Dagblaðið - 06.01.1979, Side 7
DAGBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 6. JANUAR 1979.
7
róttir
Iþróttir
1
Iþróttir
Iþróttir
Skúli Óskarsson
íþróttamaður ársins
Úr ræðu Bjama Felixsonar, formanns
Samtaka iþróttafréttamanna, í gær:
Fyrir hönd Samtaka íþróttafrétta-
manna býð ég ykkur öll velkomin til
þessa hófs, en tilefni þess er, eins og
ykkur er öllum kunnugt, að lýsa kjöri
íþróttamanns ársins 1978. Allt frá stofn-
un Samtaka iþróttafréttamanna árið
1956 hefur sá háttur verið hafður á hér-
lendis, sem og i nær öUum öðrum lönd-
um heims, að íþróttafréttamenn hafa
kjörið íþróttamann ársins. Hvarvetna er
fylgst með slíku kjöri af áhuga og at-
hygli. Við iþróttafréttamenn teljum, að
með því að halda þessari hefð hér á
landi, þá vinnum við íþróttahreyfing-
unni gagn um leið og við reynum að
vekja athygli á gildi íþróttanna og hvetj-
um ungt fólk til að hafa að leiðarljósi
íþróttamenn þá, sem verða fyrir valinu
hverju sinni — ekki einungis þann, sem
hlýtur sæmdarheitið íþróttamaður
ársins, heldur og alla aðra, sem viður-
kenningu hljóta í þessu kjöri. íþrótta-
maður ársins hefur nú verið kjörinn í 23.
■ skipti hér á landi og var kjörið með hefð-
bundnum hætti. íþróttafréttamenn sjö
fjölmiðla greiddu atkvæði að þessu
sinni, þ.e.a.s. íþróttafréttamenn
Morgunblaðsins, Tímans, Dagblaðsins,
Vísis, Þjóðviljans, útvarps og sjónvarps.
Kosningu er hagað þannig, að á hverj-
um atkvæðaseðli eru tilnefndir 10
íþróttamenn og hlýtur sá, sem tilnefndur
er í fyrsta sæti, 10 stig, sá næsti 9 stig, sá
þriðji 8 stig o.s.frv. Sá iþróttamaður,
sem flest stig hlýtur í þessari kosningu,
er iþróttamaður ársins og hlýtur til stað-
festingar þessu sæmdarheiti hinn veg-
lega farandgrip, sem fylgt hefur þessu
kjöri frá upphafi. Fyrsta árið, árið 1956,
hlaut Vilhjálmur Einarsson, frjáis_
íþróttamaður, þennan grip og hannf
vann hann einnig tvö árin hin næstu.
Vilhjálmur var siðan kjörinn iþrótta-
maður ársins tvívegis síðar. Enginn
hefur hlotið þennan grip eins oft og Vil-
hjálmur Einarsson. Hann var kjörinn
íþróttamaður ársins fimm sinnum alls.
Þó að kjör íþróttamanns ársins hér-
lendis hafi farið fram með sama hætti,
varð umtalsverð breyting í sambandi við
það fyrir sex árum. Þá var í fyrsta sinn
kjörinn íþróttamaður ársins á Norður-
löndunum, en tilnefndir til þess kjörs eru
allir íþróttamenn ársins á Norðurlönd-
um hverju sinni. Volvo-verksmiðjurnar
sænsku stóðu að þessari skemmtilegu
nýbreytni og gáfu i þessu tilefni vegleg-
an bikar, Volvo-bikarinn, og önnur verð-
laun vegleg, en formenn samtaka
íþróttafréttamanna á Norðurlöndunum
sáu um kjörið í boði verksmiðjanna.
