Dagblaðið - 07.02.1979, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRUAR 1979.
7
Erlendar
fréttir
Alsír:
Eftirmaður
Boumedienne
formlega
valinn í dag
Átta milljónir kjósenda i Alsir munu
ganga að kjörborði i dag og, ef allt fer
eins og áætlað er, staðfesta eftirmann
Houri Boumedienne, hins látna forsætis-
ráðherra landsins. Heitir hann Chadli
Benjedid fjörutiu og niu ára að aldri.
Hann var valinn sem frambjóðandi
Þjóðlega frelsisflokksins, eina leyfða
stjórnmálaflokksins i Alsír hinn 31.
janúar siðastliðinn. Afsalaði Benjedid
sér þá öllum titlum sem hann hafði i her
landsins samkvæmt alsirskri hefð.
Kosningaúrslit verða tilkynnt á morg-
un en hinn nýi forseti verður settur
formlega í embætti á þriðjudaginn
kemur.
Bhutto beðið
griða
Hæstiréttur í Pakistan staðfesti
dauðadóm yfir Bhutto fyrrverandi for-
sætisráðherra landsins í gær. Rikis-
stjórnir margra landa hafa beðið honum
vægðar. Má þar meðal annars nefna,
Carter Bandaríkjaforseta, Tyrkland,
Bretland. Ástralíu, Svíþjóð, Noregi,
Danmörku og Holland. Indira Gandhi,
fyrrverandi forsætisráðherra Indlands,
hefur einnig lýst andstöðu sinni við liflát
þessa fyrrum fjandmanns sins.
r
Atta mánaða
lézt úr kulda
Átta mánaða gamalt stúlkubarn
fannst i gær dáið úr kulda i húsi einu í
New York. Að sögn lögreglunnar hafði
verið lokað fyrir upphitun hússins í
október siðastliðnum vegna ógreidds
reiknings. Bróóir stúlkunnar, tveggja ára
gamall, var fluttur á sjúkrahús illa
haldinn af kulda.
Leka fyrsti
berst gegn
kommum
í Albaníu
Leka fyrsti sjálfskipaður konungur
Albaniu tilkynnti i gær að hann ætlaði
að dveljast enn um hrið i Ródesíu, en
flytja sig siðan uni set eftir um það bil
tvo mánuði. 1 fylgdarliði hans mun
vera eiginkona hans og fjórtán líf-
verðir. Konungurinn landlausí sagðist
mundu halda áfram baráttu sinni gegn
kommúnistastjóminni í Tirana
höfuðborg Albaniu.
Svíþjóð:
Sendimanni
íraks sleppt
urhaldi
Yfirvöld í Sviþjóð hafa sleppt,
iröskum sendimanni úr haldi en hann'
var handtekinn á sunnudaginn var, þeg-
ar hann var að taka á móti leyniskjölum.
Hann mun ekki verða ákærður í Svíþjóð
en verður visað úr landi.
Á myndröðinni sést hvernig málin þró-
uðust frá þvi að undirhúningur maga-
lendingarinnar hófst og þar til flugvél-
in lá kyrr á vellinum.
Iran:
Stjóm Barzargan
tilkynnt í dag
Allt er enn óljóst um valdahlutföllin
milli hinna tveggja forsætisráðherra
landsins, Baktiars, sem keisarinn skip-
aði og virðist njóta stuðnings hers
landsins, og Barzargan þess, sem skip-
aður hefur verið af Khomeiny trúar-
leiðtoga. Sá síðarnefndi hefur sagt að
verið geti að hann tilkynni um ráð
herra I stjórn sinni í dag. Á morgun
ráðgera stuðningsmenn Khomeinys
mikla fjöldafundi um allt Iran til að
sýna stuðning fólks við hinn nýja for-
sætisráðherra.
