Dagblaðið - 07.02.1979, Blaðsíða 24
TN
C
Taugaspennan aukin í ákvæðisvinnu f iskiðnaðarkvenna:
)
REFSIBONUS ER
NÚ ÞAÐ NÝJASTA
— f iskiðnaðarkonur á Akranesi mótmæla
Fiskiðnaðarkonur á Akranesi
samþykktu á fundi sínum um helgina
að mótmæla beitingu svonefnds
refsibónuss, sem a.m.k. eitt frystihús
á staðnum hefur tekið upp og
konurnar líta á sem enn aukna spennu
i ákvæðisvinnunni. Fleiri hús fyrir-
huga þaðsama.
í ákvæðisvinnunni fá konurnar
greitt eftir afköstum. Upp á siðkastið,
eða eftir að gallaðra íslenzkra fiskaf-
urða varð vart á Bandaríkjamarkaði,
hefur gæðaeftirlit verið stórhert í
mörgum frystihúsum.
Gallarnir eru gjarnan raktir til fisk-
verkunarkvennanna án tillits til hvaða
hráefni þær fá til úrvinnslu. T.d. er
gjarnan mikill hringormur í línufiski
af grunnslóð, sem kostar mikla og ná-
kvæma hreinsun. Þá getur háefnið
stundum orðið helzt til gamalt i mikl-
um aflahrotum þegar illa hefst undan
o.s.frv.
Þegar galla verður vart í afurðum
einhverrar konu ber henni að endur-
vinna hina aðfinnsluverðu vöru og
kemur það að sjálfsögðu niður á heild-
arafköstum hennar og tekjum þann
daginn.
Komi slíkt fyrir þrjá daga í röð, fær
konan ekki að vinna bónusvinnu
fjórða daginn og er það nefnt
refsibónus.
Að sögn formanns kvennadeildar
Verkalýðsfélagsins á Akranesi, Her-
dísar Ólafsdóttur, er henni ekki
kunnugt um að slíku sé beitt í stærri
frystihúsum annars staðar á landinu.
Telur hún ekki óeðlilegt að teknar
verði upp viðræður um breytilegar
timaákvarðanir í ákvæðisvinnu með
tilliti til ástands hráefnis hverju sinni.
Vinnur hún nú að því að koma slíkum
viðræðum á viö rekendur
frystihúsanna ef ekki verður fallið frá
þessu strax.
-GS.
Tæpir þrír milljarðar
á nafnlausum
bankabókum:
„Varla mið-
stöð neðan-
jarðarhag-
kerfisins”
— segir Svavar
Gestsson
„Þessi könnun var framkvæmd
af starfsmönnum bankanna sjálfra
en ekki bankaeftirlitsins og því má
segja að á henni sé dálitill fyrir-
vari,” sagði Svavar Gestsson við-
skiptaráðherra í viðtali við Dag-
blaðið í morgun varðandi könnun
á innstæðum nafnlausra banka-
bóka i innlánsstofnunum landsins.
Komið hefur i Ijós, að innstæðurn-
ar nema 2.799 milljónum króna og
eru bækurnar7.917 talsins.
„Við erum að kanna hvort
reglugerð varðandi þessar bækur
haldi eða hvort setja þurfi sérstök
lög um bækur þessar,” sagði
Svavar ennfremur. „Ég vil hins
vegar segja það, að ég hef ekki
mikla trú á þvi að þarna sé mið-
stöð neðanjarðarhagkerfisins að
finna.”
- HP
Hafskipsmálið:
Yfirheyrslur
enn í gangi
Yfirheyrslur í svonefndu Haf-
skipsmáli eru enn í fullum gangi að
sögn Erlu Jónsdóttur, deildarstjóra
í Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Eins og DB skýrði frá sökuðu
stjórnarmenn fyrirtækisins
stjórnarformanninn um stórfellt
fjármálamisferli innan fyrirtækis-
ins og sat hann í liðlega mánaðar
gæzluvarðhaldi.
Þá voru m.a. stjórnarmenn Haf-
skips yfirheyrðir. Það eru þó ekki
þeir sem eru I yfirheyrslum þessa
dagana. Hins vegar vildi Erla ekki
tjá sig um hvaða aðila væri verið
að yfirheyra nú, þar sem rann-
sóknin er ekki komin á lokastig.
Stjórnarformaðurinn lét að því
liggja i viðtali við DB að loknu
gæzluvarðhaldi að hinir stjórnar-
mennirnir hefðu flutt einhverja
peninga úr landi undir yfirskini
Hafskips. Þess vegna hefur rann-
sóknarlögreglan nú fengið afrit af
öllum gjaldeyrisyfirfærslum fyrir-
tækisins sl. ár. Ekki fást enn upp-
lýsingar um hvort afritin hafa
sannað eða afsannað aðdróttanir
stjórnarformannsins. . GS
ENGA FREKJU, GOÐI!
Það er eins og jeppanum mislíki stórnm pústrarnir sem strætó hefur veitt honum á hinum hálu og
mjóu götum borgarinnar. Enga frekju, góði, gæti hann hafa sagt, ef hann mætti mæla, Willysinn að
tarna. Því miður hafa skilyrðin til aksturs að undanförnu verið einstaklega erfið, og sjón sem þessi
allt of algeng. Árangurinn er tug- og hundruð þúsunda fjárútlát fyrir hina ólukkulegu bíleigendur
sem í vandræðum lenda.