Kjör iþróttamanns ársins á Norðurlönd-
unum hefur síðan unnið sér fastan sess
og hafa Volvo-verksmiðjurnar og um-
boðsmenn þeirra á Norðurlöndunum
ekki legið á liði sinu síðan og Voívo-
bikarínn er nú einn eftirsóttasti verð-
launagripur á Norðurlöndum. Volvo-
bikarinn er jafnan afhentur við merkan
íþróttaviðburð í einhverju Norðurland-
anna og þá hefur jafnan verið stefnt að
því, að allir íþróttamenn ársins á
Norðurlöndunum hafi verið þar saman-
komnir, en þetta fyrirkomulag hefur þó
stundum verið erfitt i framkvæmd. Um-
boðsmenn og fulltrúar Volvo hér á
landi, forráðamenn Veltis hf., brugðu
, þegar skjótt við fyrir sex árum og gerðu
okkur íslendingum kleift að taka þátt i
þessu norræna samstarfi strax i upphafi,
og svo hefur ávallt verið síðan, og þeir
hafa hvorki sparað fé né fyrirhöfn.
Finnski langhlauparinn, Lasse Viren,
varð fyrstur fyrir valinu sem iþrótta-
maður ársins á Norðurlöndum, en síðast
var. það sænski tennisleikarinn Björn
Borg.
„Ég set nú stefnuna á Evrópu-
meistaramótiö 1 Stokkhólmi. Viöurkenn-
ing þessi er mér ákaflega mikiis virói og i
raun geröi ég mér ekki grein fyrir þvi hve
kærkomin hún var fyrr en ég stóð og tók
við styttunni,” sagði Skúli Óskarsson,
lyftingamaðurínn snjalli austan af Fá-
skrúðsfirði, eftir að hann var i gær kjör-
inn iþróttamaður ársins 1978. „Hún er
þung og það liggur við að hún sé eins
! falleg og kona,” sagði Skúli þegar hann
tók við styttunni að Hótel Loftleiðum i
gær.
„Allur tími minn fer i að stunda lyft-
ingar. Það er helzt um helgar að færi
gefst á að sinna öðrum áhugamálum,
fara i bíó og dansa,” sagði Skúli enn-
fremur, og hann bætti við: „Þegarég tók
við viðurkenningunni þá var það sama
tilfinning og grípur mann þegar vel tekst
við lyftu, þá líöur mér vel.”
Skúli Óskarsson er vel að sæmdarheit-
inu íþróttamaður ársins 1978 kominn.
Hann hreppti silfurverðlaun á heims-
meistaramótinu í haust, einnig silfur á
Evrópumótinu á Englandi í vor. Hann
hóf að stunda lyftingar fyrir tíu árum og
| Veltir hf. hefur borið allan kostnað af
'þátttöku okkar í kjöri iþróttamanns'
ársins á Norðurlöndunum og einnig af
■ ferð islenska íþróttamannsins á afhend-
ingu Volvo-bikarsins. Þá hefur Veltir hf.
einnig veitt okkur margvislegan
stuðning við kjör íþróttamanns ársins og
ég vil nota þetta tækifæri hér til að bjóða
fulltrúa fyrirtækisins sérstaklega vel-
komna hingað til þessa hófs, enda þótt
segja megi, að við séum hér frekar gestir
þeirra en þeir okkar.
Islenskt íþróttafólk vann mörg og góð
afrek á árinu 1978, þótt skipst hafi á skin
og skúrir eins og jafnan áður. Nú verður
lýst kjöri íþróttamanns ársins 1978 og
viö höfum haldið þeirri venju hér að
boða til fundar með okkur þá 10 íþrótta-
menn, sem hlotið hafa flest atkvæði við
.þetta kjör, formönnum viðkomandi sér-
'sambanda, fyrrverandi íþróttamönnum
ársins, forystumönnum ÍSÍ og nokkrum
gestum öðrum. Að þessu sinni hlutu 24
íþróttamenn atkvæði í kosningunni, en
gildar ástæður eru fyrir því, að færri eru
hingað komnir eins og síðar kemur í Ijós.
hann hefur sett 15 Norðurlandamet,
þannig að ekki fer á milli mála að Skúli
er vel að titlinum kominn.
