Dagblaðið - 07.02.1979, Síða 13
12
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRUAR 1979.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 1979.
13
Iþróttir
Blikarnir mæta
Víkingi að Varmá
t kvöld leika Breiöablik og Víkingur einn af 16 liöa
úrslitaleikjum í Bikarkeppni HSÍ. Á undan keppa lið
úr 5. flokkum sömu félaga vináttuleik. Leikirnir veröa
aö Varmá 1 Mosfellssveit og hefst sá fyrri kl. 20.30.
Vafalaust munu flestir líta á bikarleik þessara
félaga sem leik kattarins aö músinni, enda staöa karla-
flokka þeirra æði ólik í deildakeppni íslandsmötsins
enn sem komiö er og lið Víkings núverandi bikarmeist-
ari. Kornungt liö BreiöabUks meö flesta leikmcnn sína
aöeins á ööru ári í meistaraflokki hefur þó sVnt, að þaö
getur leikiö góöan handknattleik og barizt. Liöiö befur
verið 1 öldudal nú undanfariö, en samt cr ekki að
vita... ekki sizt ef þaö fengi viðUka stuðning frá
áhorfendum og Uö Víkings nýtur, en stuðningsfólk
Breiðabliks hefur hingað til aö mestu leyti látiö hand-
knattleikslið félagsins 1 friði!
18 voru með
níu rétta
Sl. laugardag tókst enskum i fyrsta sinn á þessu ári
að leika svo til alla leiki 1. deildar samkvæmt leikja-
skrá. Reyndist því ekki nauðsynlegt aö taka fram ten-
inginn til þess aö „búa til” réttu getraunaröðina. Frá
þvi i dcsember hefur oröið aö fresta 295 knattspyrnu-
leikjum 1 Englandi og cr fyrirsjáanlegt, aö leiktima-
bilið framlengist eitthvað fram eftir maimánuði I vor,
en slikt var gert vorið 1963, er frestað haföi veriö 363
leikjum. Sem dæmi um þrengslin og erfiðleikana hjá
enskum, er leikurinn Lecds — WBA, sem fram átti aö
fara 1 4. umferð bikarkeppninnar hinn 26. janúar, en
var frestað vegna fannkomu. Liðin gátu ekki leikiö i
vikunni á eftir, vegna undanúrsUta deildabikarkeppn-
innar, þau geta ckki leikið 1 þessari viku þar sem bæöi
eiga leik I Evrópubikarkeppninni, og er leikur þeirra
nú ákveðinn 12. febr. en 17. febrúar á síöan sigurveg-
arinn að leika i 5. umferðinni.
Í 24. leikviku komu fram 18 raöir með 9 réttum og
var vinningur fyrir hverja kr. 47.500, með 8 rétta voru
234 raðir og vinningur fyrir hverja kr. 1.500.
Næsti seðill litur þannig út:
Arsenal — Middlesbro
Birmingham — Leeds
Bolton — Liverpool
Coventry — Tottenham
Derby — Norwich
Everton — Bristol City
I pswich—Southampton
Manch. City — Manch. Utd.
Nottm. For. — Aston Villa
QPR— Wolves
WBA — Chelsea
C. Palacc — Stoke
Youri llitshev
kominn í slaginn
Youri Ilitschev, þjálfari islenzka landsliðsins og
Víkings, kom til landsins i gærkvöld. Hann mun þegar
I vikunni hefja æfingar með Víkingi og verkefnin i
landsleikjum I sumar verða mörg og strembin. Viður-
eignir við mörg fremstu landslið heims, V-Þýzkaland,
Holland, Pólland og A-Þýzkaland. Það verður þvi í
nógu að snúast hjá Youri og honum ætti ekki að leið-
ast verkefnaieysi eins og siöastliðið sumar — verkefn-
in hjá landsliðinu og Vikingi verða næg.
Unglingameistara-
mót í badminton
Unglingameistaramót ísiands í badminton fer fram
um næstu helgi. Mótið verður haldið 1 fþróttahúsinu á
Akranesi, og hefst það með setningarathöfn kl. 12 á
laugardag. Á sunnudag kl. 10 árdegis verða undanúr-
slit i einliðaleik, en kl. 14 hefjast úrsiitaleikirnir.
