Dagblaðið - 08.02.1979, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 08.02.1979, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1979. I Iþróttir Iþróttir Iþróttir AXEL HÆTTIR HJA DANKERSEN í VOR — og flyzt þá heim til Islands á ný ef tir f imm ára dvöl í Þýzkalandi Axel Axelsson — kemur heim. „Þaö hefur verið að brjótast 1 mér sið- ustu vikurnar að hætta hjá Dankersen i vor og flytjast á nV heim til tslands. Ég hafði fyrr i vetur ákveðið að vera citt leiktimabil hjá félaginu — en nú hef ég tekiö endanlega ákvörðun. Hætti hjá Dankersen í vor,” sagði Axel Axelsson, landsliðskappinn kunni i handknattleikn- um, þegar DB ræddi við hann i morgun i Minden. „Ég hef lokið námi hér i Vestur- Þýzkalandi — tekið verzlunarpróf — svo það er ekki lengur til fyrirstöðu að ég og fjölskylda mín geti flutt heim á ný. Þeim áfanga er náð — en það, sem gerði útslagið að ég hætti hjá Dankersen er, að eiginkona min, Kristbjörg Magnús- dóttir, hefur ekki atvinnuleyfi i Vestur- Þýzkalandi. Atvinna, sem hún átti aðfá, brást og það er heldur þreytandi hjá henni að vera heima allan daginn með litlu telpuna okkar, þegar ég er i vinn- unni. Hún hefur skiljanlega heimþrá. Við höfum því ákveðið að koma heim. Þetta er ekki svo mikil breyting, þar sem ég ætlaði aðeins að vera eitt leiktímabil áfram hjá Dankersen. Við erum líka að byggja heima á íslandi og það getur verið gott að fylgjast með þeim málum,” sagði Axel. MARTRÖD HJÁ JENNINGS í MARKINORÐUR-ÍRLANDS „Þetta hefur verið handbolti og aftur handbolti síðustu árin, svo ég mun taka mér gott frí frá honum í sumar. Hins vegar er ég ekki nema 27 ára — verð 28 ára 25. júlí í sumar — svo ég geri fast- lega ráð fyrir þvi að ég haldi áfram að leika heima á íslandi. Frí í sumar og svo getur maður farið að huga að þeim mál- um á ný,” sagði Axel. Frá því hefur áður verið skýrt í DB að Ólafur H. Jónsson, félagi Axels hjá Dankersen, mun hætta hjá félaginu í vor og flytjast heim til íslands á ný. Það verður því tilhlökkunarefni að sjá þessa sterku landsliðsmenn klæðast íslenzkum félagsbúningum á ný — og mun örugg- lega lyfta íslenzkum handknattleik eftir nokkra deyfð á innlendum vettvangi síðustu árin. Þeir hafa báðir verið i sviðs- ljósinu í Vestur-Þýzkalandi síðustu árin — Axel i fimm ár, Ólafur í fjögur — og verið hrósað mjög fyrir leik sinn í sterk- ■ustu deildakeppni heims. Urðu Þýzka- landsmeistarar með Dankersen 1977. — England sigraði íra 4-0 í 1. riðli Evrópukeppni landsliða „Þessir leikmenn hafa reynzt mér vel hingað til og sanngjarnt að heiðurinn féll þeim í skaut,” sagði enski landsliðsein- valdurinn Ron Greenwood eftir að lið hans vann góðan sigur á Norður-trlandi i 1. riðli Evrópukeppni landsliða á Wembley-leikvanginum f gærkvöld. Úrslit 4-0. 