Dagblaðið - 30.12.1978, Side 25
BEE GEES — Hljómsveit ársins og seidi auk þess samaniagt mest af litlum og stórum plötum á árinu. Frá vinstri eru
Barry, Maurice og Robin Gibb.
Timaritið Billboard hefur kunngert
hverjir séu vinsælustu skemmtikraftar
Bandaríkjanna á þessu ári miðað við
hljómplötusölu. Sigurvegararnir koma
tæpast neinum á óvart, sem á annað
borð fylgjast með bandariskri tónlist. ■
Bræðurnir Barry, Robin, Maurice og
Andy Gibb eru tvímælalaust stjörnur
ársins á þessum stærsta tónlistarmark-
aði heims.
Andy Gibb varð söngvari ársins. Sá
titill fæst með því að leggja saman söl-
una á öllum plötum hans, bæði litlum
MEAT LOAF — Plata hans, Bat Out
Of Hell, og lögin Two Out Of Three
Ain’ t Bad og Paradise By The Dash-
board Light koma honum i fyrsta sæti
nýliöanna i bandarísku tónlistarlifi.
ÁSGEIR
TÓMASSON
og stórum. Andy söng einnig inn á
mest seldu tveggja laga plötu ársins.
Aðallag hennar var Shadow Dancing.
í fyrra varð Stevie Wonder söngvari
ársins. Hann lét ekkert í sér heyra á
þessu ári, svo að þess var ekki að
vænta að hann yrði atkvæðahár. —
Bezt selda litla platan i fyrra var
Tonight’s The Night með Rod
Stewart. Þá var Andy í öðru sæti með
lagið I Just Want To Be Your Every-
thing.
Hljómsveit ársins vestra nefnist Bee
Gees. í fyrra hlutu Fleetwood Mac
þann titil. Sú hljómsveit hafnaði nú í
þriðja sæti, en númer tvö að þessu
sinni varð hljómsveitin Commodores.
Linda Ronstadt varð söngkona árs-
ins eins og í fyrra. Donna Summer
hafnaði í öðru sæti, en lenti í fyrsta
sæti sem flytjandi diskótektónlistar.
Dolly Parton lenti í þriðja sæti söng-
kvenna ársins og Olivia Newton-John
í því fjórða.
Dolly Parton hlaut hins vegar titil-
inn dreifbýlisskemmtikraftur ársins.
Bezt selda hljómplata ársins i
Bandaríkjunum var Saturday Night
Fever. í öðru sæti kom platan með lög-
um úr kvikmyndinni Grease. Platan
Rumours með Fleetwood Mac lenti
siðan i þriðja sæti. Sú plata var númer
eitt I fyrra.
Saturday Night Fever varð jafn-
framt í fyrsta sæti sem plata með kvik-
myndatónlist. Grease varð í öðru sæti
og Thank God It’s Friday varð númer
þrjú.
Soulhljómsveit ársins er Earth,
Wind And Fire. Commodores lentu i
öðru sæti og Heatwave í því þriðja.
Soullag ársins varð Serpentine Fire af
soulplötu ársins, All ’n’ All með Earth,
Wind & Fire. í fyrra „átti” Stevie
Wonder souldeildina, líkt og Earth,
Wind& Firenú.
Barry Manilow er vinsælasti lista-
maðurinn, sem einskorðar sig við
flutning rólegrar tónlistar (easy
listening). England Dan og John Ford
Coley urðu í öðru sæti og Bee Gees
númer þrjú. Vinsælasta rólega lagið
var We’ll Never Have To Say Good-
bye Again flutt af England Dan og
John FordColey.
Meat Loaf sló við öðrum nýjum
listamönnum, sem komu fram á
sjónarsviðið á árinu. Hljómsveitin
Player varð númer tvö og gamli Fleet-
wood Mac-gitarleikarinn Bob Welch i
þriðja sæti.
Loks er að geta úrslita I jazzdeild
Billboard. Sá sem seldi mest af jazz-
plötum á árinu var Chuck Mangione.
Á hæla hans kom George Benson og
Crusaders urðu númer þrjú.
Nánar verður fjallað um þessi úrslit
á fyrstu poppsiðu Dagblaðsins á næsta
ANDY GIBB — Söngvari ársins og söng sömuleiðis metsölulagið I Banda-
rikjunum, Shadow Dancing.
BARRY MANILOW — Seldi mest af plötum af öllum þeim, sem sérhæfa sig I
rólegum lögum (easy listening).
CHUCK MANGIONE — Jazzhljómlistarmaður ársins. Lag hans, FctÍsSo
Good, varð jafnframt jazzlag ársins.
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 1978.
Bandaríkin:
Gibb bræöumir em
tónlistarmenn ársins
HLJÓMPLATAN SATURDAY
NIGHT FEVER — Hljómplata EARTH, WIND & FIRE — Soulhljómsvcit ársins.Hljómsvcitin bar hófuð og
ársins. Sömuleiðis varð hún i efsta sæti herðar yfir aðra soullistamenn. Lag hennar, Serpintinc Eire varð soullag úrsins og
hljómplatna með kvikmyndatónlist. platan All ’n’ All varð söluhæsta soulplatan.
LINDA RONSTADT — Söngkona ársins f Bandarfkjunum annað áríð f röð. I
öðru sæti varð diskósöngkona ársins, Donna Summer, og dreifbýlissöngkona
númer eitt, Dolly Parton, varð f þriðja sæti.