Unglingameistaramótið er ætið með stærstu mótum
I hadminton, og svo er lika raunin á nú. Þátttakendur
verða um 100, frá TBR, Val, KR, Akranesi, Garðabæ,
Hafnarflrði og Siglufirði.
Á undanförnum árum hafa TBR-ingar og Akurnes-
ingar sigraö I flestum flokkanna, og við þvi er cinnig
að búast að svo verði nú. Má reikna með mörgum
spennandi leikjum milli Skagamanna og Reykvikinga
um helgina. Siglfirðingar koma með stóran hóp kepp-
enda á mótið. Litið cr vitað um styrk þcirra, en sú var
tfðin, að þeir sigruðu I næstum öllum flokkum á ungl-
ingameistaramótum. Starfsemin þar nyrðra hefur
verið I nokkurri lægð að undanförnu, en með nýjum
þjálfara er við þvi að búast, að þeir fari að „rétta úr
kútnum”.
Það verður vafalaust mikið um að vera á Akranesi
um helgina, þegar allur unglingahópurinn sækir
staðinn heim. Bæjarbúar ættu ekki að láta þetta mót
fara framhjá sér, heldur leggja leið sina i iþróttahúsið,
og kynnast þessarí fögru iþrótt.
Iþróttir
Iþróttír
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Sþróttir
Iþróttir
HK mætti ekki
— og leikur Vals og HK því f lautaður af
— 2ódýr stigtilVals
Nýliðar HK mættu ekki til leiks við
meistara Vals í 1. deild fslandsmótsins i
gærkvöld. Þannig vildu þeir mótmæia
vinnubrögðum mótanefndar HSÍ, eins
og þeir orða það. Valsmenn fengu því tvö
ódýr stig og liklegt að HK verði dæmdur
leikurinn tapaður og refsað. Upphaflega
átti viðureign HK og Vals að fara fram
21. desember cn var þá frestað.
„Leikur HK og Vals var settur á
formlega siðastliðinn miðvikudag.
Ástæða þess að ekki var hægt að ganga
endanlega frá þessu fyrr var, að KKÍ
hafði lagt fram beiðni um aö leika í
kvöld, KR — UMFN. Sá leikur fór fram
í gær og þvi var ákveðið á miðvikudag
Ósigrar
íWales
— íborðtennis
tslenzka landsliðinu I borðtennis hefur
gengið heldur illa í C-riðli
Evrópukeppninnar. íslenzka liðió hefur
tapað öllum sínum leikjum. Eins og
skýrt var frá I DB í gær töpuðust leikir
gegn Noregi, 7—0, síðan gegn Jersey
4—3, þá Guernsey 5—2. Og gegn Wales
átti ísland aldrei möguleika, tap 0—7.
Það sama var uppi á teningnum gegn
Sviss — ósigur 0—7.
Meistarar ÍS
mæta Þrótti
Einn af úrslitaleikjum fslandsmótsins i
blaki fer fram i kvöld i Hagaskóla. Það
er viðureign fslandsmeistara ÍS og
Þróttara. Meistarar ÍS verða að sigra,
vilji þeir halda i von um meistaratign en
sigri Þróttur þýðir það i raun að meist-
aratign væri komin inn við Sæviðarsund.
Peter Shilton — settur út.
að setja viðureign HK og Vals endan-
lega á í kvöld,” sagði Ólafur A. Jónsson,
formaður mótanefndar HSÍ í viðtali við
DB. „Valsmenn fengu að vita formlega
um leikinn með hálfs annars sólarhrings
fyrirvara en HK sólarhring þar áður.
Annars er það ekki aðalatriðið, sam-
kvæmt reglum HSÍ eru engin ákvæði
um hve langan fyrirvara beri aö hafa og
framkoma HK er með öllu óafsakan-
leg,” sagði Ólafur ennfremur.
„Ég fór á skrifstofu HSÍ fyrir um
þremur vikum að mig minnir og spurðist
fyrir um hvenær þessi frestaði leikur
yrði. Ég vildi jú undirbúa lið mitt en að
formlega hafi verið tilkynnt var ekki.
Það kom svo á mánudag,” sagði Hilmar
Björnsson, þjálfari Vals.
