
aðfaraá loft.
Blys, sólir og annað þess háttar
hefur einnig valdið alvarlegum
slysum, ef fyllstu varúðar er ekki gætt.
Fjölmargir, einkum börn og ungling-
ar, hafa hlotið varanlegt heilsutjón af
sprengjum og öðru sliku um áramót.
Látið það ekki endurtaka sig i þetta
sinn.
Heilsan er fyrir öllu.
Gætið ýtrustu varúðar.”