Baktiar forsætisráðherra, sem hlaut
traust þings landsins við valdatökuna,
tilkynnti í gær að hann mundi ekki
segja af sér embætti nema þingið lýsti
vantrausti á stjórn hans. Hann sagðist
heldur ekki mundu aðhafast neitt gegn
Barzargan forsætisráðherra Kho-
meinys nema hann bryti eitthvað gegn
stjómarskrá landsins.
Mikið er rætt um hugsanlega mála-
miðlun í deilunum í Íran en allt er þó
mjög óljóst í þeim efnum. Búizt er við
að i stjórn Barzargan verði ýmsir
þekktir andstæðingar keisarans og auk
þess tveir eða þrir fyrrverandi hers-
höfðingjar.
Ljóst er að her landsins mun hafa
mikið að segja er málum verður skipað
þar við stjórn landsins og i gær flugu
herþotur og þyrlur yfir mannfjöldan-
um, sem safnazt hafði saman i
Teheran til að fagna komu Kho-
meinys. Er herinn talinn hafa verið að
sýna mátt sinn og megin.
Fokker nauðlenti í Osló:
„ALLAN TIMANN VISS
UM AÐ NAUÐLENDINGIN
GENGIVEL
■ ■ — sagði f lugstjóri vélarinnar, sem telur
7 7 Fokkerinn eina beztu vél sem hefur
verið smíðuð
Fokker Friendship flugvél norska
flugfélagsins Braathens SAFE varð að
nauðlenda á Fornebu flugvelli i Osló I
fyrri viku og tókst nauðlendingin vel.
Með vélinni voru 17 farþegar og
þriggja manna áhöfn.
Þegar eftir flugtak kom í ljós bilun í
hjólabúnaði vélarinnar og var ekki
hægt að ná hjólunum alveg upp i læsta
stöðu. Þá var heldur ekki hægt að
koma þeim niður aftur svo vel væri.
Vélin var í áætlunarflugi til Röros og
Þrándheims og var þegar í stað hætt
við ferðina og flogið yfir í u.þ.b. þrjá
tíma til þess að eyða eldsneyti.
Aðalflugbraut Fornebuflugvallar
var undirbúin fyrir nauðlendingu
vélarinnar með froðu og fjöldi sjúkra-
bíla og slökkvibíla tóku sér stöðu með-
fram brautinni er vélin kom inn til
lendingar.
Vélin kom niður með hjólin niðri,
en skömmu eftir að hún snerti braut-
ina lét hægra hjólastellið undan og vél-
in rann til vinstri á maganum, en
stöðvaðist skömmu siðar.
Eftir nauðlendinguna sagði flug-
stjórinn að hann hefði allan tímann
verið viss um að nauðlendingin gengi
vel. „Fokker Friendship eru einhverj-
ar beztu flugvélar sem hafa verið smíð-
aðar,” sagði hann, „og sprengihætta
við nauðlendingu i algeru lágmarki.
Bensíntankar vélarinnar eru i vængj-
unum en vélin er háþekja og engir
bensintankar eru i skrokknum.”
Hótel Akureyri
Sími 96-22525.
HÓTEL
AKUREYRI
hefur opnað eftir endurbæt-
ur.
Munið okkar lága verð.
Herbergi frá kr. 3.825 pr.
nótt, hópafsláttur. Verið
velkomin.
Stjórnunarfélag íslands
AÐALFUNDUR
Stjómunarfélags íslands
verður haldinn að Hótel Sögu (Bláa sal) fimmtu-
daginn 8. febrúar n.k. og hefst kl. 12:15.
Dagskrá:
1. Venjuieg aðalfundarstörf
2. önrtur mál
Að loknum aðalf undarstörf um
mun Tómas Árnason fjár-
málaréðherra f lytja erindi um
„Áhrif efnahagsráðstafana
rikisstjórnar á stjórnun opin-
berra fyrirtækja og einkafyr-
irtækja".
Vinsamlegast tilkynníð þátttöku á skrifstofu
Stjórnunarfélagsins í síma 82930.