Röð efstu manna og þeirra er hlutu
stig í kjöri íþróttamanns ársins 1978,
varð:
1. Skúli Óskarsson, lyftingamaður 67 stig
2. Óskar Jakbosson.frjálsíþróttamaður 49 —
3. Hreinn Halldórsson, frjálslþróttamaður 48 — ,
4. Jón Diðriksson, frjálsiþróttamaður 37 —
5.Sigurður Jónsson.skiðamaður 35 —
6. Pétur Pétursson, knattspymumaður 25 —
7V:—8. Jón Sigurðsson, körfuknattleiksm. 22 —
7. -8. Karl Þórðarson, knattspymumaður 22 —
9. Vilmundur Vilhjálmsson, frjálsíþróttam. 21 —
' 10.-11. Gústaf Agnarsson, lyftingamaöur 10 —
10. -11. Þórunn Alfreðsdóttir, sundmaöur 10 —
Aðrir íþróttamenn sem hlutu stig:
Ragnar Ólafsson (golf), Þorsteinn
Bjarnason (knattsp. & körfukn.) 7 stig,
Bjarni Friðriksson (júdó) 6 stig, Þor-
björn Guðmundsson (handknl.) 4 stig,
Árni Indriðason 3 stig, Jóhann Kjart-
ansson (badminton), Ingi Björn Alberts-
son (knattsp.), Sigurður T. Sigurðsson
(fimleikar) og Axel Axelsson (handknl.)
2 stig, Ásgeir Sigurvinsson (knattsp.),
Gunnar Einarsson (markv. í handknl.),
Hugi Harðarson (sund), Sigurður Har-
aldsson (knattsp. og badminton) 1 stig.
ÞEIR STERKU
OFARLEGA
Víkingum vísaö úr
Evrópukeppni bikarhafa
— vegna „óspekta” fYstad — Víkingur hefur áfrýjað
Svfínn Kurt Wadberg, sá er kærði, var einn þriggja dómara!
Vikingur var I gær rekinn úr Evrópu-
keppni bikarhafa vegna óspekta I Sví-
þjóð. „Við fengum skeyti I gær frá aga-
nefnd IHF þar sem okkur var tilkynnt
þetta,” sagði Eysteinn Helgason, for-
maður handknattleiksdeildar Vikings, á
blaðamannafundi i gær.
„Málsatvik voru að eftir sigur okkar i
Ystad var boðið i veizlu þar. Við fórum
þangað og veizlan fór i alla staði mjög
vel fram. Eftir boðið gengu leikmenn og
forráðamenn heim að hóteli — um 5
minútna gangur — og i fylgd með okkur
voru nokkrir leikmanna Ystad. Nokkrir
okkar voru ölvaðir, í sigurgleði eftir leik-
inn. Og þau atvik áttu sér stað að tveir
leikmenn duttu saman á rúðu og
brotnaði hún. Auk þess gerðist það að
þriðji Víkingurinn datt á aðra rúðu og
brotnaöi hún einnig. Við hringdum
þegar í lögregluna og var tekin skýrsla af
okkur þar sem við gengum í ábyrgð fyrir
tjóni. Þar með héldum við málinu lokið
með lögregluskýrslum.
Tveimur dögum síðar var i staðar-
blöðum sagt frá „skrílslátum Víkinga”,
eins og það var kallað. Þar voru bomar
upp á okkur sakir og sagt að Víkingar
hefðu gengið berserksgang i Ystad, ásak-
anir er voru stórlega ýktar. Vissulega
voru menn ölvaðir í gleði sinni og við
viljum á engan hátt bera blak af þvi eða
verja það er átti sér stað — rúðubrotin.
En allar frásagnir í sænskum blöðum
voru fjarri sannleikanum.
Og Svíamir gripu þetta á lofti og ætl-
uðu sér greinilega sæti í 8-liða úrslitum.