92 þúsund áhorfendur — eða eins og leyft er á leikvanginum — létu vel 1 sér heyra. Hins vegar var leilkurinn martröð fyrir fyrirliða og markvörð norður-irska liðsins, Pat Jennings. Hann lék sinn 75. landsleik f gær og átti mikla sök á tveimur markanna, sem England skoraði. Auk þess komu félagar hans honum tvivegis til aðstoðar — björguðu á marklfnu frska marksins — en eitt sinn sýndi Arsenal-markvörðurinn hreina töfra, þegar hann varði frá Steve Coppell. í fyrri hálfleik var leikurinn i jafnvægi og fátt benti þá til þess hruns, sem síðar varð hjá liði Danny Blanchflower. Á 22. mín. varði Jennings frá Coppel en þremur min. síðar lék litli kantmaðurinn hjá Manch. Utd. niður allan hægri kant- inn. Gaf vel fyrir markið. Jennings hikaði — var á báðum áttum hvað gera skyldi — og það dugar ekki, þegar Kevin Keegan er nærstaddur. Keegan, sem átti stórsnjallan leik, skallaði í mark. Jenn- ings var mannlegur í þessum leik — þetta var ekki hans dagur, sagði þulur BBC. Írar áttu sin færi. Sammy Mcllroy átti skot i stöng og Ray Clemence var slappur á tauginni í marki Englands í fyrri hálfleik. Urðu á mistök eins og félögum hans i vörninni, Emlyn Hughes og Mick Mills. Hins vegar átti Dave Watson stór- leik sem miðvörður. Fyrstu mín. s.h. gerði enska liðið út um leikinn. Bob Latchford skoraði eftir 30 sek. Peter Barnes splundraði vörn íra. Gaf á Keegan, sem renndi knettin- um til Latchford. Þremur mín. síðar skoraði Watson með skalla eftir horn- spyrnu Trevor Brooking. Á 63. mín. tók Brooking aftur hornspyrnu og Latch- ford skoraði. Fjórða mark hans í Evrópuleikjum Englands — og enska liðið hefur nú skorað 13 mörk í síðustu fjórum landsleikjum sinum. Oft munaði litlu að England yki við markatöluna. David McCreery fékk tækifæri hinum megin en Clemence varði. Var þar mjög heppinn að sögn BBC. Enska liðið lék oft prýðilega i s.h. Keegan snjall — og Coppell, sem lék einn sinn albezta landsleik, og Peter Barnes léku Arsenal-bakverðina Nelson og Rice grátt. Barnes átti þó til að ein- leika um of. Þeir léku báðir mjög utar- lega á köntunum. Þá var Brooking snjall og Watson frábær. Latchford skoraði tvö mörk en leikur hans var ekki tilþrifa- mikill. Vonbrigði með Tony Currie — og Clemence og Hughes voru ekki sann- færandi. Phil Neal hins vegar snjall bak- vörður. Blanchflower gerði tvær breytingar á liði sínu í leiknum. Tók Caskey, Derby, út af og Cochram, Middlesbro, — en I stað þeirra komu Spence, Blackpool, og McGrath, Man. Utd. Báðir hafa leikið lengi I íslenzka lands- liðinu og Axel er sá leikmaður íslands, sem hefur hæst markahlutfall allra ís- lenzkra landsliðsmanna með landslið- inu. Hefur komizt þar fram úr Geir Hallsteinssyni síðustu vikurnar — enda verið drjúgur við að skora. „Ég veit ekki annað en það verði allt í lagi með mig í sambandi við keppnina á Spáni. Ég er tilbúinn i þann slag og vona að Dankersen komizt ekki í neina alvar- lega fallhættu. Það er hið eina, sem gæti breytt Spánarferðinni. Erfitt að standa gegn því ef forráðamenn Dankersen neita mér um fararleyfi — en ég vona að til þess komi ekki,” sagði Axel Axelsson að lokum. Heimsmet Marlics Göhr, Austur-Þýzkalandi, setti nýtt heimsmet I 100 m hlaupi innanhúss á móti i Austur-Berlin I gær. Hljóp á 11.29 sek. Þaö er 7/100 úr sekúndu betra en eldra metið, sem hún átti sjálf. NYTT Nr. 24-38 Kr. 6.985.