Dagblaðið - 30.12.1978, Qupperneq 23
DAGBLADIÐ. LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1978.
n
misþyrmt gullfiskum á sýningu sinni. Er
betur var aö gáð kom í Ijós að annar leik-
aranna var íslenzk kona.
Allt var á öðrum endanum i Iran
síðustu vikur ársins. Óeirðir gengu eins
og flóðbylgjur yfir borgir landsins. Keis-
arinn og stjórn hans, sem reyndar er
orðin hrein hershöfðingjastjórn, er á
milli steins og sleggju I þessum málum.
Sótt er að keisaranum úr báðum áttum ,
hann er krafinn um meira frelsi og
nútima lífskjör þegnunum til handa á
annan veginn. Hinum megin jagast
íhaldssamir múhameðstrúarmenn, sem
heimta afturhvarf til fyrri lífshátta sam-
kvæmt boðum Kóransins. Nú er svo
komið að oliuvinnsla landsins er í rúst
og ekki er einu sinni hægt að fullnægja
innanlandsþörfinni. Útflutningur er í al-
gjöru núlli.
Demókratar i Bandarikjunum héldu
fylgi sínu að mestu i kosningum þar og
gildir sama hvort um er að ræða
fulltrúadeild þingsins eða öldungadeild
og kjör ríkisstjóra.
Frændur vorir og nágrannar
Norðmenn og Danir virðast stunda
virðisaukaskattsvik, það er að segja þeir,
sem aðstöðu hafa til. Er svo að sjá sem
virðisaukaskatturinn eða momsinn eins
og þeir kalla hann sé litið betri inn-
heimtuaðferð en okkar ágæti
söluskattur.
Grænlendingar fá heimastjórn I vor og sá litli fagnar auknu frjálsræði, enda erfir hann landið.
kölluð heim úr jólafríi i Thailandi þcgar
málið komst i hámæli. Konan reyndist
hin hortugasta við forsætisráðherrann,
Anker Jörgensen, út af málinu, og lauk
þvi þannig að henni var vísað úr em-
bætti.
Stjórnin f
Peking stingur
undan Taiwan-
mönnum
Bandaríkin tilkynntu skyndilega og
óvænt að þau mundu taka upp stjórn-
málasamband við Kina og jafnframt
slíta sambandi við stjórnina á Taiwan.
Þótti' hinum heldur súrt í broti en
Pekingstjórnin þykir hafa unnið einn
sinn mesta stjórnmálasigur.
Fjögur hundruð milljón króna virði af
gulli er horfið úr geymslum Bandarikja-
stjórnar i New York. Ekki hefur fundist
viðhlitandi skýring á hvarfinu en vitað
er um tilraunir starfsmanna til að
laumast út með slatta og slatta innan i
gömlutn dagblöðum.
Chicago verk-
takinn játaði á
sig þrjátíu og
tvö morð
Þrjátiu og scx ára gamall Chicaeð-
verktaki hcftir viðurkcnnt moró á þrjáliu
og tveimur drcngjum og segist hafa falið
þá undir húsi sinu eða kastað þcim i
nærliggjandi ár. Þegar þessi pistill er rit
aður eru sextán lik fundin. Ljóst er að
maðurinri er kynferðislega brenglaóur
svo vægt sé til orða tekið. Landi hans
annar var sýknaður af nauðgunarákæru
eiginkonu sinnar. Þau hjón munu
standa i skilnaði.
Grænlendingur einn drap drykkju-
félaga sinn mcð hnifi þegar hann vildi
yfirgefa samkvæmið.
Þessum erlenda fréttaannáli lýkur
með viðvörun til þyrluflugmanna. Ekki
er ráðlegt að fljúga lágt yfir hænsnabú
eins og glögglega sést a cftirfarandi sorg
arsögu. Vegna flugs danskrar herþyrlu
drápust hvorki meira né minna en sex
þúsund kjúklingar á býli einu i Dan-
mörku. Samkvæmt úrskurði dýralæknis
vardánarorsökin hræðsla.
Víetnamflótta-
menn drukkna í
hrönnum á
Kínahafi
Flóttamenn hópast frá Víetnam og
notfæra sér þá flest farartæki bæði láðs
og lagar. Að sögn notfæra óprúttnir
kaupahéðnar sér tækifærið og selja farið
fyrir stórfé. Þúsundir flóttafólksins hafa
farizt og alls konar fleytur hafa farizt á
hrakningum um Kinahafið. Auk þess
sem fólkinu er iðulega snúið aftur frá til
hafs þar sem þá ber að landi. Er það
vegna þess aö viðkomandi riki óttast að
sitja uppi með flóttamennina til eilifðar-
nóns.
