Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 30.12.1978, Qupperneq 19

Dagblaðið - 30.12.1978, Qupperneq 19
18 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1978. DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1978. 19 rrá gamlársbrennu I fyrra. Engir álfar eru að visu sjáanlegir á þessari mynd eins og tftt var að dönsuðu umhverfis brennur en ef til vill hafa þeir komið á eftir Ijósmyndaranum. DB-mynd: Sv. Þorm. 188 ára afmæli Kveikt ífrá brennunnar átta til tíu hérlendis — draslið notað til kyndingar áður Á morgun eru 188 ár síðan fyrsta áramótabrenna var haldin hérlendis af piltum í Hólavallaskóla i Reykjavík skv. bók Árna Björnssonar, þjóðhátta- fræðings, Sögu daganna. Var hún haldin á Landakotshæð. Brennur á ýms- um tillidögum voru þekktar víða um Evrópu mun fyrr, en Árni telur líklegt að þær hafi ekki verið upp. teknar hér vegna þess að allt sem brunnið gat var notað í eldivið til upphitunar og eldamennsku. Nú eru brennurnar hinsvegar þáttur i sorphreinsun og gegna því þörfu hlutverki á þann hátt auk þess að vera röskum krökkum góð afþreying í desembermánuði og þeim og fullorðnum til gleði á gamlárskvöld. Ba...bú... ba...bú... Fólki i nálægum húsum við stórar brennur skal bent á að hafa þá glugga er vita að brennunum lokaða, sérstaklega standi vindur af brennunum á húsin. Einnig er fólk varað við að aka of nálægt brennunum. Og að sjálfsögðu eru svo fullorðnir beðnir að passa vel upp á minnstu áhorfendurna, sem ef til vill átta sig ekki á að allt gamanið getur verið, hættulegt. Neyðarsími slökkviliðsins i Reykjavík, Kópavogi og á Seltjarnarnesi er 11100 og 51100 í Hafnarfirði. Sömu símanúm- er eru fyrir sjúkrabíla. -G.S. — skemmtiþættir sjónvarps og útvarps ráða nokkuð íkveikjutimanum Að sögn Gísla Guðmundssonar lögreglumanns, sem umsjón hefur með brennuleyfum í Reykjavík, veltur oft nokkuð á tímasetningu Áramótaskaups sjónvarpsins hvenær kveikt er í brennunum. Ýmist nokkru fyrir Skaupið eða strax á eftir. Það hefst nú kl. 2I.20 og stendur til 22.20, en áramótaskemmtiþáttur útvarpsins hefst nær strax á eftir, eða kl. 22.30 og stendur til 23.30. Þvi má ætla að almennt verði kveikt í brennum á bilinu frá kl. 20 til 22 í ár. -G.S. „Gættu að þér litla eyra...” Vegna áramóta þykir Heyrnardeild Heilsuverndar- stöðvar Reykjavíkur sérstök ástæða til að koma eftir- farandi á framfæri: Munið að heyrnartap, sem þær kunna að valda, er algerlega óbætanlegt. Auk þess geta ýmiskonar önnur slys hlotizt af sprengingum. Foreldrar. Reynið að koma i veg fyrir að börnin séu með kínverja eða aðrar sprengjur og að þau forðist þá, sem hafa slíkt um hönd. Athugið að flugeldar geta einnig verið hættulegir. Þeir eiga það til að springa með háum hvelli í stað þess að fara á loft. Blys, sólir og annað þess háttar