- FYRIR SNJÓ OG SVELL Nr. 24-38 405 Vatteraðir mittisjakkar með hettu. — Litir: Blátt og svart með rauðum röndum. Stœrðir: 36—48. Fást / öllum he/ztu sportvöruverzlunum landsins. BIKARINN SPORTVÚRUVERZLUN - HAFNARSTRÆT116 SÍMI24520-PÚSTSENDUM 404 Nr. 24-38 Kr. 7.630.- Þróttur steinlá — í blakinu gegn Stúdentum Þrótti tókst ekki vei upp í gær i blakinu, þegar Islands- meistaratitillinn blasti við liðinu. Þróttur steinlá fyrir Stúdent- um í hinum þýðingarmikla leik liðanna i 1. deild Islandsmóts- ins. Tapaði öllum hrinunum í Hagaskóla. Stúdentar léku prýðilega og voru vel að sigrinum komnir. Þrátt fyrir tapið stendur Þróttur vel að vigi í deildinni. Hefur 18 stig að loknum 11 leikjum. Laugdælir hafa 14 stig að loknum 10 leikjum og Stúdentar 12 stig að loknum níu leikjum. í fyrstu lotunni i gær sigraði IS með 15-13, þeirri næstu með 15-10 og lokalotunni iauk með sömu tölu, 15-10 sigri ÍS. 3-0. I 1. deild kvenna vann ÍS Þrótt og i 2. deiid karla vann Breiðablik Fram 3-0. Ömar og co. gegn Harðjöxlum KR! — á afmælismóti KR í Laugardals- höllíkvöld I tilefni 80 ára afmælisKRgengst knattspyrnudeild félagsins fyrir hraðmóti i innanhússknattspyrnu i Laugardalshöll i kvöld. Mótið hefst kl. 18.00 og þar verða þátttakendur flest þau lið, sem taka þátt i 1. deildinni i sumar m.a. íslandsmeist- arar Vals og bikarmeistarar Akraness. Þá mun stjörnulið Ómars Ragnarssonar verða í sviðsljósinu og í liði Ómars eru gamlir landsliðskappar eins og Hermann Gunnarsson og Rúnar Júliusson. Þeir munu leika gegn Harðjöxlunum nafntoguðu úr KR sem hér á árum áður gerðu garðinn frægan hjá KR. Ölafur H. Jónsson — vafi með Spán. Létt hjá Víking Bikarmeistarar Vikings unnu auðveldan sigur á Breiöahliki í bikarkeppni HSÍ að Varmá í gærkvöld. Lokatölur 30—17 eftir að staðan í hálfleik var 19—6 fyrir Viking. I fyrri hálf- leiknum keyrðu Vikingar á fullu en i þeim siðari léku vara- menn liðsins lengstum og þá skoraði hvort lið ellefu mörk. Þeir Viggó Sigurösson og Páll Björgvinsson voru markhæstir hjá Víking með átta mörk hvor. Páll skoraði úr fjórum vitum. Árni Indriðason og Steinar Birgisson skoruðu fimm mörk hvor. Hjá UBK var Brynjar Björnsson mark- hæstur með 6 mörk. Hannes Eyvindsson skoraði fimm. Loksins sigur Loksins kom að þvi að islenzka landsliðið í borðtennis sigraði á Evrópumeistaramótinu i Wales. I gærkvöld sigraði ísland Möltu 6—1 eftir að hafa fyrr i gær tapað fyrir Portúgal og Danmörku með 7—0. Af öðrum úrslitum í C- riðlinum má nefna að Danmörk vann Wales 4—3, Guersney vann Jersey 4—2, Sviss vann Portúgal 7—0, Danmörk vann Guernsey 7—0, Sviss vann Jerseh 7—0, Noregur vann Möltu 7—9 og Wales vann Portúgal 6—1. Danmörk varð cfst i riðlinum með 8 stig. Wales hlaut 7 stig, Noregur 6 og Sviss 5 stig. Þessi fjögur lönd færast upp I 2. deild Evrópumótsins. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1979. 