Fjöldasjátfs-
morð Jim
Jones félaga f
Guyana
Hrikaleg fjöldasjálfsmorð eða fjölda
morð voru framin í búðum bandarisks
trúflokks i Suður-Amerikurikinu
Guyana skömmu eftir miðjan
nóvember. Talið er að þar hafi rúmlega
níu hundruð manns látið lifið af eitri
og/eða skotsárum. Tildrög málsins voru
þau, að bandariskur þingmaður, Leo
Ryan, kom þar til að kanna aðstæður
vegna orðróms um að þar væri ýmislegl
óhreint á ferðinni. Til átaka kom rétt
fyrir brottför þingmannsins og lauk
þeim svo að hann og þrír samferða-
menn hans voru skotnir. Svo virðist sem
leiðtogi trúflokksins, Jim Jones, að
nafni, hafi þá tekið ákvörðun um að láta
alla meðlimi flokksins ráða sér bana. Að
öllum likindum mun meginhluti fólksins
hafa hlýðnazt skipunum foringjans. Ef
dæma má af fregnum munu einhverjir
hafa veitt mótþróa en verið neyddir til
að taka inn eitur eða hreinlega verið
myrtir. Ljóst er að öll kurl eru ekki
komin til grafar i þessu máli. Aftur á
móti eru þegar komnar út tvær bækur
um atburðina i Guyana. Höfundar
þeirra eru tveir blaðamenn, sem voru á
staðnum þegar voðaverkin urðu. Annar
þeirra slapp naumlega en særður frá,
þegar öldungadeildarþingmaðurinn var
myrtur.
Jeremy Thorpe
í köku með
kynferðismálin
Brezk blöð, sum að minnsta kosti,
kölluðu rannsókn málsins á hendur
Jeremy Thorpe fyrrum leiðtoga Frjáls-
lynda flokksins dómsmál aldarinnar. Er
hann sakaður um að hafa staðið fyrir
morðtilræði við fyrrverandi ástmann
sinn, sem gaf nákvæma lýsingu á sam-
lífi þeirra fyrir rannsóknardómstóli.
Thorpe, sem enn er þingmaður, neitar
öllum ásökunum en fyrrverandi flug
maður einn ber að hafa fengið greitt fé
fyrir að ráða ástmanninn af dögum.
Niðurstaða rannsóknarinnar varð sú að
opinber ákæra verður gefin út á Thorpe
ogfleiri fyrirtilræðiviðmanninn.
Fyrrverandi yfirmaður hjá San
Franciscoborg skaut George Moscone
borgarstjóra þar i reiði vegna þess að
hann var ekki endurráðinn í starf sitt.
Annar yfirmaður borgarinnar varð
einnig fómardýr morðingjans. Sá var
fyrsti yfirlýsti kynvillingurinn sem
kjörinn var þar til starfa.
Desember
Ceausescu forseti Rúmeníu stóð upp í
hárinu á Moskvuvaldinu að venju. Við
lok ársins var hann óvenjuhress i þeim
efnum og tilkynnti að hann vildi fremur
eyöa fjármunum lands sins til að auka
hagsæld þegnanna en leggja fram fé til
aukins vígbúnaðar Varsjárbandalagsins.
Þótti Sovétmönnum þetta erfiður biti í
háls en létu kyrrt liggja í það minnsta
um sinn.
Spánverjar samþykktu nýja stjórnar-
skrá i allsherjaratkvæðagreiðslu í desem-
ber. Samkvæmt henni verður Spánn
lýðræðisríki með þingbundinni konungs-
stjórn. 87% þeirra Spánverja sem
greiddu atkvæði samþykktu plaggið.
Aðalandstaðan var í Baskahéruðunum.
öfgamenn í þeirra hópi vaða ötullega
um sprengjandi upp menn og byggingar.
Einkum einbeita þeir kröftum sínum að
lögreglumönnum og hermönnum.
Dönsk kona varð fyrir þeirri
óþægilegu reynslu að þurfa að ganga
með uppskurðardúk i maganum i
nokkra mánuði. Sjúkrahúsyfirvöld hafa
lofað konunni skaðabótum.
Dóttirin varð
leið á karli
föður sínum
Dóttir hjóna einna varð svo leið á
rifrildinu í föður sínum, sem lenti í
árekstri, að hún gekk á braut. Hafði bif-
reið þeirra lent i árekstri við aðra og
upphófust miklar deilur. Er hvarf stúlk-
unnar kom í Ijós hélt móðir stúlkunnar
að henni hefði verið rænt. Hið sanna
kom i Ijós er heim var komið en þar var
dóttirin í bezta yfirlæti.
OPEC-ríkin ákváðu að hækka
oliuverðið um 14,5% á næsta ári. Ætla
þau að gera það í fjórum áföngum. Ekki
var fyrr búið að tilkynna þetta en sér-
fræðingar fóru af stað og spáðu aukinni
verðbólgu í hinum vestræna heimi.
Og þá er komið að þvi að segja frá
danska bóndanum, sem ekki þolir
opinbera embættismenn og tryllist við
þá sjón og grýtir i þá múrsteinum eða
hverju því lauslegu sem nálægt er.
Frekari fregnir frá Danmörku herma að
allt sé þar i háalofti út af bílifi
kennslumálaráðherra landsins. Er það
kvenkrati að nafni Ritt Bjerrcgaard sem
þykir hafa lagt fram óhæfilegan reikning
fram fyrir dvöl sina i París. Var hún
Spánskur hershöfðingi var drepinn og aðstoðarmaður hans sömuleiðis. öfgaflokkur Baska lýsti sök á hendur sér vegna morðanna.