1 viðtali við Kurt Wadberg, formann
aganefndar IHF — Alþjóðahandknatt-
leikssambandsins — sagði hann að ekki
kæmi sér á óvart þó Víkingar yrðu
dæmdir úr leik. Forráðamenn Ystad
gátu vart á heilum sér tekið og urðu
beinlínis ókurteisir eftir tapið enda lýst
fjálglega fyrir leikinn hve stór sigur
Ystad yrði. Allt þetta breyttist eftir leik-
inn.
Kurt Wadberg kærði sjálfur þessi at-
vik til IHF og hann d;smdi sjálfur í mál-
inu! ásamt Ivan Kunst, Rúmeníu, og
Carl Wang, Noregi, þannig að segja má
að með bolabrögðum hafi tvær Norður-
landaþjóðir vikið síðasta Julltrúa
Norðurlanda úr Evrópukeppni.
Við höfum þegar áfrýjað þessum
dómi en í skeytinu, er við fengum í gær,
var sagt að mótherjar okkar, Tatabanya,
færu beint í 4-liða úrslit og Víkingur
fengi ekki að leika i alþjóðlegum leikjum
fyrr en 1. ágúst í ár,” sagði Eysteinn
Helgason að lokum.
HHaOs
'„Hún er þung en næstum eins falleg og kona,” sagði SkúH Óskarsson, lyftingamaður,
er hann hampaði hinum veglega bikar — fþróttamaður ársins 1978.
Svíar að troða
á íslendingum
— sagði Sigurður Jónsson
„HSÍ mun halda fund um þetta mál I
dag. Eftir það sem HSt hefur frétt um
þetta mál er þessi dómur út I hött og ég
hefði haldið að svona mál ætti að fara I
gegnum viðkomandi handknattleikssam-
bönd en ekki félögin,” sagði Sigurður
Jónsson, formaður HSt, á blaðamanna-
fundi I gær.
„Það sem þarna er að gerast er að Svi-
ar eru að traðka á okkur og þeir munu
ekki komast upp með það. Við munum
gera harðar ráðstafanir,” sagði Sigurður
Jónsson ennfremur.
FÁRÁNLEGT
— sagði Bogdan Kowalzcyk
„Þessi dómur á sér ekki fordæmi I
sögu IHF og kemur eins og þruma úr
heiðsldru lofti,” sagði Bogdan Kowal-
zcyk, þjálfarí Vikinga, á blaðamanna-
fundi I gær.
„Svfarnir töpuðu báðum lcikjunum
fyrir okkur og það var greinilegt að þeir
ætluðu sér að komast f 8-liða úrslit.
Þessi dómur er fáránlegur, að dæma
heilt lið úr keppni vegna þess að leik-
mönnum verður á að brjóta tvær rúður.
Og það var ekki af illmennsku, á leiðinni
voru þeir f gleði sinni að fagna og föðm-
uðust en duttu þá um leið. Ef IHF vildi
dæma einhverja, þá að sjálfsögðu þessa
cinstaklinga. Ég minnist þess að við hjá
Slask höfum oft átt I erfiðleikum með er-
lend Uð. t fyrra mættum við þannig Opp-
sal og þeir beinUnis lögðu hóteUð I rúst,
höfðu hægðir inni á herbergjum, brutu
aUt og brömluðu. HóteUð kvartaði að
sjálfsögðu en máUð fór ekki fyrir IHF,”
sagði Kowalzcyk að lokum.
Svíar með ó-
spektir hér
Þess má geta að þegar leikmenn
Ystad voru I Reykjavfk héldu þeir mikla
drykkjuveizlu að Hótel Esju þar sem
þeir fögnuðu hinum góða árangrí — að-
eins eins marks tapi f Reykjavfk. Miklar
óspcktir urðu af völdum Svia og meðal
annars ógnuðu þeir dyraverði. HóteUð
kærði þetta til Vfkings en ekkert var
gert I málinu. Þá má geta þess að hóteUð
I Svfþjóð hafði ekkert út á Vfkinga að
setja eftir Evrópuleikinn f Svfþjóð —
einu umdeildu atvikin voru að rúðurnar
tvær brotnuðu.