13 íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Y „Skýrist um helgina hvort égget verið með á Spáni” — sagði Ólaf ur H. Jónsson við DB í morgun — í gær barst HSÍ telex-skeyti f rá honum, þar sem hann tilkynnti að hann gæti ekki leikið á Spáni af persónulegum ástæðum „Það mun skýrast um helgina hvort ég get leikið með fslenzka landsliðinu í Olympiu- og B-keppninni, sem hefst á Spáni 22. þessa mánaðar — og ég hef betri von nú en f gær að þetta mál leysist. Það er rétt að ég sendi stjórn Hand- knattleikssambands íslands telexskeyti f gær, miðvikudag, þar sem ég tilkynnti að ég gæti ekki af persónulegum ástæðum leikið f keppninni á Spáni,” sagði Ólafur ítalskur sigur — og Ingimar Stenmark varð enn af sigri í svig- keppni heimsbikarsins Hinn 18 ára Leonardo David sigraði i svigkeppni heimsbikarsins i Osló í gær. Fyrsti sigur ítala í svigi þessarar keppni í tvö ár. Eftir fyrri umferðina var David fyrstur ásamt Phil Mahre, USA. Báðir fengu sama tima en heimsmeistarinn Ingemar Stenmark var þá 1 sjötta sæti. Hafði næstum fallið efst f brautinni. Hins vegar náði Stenmark langbezt- um tima i siðari umferðinni og náði öðru sæti. Aðeins 7/100 úr sek. á eftir David sem fékk samanlagt 1:29.15. Stenmark 1:29.22 og siðan kom Mahre með 1:29.31. Stenmark bætti stigatölu sfna samanlagt i keppninni. Hefur nú 144 stig en Peter Liischer, Sviss, er sem fyrr langefstur með 174 stig. I svigkeppninni er Stenmark efstur með 99 stig. Mahre hefur 91 og N eureuther 73 stig. Tottenham kaupir Tottenham keypti í gær Gordon Smith, miðvörð frá Aston Villa, fyrir 150 þúsund pund. Þá hefur Man. City keypt Barry Silkman frá Plymouth, áður C. Palace, fyrir 100 þúsund pund. Birmingham og Nottingham Forest hafa náð samkomulagi i sambandi um Trevor Francis. Forest mun greiða Birmingham milljón sterlingspund f bein- hörðum peningum. Francis fór i morgun til Nottingham til að semja um kjör sín hjá Forest. H. Jónsson, landsliðsmaðurinn kunni hjá Dankersen i Vestur-Þýzkalandi, þegar DB ræddi við hann i morgun. I gær kom skeyti frá honum, sem kom miklu róti á hugi þeirra manna, sem stjórna íslenzka landsliðinu og reyndar fleiri. „Þetta eru persónuleg mál hjá mér, sem ég get ekki skýrt frá í telex-skeytum eða í síma. Það eru ekki stór vandamál en ég gerði það ekki að gamni mínu að tilkynna HSÍ að ég gæti ekki leikið á Spáni. Ég mun gera mitt beztá til að hægt verði að leysa þessi mál og held að þetta skýrist allt saman um helgina. Meira get ég ekki sagt. Þeir hringdu til min í gær Jóhann Ingi Gunnarsson landsliðsþjálfari og Gunnar Torfason hjá HSÍ — og ég sagði þeim það sama og ég hef sagt þér. Eins og ég sagði áðan hef ég góða von um að málin leysist," sagði Ólafurennfremur. „Hins vegar er því heldur ekki að leyna að okkur hjá Dankersen hefur ekki gengið vel í síðustu leikjum — og þjálfari liðsins hefur nú miklaráhyggjur. Við eigum framundan þrjá leiki nú næstu tíu dagana og ef við fáum ekki fjögur stig úr þeim