DB-mynd Hörður
( BæjarráðsfuHtrúi AlþýðuflokksinsíKópavogi: J
„TEK UNDIR BÓKUN
FULLTRÚA SJÁLFS-
STÆÐISFLOKKSINS”
—■ um heimildarleysi formanns bæjarráðs um ráðstöf un
olfumalarinnar
Bæjarráð Kópavogs hélt vikulegan
fund sinn i gær, þar sem m.a. var fjallað
frekar um Olíumalarmálið og bókun
Richards Björgvinssonar frá fyrri bæjar-
ráðsfundi, þar sem Richard telur að for-
maður bæjarráðs, Björn Ólafsson, hafi
farið freklega út fyrir valdsvið sitt, er
hann i samráði við nokkra starfsmenn
bæjarins lánaði Olíumöl hf. rúmlega
1700 tonn af olíumöl I eigu Kópavogs-
bæjar.
1 viðtali við Guðmund Oddsson
bæjarfulltrúa Alþýðuflokksins i morgun
kom fram að á fundinum i gæriók hann
undir bókun Richards, þar sem talað er
um heimildarlausa ráðstöfun á eigum
bæjarins. Hann benti þó á að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði verið í. meiri-
hlutaaðstöðu í Kópavogi undanfarin 8
ár og þá hefði verið ástæða til að kanna
málefni Olíumalar og samskipti við fyrir-
tækið.
Guðmundur sagðist fagna því að
hreyfing væri komin á málið, það væri
þá ekki hætt við umfjöllun um það.
Hann sagði þó að erfitt hefði verið að
ræða málefni Olíumalar hf. og
olíumalarlánið á fundinum i gær þar
sem hvorki formaður bæjarráðs, né
bæjarstjóri hefðu setið fundinn.
Richard Björgvinsson sagði í morgun
að á bæjarráðsfundinum í gær hefði
hann bókað leiðréttingu á meðferð talna
sem formaður bæjarráðs hefði viðhaft i
Dagblaðinu. Þá vildi Richard einnig
koma því að að Dagblaðið hefði ekki átt
viðtal við hann i fyrradag heldur hefði
blaðið vitnað beint i bókun frá bæjar-
ráðsfundi.
-JH.
frjálst, úháð daghlað
MIÐVIKUDAGUR 7. FEB. 1979.
Bæjarstjóramálið
íEyjum:
Sigfinnur
sýknaður
Fyrrverandi bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum, Sigfinnur Sigurðs-
son, var í gær sýknaður í sakadómi
Reykjavíkur af ákærum um mis-
ferli í starfi sinu í Eyjum.
Sigfinnur tók við bæjarstjóra-
starfinu í ágúst 1975 en fór frá
skömmu síðar eftir að upp úr sauð
með honum og bæjarstjórn.
Nokkrir bæjarfulltrúanna kærðu
Sigfinn síðar fyrir meint misferli i
starfi.
Að rannsókn lokinni var gefin
út opinber ákæra vegna tveggja
atriða i kæru bæjarfulltrúanna —
ætlaðra ofgreiddra launa Sigfinns
til sjálfs sín og ætiaðrar misnotk-
unar á fé bæjarsjóðs til leiguflugs i
einkaerindum.
Haraldur Henrýsson, sakadóm-
ari, sem kvað upp dóminn, komst
að þeirri niðurstöðu að ekki væri
sannað að Sigfinnur hefði ætlað að
auðgast á kostnað bæjarsjóðs hvað
varðar fyrra ákæruefnið, og að
ekki hafi verið sannað að flugferð-
in hafi verið farin í einkaerindum
bæjarstjórans.
ÓV
Hærra verð
til íslend-
inga en til
varnar-
liðsins
Hljómflutningstæki eru seld
hærra verði til umboðsmanna
framleiðslufyrirtækja á íslandi
heldur en sams konar tæki eru t.d.
seld til verzlunar varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli.
DB veit um eitt staðfest dæmi
um slík mismunandi verð á sömu
tækjum frá sama framleiðslufyrir-
tæki og ætla má að sama gildi um
fleiri gerðir slíkra tækja. Það mun
viðtekin regla erlendra fyrirtækja
að ákveða sölverð sitt eftir mark-
aðsástæðum á hinum ýmsu stöð-
um en ekki að selja framleiðsluvör-
urnar allar með sömu prósentu-
álagningu.
Þegar sá innflytjandi sem í hlut
á í áðurnefndu staðfestu dæmi
innti framleiðandann eftir
ástæðum fyrir lægra verði til
varnarliðsins fékk hann það svar,
að miðstýrð innkaup væru til allra
verzlana á vegum Bandarikjahers.
Þar væri samkeppni hörð og því
boðið lægra verð en gerist á al-
mennum mörkuðum. Engu hefur
verið hægt að breyta í þessum efn-
um.
- ASt.
/ís<ðÞad'.x
^Kaupio
TÖLVUR
>G T.öl
BANKASTRÆTI8