Og Jón Pétur Jónsson, landsliðs-
maður Vals, var greinilega ekki hrifinn
að fá ekki leik. „1 fyrra fengum við að
vita með sólarhrings fyrirvara um að við
ættum að leika viö Hauka — og þá lék-
um við,” hafði hann um málið að segja
og brá sér á æfingu í staðinn.
„Þetta er leiðindamál frá okkar bæjar-
dyrum séð. Við mættum ekki til leiks I
gær og vildum við i HK mótmæla
þannig klaufaskap formanns mótanefnd-
ar HSÍ, Ólafs A. Jónssonar, útaf leik
Vals og HK. Þar fékk annað félagið að
vita um leikinn með 10—12 daga fyrir-
vara af leiknum en við höfðum enga
staðfestingu fengið fyrr en á sunnudag,
rétt fyrir klukkan 12 á hádegi. Þessum
vinnubrögðum mótmælum við HK-
menn og álítum að þar sem við erum í 1.
deild að iþróttafélögum sé ekki mismun-
að á þennan hátt,” sagði Þorvarður Áki
Eiríksson, formaður HK, I viðtali við
DB.
„Samkvæmt viðtali við Þórð Sigurðs-
son, formann Handknattleiksdeildar
Vals, staðfesti hann það við mig á mánu-
dag að þjálfari Vals, Hilmar Björnsson,
hefði vitað þetta fyrir 10—12 dögum.
Enda vissu allir leikmenn Vals um leik-
inn á sunnudag, er þeir voru að fara til
Vestmannaeyja og áttu tal við Karl Jó-
hannsson. Hann fór með sömu flugvél
til að dæma leik Týs og Vals. Samt full-
yrðir Ólafur A. Jónsson það, að Val hafi
ekki verið tilkynnt þetta fyrr en á mánu-
dag. Þarna er staðhæfing gegn staðhæf-
ingu. Svona vinnubrögð sættum við
HK-menn okkur ekki við og mótmælum
svona geðþóttaákvörðunum formanns
mótanefndar. Enda er mælirinn orðinn
fullur hjá fleiri félögum en okkur. Við
leggjum eindregið til, að formaður móta-
nefndar athugi sinn gang betur, áður en
blaðran springur að fullu og púðrið
verður meira en orðið er,” sagði for-
maður HK, Þorvarður Áki Eiríksson,
ennfremur.
I
í skotfæri og Ármann skoraði eitt af 10 mörkum sínum i sigrinum gegn KR.
DB-mynd Bjarnleifur
Ármann kaffærði Ægi
— ísundknattleiknum í Reykjavíkurmótinu, sigraði 10-6
Þaö var hart barizt, og mikið kaffært í
Sundhöll Reykjavíkur i gærkvöld er
Ármann og Ægir mættust í Reykja-
víkurmötinu í sundknattleik. Ægir
sigraði KR í fyrsta leik mótsins og þvi
búizt við harðri baráttu.
En það fór á annan veg — Ármann
varð hinn öruggi sigurvegari, sigraði 10-
6. Það var aðeins í upphafi að jafnræði
var með liðunum en fyrsta lota fór 2-1
Ármanni í vil. Ármann jók muninn i
þeirri næstu, vann hana 4-2 og komst
því í 6-3, síðan 8-3 en lokatölur urðu 10-
6. Ármenningar standa nú með pálm-
ann í höndunum en aðeins þrjú lið taka
þátt i meistaramótinu, eins og raunar
áður.
Yfirburðir Ægis
- á unglingameistaramótinu í sundi
— Ólaf ur Einarsson hef ur sett tvö
sveinamet
Bjarni Björnsson náði ágætum tíma,
miðaö við árstima á innanfélagsmóti
Ægis í Sundhöllinni i gær. Hann synti
400 metra skriösund karla á 4:19.3. t
þessu sundi setti Ólafur Einarsson, Ægi
sveinamet, 12 ára og yngri, en hann synti
á 5:22.7. Gamla metið átti Eðvard Þ.
Ron Greenwood setti
Shilton út í kuldann
— Englendingar mæta N-írum á Wembley í kvöld
„N-írar eru í efsta sæti riðilsins og
hljóta þvi að teljast sigurstranglcgri,”
sagði Ron Greenwood, framkvæmda-
stjóri enska iandsliösins við enska
blaðamenn þegar hann tilkynnti val sitt
á enska landsliðinu er í kvöld mætir N-
trum í Evrópukeppni landsliða á
Wembley i Lundúnum.