leikjum, kann svo að fara að þjálfari Dankersen og stjórn Einar Magnússon — með Viking á ný. EINAR MAG. MEÐ VÍKINGUM Á NÝ — og Sigurður Gunnarsson byrjaður að æfa „Einar Magnússon hefur æft vel með Vikingsliðinu að undanförnu og virðist hafa náð sér vel eftir uppskurðinn á fæti, sem hann gekkst undir í desember. Allar likur eru á að hann leiki með Viking i 1. deild íslandsmótsins á síðari hluta keppnistfmabilsins — eða eftir B-keppn- ina á Spáni,” sagði Hannes Guðmunds- son, stjórnarmaður í handknattleiksdeild Víkings, þegar DB ræddi við hann i gær. „Að vísu hefur ekki alveg verið gengið frá málum Einars hjá vestur- þýzka handknattleiksliðinu, sem hann lék með, Hannover, en HSl er nú í því máli. Það ætti ekki að verða nein fyrir- staða í sambandi við að Einar geti leikið með Víkingi. Þá er Sigurður Gunnarsson, ungi landsliðsmaðurinn hjá Víking, sem slas- aðist illa á fæti i leik á Akranesi um ára- mótin, byrjaður að æfa með Víking á ný. Búið að taka gipsið af fætinum og við erum bjartsýnir á, að Sigurður geti leikið með Víking á ný eins og Einar eftir B-keppnina á Spáni. Sem kunnugt er missti Sigurður stöðu sína í islenzka landsliðinu vegna meiðslanna,” sagði Hannes Guðmundsson ennfremur. Knattspyrnudómarar Aðalfundur Knattspyrnudómarafélags Reykjavíkur verður haldinn að Hótel Esju (2. hæð) í kvöld kl. 20.00. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. félagsins neiti okkur Axel Axelssyni um að fara til Spánar. Ef félagið verður í fallhættu er erfitt fyrir okkur að setja okkur upp á móti því. Tveir af þessum þremur leikjum Dankersen eru á heima- velli og þar hefur liðinu yfirleitt gengið mjög vel, svo við skulum vona, að úr þeim málum rætist og fallbaráttan þjaki ekki Dankersen,” sagði Ólafur H. Jóns- son að lokum. Ólafur H. Jónsson ereinn af sterkustu landsliðsmönnum íslands gegnum árin — ákaflega sterkur varnarmaður og snjall línumaður — og það yrði mikið áfall fyrir islenzka landsliðið ef hann getur ekki leikið á Spáni. Á þessu stigi málsins er ekki annað að gera en að vona að ntál hans leysist farsællega og hann verði sá hlekkur i íslenzka landslið- inu á Spáni sem hann var i Baltic-cup i Danmörkuádögunum. • hsím. ÓU EINARS LEIKUR EKKI í B-KEPPNINNIÁ SPÁNI — Erlendur Hermannsson valinn íhans stað Ólafur Einarsson, landsliðsmaðurinn I Spáni af persónulegum ástæðum. Sæti I fékk þessa frétt staðfesta rétt áður en kunni í handknattleiknum, hefur tilkynnt hans i landsliðinu tekur félagi hans úr blaðið fórí prcntun. aö hann geti ekki leikið I B-keppninni á | Vfking, Erlendur Hermannsson. DB | ■I ______________I--------------- EIMS- TTÆKI f KKJA 1 - i' X yndli spennuskynjari, snertirásaskiptu aöeins 6 einingar í staö 14, k kerfi, spónlagöur viöarkassi í si plasífilmu sem flest önnur tæki t með. Frábœr mynd- og tóngœði, sannfi a hagstœöra rnn- i frá Rank getum við > lægsta veröiö á aönum. arst. 22" kr. 425.500.- arst 26" f rá kr. 496.950.-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.