hefur einnig valdið alvarlegum slysum, ef fyllstu varúðar er ekki gætt. Fjölmargir, einkum börn og unglingar, hafa hlotið varanlegt heilsutjón af sprengjum og öðru slíku um áramót. Látið það ekki endurtaka sig í þetta sinn. Heilsan erfyriröllu. Gætið ýtrustu varúðar. ÞAR VERDUR GAMLA ÁRID BRENNT ÚT —á Rey kjavíkursvæðinu SELTJARI 1AMÖFN iUFUNESSHÖFfll ^RTUNSHÖFÐI SMiosMÖm ( , mamarsho*i OVEROSHÖfOI ,*0MMÖFOI l |l TAMOAAMÖFOI 5, BÍlÓsHÖfOl | ■ ftio , ^,aoaKA»° ^ obaohÍi: UMOHÁIS 'ÁRBÆJAR-J hverfi icJAMtíSt* Í~ , .. A’JAUI íffAÖNASjJ ll fABAKKi MÍMRA-1 ni,u" ’,0»ou«ll6l.‘,' ■ Sr. IMUMMAH .sf V i*ÍMMÚ,tCO» ;vku» ■fi WuÍMW J i'' KÖRAVtJCSfiOAUT | : * ►*omSh-; biiaut ' iinmufiAAUT ■ | mImaoaaut fmgimjaui Rauliavatn 'j«ABAKM Bessastabatjörn Kópavogur: Austan Vallhólma og vestan Smiðjuvegar. í nágrenni leikskólans við Snæland, norðan Reynigrundar, vest- an Ásbratar við gatnamót Hábrautar og loks er búið að hlaða bálköst austast við Álfhólsveg, en ekki var búið að sækja um leyfi fyrir brennu þar i gær. Reykjavík: 1. Móts við Skildinganes 48. Ábm. Þorvaldur Garðar Kristjánsson. 2. Við Sörlaskjól-Faxask. Ábm. Gísli Guðmundsson. 3. Við Kötlufell—Möðrufell. Ábm. Hannes Helgason. 4. Austan Unufells. Ábm. Sæmundur Gunnarsson. 5. Austan Kennaraskólans. Ábm. Kristinn Gunnarsson. 6. Við Ferjubakka. Ábm. Kristján Friðriksson. Móts við Ægissíðu 56. Ábm. Sigfús Sigfússon. 8. í skólagörðunum milli Miklubrautar, Tunguvegar og Rauðagerðis. Ábm. Engilbert Sigurðsson. 9. Norðan Stekkjarbakka. Ábm. Ásgeir Guðmundsson. 10. Við Sundlaugarveg — Dalbraut. Ábm. Ólafur Hafþór Guðjónsson. 11. Á mótum Lálands — Snælands. Ábm. Ólafur Axelsson. 12. Við knattspyrnuvöllinn í Árbæjarhverfi. Ábm. Gylfi Felixson. 13. Við Álfheima 46—50. Ábm. Valdimar Jörgenson. 14. Við Holtaveg — Elliðaár- vog. Ábm. Sveinn Ingibergsson. 15. Sunnan við Alaska 1 Breiðholti. Ábm. Júlíus Sigurðsson. 16. Við Ægissíðu — Hofsvallagötu. Ábm. lngólfur Guðmundsson. 17. Við Hvassaleiti vestan Háaleitis- brautar. Ábm. Friðrik A. Þorsteinsson. 18. Sunnan íþróttavallar við Fellaskóla i Breiðholti III. Ábm. Sig- urður Bjarnason. 19. Við Norðurfell, norðan við bensínstöðina. Ábm. Gestur Geirsson. 20. Milli Vesturbergs og Austurbergs. Ábm. Gunnar Maggi Árnason. 21. Við Laugarásveg 14. Ábm. Gunnar Már Hauksson. 22. Milli Krummahóla og Norðurhóla. Ábm. Jóhanna Stefánsdóttir. 23. Við Grundarland — Haðaland. Ábm. Svan Friðgeirsson. VífilsstaSavatr, Hafnarfjörður: Á Hvaleyrarholti og á Hamrinum skammt frá Flens borg. Einnig nálega 20 smákestir viða um bæinn. Seltjarnarnes: Ein stór á Valhúsahæð og engir smærri kestir. Garðabær: Við Lundina og Ásbúð. Ef til vill einhverjir smákestir Mosfellssveit: Fyrir ofan Teigahverfi ogsunnan Hlíðartúns.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.