Ron Greenwood tók greinilega
reynsluna fram yfir tilraunir undan-
farinna leikja. Þannig fengu lcikm. eins
og Laurie Cunningham og Viv Ander-
son, blökkumennirnir ekki að reyna sig.
Eini leikmaðurinn er undanfarið hefur
verið fastur í enska liðinu en ekki verður
með er Ray Wilkins. Hann hefur átt við
meiðsli að stríða í vetur, en er nú heill.
Tony Currie Leeds United tekur stöðu
hans.
Þá vekur það mikla athygli að mark-
vörðurinn snjalli Peter Shilton er ekki
valinn. Greenwood tekur Ray Clemence
fram yfir hann en Shilton varði snilldar-
lega í leik sínum gegn Tékkum og þótti þá
hafa sannað að honum og engum öðrum
en honum bæri peysa númer 1 í enska
landsliðinu.
En enska landsliðið er skipað: Ray
Clemence Liverpool, Phil Neal Liver-
pool, Emlyn Hughes Liverpool, Dave
Watson Manch. City, Mick Mills
Ipswich, Trevor Brooking West Ham,
Kevin Keegan Hamburger, Tony Currie
Leeds, Steve Coppell Manch. Utd., Bob
Latchford Everton, Peter Bames
Manch. City.
Ekki er þó alveg vísr að Latchford
leiki, hann á við minniháttar meiðsli að
stríða en ef hann leikur ekki þá tekur
Tony Woodcock stöðu hans. Ýmsir
leikmanna Greenwood hafa verið
gagnrýndir undanfarið, og val
Greenwood á þeim hefur verið gagnrýnt
óspart. Þannig er enski fyrirliðinn,
Emlyn Hughes stöðugt undir gagnrýni.
Honum hefur undanfarið gengið illa að
komast í lið Liverpool — verið vara-
maður. Þó hefur hann leikið síðustu leiki
vegna meiðsla Phil Thompson og þar
einmitt er ástæðan fyrir því að Hughes
er aftur i liðinu. Greenwood hefði
sennilega valið Thompson. Þá hafa þeir
átt fremur daufa leiki með liðum sínum,
Steve Coppell og Peter Barnes. Búizt var
við að Barnes dytti út — þangað til á
laugardag í Lundúnum gegn
Tottenham, en þá var hann í banastuði
og hvað eftir annað tætti hann vörn
Tottenham í sig.
Kevin Keegan sagði á blaðamanna-
fundi að hann byggist ekki við að leika í
Englandi aftur. „Eina liðið sem 'ég færi
til væri Liverpool. Þeir eru beztir,” sagði
Keegan.
N-írska liðið er eingöngu skipað leik-
mönnum úr 1. deild og er það i fyrsta
sinn i mörg ár að líkt hefur átt sér stað.
En liðið er, Pat Jennings Arsenal, Pat
Rice Arsenal, Jimmy Nicholl Manch.
Utd., Chris Nicholl Southampton,
Sammy Nelson Arsenal, David Mc-
Creery Manch. Utd., Sammy Mcllroy
Manch. Utd., Martin O’Neill Nottm.
Forest, Terry Cochrane Middles-
borough, Gerry Armstrong Tottenham
og Billy Caskey Derby.
Eövardsson, ÍBK en það var 5:26.8 og
setti hann það I haust.
1 400 metra skriðsundi kvenna sigraði
Þórunn Alfreðsdóttir, Ægi á 4:51.1.
Unglingamcistaramót Reykjavíkur
fór nýlega fram og Ólafur Einarsson,
Ægi setti þá sveinamet. Hann synti 100
metra skriðsund á 1:08.9. Hann bætti
þar með einnig gamalt met Edvards en
það var 1:11.2.
Ægir hafði gifurlega mikla yfirburði á
meistaramótinu en það var haldið í 12.
sinn og ávallt hefur Ægir sigrað.
En úrslit í stigakeppni mótsins urðu:
Ægir 285,5
Ármann 56.5
KR 24
— Ólafur Einarsson eftir metsundið I
Höllinni i gær.
DB-mynd Bjarnleifur.
