Dagblaðið - 30.12.1978, Page 22
22
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1978.
CoaayMuassM, 20, a Holsnd tohanssan. 26, a Perleander, 16, Benis a fh/f Hykrist 19. Seris D lana Gustafssmt. 18,
Baris Boris Beris
Tuttugu manns fórust 1 hótelbruna (Sviþjóó.
reyndu mikið til að fá viðskiptabanni
Sameinuðu þjóðanna aflétt. Fóru
ráðherrar úr bráðabirgðastjórn lans
Smith bæði svartir og hvítir til Banda
ríkjanna i þessum tilgangi. Höfðu þeir
ekki árangur sem erfiði.
Allt var á öðrum endanum I Líbanon
sem oftast. Nú voru það hermenn Sýr-
lendinga og libanskra hægrimanna sem
börðust og höfðu Sýrlendingar betur.
Barn sem getið var í tilraunaglasi en
siðan flutt I leg móður sinnar fæddist I
Bretlandi. Var það stúlka og heilsaðist
henni prýðilega. Að vonum vakti at-
burðurinn mikla athygli og hafði stúlkan
og foreldrar hennar miklar tekjur af þvi
að selja blöðum frásagnir af at-
burðinum.
Viðræðum Egypta og Israelsmanna
um hugsanlega friðarsamninga land-
anna lauk um sinn með þvi að Egyptar
ráku sendinefnd Israela heim. Egyptar
voru ekki einir um brottrekstur. Eanes
forseti Portúgals rak Soares forsætis-
ráðherra jafnaðarmanna frá völdum og
brást hinn siðarnefndi reiður við.
Erfiðlega gckk að inynda nýja stjórn og
tókst Eanes loks að mynda stjórn
embættismanna og sérfræðinga i
annarri tilraun.
Ágúst
Þýzkur prófessor hefur komizt að
þeirri niðurstöðu að árlega bíði fjöldi
barna skaða af þvi að mæður þeirra
neyti áfengis í miklu magni á meðan þær
eru þungaðar.
Franskir flugumferðarstjórar ergðu
margan ferðamanninn með hægagang-
vinnu sinni sem tafði mjög flug um Evrópu
og þar með á sólarstrendur við Miðjarðar-
haf. Endurtóku þeir þessar aðgerðir nokkr-
um sinnum og vildu með þessu leggja
áherzlu á bætt kjör og betri vinnuskilyrði.
Stjómvöld i Pakistan bönnuðu allar
matarveizlur við brúðkaup þar í landi að
viðlögðum sektum. Ástæðan var mikill
hveitiskortur.
Patty Hearst hin bandaríska, sem
rænt var af Symbíónesíska frelsis-
hernum og síðan var dæmd i sjö ára
fangelsi fyrir þátttöku I bankaránum
með félögum hans, krafðist endur
upptöku máls síns. Rökstuðningurinn
var sá að fyrri lögfræðingur hafi
klúðrað málinu vegna þess að hann
hafi stöðugt verið drukkinn eða
timbraður á meðan á málarekstri stóð.
Christina
I hjónabandið
með sovézkum
skipamiðlara
Christina Onassis erfingi nær alls
Onassis auðsins-gekk að eiga sovézkan
útgerðarsérfræðing öUum að óvörum.
Bjuggu þau hjón fyretu dagana I tveggja
herbergja ibúð tengdamóður Christinu I
Moskvu en komust siðan yfir stærri vist-
arverur. Síðustu fregnir af þeim hjónum
eru að allt sé i lukkunnar velstandi og
Christina eigi von á barni innan
nokkurra mánaða.
Mikið um
andlát páfa á
árinu
f*áll páfi sjötti lézt áttræður að aldri
og eftir fimmtán ára setu í Vatikaninu.
Var mikið umstang að venju við jarðar-
förina eins og tíðkast þegar páfi deyr.
