Dagblaðið - 03.04.1979, Page 1
frjálst,
úháð
dagblað
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTII l.-AÐALSÍMI 27022.
hvati að morðinu
—Sambýfískona hins myrta úrskurðuð í30 daga varðhald
Þráinn H. Kristjánsson, 36 ára
gamall verkámaður til heimilis að
Hverfisgötu 34, í Reykjavík hefur
játað að hafa banað Svavari Sigurðs-
syni strætisvagnabílstjóra með
eldhúshníf í íbúð Svavars í sama húsi.
Var Þráinn í gær úrskurðaður i 60
daga gæzluvarðhald og gert að sæta
geðrannsókn á tímabilinu.
Sambýliskona Svavars, Lóa
Valdimarsdóttir, 59 ára gömul, var
úrskurðuð í allt að 30 daga
gæzluvarðhald. Kafðist rannsóknar-
lögreglan gæzluvarðhaldsúrskurðar
yfir Lóu þar sem frásögn hennar ber
ekki saman við frásögn hinna er í
íbúðinni voru þá er verknaðurinn var
framinn. Er hugsanlegt talið, að hún
eigi á einhvern hátt aðild að málinu
beint eða óbeint, en með öllu
ósannað.
Svo hagar til að Hverfisgötu 34,
að tvær íbúðir eru í rishæð hússins.
Hafði Svavar hina stærri á leigu og
þar bjó einnig sambýliskona hans.
Minni íbúð á hæðinni hafði Þráinn
H. Kristjánsson á leigu. Bað og
salerni fyrir íbúðirnar er sameiginlegt
og því samgangur meiri milli fólks en
almennt gerist þó íbúðir séu á sömu
hæð. Er talið hugsanlegt að einhverr-
ar skýringar sé að leita í þessu.
Salernið er inni i þeirri ibúð er Svavar
leigði og þurfa því íbúar minni
íbúðarinnar að hafa aðgang að
henni.
Ennþá liggur ekkert fyrir um
orsök hins hryllilega verknaðar, en
fyrstu tilgátur manna eru að af-
brýðisemi spili þar inn í.
Á sunnudaginn, er ódæðið var
unnið, var gleðskapur í íbúð Svavars.
Voru þar auk hans og Lóu sambýlis-
konu hans Þráinn H. Kristjánsson og
45 ára gömul kona sem var gestur
Þráins og mun hafa verið það tíðum.
Skörp orðaskipti munu hafa farið
fram en þeir Svavar og Þráinn síðan
gengið afsíðis. Svavar kom ekki
aftur.
Það var svo ekki fyrr en um það
bil 5 tímum síðar að lögreglan var til
kvödd. í millitíðinni hafði Þráinn
haft samband, og það tvívegis, viðat-
vinnuveitanda sinn og skýrt honum
frá hvað skeð hafði. Var það at-
vinnuveitandinn sem í lögregluna
hringdi.
Eins og fram kom í blaðinu í gær
var lík Svavars afar illa leikið. Voru
skurðir og stungur víða á kviði og á
hálsi. Má fullvíst telja að Svavar hafi
látizt þegar við þessar stungur og
ristur.
í gær voru skipaðir réttargæzlu-
menn þeirra tveggja er í varðhald
voru úrskurðaðir. Páll Amór Pálsson
er réttargæzlumaður Lóu, en örn
Clausen réttargæzlumaður Þráins H.
Kristjánssonar.
-ASt.
Svavar Sígurösson, bifreiðastjórí, var
á 57. aldursári. Hann var áður
kvæntur og átti uppkomin börn.
Rektors-
kjör í dag
— viðtöl við Sigur-
jón Björnsson
og Guðmund
Magnússon bls. 8
Nærri sjö
milljarða
króna halli
a rikissjoði
— sjá bls. 5
Rannsókn
á Aðal-
verktökum
— samrýmist ekki
stjórnarskránni
segja sjálfstæð-
is-ogfram-
sóknarmenn
— sjá bls. 5
•
Að þegja og
éta skötu-
fótinn
— sjá kjallaragrein
Péturs Péturs-
sonará
bls. 10-11
Gæti sigltmeð
lOmannaáhöfn
- sjá bls. 9
5. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 1979 - 79. TBL.
'Lítið er ungs manns gaman.
Ennþa eitt olíu-
félagið á
islenzkt fyrirtæki hefur aö undan-
förnu leitað fyrir sér um kaup á olíu i
Mið-Austurlöndum, meðal annars í
íian, Dagblaðið hefur áreiðanlegar
upplýsingar um þessa umleitun og
einnig hitt, aö útflutningsaðilar I að
minnsta kosti tveim oliurikjum hafa
svarað fyrirspurnum jákvætt Hafa
þeir ekki talið neitt ti! lyrirstöðu
slikum viöskiptum af sinni háltu.
Hið íslenzka fyriuæki iiefur einnig
leitaö eftir þvi að fá hreinsaöa þá hrá-
oliu-, sem þarna kynni að verða
keypt. Olíuhreinsunarstöðvar meðal
annars í Portúgal og í Hollandi, hafa
látið í ljós áhuga sinn á því að taka að
sér hreinsun á hráolíu, sem kynni að
verða keypt.
Verðið á þeirri oliuj sem spurt
hefur veriö um, yrði algert samnings-
atriði, sem ekki yrði bundið þvi verð-
lagi, sem myndast í Rotterdam, að
öðru leyti en því, sem það stæði i
sambandi við verðákvörðun OPEC-
Islandi?
ríkjanna. Þannig væri hugsanlegt að
nýta þann sveigjanleika, sem mis-
munandi verð einstakra oliuríkja
gefur kost á.
Athugun sú, sem gerð hefur verið,
miðast við litla samninga, jafnvel á
islenzkan mælikvarða, og þá einnig
til skamms tíma. Til greina kemur að
semja um verð á hverjum farmi olíu,
sem keyptur yrði. Réðist þá verðiö
nánast af dagverði útflutnings á
jarðoliu eða hráolíu á hverjum tíma.
Ennþá hefur ekki verið kannað,
hvort til greina kæmi að semja við
hin islenzku olíufélög um dreifingu
með afgreiðslukerfi þeirra hér á
landi. Enda er áðurgreind athugun
enn á algeru byrjunarstigi. Af þeirri
ástæðu er ekki unn' tð “reina frá
þvi, hvaða aðilai íslenzT r hafa
þreifað fyrir sér um hugsanlcg oliu-
kaup og olluinnflutning fyrir íslenzk-
an neytendamarkað.
-BS.
Varð ástfangin
af myndarlega
Suðurríkja-
manninum
DB-mynd Magnús Hjörleifsson.
V
— sjá bls. 7
in hugsanlegur
Afbtýðisemi tal-