Dagblaðið - 08.02.1979, Qupperneq 3
íslenzk listasmíð
Hvernig lízt þér á
hugmyndir um
næturútvarp?
Sveinn Sæmundsson, blaöafulltrúi
Flugleiða, skrifar:
Að undanförnu hafa veðurguðirnir
verið harðhentir á okkur lslendingum
og hafa flugið og ferðamálin ekki farið
varhluta af erfiðleikum sem því eru
samfara. Af og til hafa flugvélar i
Norður-Atlantshafsflugi orðið að
fljúga yfir Keflavíkurflugvöll. Flug-
,vélar frá Evrópu hafa ekki komist
heim né heldur frá íslandi á réttum
timum og hér innanlands hefur flug
legið niðri vegna óveðurs dögum
saman til ýmissa staða. Svipaða sögu
má segja frá ýmsum stöðum sem Flug-
leiðir fljúga til erlendis og má nefna að
Luxemborgarflugvöllur hefur óvenju
oft verið lokaður í vetur og flugvélar
félagsins því þurft að leita annað.
Einnig hafa óveður gengið yfir mið-
vesturríki Bandarikjanna og flugvöll-
urinn í Chicago lokast af og til.
Veðrið sem gekk yfir lsland 12. og
13. janúar olli miklum truflunum á
áætlunarfluginu. Þotur sem voru á
leið frá Evrópu til New York og
Chicago um morguninn urðu aö fara
fram hjá lslandi vegna þess að ekki var
hægt að lenda hér. Aðrar þotur sem
áttu að koma ti! landsins frá Kanarí-
eyjum, Kaupmannahöfn og Glasgow
að kvöldi 12. jan. urðu aö stansa er-
Iendis, önnur beið I London, hin I
Glasgow. Innanlands var ekki hægt að
hreyfa vél. í Reykjavík og nágranna-
bæjum var illfært um götur og svo
mun reyndar einnig hafa verið víðar á
landinu. Samkomur féllu niður, leikhús
aflýstu sýningum og svo mætti lengi
telja. Við slíkar aðstæður gæti maður
hugsað sér að Islendingar og reyndar
lallir sem vanir eru ferðalögum skildu
|að hér er um ástand að ræða sem
ihvorki starfsfólk né stjórn Flugleiða
fær við ráðið.
Furðuleg skrif
Skrif tveggja bréfritara í Dagblað-
inu 24. janúar eru þvi næsta furðuleg
hvað þetta atriði áhrærir. Þar eru
starfsfólk og stjórn Flugleiða borin
þungum sökum og vart verða skrif
Auðar Styrkársdóttur skilin öðruvísi
en að stjórnendur félagsins beri
ábyrgð á hinum djúpu vetrarlægðum
og óveðrum og töfum sem af hljótast.
Laugardagsmorguninn 13. janúar
reyndist ekki unnt að iáta þotur frá
Bandaríkjunum lenda á íslandi og
fóru þær því áfram til Luxemborgar
án viðkomu. Tvær þotumar sem áttu
að fara áætlunarflug frá íslandi til
Evrópulanda voru sem fyrr segir í
Bretlandi vegna óveðurs og ófærðar
hér heima. Farþegar sem ætluðu til út-
landa þennan morgun urðu þvi fyrir
töfum. Undir kvöld hafði veðrið
skánað og Slökkvilið Keflavíkurflug-
vallar vann þrekvirki við hreinsun
brauta. Því varð að ráði að freista þess
að láta flugvélamar koma til Kefla-
víkur, en með Akureyri sem varaflug-
völl, og þar var sæmilegt veður. I ráði
var að báðar vélarnar færu utan um
kvöldið ef veður leyfði. Hringt var I
alla farþegana sem skráðir voru til
flugsins, útvegaðir fjallabílar til þess
að flytja farþega milli Reykjavíkur og
Keflavíkur og snjóplógur fenginn til
þess að fara fyrir bilalestinni. Flugvél-
in sem kom frá Glasgow var mun fyrr
á ferðinni og gat lent í Keflavik.
Veðrið batnaði ekki, eins og vonast
hafði verið eftir, heldur hélst svipað.
Tafsamt reyndist að koma flugvélinni
af stað aftur til Kaupmannahafnar og
reyndist ekki unnt fyrr en kl. 23.00 um
kvöldið. Farþegar I báðar vélamar
höfðu verið sendir með bílalestinni
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1979.
Meira
skApa og
HILLUSAMSTÆÐUR
OfJlld
SVEFNBEKKIR
Borðstofusett kr. 399.500.-
• Sófasett • Sófaborð
• Forstofuspeglar • Skrifstofuskrifborð
o. rn.fl.
BERIÐSAMAN
VERÐ
OG GÆDI! Á.GUÐMUMDSSOM HF
Húsgagnaverksmiðja
Skemmuveg 4, Kópavogi — Sími 73100
Mir
Haukur Guðjónsson málari: Mér lízt vel
á þær. Ég hef yfirleitt opið útvarpið
þegar ég er að vinna og það kemur fyrir
að ég vinn fram eftir nóttu. Ég hlusta
ekki á kanann, m.a. vegna þess að hann
spilar alltaf sama lagið.