Þrír Bandaríkjamenn unnu sér það til
frægðar að svífa yfir Atlantshafið á loft-
belg fyrstir manna. Lentu þeir heilu og
höldnu rétt við Paris og var að vonum
fagnað af viðstöddum en þar voru meðal
annars eiginkonur kappanna.
Norðmaðurinn
stakk af með
milljón
dollarana
Norðmaður einn nýfluttur til
Kalifomíu stakk af með nærri eina
milljón dollara, sem lagðar höfðu verið
inn á bankareikning hans vegna mis-
taka. Ekki tókst honum að dyljast lengi
en þegar hann var gripinn vantaði
meginhluta upphæðarinnar og fátt var
um svör hjá þeim norska, sem búast má
við hörðum dómi fyrir tiltækið.
Skæruliðar í Nicaragua, sem berjast
gegn einræði Somozafjölskyldunnar,
voru stórhöggir og hertóku þinghús
höfuðborgarinnar. Tóku þeir um fimm
hundruð gísla, þar á meðal ráðherra,
þingmenn og ættingja forseta landsins.
Sluppu þeir siðan úr landi með stórfé en
síðar kom til blóðugra átaka í landinu
sem lauk með þvi að herlið Somoza
forseta hrakti skæruliða úr borgum
landsins.
Jomo Kenyatta leiðtogi i Kenya lézt
aldinn að árum. Óttast var að ekki
tækist að selja nýjan mann í embætti
hans en tókst með ágætum og var eftir-
maður hans kjörinn í friðsömum
kosningum enda aðeins einn I kjöri.
Albino Luciani partíarki var kjörinn
eftirmaður Páls páfa sjötta. Tók hinn
nýi páfi sér nafnið Jóhannes Páll fyrsti.
Hann lifði þó ekki nema I um einn
mánuð eftir kjörið og kusu kardínálar þá
pólskan kardínála sem tók sér nafnið
Jóhannes Páll annar. Var það i fyrsta
skipti, sem kardináli frá kommúnistaríki
settist i sæti páfa. Lifir hann enn og að
því er virðist við beztu heilsu.
Mikilsháttar njósnahneyksli virtist
vera í uppsiglingu i Vestur-Þýzkalandi
og hafa þeir þó talið sig hafa fengið sinn
skammt af sliku. Var þingmaður einn
meðal annars sviptur þinghelgi því hann
var talinn viðriðinn málið. Málið
reyndist á miskilningi byggt og fjaraði
út.
Vestur-Þjóðverji einn sem brá sér i
leyfi og fékk nágrannann til að gæta
heimilis og kattarins á meðan, fékk
tuttugu þúsund króna símareikning fyrir
simtal til Parísar. Sagði nágranninn kött-
inn hafa hringt. Málið fór fyrir dómstól.
Dómarinn úrskurðaði deiluaðila, það er
að segja þann, sem fór í ferðalagið, og
nágrannann, til að greiða sinn hvorn
helming reikningsins. Kötturinn slapp
útgjaldalaust.
Skæruliðar svartra Ródesiubúa skutu
niður farþegavél og fórust með henni
tuttugu og átta manns. Að sögn stjórn-
arinnar i Ródesiu skutu skæruliðamir
tiuþeirra semafkomust.
Camp David
fundur Carters
gaf góðar vonir
sem enn hafa
ekki rætzt
Jimmy Carter forseti Bandaríkjanna
tók á sig rögg mikla og boðaði þá Begin
forsætisráðherra ísraels og Sadat forseta
Egyptalands á sinn fund í Camp David I
Maryland. Þar var ræðst við af miklum
móð um nokkra hríð en með svo mikilli
leynd að fréttamönnum lá við ör-
væntingu og fóru að taka viðtöl við
hvern annan til að forðast brottrekstur
fúllyndra ritstjóra. Á meðan beðið var
fregna af fundi leiðtoganna upplýstist
meðal annars að heili Nóbelsverðlauna-
hafans og hugsuðarins Albert Einsteins
hafði legið i sultukrukku í vinskápi
læknis eins. Þóttu það merkileg tíðindi.
