Dagblaðið - 13.02.1979, Page 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1979.
7
Erlendar
fréttir
Kanada:
Fengu tíu ár
fyrir þrettán
tonn af
marijuana
Tveir menn hafa viðurkennt að hafa
reynt að smygla inn til Kanada þrettán
tonnum af marijuana í júli síðastliðnum.
1 gær voru þeir dæmdir í þyngsta fíkni-
efnadóm sem felldur hefur verið í
Kanada til þessa. Hlutu mennirnir tíu
ára fangelsi hvor.
Mennirnir voru handteknir á Van-
couvereyju ásamt þrettán öðrum og
tókst að ná nær öllu því marijuana sem
smygla átti til landsins. Hinir ellefu hafa
ekki viðurkennt sig seka og er dómur
ekki fallinn í máli þeirra.
Frakkland:
Vilja meiri
tengsl við
f ranska hluta
Kanada
Raymond Barre, forsætisráðherra
Frakklands, sem ræddi við forustumenn
franskra aðskilnaðarsinna i Kanada i
gær, tilkynnti þeim að franska stjórnin
hefði mikinn áhuga á að tengjast þeim
hluta Kanada þar sem franska væri
töluð meir en verið hefur. Barre tók þó
fram að stjórn hans mundi þó algjörlega
halda sér innan þess ramma sem kanad-
ísk lögkvæðu á um.
Menn Khomeinys
traustir í sessi
— Moskva og Washington viðurkenna hina nýju stjórn Barzargans
— Baktiar sagður lifandi en í felum
Orðró'mur um að Baktiar forsætis-
ráðherra fráfarandi rikisstjórnar i Iran
hafi framið sjálfsmorð mun ekki hafa
verið á rökum reistur. Aftur á móti er
nú orðið fullljóst að Khomeiny og for-
sætisráðherra hans Bazargan hafa
töglin og hagldirnar í landinu og and-
staða gegn þeim virðist að engu orðin.
Síðustu leifar virkrar andstöðu
munu hafa verið frá lífverði keisarans
en þær sveitir munu hafa verið einna
síðastar til að hlýðnast yfirmönnum
hersins sem kvöddu alla hermenn til
búða sinna í gærmorgun.
Sovétmenn og Bandaríkin hafa
viðurkennt hina nýju stjórn og Jimmy
Carter Bandaríkjafprseti tilkynnti í
gær að stjórnin i Washington væri til-
búin til að vinna með henni.
Vonir hafa aftur vaknað um að olí-
an muni aftur fara að streyma frá Íran
á heimsmarkaðinn. Tilkynnt var í
höfuðstöðvum Khomeinys að verkföll
þau sem lamað hafa alla olíuvinnslu í
landinu um margra mánaða skeið,
mundi brátt Ijúka.
Strangtrúaðir Shitar i Teheran steyta hnefana upp til formælingar á herþotum,
sem fljúga yfir Teheran í sama mund og mikil ganga og fundur fór þar fram skipu-
lagður af stuðningsmönnum Khomeinys.
Dr. Mehdi Ba/argan, hinn nýi forsætisráðhcrra íran, ávarpar hóp stuðnings-
manna Khomcinys.
Svo virðist sem fyrrum stuðnings
ntenn keisarans innan hers og lögreglu
keppist nú við að koma sér i mjúkinn
hjá nýju ráðamönnunum. Nokkuð
mun hafa verið um handtökur fyrrum
yfirmanna i báðum liðum. Fyrrum
yfirmaður Savak, hinnar illræmdu
leynilögreglu keisarans, og fyrrum for-
sætisráðherra írans ásökuðu hvorn
annan opinberlega í gærkvöldi fyrir að
bera ábyrgð á illverkum þeirrar stofn-
unar.
Talið er að Teheran hafi ekki verið
fyrr komin í hendur fylgismanna
Khomeinys, sem fögnuðu mjög á
götum borgarinnar, en Bazargan hinn
nýi forsætisráðherra hafi snúið sér að
viðræðum við áhrifamenn bæði innan
hersins og á öðrum sviðum.
Dr. Mehdi Bazargan hinn nýji for-
sætisráðherra er 73 ára gamall. Hefur
hann lengi verið þátttakandi i stjóm-
málum í Íran. Hann gegndi áður starfi
forstjóra rikisolíufé'ags Irans. Bazarg-
an hefur lengi ve: ð andstæðingur
keisarans.
Líkur fyrir þvi að keisarinn snúi
nokkurn tíma aftur til Iran virðast nú
orðnar harla litlar. Vitað er að hann
dvelst enn i Marokkó ásamt fjölskyldu
sinni og hefur að sögn fylgzt náið með
gangi mála í fyrra riki sinu.
Landsins stærsta
bfla- og bátasala
Líttu til okkar
Opið 9-7
/ Sýningahöllmni
Flugmenn - flugnemar - flugáhugamenn!
Sameigin/eg ÁRSHÁ TÍD VVFÍ
og flugskólanna á Reykjavíkurflugvelli veröur haldin föstudaginn 16.
febrúar og hefst kl. 19 í Víkingasal á Hótel Loftleiðum.
Miðar fást hjá flugskólunum og í flugstöðinni.
Flugtak hf. - Flugskóli Helga Jónssonar - Vélflugfélag Islands