Björn Bjarman lögfræðingun Mér lízt
ekki illa á þær. Ég hlusta mikið á útvan
en ég sef á næturnar og vaki á dagiu: .
En ég lit á þetta sem þjónustu við þá st
hafa áhuga og getu til að hlusta á |r.,
vm tíma.
Kristin Guðmundsdóttir afgreiðslu-
stúlka: Mér lízt vel á þessar hugmyndir.
Sjálf hlusta ég á útvarp svona þegar ég
get og mundi hlusta eitthvað að nætur-
lagi ef upp á það væri boðið, a.m.k. um
helgar.
Ásdls Kristinsdóttir húsmóðir: Mér lizt
mjög vel á þær. Eflaust mundi ég hlusta
á nóttunni ef ég væri vakandi, a.m.k.
frekaren á kanaútvarpið.
Jóhann Jósepsson afgreiðslumaður: Mér
llzt mjög vel á þessar hugmyndir. Það
væri sannarlega timi til kominn. Ég tel
að það væri mjög gott fyrir fólk sem er i
næturvinnu og að það mundi auðvelda
því vinnuna. Ég hef reynslu af því
sjálfur að slikt kæmi sér vel.
Þórunn Magnúsdóttir leikkona: Mér lizt
alveg ljómandi vel á þær. Ég held að það
sé alltaf eitthvað af fólki sem þarf að
hlusta á næturnar. Sjálf hlusta ég jjó
ekki mikið á útvarn.
suður eftir en þar sem Lundúnavélin
var langt á eftir og óvíst nema hún
þyrfti að fara til Akureyrar ákvað flug-
stjórinn, sem skráður var á það flug,
að fara ekki til Lundúna um kvöldið
heldur bíða morguns. Farþegunum,
sem þá voru komnir suður undir
Hafnarfjörð, var þá snúið við til
Reykjavíkur. í Reykjavík gerði flugaf-
greiðsla Flugleiða allt sem I mannlegu
valdi stóð til þess að aðstoða farþeg-
ana. Fjallabíll var hafður til taks til að
aka þeim heim sem jjess óskuðu,
öðrum var boðin gisting að Hótel
Loftleiðum.
Þegar þetta gerðist var enn ekki vit-
að hvort flugvélin frá London myndi
' lenda í Keflavík eða yrði að leita til
Akureyrar. Brottför var því ekki hægt
að ákveða að sinni. Á ellefta tímanum
um kvöldið þótti sýnt að vélin frá
London myndi geta lent i Keflavík og
Raddir
lesenda
var þá ákveðin ferð til Lundúna kl.
10.00 morguninn eftir. Milli kl. 22.00
og 23.00 um kvöldið hringdi af-
greiðslufólk í uppgefin símanúmer
allra hinna verðandi Lundúnafarþega
og var jseim sem náðist í sagt að farið
yrði frá flugafgreiðslunni kl. 08.00.
Ekki náðist til allra en haldið var
áfram að hringja til fólksins fram eftir
kvöldi og allt fram yfir miðnætti.
Morguninn eftir voru flestir farþeg-
anna mættir kl. 08.00. Ýmsir áttu
samt í erfiðleikum að komast um bæ-
inn og misstu þannig af bílnum og
fyrir þá var settur upp annar bíll kl.
09.00. Því miður náðist ekki samband
við alla farþegana um kvöldið og
harmar félagið það.
Greinarhöfundur þakkar í lokin
starfsfólki Flugleiða fyrir lipurð og
elskulega framkomu. Þarna kveður
við annan tón en fyrr i greininni þar
sem stjórn og starfsfólki er margt
fundið tilforáttu.
Flutningur
okkar atvinna
Það liggur I hlutarins eðli að flutn-
ingaaðili gerir allt sem í mannlegu
valdi stendur til þess að greiða fyrir
farþegum sinum. Afkoma fyrirtækis-
ins, atvinna starfsfólksins og greiðar
samgöngur byggjast á því að flutn-
ingar séu fyrir hendi og farþegar
fluttir. Þvi er það keppikefli okkar sem
'við Flugleiðir störfum að flugið og
flutningamir gangi sem greiðast, að
haldið sé uppi auglýstri þjónustu. Að
farþegar komist leiðar sinnar án tafa.
Stundum taka höfuðskepnurnar af
okkur ráðin eins og gerðist i þessu til-
felli.
Þannig var sem sagt ástandið sem
Auður Styrkársdóttir skrifar um.
Veðrahamur hafði truflað samgöngur.
Flugvélar komust ekki milli landa og
fólk vart milli húsa. „Kóngur vill sigla,
en byr hlýtur að ráða” var einu sinni
sagt. Stjórnendur og annað starfsfólk
Flugleiða harmar þau tilfelli sem far-
þegar félagsins verða fyrir töfum. Enn-
fremur ef mistekst að tilkynna verð-
andi farþegum og öðrum viðskiptavin-
um ófyrirséðar breytingar. Á þvi
biðjum við viðkomandi afsökunar.
Vegna bréfs Þ.B. i sama tölublaði
um sama tilfelli er rétt að taka fram að
algjör misskilningur er að flugstjóri
hafi verið veikur enda engum tilkynnt
um slíkt.
Spurning
dagsins
Dropa
skApa- og
HILLUSAMSTÆÐUR