Einnig fréttist að mýsnar væru farnar
að gera sig svo heimakomnar i skrif-
stofubyggingu öldungadeildarinnar I
Washington, að þær trufluðu jafnvel
mikilvæga fundi með tísti sinu.
Loks bárust fregnir frá Camp David
og þær góðar. Begin, Sadat og Carter
töldu sig hafa náð samkomulagi sem
tryggja ætti undirskrift friðarsamninga
innan þriggja mánaða. Sá frestur leið þó
skömmu fyrir jól og ekki eru friðarsamn-
ingarnir undirritaðir enn. Menn lýsa þvi
þó yfir á víxl að bjartsýni ríki og allt
muni ganga saman ef andstæðingar gefi
svolitið meira eftir.
Ellefu þúsund manns eða rúmlega
það fórust í jarðskjálfta i Iran. Borg ein,
Tabas heitir hún, bókstaflega hvarf af
yfirborði jarðar og ríkti þar mikil nauð
og sorg meðal eftirlifandi ættingja.
Október
Margrét prinsessa, systir Elisabetar
drottningar átti í ýmsum raunum á
árinu, sem er aö líða. Gengið var frá
skilrtaði hennar og Snowdons lávarðar.
Brezk blöð hneyksluðust á sambandi
hennar við ungan milljónaerfingja og að
lokum var hún lögð inn á sjúkrahús.
Prinsessan mun nú öll vera að hressast
og að sögn vera ákveðin i að taka upp
nýtt og betra lif.
Baráttumenn gegn háum sköttum
unnu mikinn sigur i almennum
kosningum i Kaliforniuriki. Var sam-
þykkt að draga mjög úr sköttum i ríkinu.
Sjá nú margir opinberir starfsmenn þar
vestra fram á atvinnumissi.
Kissinger kom-
inn í fótboltann
Af Kissinger fyrrum utanríkis-
ráðherra fréttist það síðast að hann
hefur gerzt stórhluthafi í félagi sem
rekur knattspyrnufélag. Hann var
einnig kjörinn formaður Knatt-
spyrnusambands Bandaríkjanna.
Rikisstjórn Thorbjörns Fálldins for-
sætisráðherra Svíþjóðar féll. Mun það
helzt hafa verið ágreiningur um af-
stöðuna til bygginga kjarnorkuvera sem
varð stjórninni að fótakefii.
Bretar réðu til sín norska
selveiðimenn til að drepa nokkur þúsund
þeirra við Orkneyjar. Var það vegna
fullyrðinga um að selurinn æti svo
mikinn þorsk að til tjóns væri. Ekki var
ljóst hvaðan Bretum kom heimild til að
kveða upp dauðadóma yfir selunum,
sem sannanlega munu hafa étið þorskinn
löngu áður en Bretar fóru að veiða
hann. Vegna mikilla mótmæla var hætt
við seldrápin.
Lýkur þá frásögnum af erlendum
fregnum í október með þvi að Playboy-
tímaritið fræga var úrskurðað til að
greiða viðbótarskatta sem nema
tæplega þrettán milljónum dollurum.
Növember
Götur heimsborgarinnar Parisar fyllt-
ust af sorpi vegna verkfalls sorphreins-
unarmanna. Idi Amin taldi sig lika þurfa
að hreinsa til og réðist með her sinn inn i
Tanzaníu. Jókst orðstír hans lítið við
það.
Tveir leikarar i Cardiff á Englandi
voru sýknaðir af ákæru um að hafa
Þetta er ungfrú Argenttna sem kjörin var Miss World I London á dögunum. Hin 19 ára gamla stúlka, sem stundar nám I
arkitektúr, er að vonum ánægð með sigurinn en nafn hennar er Silvana Suarez.