ENSKUR SIGUR
í SWANSEA
- í landsleik u-21 árs. Stoke að hlið
Brightoní2. deild
Englendingar og Walesbúar mættust I
landsleik undir-21 árs I Swansea I gær-
kvöld. Úrhellisrigning var og völlurinn
svað — mjög erfitt að leika knattspyrnu.
Enda var knattspyrnan er liðin sýndu
ákaflega léleg. Enska liðið sigraði 1-0.
Glen Hoddle skoraði eina mark leiksins I
siðari hálfleik eftir hroðaleg mistök
varnarmanna Wales.
1 2. deild á Englandi þokaði Stoke
City sér að hlið Brighton í efsta sæti 2.
deildar með því að ná jafntefli, 0-0, gegn
Luton. Fimm leikjum var frestaö í gær-
kvöld, vegna snjóa og frosts.
En nokkrir leikir fóru fram og úrslit
urðu: 2. deild Luton — Stoke 0-0
Sheff. United — Fulham 1-1
3. deild
Rotherham — Southend 2-1
Walsall — Blackpool 2-1
4. deild
Aldershot — Reading 2-2
Bournemouth — Port Vale 3-1
Crewe — Hereford 0-0
Sigurður snjall meðOlympia
— Sigurður Sveinsson, Þróttarinn ung\, vekur athygli í Svíþjóð
Sigurður Sveinsson, Þróttarinn ungi
er hélt til Sviþjóðar í haust, gerir það
gott með liöi sínu, Olympia. Sigurður
hefur vakið athygli fyrir þrumuskot sín.
Staða Olympia hefur batnað heldur, þó
hún sé alvarleg á botni Allsvenskan.
Þegar Olympia tapaði nýlega fyrir
Ystad fékk Sigurður mjög góða dóma.
Sagt að liðið hafi tekið framförum frá í
haust. Og sænska stórblaðið Dagens
Nyheter segir: „Sigurður Sveinsson er
liðinu mikill styrkur. Það sýndi hann
glöggt gegn Ystad. Vissulega varð Bo
Johansson enn markhæstur leikmanna
Olympia með sín átta mörk, 3 víti, en
það var Sveinsson sem olli vörn Ystad
mestum vandræðum”. Olympia byrjaði
mjög vel gegn Ystad, komst í 3—0 og
síðan 5—1 en Ystad náði aðjafna, 7—7
og komst síðan yfir 11—8 fyrir leikhlé.
Það var öruggúr sigur Ystád er varð
uppi á teningnum, 25—19. Bo
Johansson skoraði flest mörk Ystad, 8—
3 víti. Sigurður Sveinsson skoraði 6
mörk og voru þessir tveir lang-
markhæstir. Hjá Ystad, en Vikingur sló
einmitt sænska liðið út úr
Evrópukeppni bikarhafa, var Lars
Erikson markhæstur með 10 mörk. Basti
Rasmussen skoraði 6 mörk. Áhorfendur
I Ystad voru 1329.
En áður hafði Olympia náð að vinna
sinn fyrsta sigur í Allsvenskan. Það var
gegn Hellas, 21 — 18, 11—8 í leikhléi. Þá
voru þeir Bo Johansson og Sigurður
Sveinsson markhæstir. Bo skoraði 7
mörk, 2 víti, en Sigurður 5 mörk.
Greinilegt að Olympia styrkist nú og
þrátt fyrir slæma stöðu er von til að
halda sæti í Allsvenskan.
Staðan í Allsvenskan er nú:
Heim 16 13 0 3 393—328 26
Drott 16 II 1 4 392—336 23
YstadsIF 16 10 2 4 362—307 22
LUGI 16 10 1 5 357—314 21
Kristianst. 16 10 1 5 365—326 21
Vikingarna 16 9 2 5 343—329 20
Hellas 16 8 0 8 321—325 16
GUIF 16 7 1 8 345—368 15
Redbergslid 16 7 0 9 309—332 14
AIK 16 2 2 12 311-368 6
Olympia 16 1 2 13 304—366 4
KirunaAIF.16 I 2 13 304—407 4
- 4
6. thl. 41. ár«. S. IVh. 1079
\ tró kr. 650
Vortískan
1979
Sjá viðtal við
tískufrömuð
í New York
Á skíðum í Kítzbiihel
og Kerlingarfjöllum